Morgunblaðið - 17.12.1957, Page 10
10
MORCIJTS RLAÐIÐ
Þriðjudagur 17. desember 1957
tTtg.: H.í. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfus Jónsson.
Aðaintsljorar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Öla, simi 33045
Auglýsingar: Arni Garðar Knstinsson.
Ritstjórn: AðaXstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480
Askriftargjald kr. 30.00 á mánuði innaniands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið.
FRAMKOMA FJÁRMALARAÐHERRA
ÞEIR, sem lengi hafa fylgzt
með hegðun Eysteins
Jónssonar, veittu því at-
hygli, að áður fyrri lagði hann
ríka áherzlu á það, að reyna að
skapa þá skoðun, að orðum hans
mætti treysta. Hann segði ekki
meira, en hann væri maður tii
að standa við. Einmitt af þeim
sökum er merkileg sú breyting.
sem nú er orðin á framkomu
hans.
Áberandi skortur hans á hátt-
vísi er mál fyrirsig. Þó er það
ærið íhugunarefni, að sjálfur
fjármálaráðherrann skuli gera
sig sekan um slíka ósmekkvísi og
hann gerði í hófi bæjarstjórnar a
Akranesi nú fyrir skemmstu
Hann var boðinn þangað sem
bankaráðsmaður Framkvæmda-
bankans, en notaði tækifærið,
sem honum gafst til að tala, til
að hefja kosningaáróður fyrir
bæjarstjórann á Akranesi, sem er
flokksbróðir hans. Með því móti
blandaði ráðherrann sér á óvið
urkvæmilegan hátt í kosninga-
baráttu í kaupstað, þar sem hann
var gestkomandi. Gesturinn fór
að segja gestgjöfunum til um,
hvernig þeir ættu að haga sínum
heimamálum.
Þá var með endemum upp-
hlaup Eysteins á Alþingi, þegar
hann kallaði fram í ræðu þing-
inanns, að ekki borgaði sig fyrir
hann að tala. Fjármálaráðherr-
ann vill nú eftir á láta líta svo
út, sem engin hótun, allra sízt
um fjárkúgun, hafi verið í orð-
um hans. Skiljanlegt er, að ráð
herrann vilji sem allra minnst
gera úr þessum orðum sínum. En
orðin standa óhögguð, þangað ti1
ráðherrann biður opinberlega af-
sökunar á fruntaskap sínum.
★
Verst af öllu er þó, að Ey-
steinn Jónsson er nú æ ofan í
æ staðinn að beinum ósannind-
um og blekkingum á Alþingi ís-
lendinga.
í sumar hélt hann því blákalt
fram, að tilhæfulaust væri að
kostur hefði verið á Sogsláni
vorið 1956. Þó er upplýst og vit
að, að þá átti ríkisstjórnin færi
á að fá slíkt lán, ef samtímis
hefði verið samið um rafmagn
til varnarliðsins á Keflavíkur
flugvelli um nokkurra ára bi:.
Þá var talið, að slík tengsl Sogs-
láns við dvöl varnarliðsins hér,
kæmu ekki til greina, og þess
vegna féll málið niður.
Eins hefur Eysteinn Jónsson
neitað því, að Ólafur Thors hafi
sagt rétt frá um möguleika til
útvegunar stórláns í Þýzkalandi
um þetta leyti. Eysteinn Jónssoi.
veit þó, að í Stjórnarráðinu eru
gögn fyrir því, að Ólafur hefur
í engu ofmælt, heldur einungis
sagt frá staðreyndum.
Ofan á alrangar fullyrðingar
sínar um þetta, hefur fjármála
ráðherrann í umræðunum á Al-
þingi undanfarna daga keppzt
við að bæta öðru ámóta.
★
Eitt skiptið fullyrti Eysteinn
t. d., að Sjálfstæðismenn hefðu
verið ásáttir með, og ekkert haft
við að athuga, að ríkisstjórnin
úthlutaði atvinnubótafé á meðan
þeir voru í ríkisstjórn, og teldu
fyrst nú, að þessi háttur væri
varhugaverður. Sannleikurinn er
sá, að Sjálfstæðismenn lögðu á
það mikla áherzlu einmitt í tíð
fyrrverandi stjórnar, að þetta
verkefni væri fengið 5 manna
UTAN UR HEIMI
5 lögreglubílar og Gene Tierney
Óloglegar fílaveiðar í Kenya
HIN ÞEKKTA kvikmyndastjarna Og árangurinn hefir orðið tölu-
nefnd, sem kosin væri með hlut-
fallskosningu í Sameinuðu Al-
þingi. Fram var borið stjórnar-
frumvarp, þar sem þetta ákvæði
var m. a. í, og lengst af var ekki
vitað annað en báðir þáverandi
stjórnarflokkar væru frumvarp-
inu fylgjandi. En á síðustu
stundu stöðvaði einmitt Eysteinn
Jónsson framgang málsins.
Astæðan var sú, að hann vildi
alls ekki fallast á að nefnd þann-
ig kjörin fengi þetta verkefm.
Hann heimtaði, að nefndarskip-
uninni yrði þannig háttað, að
kommúnistar fengju þar engan
fulltrúa. Þegar Sjálfstæðismenn
stóðu fast á því, að lýðræðis-
reglur skyldu gilda um þetta,
stöðvaði Eysteinn málið.
í annað skipti hélt Eysteinn
Jónsson því blákalt fram, að það
væri síður en svo einstakt, að
fjárlög væru jafnsíðbúin sem
nú, þótt afgreiða ætti þau fyrir
jól. Nefndi hann sem dæmi því
til sönnunar, að hinn' 12. des.
1955 hefði nefndaráliti verið
útbýtt. — Hann gleymdi að
geta þess, að þá var einmitt ráð-
ið, að meðferð málsins skyldi
ekki lokið fyrir jólin, heldur
geymd fram yfir nýjár, enda var
frumvarpið ekki afgreitt fyrr en
um mánaðamótin janúar-febrúar.
í þriðja skiptið neitaði Ey-
steinn Jónsson gersamlega, að
nokkurt samband væri milli lán-
töku ríkisstjórnarinnar nú og i
fyrra og varnarmálanna. Sjálf-
ur veit Eysteinn Jónsson þó
manna bezt hið sanna um þessi
efni. Fyrir liggja ótvíræðar yfir-
lýsingar eins stjórnarblaðsins,
Þjóðviljans, um þetta. Nú síðasi
hefur þingmaður eins stjórnar
flokksins, Benedikt Gröndaí,
skrifað sérstaka grein til að hæla
Atlantshafsbandalaginu og fram-
kvæmdarstjóra þess, Spaak, síð-
an hann tók við, fyrir góða fram-
göngu og fyrirgreiðslu um lán-
veitingar hingað nú og í fyrra.
Hér eru aðeins nefnd fá dæmi
þess skorts á jafnvægi og sann-
sögli, sem um þessar mundir ein-
kennir framkomu Eysteins Jóns-
sonar. Von er að bæði andstæð-
ingar og fylgismenn ráðherrans
spyrji, af hverju hafi svo yfir
hann þyrmt.
Skiljanlegt er, að Eysteinn
finni til ráðleysisins, sem nú
mótar afgreiðslu fjárlaganna
Þótt Alþingi eigi að afgreiða þau
til fuilnustu í þessari viku, hefur
hann enn ekki skýrt þingheimi
frá því, hverjar megintillögur
hans um þau efni séu. Tillögur,
sem skylda hans var að hafa til
jafnskjótt og frumvarpið var
lagt fram.
Þeim, sem hefur hælt sér sjálf-
ur og látið hæla sér svo mjög
fyrir varlega fjármálastjórn, eins
og Eysteinn hefur gert, er þessi
frammistaða mikið áfall.
Hlutur hans verður þó enn
verri, þegar vitað er, að sú af-
greiðsla, sem fyrirhuguð er, brýt-
ur gersamlega í bága við það,
er Eysteinn hélt fram um fjár-
mála- og efnahagsástandið um
það bil sem Alþingi kom saman.
Allt hlýtur þetta að raska hug
arró fjármálaráðherrans, en þó
afsakar það engan veginn pá
framkomu, sem hann nú daglega
gerir sig sekan um.
Gene Tierney, sem eitt sinn vann
Oscarverðlunin í Hollywood, er
nú að taka upp þráðinn að nýju
í kvikmyndaheiminum, en hún
hefir undanfarin tvö ár verið á
heilsuhæli fyrir taugaveiklað
fólk. Hún giftist Oleg Cassini,
greifa og tízkuteiknara, en hjóna
band þeirra var mjög óhamingju-
samt og þau skildu. Síðan hugð-
ist hún giftast í annað sinn Aly
Khan, en hann • kvæntist fyrir-
vararlaust sýningarstúlku í Eg-
yptalandi. Um sama leyti varð
dóttir kvikmyndaleikkonunnar
veik, og allt þetta varð til þess,
að hún féll saman og var flutt
illa haldin á hressingarhæli fyr-
ir taugaveiklað fólk. Fox-kvik-
myndafélagið ætlar nú að gefa
henni færi á að leika stórt hlut-
verk í kvikmynd.
Á syllu utan við glugga á 12 hæð.
Dag nokkurn fyrir skömmu
óku fimm lögreglubílar með ofsa
hraða og ískrandi væli að bú-
stað Gene í Hollywood, en hún
býr á tólftu hæð. Kvikmyndaleik
konunni varð bilt við.
Nábúakona leikkonunnar hafði
séð Gene standa á syllunni utan
við glugga á 12. hæð. Þar sem
nábúakonan vissi, að Gene var
nýkomin heim frá hressingar-
hæli, hélt hún, að Gene ætlaði
að fremja sjálfsmorð og hringdi
þegar á lögregluna. „Nei, þetta
gengur nú brjálæði næst“, sagði
leikkkonan við lögreglumennina,
sem komu lafmóðir upp á tólftu
hæð. „Ég var aðeins að fægja
glugga .. . .“
—o—
f Kenya standa yfir erjur
milli veiðimanna, sem stunda ó-
löglegar fílaveiðar og brezkra
yfirvalda. Leyniskytturnar drepa
árlega þúsundir fíla til að verða
sér úti um filabein. Fjölmargir
leiðangrar á vegum stjórnarinnar
hafa farið inn í frumskóginn bún-
ir hvers konar tækjum, og hafa
þeir einnig notið aðstoðar leitar-
flugvéla og fallhlífarhermanna.
verður, því að tekizt hefir að
handtaka fjölda leyniskytta. En
nái þeir ekki enn betri árangri
í náinni framtíð, má búast við,
að fílastofninum sé hætt við út-
rýmingu í Kenya. Fyrir skömmu
fundu leiðangursmenn um 1200
fílaskrokka á tiltölulega litlu
svæði.
Eitraðar byssukúlur og gildrur
Þessar ólöglegu veiðar eru að-
allega stundaðar af stríðsmönn-
um af Wakamba og Waliungulu-
kynþáttunum. Sé um veiðar með
frumstæðum vopnum að ræða,
hefir ekki verið tekið hart á
þessu lögbroti, en hafi verið not-
aðar eitraðar byssukúlur eða
gildrur, er engin vægð sýnd. Að
baki leyniskyttunum eru vel
skipulögð, víðtæk. alþjóðasam-
bönd, sem borga leyniskyttunum
tiltölulega lógt verð fyrir fíla-
drápin, en selja fílabeinið við
háu verði í Mombasa og Indlandi.
—o—
Þessar ólöglegu veiðar stóðu
með mestum blóma, meðan Mau-
mau-menn óðu uppi, og brezk
yfirvöld höfðu um annað að
hugsa. En leyniskytturnar halda
samt veiðunum áfram eftir sem
Gen 'Fierny — /œgði giiigga.
áður. Það auðveldar þeim lög-
brotin, að ræktuð svæði i Ken-
ya hafa verið mikið aukin, og
jarðeigendum hefir verið leyft
að skjóta alla fíla, sem reika um
landsvæði þeirra — og þetta á-
kvæði hefir verið túlkð mjög
frjálslega.
Sýrland
lega háð lússam
Greinin í Wall Street Journal
er rituð af Philip Geyelin, eftir
segir Wall Street Journal
ÞAÐ er nú. álit bandariskra stjórnmálaritara, að með viðskiptasamn-
ingi þeim sem Sýrlendingar gerðu nýlega við Rússa, sé Sýrland orðið
endanlega rússneskt leppríki. Úr því sem nú er komið geti Sýrlend-
mgar ekki snúið við á óheillabraut sívaxandi rússneskra áhrifa. Fyr-
ir fáeinum dögum ritaði bandaríska blaðið Wall Street Journal ýtar-
iega grein um Sýrlandsmálin og kemst þar að þeirri niðurstöðu, að
með viðskiptasamningnum séu Sýrlendingar hnepptir í rússneka
ijötra.
nókvæma athugun á samnings-
atriðum. Hann bendir þar fyrst
á það, að sýrlenzkir stjórnmála-
menn hafi rætt um það, að hin
rússnesku lán, sem ákveðin eru
til sýrlenzkrar nýsköpunar séu
mjög hagstæð, og telja þeir eink-
um til að vextir séu mjög lágir,
eða aðeins um 2%.
Yfirlýsingar stjórnmála-
mannanna eru þó blekking.
Því að svo er ákveðið, að hver
rúbla lánsins skuli reiknuð
sem fjórðungur úr dollar, en
það er allt of hátt, því að
á alþjóðamarkaði gjaldeyris
er rúblan aðeins seld á áttunda
hiuta úr dollar. Síðan er
ákveðið að hið rússneska lán
skuli greitt í liörðum gjald-
eyri. Þannig hagnast Rússar
stórlega á láninu,
Þá hafa sýrlenzkir stjórnmála-
menn einnig hampað því að
Rússar eru skuldbundnir til að
selja vörur til framkvæmda á
heimsmarkaðsverði. Þannig segja
þeir tryggt að verðið muni verða
lágt. Engin trygging felst þó í
því segir Geyelin, því að vörurn-
ar má ekki kaupa nema í Rúss-
landi og þessar rússnesku vörur
eru ekki í framboði ó heims-
markaðnum.
Höfundur greinarinnar seg-
ir að nú muni þess ekki
skammt að bíða að miklar
framkvæmdir hefjist í Sýr-
landi með hinum rússnesku
lánum. Það er ekki sérlegur
vandi að hefja nýsköpunina,
en að ljúka henni, það er erfið
ara og allan þann sjö ára tíma,
sem hún á að standa yfir liafa
Rússar Sýrlendinga í heljar-
klóm.
Er bókmenntaverðlaun Nobels höfðu verið afhent fyrir skömmu,
og var þá að vanda efnt til mikillar veizlu í Ráðhússalnum í
Stokkhólmi. Á myndinni eru Nóbelsverðlaunahafinn í ár Albert
Camus og tvær ungar og fagrar stúlkur, sem eru augljóslega
mjög hrifnar af franska rithöfUndinum.