Morgunblaðið - 28.01.1958, Side 3
Þriðjudagur 28. januar 1958
MORCTJNBLAÐ1Ð
3
Kadar forsætisráöh. Ungverja-
lands segir af sér
Verður áfram framkvæmdastjóri
kommúnistaflokksins, en keppinaufur
hans tekur við stjórnarforustu
Búdapcst og Vínarborg 27.
jan.: — Janos Kadar forsæt-
isráðherra Ungverjalands
baðst í dag íausnar. Hanír
mun þó áfram halda stöðu
sinni sem framkvæmdastjóri
kommúnistaflokksins. — Al-
þýðuþing Ungverjalands sara
þykkti í dag tillögu Kadars
um að Ferenc Munnich vara
forsætisráðherra tæki við
st j órnarf orustu.
Ætlar aS „einbeita“ sér
Kadar afhenti forseta landsins
lausnarbeiðni sína snemma í morg
<un( mánudag). Síðan gekk hann
til þinghallarinnar og gerði þing-
heimi grein fyrir ákvörðun sinni.
'Hann kvað ástæður fyrir Lausnar-
beiðni sinni þær, að hann óskaði
að einbeita sér meir að störfum
tfyrir flokkinn. Það væri, of mikið
verk fyrir hann að vera bæði for-
eætisráðherra og framkvæmda-
'Stjóri flokksins.
Keppinautarnir
Ekki munu allir telja þá skýr
íngu nægjanLega, því að almennt
ihefur verið talið, að eftinmaður
•Kadars, hinn 71 árs gamli Mun-
nich væri hættulegur keppinautur
lians um hylli hinna rússnesku
•herra.
Janos Kadar tók þátt í mót-
spyrnuhreyfingu Ungverja gegn
•Þjóðverjum á stríðsárunum og
varð þá að sitja í fangelsi þeirra.
•Hann var einn af æðstu foringjum
•ungverskra kommúnista. 1948
varð hann innanríkisráðherra í
einræðisstjórn kommúnista. En
samherji hans Rakósi lét hand-
■taka hann og varpa í fangelsi,
■fyrir títóisma. Þegar Imra Nagy
var skamma stund forsætisráð-
■herra sumarið eftir dauða Stalins,
lét hann leysa Kadar úr haldi.
Sveik þjóS sína
Eftir uppreisn Ungverja síðari
hluta október var Kadar gerður
framkvæmdastjóri kommúnista-
flokksins. Átti hann í fyrstu gott
samstarf við Nagy um frelsis-
stjórn Ungverja, en þann 4. nóv-
ember 1946, sveik hann þjóð sína
Oig gekk yfir í herbúðir Moskvu-
valdsins, meðan rússneskir skrið-
drekar létu skothmð rigna yfir
Búdapest.
Janos Kadar baðst lausnar á
ínánudagsniorgun.
Enginn póshir
í 10 daga
STYKKISHÓLMI, 21. jan.:
Frá áramótum hefir tíðarfarið
verið mjög óstöðugt og rysjótt
hér við Breiðafjörð. Sjóróðrar
hafa því verið fáir héðan úr
Stykkishólmi og samgöngur allar
mjög erfiðar. Leiðin til Grundar-
fjarðar er algerlega lokuð og
sama er að segja um Skógar-
strönd í Dali, þar fer nú póstur
inn á hestum og er lengi í ferð
um.
Kerlingaskarð hefir verið mjög
erfitt og ófært á köflum. Nú er
verið að moka svo að bifreiðarnar
komist suður. Póstur hefir ekki
borizt frá Reykjavík í sl. 10 daga,
enda samgöngur á sjó stopular
og engar sem stendur. M. b. Bald
ur er ennþá í viðgerð á Akranesi
og óvíst ennþá hvenær hann get
ur hafið ferðir á ný.
Símasamband hefir verið mjög
erfitt í janúar, línur slitnað í
óveðrunum og oft þurft að senda
út á línurnar til viðgerðar.
-- Á. H.
Peron verSur að
flýja Venezuela
Juan Peron, fyrrverandi for-
seti Argentínu, sem undanfar-
ið hefur dvalizt í útlegð í Vene
zuela mun yfirgefa landið á
þriðjudaginn. Með falli Jimen-
ez, einræðisherra Venezuela,
er úti um það skjól Perons.
Hann hefur orðið fyrir mikl-
um árásum í Venezuela eftir
byltinguna og múgur manns
hefur reynt að brjótast inn til
lians í þeim tilgangi að ná sér
niðri á honum. Hann hafði
gefið öryggislögreglu Jimenez
góð ráð um hvernig ætti að
handleika og útrýma pólitísk-
um föngum.
Sýslunefndar-
mannskosning
í Stykkisliólmi
Við sýslunefndarmannakosn-
ingu í Stykkishólmi hlaut Sigurð
ur Ágústsson alþingismaður, fram
. bjóðandi Sjálfstæðismanna, rúm
| 300 atkvæði. Frambjóðandi stjórn
I arflokkamanna, Gunnar Jónatans
I son hlaut hins vegar 137 atkv.
Bússar standa í veai tyrir
triðsamietfri iausn
Gerhardsen svarar tveimur bréfum
Bulganins
OSLÓ 27. jan. (NTB). — Á
laugardaginn var sendi Einar
Gerhardsen forsætisráðherra
Norðmanna, bréf til Bulgan-
ins, sem fól í sér svar við
tveimur bréfum þess síðar-
nefnda.
Hindrunin
í þessu bréfi segir Gerhardsen,
að máske sé það nú ein helzta
hindrunin fyrir friðsamlegri
lausn deilumálanna, að Rússar
slitu afvopnunarviðræðunum. —
Það er lífsskilyrði fyrir Evrópu-
þjóðirnar, að hægt sé að ná ein-
hverjum árangri til lausnar deil-
unni um afvopnun. Þess vegna
vonar norska stjórnin, að Sovét-
ríkin sjái sér fært að hefja að
nýju viðræður í avopnunardeild
Sameinuðu þjóðanna.
Nýtízku vopn
Gerhardsen minntist einnig
nokkuð á eldflaugarvopn, sem
Bulganin hafði mjög varað hann
við. Um það segir hinn norski
forsætisráðherra: Eldflaugar sem
draga stutt verða nú að teljast
meðal eðlilegra og nýtízkulegra
vopna til varnar hverju landi.
Það væri því aðeins hægt að fella
þau niður í landvörnum ríkjanna,
ef hægt væri að komast að al-
mennu samkomulagi um af-
vopnun og bann við notkun lang-
drægra sem stuttdrægra flug-
skeyta.
Ósanngirni Rússa
— Ég verð að telja, að það sé
ósanngjarnt hjá yður að gagn-
rýna að Norðmenn fái til sín
vopn, sem aðeins eru ætluð til
varnar gegn árásum yfir landa-
mæri Noregs.
Varðandi tillögu Bulganins um
að koma á fót í Norður-Evrópu
sérstöku svæði, þar sem bannað
verði að geyma kjarnorkuvopn
eða hafa eldflaugastöðvar, segir
Gerhardsen.
— Það hefur vakið furðu í
Noregi, að þér skulið nefna slíkt
vopnleysi og varnarleysi Norður-
landa, án þess að þér minnist
einu orði á að slíkt hið sama
vopnabann skuli gilda um þann
hluta Norður-Evrópu, sém er inn
an rússnesku landamæranna.
NATO tryggir friðinn
Gerhardsen lýsir þeirri skoð
un sinni skýrt í bréfinu til
Bulganins, að Norðmenn séu
aðilar að Atlantshafsbanda-
laginu vegna þess að það
tryggi Vestur-Evrópu-þjóðum
frið. Hann bendir á það, hve
einlægur friðarvilji hafi komið
fram á síðasta ráðherrafundi
NATO.
Ankara-ráðstefnan hafin
Ankara 27. jan. — Einkaskeyti frá NTB/Reuter.
Ráðherrafundur Bagdað-bandalagsins hófst í dag I Ankara, höf-
uðborg Tyrklands. Var fundurinn settur fyrir opnum dyrum með
því að fulltrúar hinna ýmsu ríkja fluttu ávörp. Næstu þrjá daga
verða lokaðir fundir, þar sem ráðherrarnir taka til meðferðar álit
hermála- og efnahagsnefnda Bagdað-bandalagsins.
Chou hafnar nóðunar-
beiðni mæðranna
PEKING, 24. jan. (Reuter) — Chou En-lai, forsætisraðherra Kina,
hafnaði í dag ósk þriggja bandarískra kvenna um að synir þeirra
sem sitja í fangelsi í Kína verði látnir lausir. Kom neitun ráð-
lierrans konunum á óvart, því að af framkomu kínverskra stjórn-
valda að undanförnu voru þær farnar að vona að synirnir yrðu
leystir úr haldi.
Konurnar þrjár komu til Kína
7. janúar s. 1. Höfðu þær fengið
fararleyfi bæði hjá bandarískum
og kínverskum yfirvöldum. Syn-
ir þeirra voru fyrir tveimur ár-
um dæmdir, tveir í ævilangt
fangelsi og einn í 20 ára fangelsi
fyrir njósnir.
Var för kvennanna heitið til
Kína til að hitta syni sína og
beiðast þess af kínverskum yfir-
völdum að þeim yrði gefið
frelsi. Þær hafa fengið að hitta
syni sína sjö sinnum í fangelsinu
og var framkoma kínverskra
yfirvalda mjög vingjarnleg.
í dag heimsótti varaforseti
kínverska Rauða krossins kon-
urnar í hótelherbergi þeirra í
Peking. Hann tilkynnti þeim,
að hann hefði meðferðis bréf
frá Chou En-lai forsætisráð-
herra, sem væri svar við náð-
unarbciöni fanganna. Kon-
urnar urðu í fyrstu mjög eft-
irvæntingarfullar, en er vara-
forsetinn hafði lesið nokkrar
setningar skildu þær að náð-
unarbeiðninni hafði verið al-
gerlega hafnað. Kom það kon-
unum mjög á óvart og lá nærri
að þær fengju taugaáfall, því
að öll von virðist úti um að
sonum þeirra verði bjargað.
Komurnar fara flugleiðis frá
Kína á morgun.
Eitt aðalverkefni þessa fund-
ar verður að reyna að varpa
nokkru Ijósi yfir markmið Rússa í
nálægum Austurlöndum og hvaða
aðferðum þeir beita. Þá verður og
rætt um að styrkja varnir banda-
lagsins með eldflaugastöðvum.
Ræða sú, sem John Foster Dul-
les utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna flutti við þetta tækifæri, hef-
ur vakið athygli. Þar beindi hann
þeirri aðvörun til Rússa, að þeir
skyldu láta fimm þátttökuríki
Bagdað-bandalagsins í friði. Það
væri víst að þessar þjóðir myndu
sameiginlega neyta allra ráða til
að vernda sjálfstæði sitt.
Fundurinn í Ankara mun
standa í fjóra daga.
Sjállstæðisflokkurinn er
sfærsti flokkurinn í Hafnarfirði
í s. 1. 32 ár liefur Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði verið
stærsti flokkur bæjarfélagsins þegar kosið hefur verið til
bæjarstjórnar.
Nú hefur orðið á þessu breyting í fyrsta skipti. í kosn-
ingunum s. 1. sunnudag hlaut framboðslisti SjálfstæðisflokKs
ins 1360 atkvæði, en listi Alþýðuflokksins 1320 atkvæði.
Hér er því um merkileg straumhvörf að ræða. Hafnfirö-
ingar hafa glatað trausti á Alþýðuflokknum. Sú þróun sem
hafin er, mun ekki stöðvast. Sjálfstæðisflokkurinn er nú
stærsti flokkurinn í Hafnarfirði. Alþýðuflokkurinn er kom-
inn þar á örlagaríkt undanhald.
smsniMR
Vantraustsyfirlýsing á
ríkisstjórnina
Kosningarnar í fyrradag urðu
stórsigur fyrir Sjálfstæðismenn,
en á öðrum stað í blaðinu er gerð
grein fyrir niðurstöðum kosning-
anna, sem sýna þetta svo ljóst
sem verða má. Það sem setur
svip sinn á þessi úrslit, eru þau
mótmæli, sem í þeim felast gegn
öllu atferli vinstri stjórnarinn-
ar. Úrslit kosninganna, þegar
Iitið er á þær í heild, fela í sér
skýlausa kröfu um að ríkisstjóm-
in segi þegar í stað af sér, rjúfi
þing og efni til nýrra kosninga.
Hér var það rödd íslenzks al-
mennings, sem talaði. Það er
ljóst, að mikill fjöldi manna, sem
áður hafa kosið aðra stjórnmála-
flokka, fylkti sér nú um Sjálf-
stæðisflokkinn, sem eina and-
stöðuflokk hinnar gulu ríkis-
stjórnar. Úrslitin eru vantraust á
ríkisstjórnina — vantraust sem
hún getur ekki gengið fram hjá,
fremur en vantraustsyfirlýsingu,
sem samþykkt væri á sjálfu Al-
þingi. Fjöldi af þeim hermönn-
um, sem nú lögðu til orrustu með
Sjálfstæðisflokknum hafa áður
verið óþekktir í röðum hans. Hér
var það „áhlaup hinna óþekktu
hermanna", sem gerði sigur
flokksins þegar á heildina er litið,
SVO stóran, sem raun ber vitnL
Kosningahömlunum
svarað
Það sást glöggt á kosningunum
í Reykjavík, að kosningahömlurn
ar, sem lögleiddar voru fyrir
jólín, og áttu að vera vopn í hönd
um stjórnarfolkkanna, snerust
gegn þeim sjálfum. Tilgangurinn
var að gera Reykvíkingum erfið-
ara fyrir að neyta kosningaréttar
síns. Þessu tilræði svöruðu Reyk-
víkingar með því að fjölmenna
á kjörstaðina, eins og raun varð á.
Kosningahömlurnar voru ráðn-
ar af illum huga og fór hér eins
og svo margsinnis fyrr og síðar
í sögunni, að það sem stofnað er
til af illvilja og með ofbeldi,
kemur að lokum harðast niður
á-þeim sem slíku beitir.
Tvætr Sjálfstæðiskonur
í bæjarstjórn
Tvær konur náðu kosningu af
lista Sjálfstæðismanna, þær frú
Auður Auðuns og frú Gróa Péturs
dóttir. Engin kona situr í bæjar-
stjórn sem fulltrúi nokkurs af
liinum flokkunum, enda voru
framboðslistar þeirra þannig úr
garði gerðir, að þær konur, sem
á þeim voru, höfðu enga von
um kosningu.
Konur í Reykjavík munu meta
það að verðleikum, að stærsti
flokkurinn skipaði konum þann-
ig í sæti, að 2 náðu kosningu, sem
aðalfulltrúar i bæjarstjórn.
Skröksögur um milljónir
Árið 1930 fékk Framsóknar-
flokkurinn í fyrsta sinn fulltrúa í
bæjarstjórn Reykjavíkur og varð
Hermann Jónasson þá kosinn.
Það var upphafið að stjórn-
málaferli hans. Þessum árangri
náði Framsóknarflokkurinn með
því að beita daginn fyrir kosn-
ingar svæsnasta kosningarógi,
sem dæmi eru til á íslandi. Það
var sagan um að Knud Ziemsen
borgarstjóri hefði dregið sér eina
milljón króna úr bæjarsjóði, en
liann var maður, sem ekki mátti
vita vauiiii sitt í neinu. Þá glæpt-
ust menn á því að trúa Tímanum.
Fyrir kosningarnar núna dreifði
Tíminn út svipuðwm skröksögum
en núna var milljónin orðin að
tugum milljóna. En árið 1958 eru
Reykvíkingar liættir að trúa sög-
um Tímans. vegna langrar og bit-
urrar reynslu.