Morgunblaðið - 02.02.1958, Side 8

Morgunblaðið - 02.02.1958, Side 8
8 MOK CTlMKT. AÐIÐ Sunnudagur 2. febrúar 1958 munu koma fleiri kosningar eftir þessar og þá munu akureyrskir kjósendur bera gæfu til þess að hrinda af sér rauðu piningunni með hina fjarstýjði dokka í broddi fylkingar. Sjálfstæðismenn munu veita góðum málum lið. Framundan eru mikil verkefni óleyst á sviði atvinnu-, efnahags- og menningarmála á Akureyri. Sjálfstæðismenn munu eftir sem Hinir nýkjörnu bæjarfulltrúar Sjalfstæðismanna á Akureyri, aðalfulltrúar r~ varafulltrúar: Talið frá vinstri. Fremri röð: Gísli Jónsson, Jón G. Sólnes, Jónas G. Rafnui, Helgi Pálsson og Árni Jónsson. Aftari röð: Ragnar Steinbergsson, Gunnar R. Kristjánsson, Bjarni Sveinsson, Jón H. Þorvaldsson og Árni Böðvarsson. Akureyrarbréf : (Jrslit kosninganna á Akureyri sýna að bæjarbúar eru á móti rauðu einingunni NÚ þegar rammaslag kosning- anna er lokið, er ekki óeðlilegt þótt hugir manna hvíli nokkra stund við úrslitin. Hinn mikli kosningasigur Sjálfstæðismanna mun vera einhver hinn mesti sem unninn hefir verið um fjölda ára. Að sjálfsögðu vekur sigurinn í Reykjavík mesta athygli, enda munu andstæðingarnir hafa sótt þar harðast og óvægilegast gegn Sj álf stæðismönnum. Athyglisverður sigur. Hér á Akureyri vann Sjálfstæð isflokkurinn mjög athyglisverðan sigur. Þrátt fyrir hina miklu sókn, sem gerð hefir verið að Útgerðarfélagi Akureyringa hf, og Sjálfstæðismönnum kennt um hallarekstur á því, þótt hér sé fyrst og fremst stjórnarvöldun- um að kenna, sem algerlega hafa svipt rekstrargrundvellinum und an allri togaraútgerð í landinu og þrátt fyrir það, að Kaupfélag Eyfirðinga rekur hér stærstan og mestan atvinnurekstur og er um leið höfuðvígi Framsóknarflokks ins, — ennfremur þrátt fyrir það að allir vinstri flokkarnir sam- einuðust í bræðralagi rauðu fylk ingarinnar — þá vann Sjálfstæð- isflokkurinn eitt sæti til viðbótar í bæjarstjórninni og hefir nú 5 sæti af 11. Kommúnistum veitt lykilaðstaða. Allt eru þetta mjög athyglis- verðar staðreyndir. Vinstri flokk arnir ákváðu að gera útgerðarfé- lagið að bæjarútgerð, en úrslit kosninganna sýna að bæjarbúar eru því andvígir. Þeir vilja ekki að 600 hluthafar séu sviptir rétti til lögmætra afskipta af stjórn félagsins. Þeir vilja heldur ekki að kommúnistum sé fengin lykil- aðstaðan að stjórn þessa óska- barns Akureyringa. Vinstri flokkarnir sameinuðust um bæjarstjóraefni, sem er Al- þýðuflokksmaður og á með hon- um að veita Alþýðuflokknum hlutdeild í stjórn bæjarins, en emmitt sá flokkur hefir frá upp- hafi verið þar algerlega valda- laus. Ekkert skal hér sagt þess- Kjólapoplín 10 mismunandi litir S/rs og tvisfefni í svuntur — nýkomið LœkjGrbúðin LAUQARNESVEGl" um, kornunga manni til hnjóðs. Hann kann að vera mætur mað- ur. Hinsvegar buðu Sjálfstæðis- menn fram sem bæjarstjóraefni Jónas R. Rafnar, sem öllum bæj- arbúum er að góðu kunnur fyrir störf sín í þágu bæjarfélagsins á meðan hann sat á þingi fyrir Akureyringa. Úrslit kosninganna sýndu að bæjarbúar vilja fá hann fyrir næsta bæjarstjóra sinn. í þriðja lagi eru Akureyringar greinilega á móti því að veita kommúnistum lykilaðstöðu stjórn bæjarmálanna. Þessum fjarstýrða flokki, sem alla tíð hefir verið valdalaus í bænum. Ömurlegt hlutskipti Framsóknar, Allt er þetta mjög athyglis- vert. Það er því vægt sagt öm urlegt hlutskipti, sem Framsókn- arflokkurinn í bænum hefir val- ið sér að hefja þessa tvo áhrifa- lausu flokka til valda í bæjar málum Akureyringa. Á undan- förnum árum hefir verið tiltölu lega gott samstarf milli tveggja stærstu flokka bæjarins, Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknar- flokksins. Þetta samstarf má vafa laust telja að Akureyringar hefðu sætt sig við, en hitt hafa þeir nú greinilega sýnt að þeir eru á móti auknum völdum kom, múmsta og krata. Hinsvegar hafa þessir tveir smá flokkar í bænum allt að vinna en engu að tapa. Eins og Fram- sóknarflokkurinn hefir nú leitt kommúnista til úrslitavalda ríkisstjórn landsins, eins hefir hann nú leitt þá til úrslitavalda í bæjarstjórn Akureyringa. Það er því ekki lengur einn flokkur á Akureyri sem talizt getur fjar stýrður, heldur eru Framsókn- armenn hér nú undir sömu sök seldir. Sjálfstæði þeirra er ekki meira en svo að þeir láta for- ingjana í Reykjavík segja sér fyrir verkum í bæjarmálunum. En Akureyringar hafa svarað þessum unirlægjuhætti þeirra Þeir hafa nú eflt Sjálfstæðisflokk inn svo, að hann hefir aldrei sögu stjórnmálanna á Akureyri komið jafn sterkur út úr bæjar- stjórnarkosningum og nú. Að sönnu auðnaðist honum ekki að ná hreinum meirihluta út úr kosn ingunum, enda hefði hann þurft til þess fast að helmings aukn ingu á fylgi frá síðustu bæjar- stjórnarkosningum. Slíks er vart að vænta í einu átaki, en það áður stuðla að framgangi allra þeirra mála, sem til heilla horfa fyrir sínum fagra bæ. En það hefir aldrei verið jafn greinilegt og nú að þeir bera ekki traust til vinstri stjórnar. Spor hennar í ríkisstjórn landsins hræða. Þar eru svik á svik ofan, sundrung ríkjandi og óstjórn á óstjórn ofan. Það er lítið tilhlökkunarefni fyr ir Akureyringa að eiga slíks von í bæjarmálum sínum, sem jafnan hafa verið friðsamlega leyst til þessa. —vig. 1957varmikiðannaár hjá Flugfélagi íslands Félagið ílutti alls um 80,500 farþega á árinu FLUGFÉLAG íslands hefur skýrt blöðunum frá starfsemi fé- lagsins á liðnu ári. Af rekstrar- yfirliti þess sést, að starfsemi fé- lagsins hefur verið með miklum blóma á árinu. Félagið endurnýj- aðj flugvélakost sinn með því að festa kaup á tveimur millilanda- flugvélum af gerðinni Vickers- Viscount, sem hafa reynzt ágæt- lega bæði í Atlantshafsflugi og innanlandsflugi. Á s.l. ári flutti félagið alls um 80,500 farþega, en á árinu áður voru þeir rúm 70 þús. Aukningin nemur 14,44%. Innanlandsflug Á s.l. ári varð félagið að selja eina Dakotaflugvél sína, en samt jókst innanlandsflugið til muna, enda var Sólfaxi tekinn til notk- unar, þegar á þurfti að halda. — Flugfélagið hélt uppi reglubundn um flugferðum til tuttugu staða á landinu á s.l. ári. Á þessum leiðum flutti félagið 55,501 far- þega og er það 6,84% aukning frá árinu áður. — Vöruflutningar og póstflutningar jukust einnig á innanlandsleiðunum. Á ármu voru fluttar 144 lestir af pósti, en það er 6,32% meira en 1956. og vöruflutningar námu 1275 lestum og er það 8,8% aukning. Utanlandsflug Er Flugfélagið hafði fest kaup á hinum nýju Viscount- vélum, stórbatnaði aðstaða þess til milli landaflugs. Alls flutti félagið 21,003 farþega í áætlunarflugi milli landa 1957 og er það 35,2% aukning frá árinu áður. Þar af voru farþegar milli fslands og annarra landa 16,029, en farþeg- ar miíli staða erlendis 2536. Hins vegar voru farþegar á sömu flug- leiðum erlendis aðeins 760 1956. Aukningin tekur til áæltunar- flugsins, Höfn-Glasgow, en flug- félagið hefur haldið uppi einu dagferðunum á þessari flugleið, og flugleiðinni Hamborg-Höfn- Osló. Þykir erlendum ferðamönn um gott að ferðast með hinum fullkomnu Viscount-vélum fé- lagsins á þessum leiðum. — Þá má geta þess, að farþegar í leigu flugi voru 2447 s.l. ár. Vörufiutn ingar milli landa voru svipaðir og árið áður, eða 322 lestir. en póstflutningar voru nokkru meiri. eða 40,2 lestir, og er aukningin 13,4%. ★ Fulltrúi félagsins gat þess a8 lokum, að félagið þyrfti á auknu fjármagni að halda vegna mikill- ar fjárfestingar við endurnýjun miililandaflugflotans og væntan- legrar endurnýjunar innanlads- flugflotans. Af þeim sökum hefur Flugfél. ísl. leitað til almenn- ings um lán og hafa verið gefin út happdrættisskuldabréf, eins og skýrt hefur verið frá í fréttum. Bréfin verða endurgreidd eftir tæp sex ár með vöxtum og vaxta vöxtum, en auk þess verður dreg ið um vinninga á vori hverju. Sala bréfanna hefur gengið all- vel, sagði fulltrúi félagsins, en betur má ef duga skal og heitir félagið á alla landsmenn áð styðja starfsemi þess og styrkja það með fjárframlögum. Með því tryggja þeir betri samgöngur innan lands og utan. 130 mílur úl í geiminn WASHINGTON, 31. jan. — Upp- lýst var hér í dag, að bandarísk- ir vísindamenn hefðu hinn 26. janúar skotið eins þreps eldflaug 130 mílur út í geiminn. Flutti eldflaugin sjálfritandi mælinga- tæki, sem vógu lZÍVi kg. Njarðvíkurleikhúsið, sem er stofnað af Ungmennafélagi og Kvenfélagi Njarðvíkur, sýnir um þessar mundir gamanleik- inn „Misheppnaðir hveitibrauðsdagar“ eftir enska skáldið Kenneth Horne. Þegar er búið að sýna hann sjö sinnum á ýms- um stöðum á Suðurnesjum. Næstu sýningar eru í Sandgerði í dag. — Síðar er ætlunin að sýna leikritið víðar, m. a. austanfjalls. A myndinni sjást þrír aðalleikararnir: Gunnar Kristófersson, Þórunn Karvelsdóttir og Valur Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.