Morgunblaðið - 02.02.1958, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 02.02.1958, Blaðsíða 23
Sunnudagur 2. febrúar 1958 MORCVNBLAÐIÐ 23 Fuch miðar vel áfram Er ab komast til tjaldsta&ar 700 WELLINGTON (Nýja-Sjálandi), 1. febr. (Reuter). — Brezki land- könnuðurinn, dr. Vivian Fuch og félagar hans komust 70 mílur í gær á leið sinni frá suðurpólnum til tjaldstaðar 700. Hefur þeim félögum aldrei miðað jafnvel áfram. reyna á þolrifin, einkum þegar leiðangursmenn glíma við lands- lagið norðan 700-stöðvar, sem er mjög þungfært. ÁSstoða Japani TÓKÍO, 1. febr. — Bandaríkja- menn senda ísbrjót til aðstoðar japanska Suðurskautsleiðangrin- um, sem er í ísbrjótnum Soya Maru, en hann hefir verið fastur í ís í heilan mánuð. — Bandaríski ísbrjóturinn heitir Burton Island og er 6,500 tonn. Hann er nú um 1,000 mílur frá Soya Maru. Borgarfjarðarhreppi hersf stórhöfðingleg gjof Veturinn hefur verið tiltöiutega hag- stœður til þessa Fyrstu kvöldvnku Ferða- félagsins í þriðjudagskvöld Þeir eru nú aðeins um 200 míl- ur frá tjaldstað 700, þar sem Sir Edmund Hillary bíður þeirra. 300 mílur frá Pólnum Nú er Fuch kominn 300 mílur frá pólnum, en samt eru aðeins átta dagar síðan hann lagði af stað til Scott-stöðvarinnar, en þangað er ferðinni heitið. Veðrið hefur verið gott á leiðinni, sól- skin og 29° frost á Celsíus, og er gert ráð fyrir, að þeir félagar komi til 700-stöðvarinnar á mið- vikudag. Eftir það fer fyrst að Reykjavíkurbréf Framh. af bls. 13 inda með stjórnmálaþátttöku sinni. Flestir Framsóknarmenn eru slíkum landshornalýð jafn- andvígir og góðir lýðræðissinn- ar í öðrum flokkum. En það er þetta lið, sem Hermann Jónas- son fagnaði yfir að hafa fengxð i fylkingu sína, enda er hann þar óneitanlega hæfur foringi. Verður gula hneykslið lögfest? Kommúnistar eru Hermanni Jónassyni innilega sammála um stofnun samfylkingarinnar, enda er hún þeirra gamla keppikefii. Þjóðviljinn leynir því samt ekki, að framvegis þurfi ríkisstjórnin að vera „stærri í sniðum" en ver- ið hefur, og draga úr „hálfvelgj- unni“, „hikinu" og „óheilindun- um“, en fá í þess stað „reisn" og sækja að ákveðnu marki. Til þess að svo megi verða, heimtar Þjóðviljinn nú, að hreinsamr eigi sér stað í hinum stjórnar- flokkunum og að samvinna lýð- ræðissinna í verkalýðsfélögun- um sé tafarlaust rofin! Af einstökum málum er þess að geta, að vítur eru bornar fram I Þjóðviljanum fyrir aðgerðar- leysi í húsnæðismálunum. í>ar sem vitað er að Einar Olgeirsson stöðvaði „gula frumvarpið“ og lét hirða það aftur af borðum þingmanna, af því að hann talai það ganga of skammt verður að ætla, að vilji hans og kommún- ista sé sá, að herða betur á og þá sennilega að knýja „gula hneykslið“ fram að einhverju eða öllu leyti. Kunnugir segja þó, að jafnvel Hannibal sé nú gugnaS- ur á þeirri ráðagerð. Ekki er því gott að segja hvað ofan á verður, þótt menn hefðu fyrirfram ætlað, að svo eindregin aðvörun, sem fólst í kosningun- um, nægði til þess að stöðva slík óþurftarmál. Víst er samt, að ekki kemur stöðvun „gula hneykslisins" frá Gylfa 1». Gíslasyni menntamála- ráðherra. Hann réði því að snúáð var í Alþýðublaðinu á síðustu stundu frá andstöðu gegn „gula hneykslinu", og gerð var að engu sú barátta, sem Alþýðu- flokksmenn höfðu tekið upp gegn þessu hneyksli á meðan ráðherr- ann var erlendis. Þjóðviljinn tók honum, þegar heim kom, með óbóta skömmum og til að hafa sig undan þeim lét Gylfi málgagn sitt tafarlaust breyta um afstöðu til þessa hneykslismáls. Að öðru leyti heyrist enn ekki, hvað stjórnin hefur í hyggju. Sennilega hefur hún verið all- langt á veg komin með sumar ráðagerðir sínar, eins og seðla- skiptin, úr því að heimsþekktir seðlaprentarar komu hingað til skrafs og ráðagerða. En áreiðan- lega hafa kosningaúrslitin trufl- að allar þessar ráðagerðir, hvað sem ráðleysingjarnir í Stjórnai'- ráðinu flæmast til að gera áður en þjóðin fær möguleika til að svipta þá völdum. BORGARFIRÐI eystra, 22. jan. — Veturinn til áramóta var hér mildur og snjóléttur. Aðeins tvisvar setti niður snjó svo að verulega spillti högum. Fyrst í nóvember var slæmt snjóáfelli í nær hálfan mánuð, jafnfallin snjóstorka yfir allt og var því alveg jarðlaust allan þann tíma. Snemma í desember var nokkur snjór í vikutíma, en þess utan var láglendi að kalla snjólaust allt fram að síðustu hríðardög- um, en stöðug hríðarveður hafa verið nú í tæpa viku. Um miðjan des. tók jörð hér að svella og eru svellalög nú orð in mikil og víða illt í högum þeirra vegna. Fénaður hefur víða verið frem ur léttur á fóðrum til þessa og skepnuhöld góð. Vegir hafa verið góðir hér inn- an sveitar til þessa og vegurinn til Héraðs hefur verið slarkfær jeppum alltaf öðru hverju fram yfir áramót, en oft hafa þeir, sem farið hafa á milli, þurft að moka fyrir sig og eins aka utan vegar á æði kafla til að kom ast hjá verstu sköflunum. Leiksýning Unga fólkið hér gekkst fyrir leiksýningu í vetur. Æfði það leikritið Ráðskonu Bakkabræðra og sýndi þrisvar sinnum á milli hátíðanna. Eftir nýjárið fór leik- flokkurinn upp í Hérað og sýndi leikinn í Félagsheimilinu á Hjaltastað við góða aðsókn. Eftir áramótin var haldin hér barnasamkoma og var hún vel sótt að vanda, enda vegir þá vel færir. Þorrablót hefur verið undir- búið og verður haldið strax og veður leyfir. Margt fólk mun fara héðan á vertíð eins og venju Þorrablót í Hlégarði REYKJUM, 29. jan.: — Sl. laug- ardagskvöld héldu kvenfélags konur í Mosfellssveit veglegt blót mönnum sínum og öðrum gest- um. Snætt var hangikjöt um mið- næiti, en dansað var frá kl. 9 og framundir morgun. Þennan dag var veður gott framan af degi og færðin góð, en mikill snjór. Þegar á daginn leið, hvessti og spilltist færð. Um það leyti, sem skemmtunin átti að hefjast, hafði færðin spillzt svo mjög að ýmsir tepptust heima og víða sátu bílar fastir. En nú sannaðist máltækið „þegar neyð- in stærst er hjálpin næst“. — Stefán hreppstjóri í Reykjadal setti jarðýtu undir húskarla sína og ruddu þeir bílalestum braut úr Mosfellsdal og veittu síðan að stoð annars staðar. Þetta umstang stóð fram undir kl. 11 um kvöldið og höfðu þá ýmsir verið 2—3 tíma á ferðinni. Ekki spillti þetta gleði fólksins, heldur þvert á móti. Er fagnaði þessum lauk, hafði frostið linazt og færðin var orðin sæmileg, enda gekk heimferðin Lvel þeim, er til fréttist. —J. lega enda engin teljandi atvinna hér yfir veturinn. Nokkrir eru þegar farnir en aðrir fara á næst unni. Höfðingleg gjöf Um s.l. áramót barst Borgar- fjarðarhreppi stórhöfðingleg gjöf, eða allar þær eignir er Jón heit- inn Sveinsson fyrrv. bæjarstjóri á Akureyri átti í Bakkagerðis- þorpi. Gefandinn er ekkja Jóns, frú Fanney Jóhannesdóttir, og gefur hún þetta til minningar um mann sinn. Jón Sveinsson. ólst upp hér í Borgarfirði og var hér frænd- og vinamargur. — Hann bar jafnan mikinn hlýhug til sveitarinnar, sem glöggt kom fram er hann árið 1954 gaf Borgarfjarðarhreppi meirihluta eigna sinna á Bakka- gerði, en hann átti hálft Bakka- gerði. Á því stendur stór hluti Bakkagerðisþorps, en hann und- anskildi þá allmikið land, er hann hugði leggja til nýbýlis- stofnunar ásamt tveimur hús- lóðum í þorpinu og túnblettum þar. Allt þetta hefur nú frú Fanney gefið og er það stór mikilsvirði, því allt þetta land er hið bezta ræktunarland, enda mun vart nokkurt þorp á land- inu hafa betri ræktunarskilyrði en Bakkagerði. Hefur nú verið hafizt handa í stórum stíl að þurrka land í nágrenni þorpsins og vann skurðgrafa að því í nær allt sumar. I. L Maður slasast er staur féll í GÆR vildi það slys til að staur féll í höfuð manni, er var ásamt fleirum að flytja skúr á Kapla- skjólsvegi, og hlaut hann talsverð meiðsli af. Maður þessi er Vil- hjálmur Vilhjálmsson búsettur á Seltj arnarnesi. Nánari tildrög slyssins voru þau, að nokkrir menn voru að flytja til skúr á Sauðagerðislandi við Kaplaskjólsveg. Áfastur við skúrinn var allhár staur er losn- aði frá skúrnum við flutninginn. Varð Vilhjálmur fyrir staurnum er hann féll. Vilhjálmur féll í yfirlið við hið mikla höfuðhögg. Var þegar hringt á sjúkrabifreið og var Vil- hjálmi ekið í Slysavarðstofuna. Var þar gert að áverkanum á höfði hans. Síðan var Vilhjálmi ekið í Landakotsspítalann til frekari rannsóknar. Hafði hann fengið meðvitund áður en þar var komið. DJIBOUTI, 31. jan. — Útvarpið í Jemen staðhæfði í dag, að hreinn uppspuni væri, að vopna- farmur sá, er franska stjórnin lagði hald á fyrir skemmstu •• og talinn var ætlaður upp- reisnarmönnum í Alsír, hefði átt að faya til Jemen. Það var jugó- slavneskt skip, sem vopnin flutti — og liafa Júgóslavar mótmælt framferði Frakka. FYRSTA kvöldvaka Ferðafélags- ins á þessu ári verður haldin í Sjálfstæðishúsinu þriðjudaginn 4. febrúar og hefst að venju kl. 20,30. Á þessari kvöldvöku verða frumsýndar tvær litkvikmyndir, sem Ósvaldur Knudsen málara- meistari hefur tekið. Fjallar önn ur þeirra um Ásgrím Jónsson málara og list hans og sýnir m.a. hinn aldna meistara þar sem hann er að mála vatnslitamynd úti í náttúrunni. Fer vel á því að Ferðafélag íslands frumsýni slíka mynd, því Ásgrímur hefir flest- um fremur opnað augu ís- lendinga fyrir dásemdum íslenzkrar náttúru og það ekki hvað sízt með þeim fögru vatnslitamyndum, sem hann málaði á yngri árum. Þær myndir eru löngu orðnar klass- ískar í íslenzkri listasögu. Hin kvikmyndin er af hinum um- fangsmiklu rannsóknum, sem gerðar voru á grunnum Skál- holtskirkna áður en hafizt var handa um nýju kirkjubygginguna svo og af Skálholtshátíðinni miklu sumarið 1956. Áhrifa- mesta atriðið í þessaxi kvik- mynd er opnum steinkistu þeirr- ar, er hafði að geyma líkams- leifar Páls biskups og er það atriði eitt ærið tilefni til að sjá þessa mynd. Dr. Krstjá* Eldjárn, Þjóð- minjavörður, hefur gert texta við kvikmyndir þessar og flytur hann sjálfur í myndunum, sem eru tal- myndir, en Björn Th. Björns- son listfræðingur flytur erindi um Ásgrím Jónsson og list hans. Að lokum er myndagetraun. Ferðafélagið hrósar happi að fá að frumsýna þessar myndir Ós- valds Knudsen. Þeim kvikmynd- um hans, sem áður hafa verið sýndar á kvöldvökum félagsins, hefur verið mjög vel tekið, enda gerir hann myndir sínar af mikilli natni og smekkvísi. Má því vænta mikillar aðsóknar á þessa kvöld- vöku, og mun öruggara að tryggja sér aðgöngumiða í tíma. (Frá Ferðafélaginu). Innilega þakka ég heimsóknir, gjafir og góðar óskir á 60 ára afmæli mínu. Haraldur Lárusson. Útför mannsins míns SHJURÐAB JÓNSSONAR Seljaveg 33 fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 3. febr. kl. 3. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Krabbameinsfélag íslands eða aðrar líknarstofnanir. Fyrir mína hönd, barna og tengdabarna. Jóhanna Björnsdóttir. Útför konunnar minnar og móður okkar ELÍSABETAR JÓNSDÓTTUR Dysjum, fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju, mánudaginn 3. febrúar klukkan 2 e.h. Guðjón Hallgrímsson og börn. Móðir mín, HÓLMFRÍÐUR HANNESDÓTTHt, sem andaðist í Landakotsspítala 25. janúar, verður jarð- sungin þriðjudaginn 4. þ. m. frá Fossvogskapellu kl. 1,80. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim er vildu minnast hennar, er bent á barnaspítalasjóðinn. Óskar Einarsson, Stangarholti 4. Jarðarför móður okkar og stjúpmóður SIGRÍÐAR BJARNADÓTTUR frá Borðeyri fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 4. febrúar kl. 13.30 eftir hádegi. Athöfninni verður útvarpað. Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent á Barnaspítalasj óð Hringsins. Dýrfinna Tómasdóttir, Hans J. K. Tómasson, Sigurbjarni Tómasson, Elínborg Tómasdóttir. Af alhug þökkum við samúð og vinsemd auðsýnda vi8 andlát og jarðarför SÆMUNDAR TRYGGVA SÆMUNDSSONAR frá Stærra-Árskógi Aðstandendur. Innilega þökkum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð við andlát og jarðarför móður okkar MAGNFRlÐAR IVARSDÓTTUR frá Gröf, Rauðasandi. Börn hinnar látnu. Innilegar þakkir vottum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför föður okkar og tengdaföður MARTEINS EINARSSONAR kaupmanns. Gunnar Marteinsson, Sesselja Einarsdóttir, Eberhardt Marteinsson, Svava Sigurjónsdóttir, Karen Marteinsdóttir, Aðalsteinn Kristinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.