Morgunblaðið - 02.02.1958, Page 12
12
MORGUNBLAÐ1Ð
Sunnudagur 2. febrúar 1958
ÍJtg.: H.f. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfus Jónsson.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjami Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Ásmundsson.
Lesbók: Arni Öla, sími 33045
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriítargjak', kr. 30.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið.
EKKERT LÆRT OG ÖLLU GLEYMT
AÐ var einu sinni sagt um
spillta og dáðlitla kon-
ungsætt í Frakklandi, að
hún hefði „ekkert lært og engu
gleymt“. Stjórnarflokkarnir
hérna eru þó sýnilega miklu verr
á vegi staddir, því þeir hafa
ekkert lært og öllu gleymt. Við-
brögð þeirra eftir kosningaósigur
inn þann 26. janúar virðast sýna
þetta skýrt. Forystumenn þess-
ara flokka sýnast yfirleitt hafa
gleymt öllu, sem þeir lofuðu þjóð
inni fyrir hálfu öðru ári síðan.
Þeir láta nú líta út eins og þeir
hafi gleymt, hvernig öll þessi
loforð hafa verið svikin og nú
eftir kosningarnar stritast flokk-
arnir við að læra ekkert af úr-
slitunum. Þeir loka augunum og
reyna að blekkja sjálfa sig og
aðra. Framsóknarflokkurinn
reynir að koma því'inn hjá sjálf-
um sér, að hann hafi „unnið á“,
jafnvel „sigrað“, af því að honum
tókst að slíta nokkur atkvæði ut-
an úr sínum eigin samstarfs-
flokkum og þó sérstaklega Al-
þýðuflokknum. Kommúnistar
þegja um að þeir hafa tapað yfir
21% af fylgi sínu í Reykjavík
siðan við kosningarnar 1956. for-
ystumenn Alþýðuflokksins reyna
að dylja þá staðreynd að ef nú
hefðu verið þingkosningar, hefði
flokkurinn hvergi komið að þing-
manni á öllu landinu. Þetta eru
aðeins örfá dæmi um það, hvern-
ig blekkingaleikur flokkanna er
nú gagnvart sjálfum þeim og
öðrum. Þeir sýnast ekkert hafa
lært af kosningunum og gleymt
öllu því sem liðið er.
★
En vitaskuld er þetta allt tómt
yfirskin. Auðvitað sjá forystu-
menn flokkanna, hvert stefnir.
Allir þessir flokkar sjá raun-
verulega að þjóðin hefur kveðið
upp sinn dóm yfir þeim. En þeir
neita að hlýða honum. Sjálfstæðis
menn hafa áður borið fram kröfu
um þingrof og nýjar kosningar
á grundvelli þess, að flokkarnir
hafi svikið loforð sín og þjóðin
gengið til kosninga, sumarið 1956,
á fölskum forsendum, þar sem því
var þá heitið af hálfu Hræðslu-
bandalagsins fyrir kosningarnar
að eftir þær skyldi ekkert sam-
starf haft við kommúnista.
Nú hefur formaður Sjálfstæðis
flokksins enn á ný borið þessa
kröfu fram, og byggt hana á dómi
þjóðarinnar við kosningarnar. Sá
dómur er sízt af öllu þýðingar-
minni en framburður vantrausts-
tillögu á Alþingi. Ef vinstri stjór.n
in vildi reyna að rifja upp feril
sinn og draga lærdóm al at-
kvæðatöiunum nú, þyrfti hún
ekki að spyrja til síns eigin vegar.
Þegar á staðreyndirnar er litið
getur ekkert annað blasað við en
sú leið, sem Sjálfstæðismenn
benda á. Það er leið lýðræðis
og réttra stjórnarhátta í land-
inu.
★
En þó að stjórnarflokkarnir
reyni að láta líta svo út, sem
þeir hafi ekkert iært og öllu
gleymt mega þeir þó vara sig á
því að þeir eru einir um svo
heimskulega afstöðu. — Hinn
óbreytti liðsmaður Framsóknar
sér hvað gerzt hefur og skilur
það. Óbreyttur kommúnisti skilur
líka, hvað fylgistap flokksins boð
ar. Og Aiþýðuflokkurinn sér og
skilur, hvernig flokki hans er
komið, eftir 18 mánaða samneyti
við kommúnista og Framsókn.
Almenningur gleymir ekki og
hann dregur líka sína lærdóma
af því sem nú hefur gerzt.
MERKISAFMÆLI MERKRAR
STOFNUNAR
0
Ivikunni sem leið átti Slysa
varnafélag íslands 30 ára
afmæli. Það voru nokkrir
áhugamenn úr hópi sjómanna,
sem gengust fyrir stofnun þessa
félagsskapar undir forustu
tveggja landskunnra manna,
þeirra Guðmundar Björnssonar,
landlæknis og Jóns K. Berg-
sveinssonar. Sjómennirnir og fjöl
skyldur þeirra fundu auðvit.að
sárar til þess en nokkrir aðrir,
hvílikt afhroð landsmenn guldu
vegna sjóslysa á hverju
ári. — Landlæknirinn hafði
líka fyrir sér skýrar tölur
um manndauða af völdum
slysanna og hann sá vitaskuld að
ekki var nóg að beita sér að því
að bæta heilbrigðishætti og
lækka dánartölu, ef sjófarendur
ættu áfram að verða Ægi að
bráð á sama hátt og verið hafði.
Það var því eðlilegt að Guðmund
ur landlæknir ætti þarna mikinn
hlut að máli.
Slysavarnaíélagið hefur á liðn-
um áratugum unnið sér glæsi-
legan sess meðal þjóðarinnar.
Engum dylst árangurinn af starfi
þess. Samkvæmt þeim skýrslum,
sem nú liggja fyrir, hefur á þeim
30 árum, síðan félagið var stofn-
að, verið forðað frá druknun eða
lífsháska 5683 mönnum. Rösklega
þúsund mönnum hefur verið
bjargað af björgunarsveitum fé-
lagsins og oft við hin erfiðustu
skilyrði, þar sem björgunarmenn
irnir hafa lagt líf sitt í hættu.
Það hefur verið sagt af erlendum
aðilum, að björgunarafrekið við
Látrabjarg muni vera eitthvert
hraustlegasta björgunarstarf í
sinni röð, sem sögur fari af.
Erlend slysavarnafélög láta nú
gera kvikmynd af þessum at-
burði til þess að sýna sams konar
stofunum erlendis hvað unnt sé
að afreka, þegar hreysti og fórn-
fýsi er með í verki.
Öll þjóðin má þakka Slysa-
varnafélagi íslands, og hún skilur
starf þess og metur það. Það hef-
ur hún margsinnis sýnt en ekki
er unnt að minnast Slysavarna-
félagsins öðru vísi en að geta
þess, hve margar íslenzkar konur
hafa lagt fram mikið og óeigin-
gjarnt starf í þágu þess. Slysa-
varnafélagið er orðið til fyrir
áhuga og fórnfýsi einstakra
manna og kvenna, það er ekki
stofnað af opinberri hálfu og það
er sjálfstæð stofnun, sem byggir
enn á sama grundvelli og í fyrstu
Hér má því segja að um eins-
konar þjóðarfélagsskap sé að
ræða, ef svo má taka til orða,
og mun hin unga kynslóð, sem
nú kemur óðum fram á sjónar-
sviðið, ekki síður skilja nauðsyn
þessarar mikilvægu starfsemi en
hin fyrri, sem ruddi henni braut.
UTAN UR HEIMI
Jean Viaud spáir í stjörnurnar
og sér örlög heimsins
STJÖRNUSPÁMAÐURINN Jean
Viaud hefur getið sér mikla
frægð í Frakklandi undanfarin
ár, fyrir það, hve nákvæmlega
og rétt hann hefur spáð fyrir um
ýmsa stórviðburði.
Þessi ungi maður, kveður ekk-
ert yfirnáttúrlegt vera við spá-
dóma sína, hann hafi aðems
kynnt sér til hlítar gang himin-
tunglanna. Síðastliðið ár birtust
spár hans í franska blaðmu
Horoscope. Spámenn af haná teg-
und eru oft sakaðir um að nota
óljóst og myrkt orðalag, til þess
að geta þá eftirá teygt uppfyll -
ingu spádómsins. En svo er Jean
Viaud ekki farið. Hann er að
jafnaði ómyrkur í máli.
Árið 1957 rættust fjölda,
margar af spám hans. Mesta
athygli hefur það þó vakið.
að hann spáði fyrir um dauða
hluta ársins verður ótryggt stjórn
málaástand, miklar árásir hefj-
ast á ensku konungsfjölskylduna,
fyrrvefandi forsætisráðherra
Bretlands deyr.
Bandaríkin: Á fyrrihluta árs-
ins verður mikið um flugslys og
sprengingar. Sprenging verður
m. a. í mjög leynilegri tilrauna-
stöð. Upp kemst um mikið
njósnamál og verður heimsfræg
listakona viðriðin málið. Ósam-
lyndið milli hers, flota og flug-
hers vex. Annað hvort rekst
bandarísk flugvél á franskan
skóla eða frönsk á bandarískan.
Kosningaúrslit koma á óvænt.
Stórkostleg læknisfræðileg upp-
götvun á síðarihluta ársins, sem
varðar hjartasjúkdóma eða blóð-
sjúkdóma.
Rússland: Áframhaldandi órói
er í stjórn Rússlands og gengur
á ýmsu. Þess er ekki að vænta
að kyrrð komizt þar á fyrr en
1962. Á öðrum ársfjórðungi kera-
ur Zhukov aftur fram og máske
fleiri sem setið hafa í útlegð.
Með haustinu má búast við al-
varlegri og mannskæðri farsótt.
Síðla á árinu má búast við hreins
unum í kommúnistaflokknum,
erfiðleikum í járniðnaðinum og
stórfelldum mistökum í ein-
hverri vísindalegri tilraun.
Leppríki Rússa: Stjórnarskipti
í Ungverjalandi. Sennilegt að
brjótist út skærur á landamær.
um Búlgaríu og Grikklands.
Varsjá og Belgrad leita nánara
samstarfs.
Þýzkaland: Adenauer hverfur
af sjónarsviðinu. Þjóðverjar
munu fórna Atlantshafsbanda-
laginu fyrir sameiningu Þýzka-
lands.
Belgía: Mikið verður skrifað
um áætlanir um giftingu Baid-
vins konungs. Nýlendustefna
Belgíu verður fyrir áfalli í
Kongó.
Norðurlönd: Tveir kunnir
menn deyja. Miklar deilur veröa
á Norðurlöndum um alþjóðamál
og flugskeytastöðvar. Síðarihluta
ársins verður haldin í Ósló ráð-
stefna, er kalla mætti „Síðasta
vonin".
ítalía: Frægur stjórnmálafor-
ingi verður rekinn. Landið verð-
ur fyrir margþættu tjóni af natt-
úrunnar völdum.
Egyptaland verður algert lepp-
riki Rússa um leið og Nasser
verður steypt af stóli, því að
hann lék tveim skjöldum.
Argentína: Peron eða flokkur
hans kemst aftur til valda.
Indókína: Vopnahléssamning-
arnir verða rofnir og bardagar
hefjast á ný. Diem forsætisráö.
herra mun brjóta odd af oflæti
sínu og leita aðstoðar Frakka.
Kórea: Vopnahléssamningarnir
verða einnig rofnir og bardagar
hefjast, en þeir verða takmark-
aðir og standa stutt.
Eins og sjá má af þessum sýnis
hornum eru spádómar Jean Vi-
auds ekkert tvíræðir að sið ve-
fréttarinnar í Delfi. Hann spáir
ákveðnum atburðum á ákveðn-
um tímum. Nú er bara eftir að
vita, hvort nokkuð er að marka
hann.
Kjarnorkukluhha send ú! i
geiminn ?
Aga Khans, Hákonar Noregs-
konungs og Zapotocky, for-
seta Tékkóslóvakíu. I septem-
ber sl. spáði hann því að Ben
Gurion væri í lifshættu
Skömmu seinna særðist þessi
forsætisráðherra ísraels, er
tilræðismaður kastaði
sprengju í þingsalnum í Jerú-
salem.
Um áramótin hirti Jean Vi-
aud spá sína fyrir árið 1958.
Til gamans skal hér skýrt frá
nokkrum atriðum í þessari
frönsku Krukkspá. Skal tekið
fram að hún er miklu lengri
Við þurfum ekkí lengi að biða
til að geta sannprófað, hvort
nokkuð er að marka þetta.
Veröldin öll: Það mun ríkja
Iriður í heiminum fyrir utan
skærur og bardaga á takmörk-
uðum svæðum. Ég tel enga hættu
á heimsstyrjöld fram að árinu
1962, jafnvel fram að árinu 1965.
Eftir það vex hættan.
Frakkland: Gaillard-stjórmn
fellur fyrir 20. marz. Háttsettur
klerkur í Frakklandi dirfist að
styggja Vatikanið með því að
krefjast breytingar á kirkjulög-
um. Þýzkaland bregzt Frakk-
landi í mikilvægu máli. Frakkar
ráða yfir atómsprengjum. Seinm-
hluta árs er hætt við flóðum.
Miklar stjórnmáladeilur í ársiok.
Bretland: Erfiðleikar vaxa
vegna bækistöðva Breta í nálæg-
um Austurlöndum og Miðjarðar-
hafinu. Bandaríkjamenn bregð-
ast Bretum illa í málefni varð-
andi nálæg Austurlönd. Síðari-
NEW YORK — Þeirri hugmynd
hefur nú skotið upp meðal banda
rískra vísindamanna, að heppi-
Liz Taylor í Prag
PRAG 24. jan. — Kvikmynda-
framleiðandinn Mike Todd og
kona hans Elisabeth Taylor kvik-
myndaleikkona komu í dag flug-
leiðis til Prag frá París. Tékk-
nesku fréttamennirnir spurðu,
hvort eitthvað væri hæft í fregn-
um um að þau ætluðu að skilja.
Hefur orðrómur um það sprottið
upp eftir hávært rifrildi
milli hjónanna á gistihúsi í París.
—Nei, við ætlum ekki að skilja,
svöruðu þau einum rómi og til
að" sanna það enn betur kysstust
þau nokkrum sinnum í augsýn
allra og leyfðu að myndir væru
af kossunum. — Við rif-
umst hressilega, viðurkenndu
þau, en við höfum meiri ánægju
af rifrildinu, en flest hjón hafa
af því að halda stöðugt í höndina
hvort á öðru.
— Það er mjög spennandi að
vera kominn í kommúnistaland,
sagði Elisabeth Taylor. Hún hafði
þó ekki haft tækifæri til að
skoða sig um. — Reuter.
legt mundi að sannprófa gildi af-
stæðiskenningar Einsteins með
því að senda kjarnorkuklukku
út í geiminn með geimfari. í
afstæðiskenningunni er gert ráð
fyrir því sem kunnugt er, að tím-
inn breytist í öfugu hlutfalli við
hraðann. Þ. e.: með auknum
hraða líður tíminn sífellt hægar
— og við hraða Ijóssins stendur
tíminn nær því í stað. Segir Ein-
stein, að geimfari, sem færi með
ógnarhraða út i geiminn, mundi
eldast hægar en meðbræður hans
á jörðinni.
Hugmynd hinna bandarísku
vísindamanna er sú, að smíða
litla kjarnorkuklukku, sem ekki
getur seinkað eða flýtt sér um
milljónasta hluta úr sekúndu. Ef
klukkunni yrði komið fyrir í
geimfari — og það látið þjóta um
hverfis jörðu með 18,000 mílna
hraða á klst. yrði hægt að bera
saman gang hennar og annarra
nákvæmra klukkna hér á jörðu.
STOKKHÓLMI, 31. janúar —
Sænska stjórnin hefur skýrt svo
frá, að hinir 375 sænsku hermenn,
sem gegna nú störfum í gæzlu-
liði S. Þ. á Gaza-svæðinu verði
leystir af hólmi í apríl-mánuði
n. k. Munu Svíar þá senda 500
manna flokk í stað hins gamla.