Morgunblaðið - 09.02.1958, Síða 1

Morgunblaðið - 09.02.1958, Síða 1
24 siður * Fjögur þeirra sem komust lífs af í hinu hræðilega flugslysi við Munchen á fimmtudaginn. Thaims flugmaður og Rogers loftskeytamaður og tvær flugfreyjur. Fimm þeirro sem liiðu ní flug- slysið berjust við duuðunn MÚNCHEN, 8. febr. — Líf fimrn manna, sem særðust hættulega í flugslysinu á fimmtudaginn, hangir á bláþræði, en læknar gera allt sem þeir geta til að bjarga þeim. Slysið varð þegar flugvélin var að hefja sig til flugs í blindhrið Af þeim sem í flugvélinni voiu fórst 21, en 23 lifðu. Meðal hinna látnu voru 7 menn úr bezta knattspyrnufélagi Breta, „Manc- hester Únited“. Þeir fimm menn, sem nú heyja harða baráttu við dauðann, eru flugstjórinn, Kenn- eth Reyment; íþróttafréttaritar- inn Frank Taylor, sem starfar hjá „The London News Chron- icle“, knattspyrnumennirnir John Berry og Duncan Edwards, og loks framkvæmdastjóri „Manchester United“, Matt Bus- by, sem er þekktur víða um heim. Busby, sem er í súrefnistjaldi, hvíslaði að aðstoðarmanni sínum í dag: „Mér líður dálítið betur núna“. John Berry er verst á sig kominn af þeim, sem lifðu af slys ið. — Núna um helgina verður mín- útu-þögn á knattspyrnuvöllum um alla Evrópu til að minnast hinna föllnu félaga. í Indlandi fór fram landsmótskappleikur að viðstöddum 12.000 áhorfendum í gær, og var þá gert mínútu-hlé á leiknum til að minnast brezku knattspyrnumannanna. Egypzkur áróður fyrir sam handi allra Arabaríkja Hreinsun í Austur-Þýzkalandi Nokkrir leiðtogar kommúnista vildu fylgja fordæmi Pólverja BERLÍN, 8. febr. — Það var tilkynnt í Berlín í dag, að nokkrir af leiðtogum austur- þýzkra kommúnista hefðu verið reknir úr flokknum fyr- ir að prédika „sams konar lýðræði og ríkir í Póllandi". Málgagn austur-þýzkra kommún- ista, „Neues Deutschland", skýrði frá því, að umræddir menn hefðu líka gagnrýnt Walter Ulbricht, framkvæmdastjóra sameinaða sósíalistaflokksins (kommúnista). Blaðið sagði frá því, að Ernst Wollweber, fyrrverandi öryggis- málaráðherra Austur-Þýzkalands, og Karl Schirdewan, einn af rit- urunum í miðstjórn flokksins, hefðu verið reknir. Fred Ölssner, helzti pólitískur fræðimaður kommúnistaflokks- ins, var rekinn úr æðsta ráði Austur-Þýzkalands fyrir að hafa hjálpað hópnum, en ekki er vitað hve fjölmennur hann er. Schirdewan var sakaður um að hafa gagnrýnt foringja flokksins, Walter Ulbricht, opinberlega, en vestrænir fréttamenn höfðu talið hann einhvern traustasta fylgis- mann Ulbrichts. Hefði ieitt til hernaðarátaka „Neues Deutschland" lét svo ummælt, að hefði skoðunum Schirdewans verið framfylgt, þegar ungverska uppreisnin brauzt út haustið 1956, þá mundi hafa komið til „gagnbyltingar- ráðstafana, sem berja hefði orð- ið niður með hervaldi“. Sagði blaðið, að Schirdewan hefði ver- ið þeirrar skoðunar, „að aðferð- unum sem beitt var í Póllandi og Ungverjalandi, hefði líka átt að beita hjá okkur. En æðsta ráðið var þeirrar skoðunar, að berjast yrði af afli gegn annarlegum kenningum og skoðunum". Hópurinn var sakaður um henti stefnu í sambandi við afhjúpun Stalins, getuleysi til að berjast gegn erlendum undirróðri eða til að skilja hætturnar sem eru því samfara að leitast við að sameina Þýzkaland hvað sem það kostar. Hann var ennfremur sakaður um vanmat á borgaralegum áróðri og stefnu Atlantshafsbandalags- ins. Reyndiu að treysta flokkslínuna ■ Fyrstu merkin um misklíð inn- an flokksins komu í gær, þegar gefin var út yfirlýsing eftir 4 daga fund miðstjórnarinnar, þar sem ráðizt var á „starfsemi ákveðinna hentistefnumanna, sem reynt hafa að breyta flokkslínunni". „Neues Deutschland" sagði, að Erich Honecker, nýskipaður rit- TÚNIS, 8. febr. — Stjórnin í Tún is tilkynnti í dag, að sveit franskra sprengjuflugvéla hefði eytt landamæraþorpinu Sakiet- Sidi-Youssef. Símasamband við þorpið slitnaði, en fyrstu tölur um dauðsföll voru 100, og 75 særðir. Þorpið er á landamærum Túnis og Alsír nálægt staðnum þar sem hópur serkneskra uppreisnar- manna sat fyrir frönskum her- flokki 11. jan. sl. og drap 15 franska hermenn en tók 5 til fanga. Einn dó af sárum, en hinir fjórir eru enn á valdi uppreisn- armanna. Sendiherra kallaður heim Stjórnin í Túnis kallaði í kvöld sendiherra sinn heim frá París og krafðist tafarlausrar heim- köilunar ailra franskra hermanna frá Túnis, en Frakkar hafa haft þar flug- og flotabækistöðvar. Ósamhljóða fréttir Fregnum um árásina á þorpið ber ekki saman. í fréttum frá Túnis segir að um % hlutar þorps ins hafi hrunið til grunna, sprengjur hafi hæft pósthúsið, lögreglustöðina og einn skóla þar sem öll börnin létu lífið. í þorp- mu bjuggu um 1200 íbúar. Frakkar skýra svo frá, að frönsk könnunarflugvél hafi orð- ið fyrir fallbyssu- og vélbyssu- skothríð frá stöðvum í Túnis ari í flokknum, hefði skýrt mið- stjórninni frá sundrungariðju Schirdewans, Wollwebers og ann arra. Ákæruatriðin Hcietu ágreiningsefni mið- stjórnarinnar og þessara manna voru sögð þessi: • - • Mennirnir tóku upp hentistefnu eftir 20. flokksþing rússneska kommúnistaflokksins. • Þeir höfðiu rangt mat á stefnu Atlantshafsbandalagsins og tilraunum vestur-þýzkra hern aðarsinna til að grafa undan Austur-Þýzkalandi. Framh. á bls. 23 skammt frá landamærum Alsír. Hafi þá verið send flugsveit á vettvang sem í voru 11 sprengju- flugvélar af gerðinni B-26, sex Corsair-vélar og átta Mistral- orr- ustuflugvélar sem hafi ráðizt á herstöðvarnar. Ennfremur segir í tilkynningu Frakka, að tekizt hafi að eyðileggja tvö fallbyssu- stæði og laska hið þriðja. HAAG, 8. febrúar — Hollenzka stjórnin hefur vísað á bug til- raunum Rússa til að fá hana til að hætta samstarfi við vestrænar þjóðir. f löngu svarbréfi Willems Drees forsætisráðherra til Búl- ganins segir, að vestrænar þjóðir sjái sig tilneyddar að halda Atl- antshafsbandalaginu öflugu, með an þeim er ógnað af hernaðar- mætti Sovétríkjanna. Drees, sem er foringi hol- lenzkra sósíalista, kvaðst vera sér meðvitandi um hinar hræði- legu hörmungar, sem kjarnorku- styrjöld mundi leiða yfir allar þjóðir, en samstarf Atlantshafs- þjóðanna drægi úr hættunni á slíkri styrjöld. Ferill Rússa síðan 1945 Ráðherrann hrekur þær full- yrðingar Búlganins, að Atlants- KAÍRÓ, 8. febr. — Kamal el din Hussein menntamálaráðherra Eg- yptalands hélt fyrsta erindi sitt í Kaíró-útvarpið í dag í erinda- flokki sínum „Lexíur hins sam- einaða Arabalýðveldis". Skoraði hann þar á Araba meðfram allri Miðjarðarhafsströnd Afríku frá Rabat i Marokkó til Latakia í Sýrlandi að sameinast um eina ríkisstjórn. Hann sagði a* frönsk heims- valdastefna í Alsír og nýlendu- vinningar Zíonista í Palestínu mættu ekki rjúfa fylkingar Ar- aba. Ilann skoraði á Arabana í Rabat, Alsír, Túnis og Bizerta, í Tripoli og Benghazi, í Jaffa og Haifa (í ísrael), í Latakia, Amm- an og Sana í Jemen að bindast samtökum um eina stjórn. E1 Badr krónprins í Jemen hélt áfram viðræðum sínum við egyzka ráðamenn í dag í sam- bandi við inngöngu Jemens í ríkjasamband Araba. Ríkti þar „bróðurhugur og skilningur“, seg ir í fréttum Kaíró-útvarpsins. Sagði útvarpið, að Kuwatly og Nasser hefðu lagt á það áherzlu, að þeir mundu virða stjórnir og hefðir þeirra Arabaríkja, sem gerðust aðilar að sambandinu sem Sýrland og Egyptaland hafa sett á laggirnar. Hvert ríki mundi halda sjálfstæði sínu. Ekki er talið líklegt, að Jem- en gangi í ríkjasambandið í 'ðráð- ina, og muni fyrst verða reynt hafsbandalagið hafi á prjónunum árásarstrið og gerir lítið úr þeirri staðhæfingu, að Rússar æski frið samlegrar sambúðar án afskipta af innanríkismálum annarra þjóða. í bréfinu er rakin ferill Rússa síðan 1945, hervæðing þeirra og árásir á saklaust fólk og kúgun þeirra á ríkjum Austur- Evrópu. Einnig er bent á við- bj-ögð Rússa við samkomulaginu í Genf 1955 um sameiningu Þýzkalands og frjálsar kosningar. Forsætisráðherrann sagði enn- fremur í bréfi sínu:„Það er óþarft að taka það fram, að því aðeins er hægt að draga úr viðsjám í heiminum, að menn reyni að gera sér grein fyrir orsökum þeirra. Af bréfum yðar er auðsætt, að skoðanir okkar í þessu efni eru ákaflega ólíkar“. Frakkar eyða þorpi í Túnis Drees svarar Búlganin að ganga frá sáttmála sem önn- ur Arabaríki geti líka gengið að. Talsmaður Jemens sagði í dag, að viðræðurnar hefðu einkum ver- ið um hernaðarlega hlið sam- bandsins. Krónprinsinn lét svo ummælt við fréttamenn í dag, að hann væri þess fullviss, að önnur Araba ríki mundu ganga í ríkjasam- bandið, þegar þau gerðu sér grein fyrir hinum gagnlegu afleiðing- um sliks sambands. Fornleifafundur við suðurpólinn LONDON, 8. febr. — Rússneski leiðangurinn við suðurheim*- skautið hefur fundið „harðar leifar sem líkjast beinum úr dýr- um“, segir í tilkynningu rússn- esku Tassfréttastofunnar. Þessi dýr lifðu sýnilega við suðurheims skautið fyrir hundruðum millj- óna ára. Rússarnir fundu líka leifar af trjám og för eftir laufblöð í sand steini, sem hljóta að hafa verið þar í 250 milljón ár, að áliti rússnesku vísindamannanna. — Rússarnir fundu umrædda hluti þegar þeir lentu við Horn Bluff í Georgs-konungs-V-landi, fyrir austan Ross-hafið. Annar leiðangur, sem er að rannsaka sjávarkant heimsskauts landsins hefur komizt að raun um, að strandlengjan er ekki rétt merkt á landabréfinu. Mannakjöt á boðstólum LEOPOLDVILLE, Belgíska Kongo, 8. febr. — Lögreglan í Leopoldville er nú að rannsaka, hvort haldið er uppi sölu á mannakjöti í Belgíska Kongo. — Hófst þessi rannsókn eftir að inn fæddur maður hafði boðið belg- iskum embættismanni að selja honum dálítið „kjöt“. Afríkumaðurinn var handtek- inn þegar hann var að drepa ann an innfæddan mann, og játaði hann níu morð. Kvaðst hann hafa drepið fólkið til að „hafa nægar kjötbirgðir". í Stanleyville í Mið-Kongó voru fimm innfæddir menn hand teknir og sakaðir um að skera og éta hluta af öðrum innfædd- um manni. jt *■ t

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.