Morgunblaðið - 09.02.1958, Síða 12

Morgunblaðið - 09.02.1958, Síða 12
12 MORCUTS fíL AÐ1Ð Sunnudagur 9. febrúar 1958 isisMáMfr tJtg.: H.í. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjón: Sigfus Jónsson. Aðaintstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Ásmundsson. Lesbók: Arni Öla, sími 33045 Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjalci kr. 30.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 1.50 eintakið. FYRST ER LOFAÐ, SVO ER FRESTAÐ ÞANN 19.. apríl 1956 birti Tíminn stjórnmálayfir- lýsingu og stefnuskrá Hræðslubandalagsins eða hina „ýtarlegu stefnuskrá um alhliða viðreisn efnahagslífsins og þróttmikla framfarabaráttu" sem svo var kölluð. Þessi mikla lof- orðaskrá, sem tók yfir hérumbil tvær síður í Tímanum, var svo staðfest í stjórnarsáttmálanum með Hræðslubandalaginu og kommúnistum að kosningunum loknum. í þessari miklu skrá var því heitið, að nú skyldi „brjóta blað í íslenzkum sjórnmálum". Nú skyldi forðað öngþveiti í efna hags\ og stjórnmálalífi þjóðarinn ar og skyldi nú tekin upp „ný stefna í efnahagsmálum þjóðar- innar“. í loforðaskránni var bent á, að höfuðatvinnuvegum lands- manna væri haldið uppi með beinum styrkjum og opinberu fé og „gífurlegu álagi á neyzluvöru almennings“. Einnig var talað um, að þjóðin byggi við „römm- ustu gjaldeyrishöft", enda væri skortur á gjaldeyri „til kaupa á brýnustu nauðsynjum". Öllu þessu átti að kippa í lag og Tím- inn tók svo til orða í foystugrein sinni þennan sama dag, að nú væri „brotið blað í stjórnmálasög unni“ og skyldi nú hafið „björg- unarstarf", til þess að bægja frá hættunni, sem væri framundan, eða „viðreisn í landinu með kröft ugri framfarastefnu", eins og það var orðað. Stjórnarflokkarnir létu sér ekki nægja að mála upp hin glæsilegu markmið, heldur var einnig vikið að því, hvaða leið skyldi fara til þess að ná þessu. Var þá fyrst og fremst bent á, að fyrri hluta ársins 1956 væri ástandið orðið svo „dökkleitt" að ekkert nægði nú minna en allsherjarúttekt á þjóðarbúinu, sem skyidi fara fram „fyrir opnum tjöldum", svo að allri íslandsþjóð yrði nú ljóst, hvar hún væri stödd og hvað þyrfti til þess að bægja háskan- um frá. Nokkru eftir að ríkisstjórnin tók við störfum, kvaddi hún hing að erlenda fjármálasérfræðinga sér til ráðuneytis og var þá lálið heita svo að nú skyldi sú úttekt fara fram sem lofað var. En álits gerð sérfræðinganna var grafin niður í skúffur og „fyrir opnum tjöldum" fór engin úttekt fram og er ýmsum getum leitt að því hvernig á því hafi staðið að ekkert varð úr því að opna tjöldin og lofa landsfólkinu að líta inn fyrir. ★ Ríkisstjórnin tók við völdum á miðju sumri 1956, eins og mönn um er í fersku minni. Nú leið á löngu áður en nokkuð væri að- hafzt. Þing kom saman á venju- legum tíma, án þess nokkuð ból aði á hinni alhliða viðreisn efna- hagslífsins og það var komið unair jól, þegar stjórnin loksins lét á sér bæra og lagði fram hið alræmda frumvarp um jóla- gjöfina, þar sem þyngri skatta- byrðar voru lagðar á landsmenn heldur en nokkurn tímann hefur verið gert áður. Þá var látið í veðri vaka, að þetta væri ekki sú endanlega „alhliða viðreisn" ] sem boðuð hefði verið, heldur væri hér um bráðabirgða tiliógur að ræða, sem síðan yrði svo breytt yfir í þá viðreisn, sem þjóðinni hafði verið lofað. ★ Menn tóku á sig þessar nýiu byrðar og margir trúðu því enn, að ríkisstjórnin ætlaði sér að efna hin stórfenglegu loforð um við- reisnina og væri því ekkert ann- að en bíða og hlýða, þar til henni þóknaðist að skera nú á meinin og lækna hið „helsjúka efnahagslíf", sem forsætisráð- ann hafði svo fjálglega útmálað í ræðu og riti. En tíminn leið og ekki hófst viðreisnin. A árinu 1957 kom nýtt þing saman, þegar haustaði og bjuggust nú allir við að þá væru tilbúnar viðreisnar- tillögurnar, enda hafði nú lengi verið eftir þeim beðið. Én það fór eins og árið áður, að tillögurn ar birtust ekki. Eitt atriðið í stefnuskránni um alhliða viðreisn efnahagslífsins hafði verið að „tryggður skyldi hallalaus ríkis- búskapur", eins og það var orðað. Þetta tókst ekki betur en svo. að fjármálaráðherrann gafst upp við að leggja fram hallalaus fjárlög en slengdi fjárlagafrumvarpi inn í þingið með þeirri ummælum að nú yrði iöggjafarsamkoman að finna leiðir til þess að jafna hall- ann. Sjálfurgafst fjármálaráðherr ann upp. Eftir að lengi hafði verið setið yfir þessu frumvarpi, var fundið það snjallræði að höggva einfaldlega dýrtíðarráðstafirnar aftan af fjárlögunum og slá þeim enn á frest, en afgreiða meiri- hlutann sér. ★ Nú er þing enn komið saman eftir nokkra frestun og ekkert bólar á hinum „varanlegu úrræð- um“. Á Alþingi á fimmtudaginn var komu þessi mál til umræðu og deildu Sjálfstæðismenn þá harðlega á starfshætti þingsins, þar sem ekkert mál lægi fyrir, sem verulegu máli skipti. Her- mann Jónasson, forsætisráðherra, talaði um að sérfræðingar væru nú enn að semja álitsgerð um efnahagsmálin og sagði hann fyrst að hún yrði tilbúin um mán aðamótin næstu en síðar að hún yrði tilbúin upp úr þeim. Var á það bent að svo liti út sem ríkis stjórnin kærði sig ekki um að koma fram með neinar tillögur í efnahagsmálunum fyrr en kosningunum í verkalýðsfélög- unum væri lokið og sæti því enn við hið sama og áður, að engin úrræði væru lögð fram. ★ Ferill ríkisstjórnarinnar í efna- hagsmálunum er með eindæmum. Hann hófst með hinu taumlausa loforðaskrumi fyrri hluta ársins 1956 og enn er haldið áfram á sömu braut, fyrst er lofað og síðan er frestað. Við kosningarnar 26. janúar sýndi þjóðin að hún er orðin leið á þessum leik hún vill ekki lengur slíkar aðferðir og ríkisstjórnin er nú orðin óvin- sælli en nokkur íslenzk ríkis- stjórn hefur verið um langt skeið. UTAN UR HEIMI Tyrkir hafa átt í stöð- ugum erjum við tlússa Nota öll tækifæri til Jbess oð efla aðsiöðu sina gagnvarf Jbeim ' SIÐUSTU 300 árin hafa Tyrkir ; háð svo margar styrjaldir við I Rússa, að þeir eru búnir að týna I tölu á þeim. A.m.k. ber Tyrkj- 1 um ekki saman um hve margar i þær eru, sumir segja 13 — aðr- ' ir 22. En nákvæm tala þeirra | skiptir ekki -máli. Eitt er vist, að 1 Tyrkir hata Rússa og fyrirlíta — þeir hafa fengið nóg af sam- búðinni. Kali Tyrkja í garð Rússa er ekki bundinn við eiri- ' staka forystumenn Rússlands, • heldur þjóðina sem heild — og i þess vegna breytist afstaða Tyrkj . ans til hins rússneska nágranna 1 ekki, enda þótt tíð mannaskipti Iséu í æðstu valdastólum í Kreml. Það er því ekki fjarri sanni, að tyrkneski bóndinn hafi frá alda öðli ræktað jörð sína með byssu í annarri hendi. Tyrkir eru vanir hernaði, þeim finnst — og hefur alltaf fundizt sjálfsagt að ungir menn gegndu herþjónustu — og her þeirra telur í dag 470.000 manns. „Aðalvandamálið í viðskiptum okkar við banda- lagsríki okkar er að fá þau til þess að koma upp her, jafnlitl- um og hægt er að komast af með, en aðalvandamálið í sam- bandi við Tyrkina er að fá þá til að hætta einhvern staðar", sagði starfsmaður bandaríska ut anríkisráðuneytisins fyrir stuttu. Vildu fá eldflaugar Tyrkir voru heldur ekki lengi að ákveða sig, er stofnun Bag- dad-bandalagsins stóð fyrir dyr- um. Þeir óttast alltaf Rússa og eru fengnir hverri tryggingu, sem þeir hljóta gegn árásum af þeirra hálfu. — Menderes, for- sætisráðherrar hikaði heldur ekki við að lýsa því yfir strax, er Bandaríkjamenn buðust til þess að senda bandalagsríkjum sín- um eldflaugar, að Tyrkir mundu taka við jafnmiklu magni af eld- flaugum og kjarnorkuvopnum og Bandaríkjamenn vildu láta af hendi — og hann kvað Tyrkland vera reiðbúið til þess að hefja eldflaugastöðvabyggingu þá þeg- „Tyrkneski járnkarlinn<£ ruddist fram Eh úr þvi að við minnumst á Menderes á annað borð — þá verðum við að gera honum betri skil, því að han er í hópi at- hyglisverðustu stjórnmálamanna, sem nú eru uppi. „Tyrkneski járnkarlinn" hefur hann verið nefndur — og svo mikið er víst, að járnharður er hann og hvikar hvergi frá settu marki: Að um- breyta Tyrklandi á nokkrum ár- um, breyta því í öflugt iðnaðar- veldi — og uppræta lognmollu og fátækt hinnar rótgrónu bænda- menningar. Menders á langan stjórnmála- feril að baki, en framan af lét hann lítið á sér bæra, virtist hlé- Menderes drægur og rólyndur. Hann var aö læra og kynnast þvi „hvernig stjórnin liti út að inan frá“, eins og hann hefur orðað það — og þegar hann hafði séð það, tók hann á sig rögg og ruddist fram á svið stjórnmálanna í fylkingar- brjósti demokrataflokksins, sem hann stofnaði ásamt nokkrum bandamönnum sinum. 65% ólæsir og annað eftir bví Ári# 1950 varð Menders for- sætisráðherra, eftir að flokkur hans hafði unnið stóran kosninga sigur. Þjóðartekjur Tyrklands voru þá njjög litlar miðað við stærð lands'ins og íbúafjölda. Efna hagur var þröngur og fram- kvæmdir litlar — aðallega vegna þess, að erlent fjármagn hafði um langt skeið verið hið mesta eitur í augum fyrri forystumanna þjóðarinnar — og sjálfir höfðu Tyrkir ekki bolmagn til þess að ráðast í neinar stórframkvæmdir og fjárfestingu, sem eflt gæti iðnað og aukið útflutningsverð- mætin sem einhverju næmi. Aðal útflutningsvarningurinn var þá tóbak, korn, rúsínur, fíkjur og króm. 65% hinna 20 milljóna, sem landið byggja, voru ólæsir og óskrifandi, vatnsveitur vom nær engar í landinu — og í stór- um héruðum var hvergi að fá heilsusamlegt drykkjarvatn, hin- ir 27.000 mílna löngu þjóðvegir landsins voru flestir hverjir „ak- færir kerrum — í þurrkatíðinni“ — og bændastéttin, 80% þjóðar- innar, hafði nær engin stjórn- málaleg áhrif. Verksmiðjur spruttu upp eins og gorkúlur um allt landið Það fyrsta sem Menders gerSl var að reyna að efla einkafram- takið með ráði og dáð, draga úr innflutningshömlum og opna all- ar dyr fyrir erlendu fjármagni inn í landið. Síðan fóru verk- smiðjurnar að spretta upp eins og gorkúlur um allt landið, sem- entsverksmiðjur, sykurverksmiðj ur, stálbræðslur og raforkuver, Frá 1950 hefur geysivíðtæk raf- væðing farið fram í landinu — og samanlögð lengd nýrra raf- magnslína er nú nær sjö sinn- um meiri en hún var árið 1950. Og Menderes gleymdi ekki aðal- atvinnuveginum, landbúnaðinum. Árið 1953 varð uppskeran 8.200.- 000 lestir, en árið 1950 hafði hún verið 3.800.000 lestir. Undir stjórn Menderes voru áveitukerfi bænda tífölduð á skömmum tíma, ný- tízku landbúnaðarvélar voru flutt ar inn og bændum var kennt að hagnýta sér nýjustu aðferðir við ræktun. Sykuruppskeran hefur og þrefaldazt á þessu tímabili og afkoma almennings stórbatn- að. Áherzla hefur verið lögð á menntamál, því ekki veitti af, samgöngumálum hefur verið kom ið í betra horf — vegir og flug- vellir hafa verið byggðir um allt landið — og nú síðast hefur Men- deres ákveðið að láta breyta Ist- anbul í nýtízku borg. Verkið er komið nokkuð á veg, og þegar hefur það kostað yfir 200 millj. dollara — en mikið er enn eftir. Menderes bjartsýnn, enda þótt ástandið sé illt Á þessu sést, að miklar breyt- ingar hafa orðið í Tyrklandi á undanförnum árum. En þær hafa kostað peninga — mikla peninga. Enda þótt Tyrkir hafi unnið vel og útflutningsverðmæt- in hafi margfaldast, hefur það ekki hrokkið til. Erlent fjármagn hefur streymt til landsins í óslitn um straumi — og er bróðurpart- ur þess fjár kominn frá Banda- ríkjunum. En þetta hefur heldur ekki dugað. Fjármálaástandið er mjög lélegt í landinu og gjald- miðillinn ótryggur. Skráð gengi tyrknesku lírunnar er 2,8 miðað við dollar, en á svörtum markaði í Tyrklandi er gangverð- ið nú 14 lírur fyrir dollarann. Óáran hefur og dregið úr upp- Framh. á bxs. 22

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.