Morgunblaðið - 20.03.1958, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.03.1958, Blaðsíða 2
2 MORCVNBL4ÐIÐ Flmmtudagur 20. marz 1958 Banicasfjóranum heimilf að draga hallareksfur frá fekjum f dag- eiga þessir brunaverðir 15 ára starfsafmæli í Slökkviliði Reykjavíkur, en menn þessir eru í fremri röð frá vinstri: Svav- ar Sigurðsson, Sigurgeir Benediktsson, Leó Sveinsson og Sigur- þór Þórðarson. I aftari röð eru, einnig talið frá vinstri: Sveinn Ólafsson, Finnur Richter, Jóhann Hannesson, Óskar Óiafsson og Kristinn Ólason. Á myndina vantar einn brunavarðanna, Gústaf Guðjónsson. — Um leið og þessir brunaverðir tóku til starfa voru meðal þeirra Sigurbjörn Maríusson, sem lézt af slysförum í starfi, og Guðmundur Karlsson, sem nú er hættur störfum í Slökkvilioinu. — Þessir brunaverðir minnast þessa starfsafmælis í kvöld með hófi. Framsókn lék fveim skjðldum við bæjarsfjórakjór á Kúsavík Bæjarsijórinn látinn víkja vegna þess að hann er Sjálfstæðismaður í HÆSTARÉTTI er genginn dóm- ur í máli, sem tollstjórinn í Reykjavík fyrir hönd ríkissjóðs höfðaði gegn Vilhjálmi Þór aðal- bankastjóra. Var krafizt lögtaks hjá bankastjóranum til trygging- ar tekjuskattseftirstöðvum fyrir árið 1956, en þær námu 51.815,00 krónum. Vilhjálmur Þór vann þetta mál í undirrétti og einnig fyrir Hæsta- rétti. Bankastjórinn er eigandi að hálfu að búinu Rangársandur s.f. í Rangárvallahreppi. Á framtali sínu fyrir árið 1956, hafði V. Þ. talið fram sem rekstrarhalla á búrekstri sínum kr. 199.986,50. En skattstjórinn í Reykjavík hafði strikað þennan hallarekstur út og talið hann ófrádráttarbæran. Aftur á móti til frádráttar 35 þús. kr. í vaxtagreiðslur vegna bú- rekstrar. Þessa skattaálagningu kærði V. Þ. til skattstjóra, síðan til yfirskattanefndar og þá til ríkisskattanefndar. Fyrir undirrétti var það viður- kennt að eftirstöðvar tekjuskatts kr. 51.815,00, stafi eingöngu af teknahækkun, er skattstjórinn hafi gert á framtali bankastjór- ans, vegna þess að hann hafi ekki viljað leyfa frádrátt á rekstrarhallanum á búrekstri hans austur í Rangárvalla- hreppi. Fyrir dómstólunum var því um það fjallað, hvort frádráttur þessi sé heimill eða ekki. Því var meðal annars haldið fram fyrir undir- rétti, af tollstjóra, að búrekstur bankastjórans sé með þeim hætti, að honum sé ekki heimilt að draga halla af honum frá tekj- um sínum til skatts. Hann hafi fyrst og fremst tekjur fyrir störf sem bankastjóri, en búreksturinn sé ekki rekinn í framfærsluskyni. Hann búi ekki á jörðum félags- ins né stjórni þar rekstri á þeim. Sé þaS í samræmi við þá reglu ríkisskattanefndar a ðleyfa ekki frádrátt á tapi þeirra gjaldenda á landbúnaði, sem hafa aðra aðalatvinnu. Einnig voru land- búnaðarskýrslur sem fylgdu framtali, gagnrýndar af toll- stjóra. Bankastjórinn hélt því hins vegar fram, að ef hann hefði Fyrirspurn til heilbrigðismála- ráðherra og land- læknis ÞANN 15. jan. s.l. fór héraðs- læknirinn héðan úr plássinu, þar sem honum hafði verið veitt annað hérað. Þann 1. febr. s.l. var útrunninn umsóknarfrestur um héraðið hér. Heyrzt hefur að sótt hafi verið um Flateyrar- hérað, en ekki mun það hafa verið tilkynnt opinberlega. Vegna almennrar óánægju með læknis- leysi í héraðipu á þessum tíma árs, er hér með óskað eftir að fá upplýst opinberlega, hvort það sé rétt að umsóknir hafi komið fram um héraðið, og þá á hvaða forsendum það hafi ekki verið veitt eða hvort ekki hafi verið mögulegt að fá hingað lækni um tíma. Flateyringur. FRÁ ALÞINGI Á DEILDAFUNDUM í dag eru þessi frv. á dagskrá: Efri deild: Ríkisreikningurinn 1955. Hús- næði Vinnuveitendasambandsins. Innflutningsskrifstofur utan Reykjavíkur. Stóreignaskattur. Skólakostnaður. í neðri deild: Bráðafúi. Ríkisborgararéttur. Húsnæðismál. Eyðsla hjá ríkinu (frv Jóns Pálmasoiiai;. rekið útgerð á sama hátt og hann rekur landbúnað og orðið fyrir taprekstri, þá hefði hann orða- laust fengið þann taprekstur dreginn frá tekjum sínum til skatts. Væri um hreina valdníðslu að ræða hjá skattyfirvöldunum að neita honum um frádrátt á tapi vegna búrekstrar síns, þeg- ar þau heimila aðiljum, sem eins eru settir, frádrátt á tapi vegna útgerðar. Þessu sjónarmiði hafði tollstjóri mótmælt, en banka- stjórinn aftur á móti mótmælt því, að það skipti nokkru máli hvort hann hefði framfræslu af búrekstrinum eða byggi sjálfur á jarðeignum sínum. f forsendum dóms undirréttar, segir m. a. á þá leið: „að telja verði að bankastjórinn hafi gert fullnægjandi grein fyrir tapi sínu á skattframtali, og að honum hafi því verið heimilt skv. 10. gr. b-lið laga nr. 46 frá 1954, að draga margumrætt reksturstap sitt frá skattskyldum tekjum sín- um“. Síðan segir: „Skattstjóra var því ekki heimilt að hækka skatt- skyldar tekjur bankastjórans um hið framtalda tap hans á bú- rekstri á árinu 1955“. Með þessum orðum var synjað um framgang hins umbeðna lög- taks. í forsendum dóms Hæstaréttar er staðfesti dóm undirréttar, seg- ir m. a.: Áfrýjandi (Tollstjórinn), sem hefur skotið máli þessu til Hæsta- réttar, gerir aðallega þær dóm- kröfur, að hinum áfrýjaða úr- skurði verði vísað heim í hérað og að hvorum aðilja verði gert að greiða sinn kostnað af málinu. Tíl vara krefst hann þess, að lög- tak verði heimilað fyrir kr. 51.815.00 ásamt dráttarvöxtum og kostnaði og að stefnda verði dæmt að greiða áfrýjanda máls- kostnað í héraði og fyrir Hæsta- rétti. Stefndi krefst staðfesting- ar hins áfrýjaða úrskurðar og málskostnaðar fyrir Hæstarétti að mati dómsins. Engir þeir gallar eru á með- ferð máls þessa í héraði né á hinum áfrýjaða úrskurði, er vald- ið geti heimvísun málsins. Verð- ur aðalkrafa áfrýjanda því ekki tekin til greina. Það er almenn regla íslenzkra skattalaga, að tekjur, sem skatt- þegn kann að afla með ýmiss kon ar atvinnurekstri eða á annan hátt eru lagðar saman og tekju- skattur síðan reiknaður af þeim í einni heild. Þegar skattþegn kann að bíða halla á atvinnu- rekstri, svo sem hér er um að ræða, leiðir að sjálfsögðu af þessu, að þann halla ber að draga frá öðrum tekjum hans, áður en tekjuskattur er á þær lagður, nema lög kunni að mæla fyrir á aðra leið. En um það er hér ekki að ræða. Með skírskotun til þessa og til þeirra raka, sem greind eru í hinum áfrýjaða úr- skurði, á stefndi kröfu til, að tap hans á landbúnaði sé dregið frá tekjum hans, áður en skattur er á þær lagður. Áfrýjandi hefur vefengt að tap stefnda á landbúnaði hafi orðið eins mikið og í framtali hans greinir. Stjórnvöld skattamála hafa ekki notað heimild 35. gr. laga nr. 45/1954 til þess að skora á stefnda að láta í té nánari skýr- ingar á landbúnaðarskýrslu hans og áætla síðan rekstrarhalla hans á landbúnaði, ef hann varð ekki við þeirri áskorun eða svar var ekki fulinægjandi. Þar sem þetta var ekki gert, verður að leggja skýrslu þessa til grundvallar við ákvörðun rekstrarhallans. Samkvæmt framanskráðu ber að staðfesta hinn áfrýjaða úr- skurð. Eftir þessuiyi úrslitum er rétt, að áfrýjandi greiði stefnda máls- kostnað í Hæstarétti. HÚSAVÍK, 19. marz. — Bæjar- stjórakjör hér í Húsavík hefur þótt allsögulegt og endalok þeirra mála munu ekki vera að vilja meirihluta bæjarbúa, en bæjarstjórn Húsavíkur kaus í dag Áskel Einarsson skrifstofu- mann úr Reykjavík sem bæjar- stjóra. Bæjarstjórn Húsavíkur er þannig skipuð að Sjálfstæðis- menn eiga 1 fulltrúa, en hinir flokkarnir tvo hver. Á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir kosning arnar í vetur báru Framsóknar- menn fram till. um að endur- kjósa Pál Þór Kristinsson, sem bæjarstjóra til næstu fjögurra ára. En þeir voru jafnframt vit- andi þess að kratar og kommún- istar mundu bera fram tillögu Varnir gegn bráðafúa STJÓRNARFRUMV. um varnir gegn bráðafúa í fiskiskipum var til 2. umr. á fundi neðri deildar Alþingis á þriðjudag. Sjávarút- vegsnefnd deildarinnar hafði skilað áliti um málið og lagt til, að það yrði samþykkt með nokkrum breytingum á orðalagi. Einnig lagði nefndin til, að ekki yrði lögskipað, að gerðardómur um ágreining vátryggða og vátryggingarsala yrði háður í Reykjavík. Stjórnarliðar í nefnd inni lögðu loks til, að samráð um iðgjöld skyldi haft við atvinnu- og fjármálaráðuneytið meðan leita þarf endurtryggingar hjá ríkissjóði. í frumv. var upphat- lega gert ráð fyrir, að aðeins þyrfti að hafa samráð við fjár- málaráðuneytið. Gísli Guðmundsson var fram- sögumaður nefndarinnar, en síð- an tók Péiur Ottesen til máls. Hann sagði m.a., að nefndin hefði rætt um, að nauðsynlegt væri, að með iðgjaldagreíðslur vegna þessarar tryggingar væri farið eins og aðrar iðgjalda- greiðslur útvegsins, meðan nú- verandi ástand er í íjárhagsmál- um hans. — Allar breytingatillög urnar voru síðan samþykktar og málinu vísað til 3. umr. um að starfið yrði auglýst. Fékk tillaga um að kjósa Pál Þór 3 at- kvæði, en tillagan um að aug- lýsa starfið var samþykkt með 4 atkvæðum. Síðan hafa framsókn- armenn og kratar unnið að því að útvega bæjarstjóraefni úr sín- um herbúðum, en ekki unnið að því að fá Pál Þór Kristinsson kjörinn, en það er almennur vilji bæjarbúa. — Páll Þór hefur reynzt traustur og dugandi bæj- arstjóri þau 2i/a ár, sem hann hefur gegnt starfinu, eftir að kratar og kommúnistar gáfust upp á samstarfi. Bæjarbúar telja, að landsmála pólitík eigi ekki heima í bæjar- málum Húsavíkur. Bæjarbúar vildu ekki að Páll Þór yrði lát- inn víkja úr bæjarstjórastarfinu vegna þess að hann væri Sjálf- stæðismaður. Hér hefur það enn einu sinni sannast áþreifanlega að þar sem mögulegt er að koma á vinstra samstarfi í bæjum landsins skal því komið á hvað sem það kostar. , — SPB. BONN, 19. marz. — Þingmenn frá Atlantshafsbandalagslöndunum luku í gær tveggja daga fundi í Bonn. Samþykkti fundurinn að leggja til við Atlantshafsráðið að skipuð verði nefnd borgara frá bandalagsríkjunum til þess að vinna að bættri samvinnu banda- lagsríkjanna — og gera tillögur í KVÖLD heldur félagið Alliance Francaise skemmtifund fyrir fé- lagsmenn sina og aðra í Tjarnar- kaffi. Hefst fundurinn með því að franski sendikennarinn við Há skólann, ungfrú Madeleine Gagn aire flytur erindi um franska myndhöggvarann Bourdelle, sem lifði í byrjun þessarar aldar og er kunnur í Frakklandi fyrir j msar áhrifamiklar höggmyndir. Rit Jóns Sigurðssonar Á FUNDI í samcinuðu þingi í gær var rætt um þingsályktunar tillögu þá um útgáfu á ritum Jóns Sigurössonar, sem sagt var frá í Mbl. á laugardaginn. Emil Jónsson flutti framsögu- ræðu, en hann er flutningsmaður tillögunnar ásamt þeim Bern- harð Stefánssyni og Einari Ol- geirssyni. Tillagan gerir ráð fyrir heildar útgáfu á ritum Jóns Sigurðsson- ar. Málið kom upphaflega til umræðu í menntamálaráði, og liggja fyrir áætlanir um stærð ritsafnsins og kostnað við útgáf- una. Er gert ráð fyrir, að hún verði í 10 bindum, og kosti um 5.5 millj. kr., ef miðað er við 5000 eintaka upplag. Ríkið sjálft og menntamálaráð myndu skipta kostnaði á milli sín í hlutfallinu 3:2, en hagnaður, sem gert er ráð fyrir að verði nokkur, þegar verk inu er lokið, renni í „Gjöf Jóns Sigurðssonar11. Rit Jóns Sigúrðssonar eru geysimikil að vöxtum, bæði prentuð og óprentuð, en almenn ingur á ekki greiðan aðgang að þeim. Gert er ráð fyrir, að útgáfa þeirra myndi skiptast í 5 aðal- flokka: DÞingræður og þingskjöl. 2) Blaðagreinar. 3) Ritgerðir um stjórnmál. 4) Vísindalegar ritgerðir. 5) Bréf. Ætlun þeirra, sem unnið hafa að málinu, er sú, að 1. bindi rit- safnsins komi út 17. júní 1961, á 150 ára afmæli Jóns Sigurðsson- ar. Dnnslngnkepp- nin heist í kvold DANSLAGAKEPPNI Félags ís- lenzkra dægurlagahöfunda hefst á Þórscafé í þessari viku. Keppn- in í gömlu dönsunum hefst í kvöld, fimmtudag, og leikur þá J.H.-kvintettinn, söngvari Sig- urður Ólafsson. Keppnin í nýju dönsunum hefst hins vegar á föstudagskvöld ið og leikur þá hljómsveit Aage Lorange, söngvarar Didda Jóns og Ragnar Halldórsson. Átta lög verða hvert kvöld, alls 16 í hvorum flokki. eða sam- tals 32 lög. Um 60 danslög bárust keppninni að þessu sinni. til ráðsins um beztu leiðirnar til slíkrar samvinnu. Jafnframt var lagt til að á næsta ári, á 10 ára afmæli banda- lagsins, yrði boðað til mikillar ráðstefnu sem aðallega skal ræða samvinnu bandalagsríkjanna á sviði stjórnmála, efnahagsmála og vísinda. Með erindinu loknu verða sýnd kvikmynd sem fjallar um ævi Bourdelles og listaverk hans. Annað atriði á dagskrá sam- komunnar er, að Ingvar Jónasson leikur einleik á fiðlu, en Fritz Weisshappel leikur undir á píanó Er það nú orðin venja, að ágæt- ir íslenzkir listamenn koma fram á samkomum Alliance Francaise. Að lokum verður svo stiginn dans til kl. eitt um nóttina. Tillögur um aukna sam vinnu NATO-ríkjanna Erindi um f ranskan myndhöggvara á kvöldvöku Alliance Francaise

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.