Morgunblaðið - 28.03.1958, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.03.1958, Blaðsíða 6
6 MORCVP/BLAÐIÐ Fðstudagur 28. marz 1958 Spaak ræðir um hina samræmdu utanríkisstefnu NATO-þjóðanna FYRIR nokkru flutti Paul Henri Spaak, framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins ræðu í Briissel, þar sem hann ræddi nokkuð þá mikilvægu þróun í alþjóðamálum, að þátttökuríki NATO eru nú far- in. að samræma utanríkis- stefnu sína í ríkara mæli en fyrr. Birtast hér nokkrir kafl- ar úr ræðu Spaaks: Ráðstefna æðstu manna Nú sem stendur er samkomu- lag og samræmi í stefnu vest- rænna ríkja. Nú fara fram þýð- ingarmiklar umræður um það, hvaða mál skuli ræða, og hver skuli verða afstaða ríkisstjórna hinna 15 vestrænu. þjóða, ef boðað yrði til ráðstefnu æðstu manna á þessu ári. Eg er þess fullviss, að við munum ekki einungis koma okkur saman um, hvaða málefni beri að taka á dagskrá slíkrar ráðstefnu, held- ur muni okkur takast að sam- ræma afstöðu okkar til þeirra. .. Ég er þess fullviss, að ef boðað verður til slikrar ráðstefnu í heiminum eftir nokkrar vikur eða mánuði, þá verðum við bún- ir að komast að samkomulagi um sameiginlegan grundvöll í utan- ríkismálum, en það er að mín- um dómi upphaf merkilegrar samvinnu. Það er bylting í sögu utanríkismála. öldum saman hafa þjóðir, einkum stærri þjóðir, far- ið eigin götur í utanríkismálum, og hefur stefna þeirra oft verið mörkuð af einstökum persónum. En í dag er það algengt og eðli- legt, að lönd eins og Bandarikin, svo að tekið sé eitt augljósasta dæmið, beri diplómatískar orð- sendingar undir fund 15 fasta- fulltrúa, áður en þær eru sendar út, og heimilar að haldnar séu umræður um þær, samþykktir gerðar, athugasemdir og breyt- ingar, sem siðan er tekið fullt tillit til. Það er geysimikil breyt- ing í sögu utanríkismála. Afvopnun Með degi hverjum verður okk- ur ljósara, að í grundvallaratrið- um getur aðeins verið ein heil- brigð alþjóðleg stefna, stefna, sem gæti leitt til almennrar afvopn- unar með eftirliti að fengnu sam- komulagi......Ekkert vandamál er eins mikið rætt nú í blöðum, á þjóðþingum og meðal almenn- ings og vandamál varðandi kjarn- orkuvopn. Ef við lítum á sögu mannkyns- íns, og þá fyrst og fremst sögu haniaðarstofnana, sjáum við, að l»eir, sem töldu, að her væri nauðsynlegur, héldu því fram, að siikur her yrði að vera sá full- komnasti, sem völ væri á í heim- inum. Sannleikur þessi, sem áður virtist hafa óvefengjanlegt og ævarandi gildi, er nú dreginn í efa. Nú er til fólk, sem segir: „Jú, við verðum að hafa her áfram, en hann þarf ekki að vera sá full- komnasti, sem völ er á, og við vörum ykkur sérstaklega við að útbúa hann með nýjustu vopn- um......“ En ef við leggjum út á þá braut, þá er engin ástæða til þess að nema staðar á miðri leið; þá væri okkur jafngott að snúa aftur að bogum og örvum, jafnvel berum hnúunum.......... Þess vegna segi ég við þá, sem andvígir eru kjarnorkuvopnum, að mér virðist, að þeir, sem hik- laust mæla gegn því að her sé útbúinn með nýjustu og full- komnustu vopnuin, enda þótt þeir geri sér fulia grein fyrir því, að hugsanlegum mótherja sé kunn- ugt um það, taka á sig þunga ábyrgð. Nú á dögurn er ekki hægt að taia um hernaðarsigur. Hernað- arsigur er og verður óhugsandi á meðan gagnárás er hugsanleg. Þetta er augsýnilega vandamál, sem hugsanlegur árásaraðili á við að stríða; því fleiri herstöðv- ar, sem við höfum og því dreifð- ari, sem þessar herstöðvar eru, þeim mun erfiðara verður að heyja árásarstrið......Þetta er ástæðan til þess, að ég tel ósenni- legt, að styrjöld brjótist út nú eða í framtíðinni. Paul Heuri Spaak framkvænidasljóri NATO. Stefna Vesturveldanna er langt um djarfari en stefna Sovétríkj- anna. Við erum reiðubúnir að hætta kjarnorkutilraunum, ekki í eitt eða tvö ár, heldur fyrir fullt og allt. En þar eð slík ráð- stöfun hefur ekki sömu áhrif og afvopnun, viljum við setja hana í samband við áætlun um bann við kjarnorkuvopnum. Við komm únistana segjum við: „Við erum reiðubúnir til þess að hætta dl- gjörlega öllum kjarnorkutilraun- um, ef þið gangið að því, að komið verði á eftirliti með þeim birgðum af kjarnkleifum efn- um, sem fyrir eru, og ef þið sam- þykkið, að ákveðið magn af kjarn kleifum efnum verði notað til friðarþarfa í stað hernaðar og gerðar verði ráðstafanir til þess að ákveðið magn af kjarnorku- sprengjum verði eyðilagt. Ef gengið væri að þessum tillögum — en þær eru í raun og veru kjarni vandamálsins — myndi afvopnunarvandamálið vera leyst að hálfu eða mestu leyti og ef til vill fyrir fullt og allt. Um reykháfa TVfÝLEGA hafa birzt hér í dálk- il unum tveir smápistlar um oliukyndingu.í fyrra skiptið var það kvörtun vegna reyks frá olíu kyndingartækjum í nágrenni þess, sem kvartaði, — í síðara sinnið birtist pistill, sem Vel- vakanda var sendur, þar sem bent var á nauðsyn þess, að hugsa vel um olíukyndingartæk- in. Glöggur maður hefur nú kom ið að máli við Velvakanda, og rætt nokkru nánar um upphitun húsa. Einkum varð honum tíð- rætt um reykháfana og þýðingu þeirra, og vill Velvakandi reyna að endursegja ummæli hans um þetta atriði hér á eftir: Maðurinn sagði, að það væri mjög undir gerð reykháfsins kom ið, hvort unnt væri að kynda af skynsemi og hagsýn'i. Reyk- háfurinn á auðvitað að fjarlægja reykinn frá eldstæðinu, og til þess að það megi takast þarf að vera súgur í háfnum. Heitt loft er, eins og alkunn- ugt er léttara en kalt loft. í gamla daga voru útbúin loftför, sem stigu til lofts einfald- lega vegna þess, að loftið í belgj um þeirra var hitað upp. Súg- urinn í reykháfunum myndast við það, að loftsúlan í þeim er hituð upp og verður því léttari Friðsamleg sambúð Ég sé ekkert, sem gæti komið í stað friðsamlegrar sambúðar. Annaðhvort höfum við friðsam- lega sambúð eða strið, og ég kýs hiklaust hið fyrrnefnda. Nú á dögum dreymir engan um að afmá kommúnismann með vopn- um, ekki aðeins vegna þess að árás er óhugsanleg frá okkar hendi, heldur einnig vegna þess að það er augljóst, að lýðræðis- hugsjónir, frelsi og virðing fyrir einstaklingnum eru algjörlega óhugsandi ef ofbeldi er ekki for- dæmt í utanríkisstefnu • okkar. Við hljótum því fremur en það að sætta okkur við friðsamlega sambúð í þeim skilningi, sem kommúnistar leggja í slíka sam- búð — þ. e. ógnun eins þjóð- félagsskipulags við annað — og eftir nokkur ár munum við sjá, hvort er betra. ögruninni tek ég með hugarró. Ég er þess full- viss, að við getum sýnt glæsi- lega yfirburði siðferðis-, heim- speki- og stjórnmálahugsjóna okkar, og jafnvel líka yfirburði efnahags- og þjóðfélagsskipulags okkar, ef við gerum ekki meiri háttar afglöp. Stefna Vesturveldanna og stefna Sovétríkjanna Stefna Vesturveldanna er hvorki neikvæð né óljós og hana skortir ekki dirfsku. Vandamál- in eru ekki óleysanleg, og ekki er vonlaust um, að unnt verði að finna atriði, sem leitt gætu til einhvers konar málamiðlunar, ef diplómatískum undirbúningi er haldið áfram á eðlilegan hátt og honum aigjörlega haldið utan við deilumál og áróður. f fyrsta lagi munu Sovétríkin ekki viður- kenna, að við höfum ekki árás i hug. Þann dag, sem okkur verð- ur trúað, mun allt andrúmsloftið breytast og allt það, sem nú virð- ist óhugsanlegt, verður fram- kvæmanlegt. Annar ágallinn er sá, að stefna Sovétríkjanna virð- ist ekki vera mjög ákveðin. Sovét leiðtogar halda áfram að hamra á því, að framtíðin sé þeirra, að sagan sanni yfirburði þeirra og hinn vestræni heimur sé dauðadæmdur. Að vissu leyti er þessi sann- en kalda loftið fyrir utan. En hversu mikið þarf þá að hita loftsúluna i reykháfnum? Það er undir því komið, hvaða gerð af kyndingartæki er notuð og hvaða eldsneyti er brennt. Auðvitað er það fjársóun, ef of mikill hiti fer með reyknum upp um háfinn. Hins vegar má reyk urinn ekki verða of kaldur, því að súgurinn verður þá ófullnægj andi. Ef reykurinn kólnar um of á leið sinni upp um reýkháf- inn, veldur það ekki aðeins því, að nauðsynlegUr súgur myndast ekki, heldur er og hætta á skað- legri rakamyndun og sótfalli. Þeir, sem hafa olíukyndingu, verða að gæta þess, að blásarinn sér ekki fyrir nægilegum súg í reykháfnum. Hann dælir aðeins því lofti, sem nauðsynlegt er við olíubrennsluna. Reykháfurinn sjálfur verður að vera þannig færing sovétleiðtoganna frið- vænleg, vegna þess að maður skyldi ætla, að Rússar hefðu enga ástæðu til þess að hefja heimsstyrjöld, ef þeir eru vissir um, að þeir muni sigra að lokum á hverju sem veltur. En af þessu leiðir hins vegar einnig, að erfitt er að ná samkomulagi, vegna þess að þeir hafa enga ástæðu til þess að hjálpa okkur út úr erfiðleikum okkar, ef þeir eru sannfærðir um, að hinn vestræni heimur sé dauðadæmdur. Þess vegna verðum við að bjarga okk- ur út úr þeim sjálfir. Það er staðföst sannfæring mín, að á næstu árum munum við geta ráðið fullkomlega fram úr þeim vandamálum, er við stöndum nú augliti til auglitis við, hernaðar- og stjórnmálavandamálum okkar og umfram allt efnahags- og þjóðfélagsvandamálum okkar. Við getum sýnt fram á, að við erum færir um að endurreisa vald okkar og áhrif og getum einnig kunngjört heiminum boð- skap okkar. Við höfum ekki far- ið illa af stað. Síðastliðið ár varð okkur töluvert ágengt í Evrópu. — Sameiginlegi markaðurinn og Kjarnorkusamvinnustofnunin. — Þetta eru að vísu aðeins samning- ar ennþá, en árangurinn munum við sjá eftir fjögur eða fimm ár. I LEIKFÉLAGIÐ MÍMIR á Sel- fossi frumsýndi gamanleikinn gerður, að hæfilegur súgúr mynd ist í honum, og þar sem sóthætt- an er talsverð í sambandi við olíu kyndingu, er mikilvægt, að menn hafi þetta í huga. Talið er, að alltof margir reyk háfar séu of víðir og of illa ein- angraðir. Mjórri háfar tákna meiri hraða reyksins og minni kælingu hans. Það er talið marg borga sig oft á tíðum að fá ein- angrun í reykháfana, enda er það ekki sérlega- dýrt eða um- fangsmikið, þó að um gamla háfa sé að ræða. Reykhitinn efst í háfnum skiptir mestu. Ef kyndingin er góð, en háfurinn ekki sem bezt- ur, má reikna með að hitinn sé þar um 50° og hafi kóln- að um 250° á leiðinni upp. Þá verður loftið að vera 300° við inntakið í háfinn. Ef hann er hins vegar vel einangraður, þarf reykurinn ekki að tapa nema t. d. 75° á leiðinni upp — og hit- inn í inntakinu aðeins að vera 125°. Þetta þýðir, að hitatapið í reykháfnum minnkar um 33% og brennsluefni hefur sparazt sem nemur 10%. Það svarar því kostnaði, að veita reykháfnum athygli. Og margir gætu sjálfsagt sparað sér drjúgan skilding með því að láta gera við hann í eitt skipti fyrir öll Framtíð bandalagsins Okkur hefur einnig miðað áfram innan Atlantshafsbanda- lagsins. Það er ekki lengur aðeins hernaðarbandalag, heldur er þar einnig að skapast grundvöllur fyrir sameiginlega utanríkis- stefnu aðildarríkjanna. Við höf- um ráðið vísindalegan ráðgjafa, og áður en langt um líður verð- ur boðað til fyrsta fundar Vís- indaráðs Atlantshafsbandalags- ins, en takmark þess er að koma á vísindalegri samvinnu meðal aðildarríkjanna, sem ætti að hafa töluverð áhrif á efnahag viðkom- andi landa. Ef árangur af þessu starfi verður góður, verður sí- fellt meir leitað til okkar og okkur falið að leitast við að leysa sameiginlega eitt mesta vanda- mál okkar daga — en það eru skipti okkar við hin svonefndu vannýttu lönd. Við erum á réttri leið, og ef við notum tímann vel og getum smám saman sannað möguleika okkar og árangursríkt starf á augljósan og áþreifanleg- an hátt, þá munum við hafa raun hæfa aðstöðu til viðræðna við hinn kommúníska heim, 'ekki aðeins um aukaatriðin, ekki að- eins um „forréttina, heldur aðalréttinn". Við munum hafa bjargað hinum vestræna heimi og jafnframt friðnum. Kjarnorka og kvenhylli, eftir Agnar Þórðarson, í Selfossbíó, fimmtudaginn 20. marz, við ágæt ar undirtektir áhorfenda. Leik- stjóri er frk. Hildur Kalman leik- ari frá Reykjavík, og bárust henni og aðalleikendum blóm í lok sýningarinnar. Þetta er fyrsta viðfangsefni leikfélagsins, en það var stofnað 9. janúar s. 1. Leikstarfsemi hef- ur áður verið töluverð á Sel- fossi hin síðari ár og hefur það einkum verið kvenfélagið, sem hefur beytt sér fyrir því, eins og fleiri góðum málum. Er þess skammt að minnast, að Gullna hliðið, eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi, var leikið hér í haust við mikinn glæsibrag. Um leikritið Kjarnorka og kvenhylli er óþarft að fara mörg- um orðum, svo þekkt er það orð- ið, þar sem það var sýnt af Leik- félagi Reykjavíkur í Iðnó í rúm- lega 80 skipti. Þorleif alþm. Ólafsson leikur Magnús Aðalbjarnarson. Leikur hans er jafn en alveg án tilþrifa og allar hreyfingar á sviðinu óeðlilegar. Karitas konu hans leikur frk. Svava Kjartansdóttir, Hún er orðin vön leiksviðinu. Segja má að hún vaxi með hverju verkefni sem henni er fengið í hendur. Hún tekur á hlutverki sínu með festu og öryggi og ger- ir því ágæt skil. Henni er sér- staklega lagið að túlka vel allar skapbreytingar og virðist lifa sig inn í hlutverkið, eins og vera ber. Hún ásamt Gúðmundi Jóns- syni, er leikur Sigmund bónda, eru þær meginstoðir, sem halda leiknum uppi. Guðmundur þurfti Framh. á bls. 15 sferifar úr daglega lífinu Frá vinstri sjást hér: Frú Svandís Vilhjálmsdóttir sem Kamiila, Ólafur Jóhannsson sem dr. Alfreds, Svava ICjartansdóttir sem Karítas, Kristin Ingólfsdóttir sem Addí og Erla Gránz sem Gunna. Kjarnorka og kvenhylli sýnt á Selfossi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.