Morgunblaðið - 28.03.1958, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.03.1958, Blaðsíða 24
V EÐRIÐ A gola eða kaldi, skýjað, þíðviðri. 74. tbl. — Föstudagur 28. marz 1958 „Óðinn" 20 árr Sjá bls. 13 Átta ferðir vikulega til Kaupmannahafnar ^.amaráætlun Flugfélags Íslands HINN 6. apríl n.k. gengur sumar- áætlun millilandaflugs Flugfé- lags íslands í gildi — og í tilefni þess ræddi blaðafulltrúi Flugfé- lagsins, Sveinn Sæmundsson við fréttamenn í gær. Ferðum verður fjölgað frá 6. apríl og fram eftir sumri — og frá júní- lokum verða 100 ferðir vikulega héðar til útlanda. Verða þá m.a. daglegar ferðir til Kaupmannahafnar auk aulta- ferðar á laugardögum, eða 8 ferð ir í viku. 5 daga vikunnar verður höfð viðkoma í Glasgow, en tvo daga flogið beint til Lundúna svo að Flugfélagið mun fijúga ti! Bretlands alla daga vikunn- ar. Þrjár ferðir verða vikulega bæði til Osló og Hamborgar. Farþegafjöldi milli Glasgow og Hafnar hefur farið sivaxandi að undanförnu, enda munu flug- vélarnar hafa oftar viðkomu í Glasgow en nokkru sinni áður. Bað Sveinn blaðamenn að vekja athygli væntanlegra flug- farþega á því, að tryggja sér far í tíma. Einkanlega þeir, sem ætla að ferðast með vélum félagsins á mesta annatímanum. Ekki mun í ráði að fjölga við- komustöðum Flugfélagsins í millilandafluginu að því er Sveinn sagði. Á síðasta sumri höfðu Viscount-flugvélarnar vart undan á núverandi flugleiðum vegna vaxandi ferðamanna- straums — og mun ekki tíma- bært að fjölga viðkomum með núverandi vélakosti. , Hvað leiguflugi viðkemur mun ráðgert að Skymasterflugvélin Sólfaxi fari allmargar ferðir til Grænlands á vegum danskra að- ila. Enn hefur engin ákvörðun verið tekin um það hvort Sól- faxi verður seldur. Hann mun a.m.k. hafa næg verkefni í sum- ar. Sveinn skýrði að lokum frá því, að um þessar mundir væru gerðar breytingar á störfum ein- stakra starfsmanna félagsins — m.a. þær, að Sigurður Matthías- son lætur af forstöðu millilanda- flugsins og verður framvegis fulltrúi forstjórans. , Birgir Þórhallsson, sem um sex ára skeið hefur verið for- stöðumaður Kaupmannahafnar- skrifstofunnar, kemur heim og tekur við starfi Sigurðar. Birgir Þorgilsson, sem lengi hefur starfað hjá Flugfélaginu erlendis, og nú síðast verið aðal- fulltrúi þess í Hamborg, tekur við starfi nafna síns í Höfn — og Hákon Daníelsson tekur við for- stöðunni í Hamborg. Hákon hef- ur starfað hjá Loftleiðum í New York síðustu árin, en þar áður var hann hjá Flugfélaginu. Norrænn húsmæðra- kennarafundur NORDISK Samarbetskommitte föf Hushállsundervisning heldur aðalfund sinn í Stokkhólmi, dag ana 12. og 13. apríl .k Fyrir utan venjuleg aðalfund- arstörf verður m.a. rætt um há- skólamenntun húsmæðrakenn- ara og stofnsetningu norræns há skóla í húsmæðrafræðum, enn- fremur um nýjustu kennslufilm- ur á sviði húsmæðrareglunnar. Upplýsingar um fundinn gefur Halldóra Eggertsdóttir. Byrjað að nfa gömlu Gasstöðina í gær EINU sinni var þessi geymir sem á myndinni sézt gasforðabúr Reykjavíkurbæjar, en Gasstöðin var á sínum tíma hið mesta mann virki. Var það stórt framfarar- spor, er Gasstöðin gamla tók til starfa. í gær var byrjað að rífa hana til grunna. Ákveðið var fyrir löngu að á lóð Gasstöðvarinnar verði reist ný slökkvistöð fyrir Reykjavík. í vetur var ákveðið að rífa öll hús Gasstöðvarinnar svo og hinn mikla gasgeymi Efnahagsmálin til afhug- unar hjá ýmsum aðilum í fyrradag var fundur í fulltrúa- ráði verklýðsfélaganna í Rvik, en þar eiga sæti þeir menn, er voru fulltrúar félaganna á Al- þýðusambandsþinginu 1956. Eðvarð Sigurðsson og Óskar Hallgrímsson höfðu framsögu f. h. stjórnar ráðsins um atvinnu- leysistryggingar og lagafrum- varpið um réttindi verkafólks. — Urðu litlar umræður um þau mál. Pétur Guðfinnsson, einn af full Enginn úlfaþytur á Akra- nesi er hestarnir fóru SIS-skipið Hvassafell, er nú á leið til Rotterdam í Hollandi með 47 hesta innanborðs. Tók skipið hestana á Akranesi, en þeir eru seidir til Þýzkalands. Gunnar Bjarnason, ráðunaut- ur á Hvanneyri, sagði blaðinu í gær, að hér væri um að ræða reiðhesta og reiðhestaefni, full- orðna hesta, ýmist tamda eða ótamda. Eru þeir úr Borgarfirði, Skagafirði og nærsveitum Reykja víkur. Það gekk greiðlega að koma hestunum um borð í skipið, þar sem vel fer um þá, og varð eng- inn úlfaþytur á Akranesi út af þessum hrossaflutningum. Skipið tekur höfn í Rotterdam, en það- an verða hestarnir fluttir í gripa- lest til Hamborgar. — Hvað segir þú um skrif Dýraverndarans um hrossaút- ílutninginn, Gunxiar? — Þegar ég fæ slæga hesta til tamningar á Hvanueyri, þá eru ýmsar leiðir til þess að venja þá af að berja mann. Mér hefir gefizt það bezt að láta þá slá og slá í tómt! svaruði Gunnar Bjarnason. En meðal annarra orða, bætti hann við: Áríðandi er fyrir okk- ur íslendinga að sinna þessum hrossamarkaðsmálum í Þýzka- landi af fullri einurð. Koma verð ur upp hrossasölustöð í Vestur- trúum vörubílstjóra í ráðinu, spurðist fyrir um aðgerðir rík- isstjórnarinnar í efnahagsmál- unum. Fátt var um svör af hendi kommúnista, en Eðvarð Sigurðs- son o. fl. tóku til máls. Var sagt, að þessi mál væru í athugun hjá ýmsum aðilum, en langt væri frá, að samkomulag hel'ði um þau náðst. Á fundinum var rætt um vinnumiðlun og samþykkt áskor un á Reykjavíkurbæ um að hafa samráð við fulltrúa ýmissa aðila um þau mál. Þá var kosið í 1. maí nefnd fulltrúaráðsins. Kosningu hlutu: Eðvarð Sigurðsson, Jón Sigurðs- son, Snorxá Jónsson, Þói'unn Valdimarsdóttir, Björn Bjarna- son og Ingimundur Erlendsson. í fundarlok bar formaður full trúaráðsins, Björn Bjarnason, fyrrum foimaður Iðju, upp til- lögu þess efnis, að ráðið gerðist aðili að fundi í Gamla bíói um brottför varnarliðsins. Urðu miklar umræður um málið, en að Vélsmiðjan Héðinn hefir keypt gasgeyminn til niðui'rifs. Það mun ætlunm að setja hann upp aítur austur á Seyðisfirði að því er frétzt hefur. Þá tóku nokkrir menn að sér að rífa húsin. í gær mátti sjá tvo menn, sem voru byrjaðir á þakinu á austui-hlið stöðvarhúss- ins. Verktakarnir tóku að sér verkið gegn því að fá að hirða allt brotajárn, sem til fellur frá stöðinni. Teija kunnugir að þeir muni ná saman miklu jáx-ni. Tregur afli Stykkishólmsbáta STYKKISHÓLMI, 27. niarz. — Allir Stykldshólmsbátar stunda nú netjaveiðar. 1 gær komu tveir þeirra inn, annar með 7% tonn, en hinn með 8 tonn. Annars hef- ur afli verið tregur að undan- förnu. — Tíð hefur verið ágæt síðustu dagana og snjór er lítill. Færð til Reykjavíkur er góð. — Áætlunarbiiar fara á milli tvisvar í viku. -—• Árni. Sfjórnmálanám skeið á Selfossi ST J ÓRNMÁL AN ÁMSKEIÐIÐ á Selfossi heldur áfram í kvöld kl. 20,30 með málfundi. Framsögu- erindi verða um: Hvernig unnt sé að auka og efla atvinnulíf á Selfossi og í Árnessýslu? Frum- mælendur Guðm. Kristinsson og Magnús Sveinsson. Á eftir um- ræðum verður sýnd kvikmynd. Á laugardaginn kl. 16 mun Sigurður Helgason, lögfr. flytja erindi um verzlunarmál dreif- býlisins. Að því loknu verður málfundur um skógræktarmálin, þegnskylduvinnu o. fl. Síðasti fundur námskeiðsins verður haldinn n ,k. sunnudag kl. 14. Hefst hann með stuttu erindi, en síðan mun Ingólfur Jónsson, fyrrverandi viðskipta- málaráðherra, flytja ræðu um stjórnmálaviðhorfið. Námskeið- inu lýkur með sameiginlegri kaffidrykkju, þar sem Sigurður Óli Ólafsson, alþm., flytur ávarp. Formaður SUS, Geir Hallgríms- son, mun síðan slíta námskeið- Félag úfvarpsvirkja 20 ára AÐALFUNDUR Fél. útvarps- virkja í Reykjavík var^ haldinn 6. marz sl. f stjórn voru kjörn- ir þeir Sigursteinn Hersveinsson form., Einar Stefánsson ritaiú og Eggert Benónýsson gjaldkeri. Úr stjórn gengu þeir Baldur Bjarna- son og Haukur Eggertsson. Félagið er á þessu ári 20 ára og verður þess afmælis minnzt innan skamms með hófi. Tilgangur félagsins er að vinna að hagsbótum útvarpsvirkja sem iðnaðarmanna, og efla og vernda rét þeirra í iðngreininni. Auk þess hefur ávallt verið vakandi áhugi innan félagsins á auk- inni iðnfræðslu útvai-psvirkja. Fjörugt uppboð í tollskýlinu í gær Þýzkalandi, því þeir sem kaupa íslenzka hesta, vilja eðlilega sjá ( lokum var tillagan samþykkt af þá áður en kaupin eru gerð. kommúnistameirihlutanum. Dugverðureyrarverbsmiðiun flutt tii Vopnuijurðar og Neskaupstaðar AKUREYRI, 27. marz. — Milli 20 og 25 járniðnaðarmenn frá Reykjavík eru komnir til Dag- verðareyrar með útbúnað til þess að taka þar niður vélar gömlu síldarverksmiðjunnar. Dagverðareyrarverksmiðjan var mjög vel búin að véium. — Voru þær allar í góðu lagi og hefur þeirra verið vel gætt öll síldarleysisárin. Vélarnar verða fluttar til Vopnafjarðar og Norðfjai'ðar, þar sem reistar verða síldar- bræðslur í vor og sumar. Er hugmyndin að þær geti byi'jað að taka á móti síld er vertiðin hefst. Verða bræðslur þessar hvor um sig um 2500 mála. Þegar þessum framkvæmdum er lokið verða komnar á Aust- firðina þrjár siidarverksmiðjur. Sumir telja að þetta muni hafa í för með sér, miðað við fyrri ára reynslu, að rninna berist af sild til Raufarhafnar til bræðslu. Ekki er kunnugt um hve mikið mannvirki þessi, síldarbræðslurix- ar á Norðfirði og Vopnafirði, muni kosta. SIÐDEGIS í gær var haldið upp-1 boð í tollskýlinu á hafnarbakk- anum og var þar boðinn upp ýmiss konar varningur, sem tek- inn hafði verið eignarnámi við tollleit. í gær var einkum boðinn upp fatnaður. Voru t. d. seldir í einu númeri amerískir barna- gallar úr næloni. Það virtust eink um kaupmenn, sem börðust um gallana, sem lengi vel voru í stöðugu verði (um 400 kr.), en stundum ruku þeir upp og kom- ust upp í 620 kr. Menn buðu af kappi og komst mikill hiti í upp- boðið, er seld voru í einu númeri 12 pör af nælonsokkum, og fóru þau á 250—310 kr. Þá voru boð- in upp í einu lagi um 120 pör af drengjasokkum, skræpóttum, vafalítið mjög útgengilegri vöru í hvaða búð sem er. Voru þeir slegnir á 750 kr. Þegar boðin voru upp tvö dúsín af amerískum krepnælonsokkum heyrðust menn fyrst nefna upphæðina 900 kr., og fyrr en varði var uppboðs- haldarinn búinn að tvíendurtaka fyrsta annað og----þriðja. Sokk arnir voru slegnir á kr. 1060. Venjulegir nælonsokkar saum- lausir sem mjög munu vera í tízku, voru yfirleitt seldir á 350 kr. tylftin. Kona var hlutskörp- ust, er boðin voru upp í einu 36 pör af alla vega litum telpuhos- um, og hreppti hún þá á 360 kr. Enginn bauð á rnóti henni í það skiptið, en næsta búnt var sleg- ið á 400 kr. Þá voru dregin upp 12 karl- mannsarmbandsúr. Gerðu menn þar sérlega góð kaup, því að úrin virtust mjög vönduð. Þau voru boðin upp eitt og eitt, og var verðið um 600 kr. Þá voru boðin upp leikföng. Einn kassi, sem í voru um 70 barnasauma- vélar, fór á rúmlega 4000 krónur. Litlir barnabílar voru 12 saman í númeri. Var verið að bjóða þá upp er tíðindamaður blaðsins hvarf af vettvangi, og voru þeir slegnir á 150—200 kr. tylftin. Uppboðið fór friðsamlega fram, svo sem vænta mátti. Ein kona var búin að bjóða 420 kr. í tvo galla, er hún komst að þeirri nið- urstöðu, að hana skorti hand- bært fé. Þar sem greiðsla fór fram við hamarshögg, varð hún að afhenda gallana aftur. Kaupandi, sem búinn var að eiga þarna mikil viðskipti og var að fá til baka eitt sinn sem oft- ar, gerði athugasemd. Hann kall- aði: Það vantar 10 krónur, — þið getið sjálfir talið. Rétt skal vera rétt, sagði hann, um leið og hon- um var réttur 10 króna seðill upp úr ríkisins kassa. í dag verður enn haldið áfram að bjóða upp.í tollskýlinu nælon- sokka, barnaleikföng, glysvarn- ing og fleira og að lokum verða seld húsgögn úr dánarbúi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.