Morgunblaðið - 28.03.1958, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.03.1958, Blaðsíða 10
10 MORC.UNnr, 4 ÐIÐ Föstudagur 28. marz 1958 Hættur, ævintýri, manndómur ÞEGAR ég var fimm ára gamall varð ég fyrir minni fyrstu eftir- minnilegu lífsreynslu. Sniðugur strákur úr næsta húsi narraði mig lil að hlaupa framan að mannygri belju tn að ná af henni kálbrúsk, sem nún hafði ríælt sér í. En kusa lét ekki að sér hæða, brá ur.dir sig hausnum og Kast- aði mér á hornunum aftur fyrir sig ai’ álíka fyririitningu og þessi haiglátu dýr sýna tíðum óþolin- móðum rútubílstjórum, sem þykj ast eiga þjóðvegina. Ég hröklað- ist heim með hendurnar á mag- anum til þess að innyflin gusuð- ust ekki út, veinandi af skelf- ingu og ímynduðum kvölum, en sárast þó að láta félagana skopast að sér í þokkabót. Auðvitað var það bara heppni ein að hin gam- ansama skeppna rak ekki hornin i gegnum kviðinn á mér og úí á milli rifjanna, svo tilefni gæfist til þess að beita sér fyrir laga- setningu um það hvað strákar innan fermingaraldurs skyldu halda sig í mörg hundruð metra fjarlægð frá þessum hættulegu dýrum, sem sitja um líf manna. Ellefu ára gömlum sýndi mógrá meri mér þá ónærgætni að sparka svo hrottalega í kviðinn á mér, að nær tveim áratugum síðar fékk ég fyrst um það fulla vissu að ég hefði eftir þetta slys haldið áfram að vera karlmaður, og loks hljóp ég tólf ára gamall af þvílíkum glannaskap á eftir stelputátu, að ég reif í sundur á mér efrivörina á gaddavír og úr fuku þrjár framtennur í kast- inu, og væri þar ennþá ógirnilegt skarð ef meistari Hallur, sá hand lagni tannspólari minn hefði ekki hlaðið upp í það. Varla mun vera til sá land- krabbi, hvað þá sjóaður íslend- ingur, kominn um miðjan aldur, sem ekki hefir með líkum, eða miklu hrikalegri hætti — svo öllum stórslysum sé þó sleppt — lent í svo sem hundrað minni- háttar lífsháskum, sem enginn þeirra mundi hafa viljaö missa af, hvað þá að slíkar fórnir séu eftir taldar. En nú er ný öld rið- in í garð, ný tæki hafa leyst gamla Grána af hólmi, svo að hann slær engan í rot framar, mannýgu nautin eru komin undir lás og slá og geðillu gamalkýrn- ar halaklipptar. Allra meinlaus- ustu skepnur, sem sagan getur um, traktorarnir, hafa tekið við og innan skamms munu þeir verða jafnauðsveip húsdýr á hverjum bæ og smalahundurinn. Ég las fyrir nokkru í blaðinu svör tveggja þjóðkunnara manna við þeirri spurningu hvort leyfa ætti unglingum í sveitum að stjórna traktorum, heimalöndum, eða hvort setja ætti lög er banna það. Mér fannst fyrra svarið, frá Sveini á Egilsstöðum, mjög skemmtilegt og íslenzkt, mann- eskjulega djarft og óhátíðlegt, hitt raunalega leiðinlegt og ó- raunhæft, eins og oft vill henda þá menn sem stunda mannúðar- verk. Hvaða ævintýri og ábyrgð- arstörf bíða djarfhuga stráka í sveitum ef þeir fá hvex-gi að koma nærri því sem mestan spenning vekur í brjóstum þeirra i lífi og raunhæfu starfi, sem nú- tíma sveitabúskapur grundvall- ast á. Þeir yrðu þar utangátta og sjálfum sér og öðrum til sárra leiðinda. Fyrr á öldum fóru menn í verið til þess að verða að manni. Þar var aðeins um það tvennt að velja, að duga eða drepast. Úr þeirri eldvígslu komu strákarnir heim með sín próf. Þeir höfðu lyft Fullsterk upp á stallinn, ef þeir á annað borð skiluðu sér heim. Á þeirri öld sem nú er ný- lega hálfnuð munu margir okkar beztu manna hafa hlotið sína eld- vígslu á góðum sveitaheimilum. En strákarnir voru heldur ekki sendir í sveit til að fita þá, læra að þekkja fé eða fjöll, eins og ýmsir halda. Þeir fóru í sveit til að verða menn, taka við fyrstu ábirgðarstörfum og vinna þau á eigin spýtur — sýna hvað í þeim bjó. Við lestur þessara tveggja greinarkoi’na fór ég líka að velta því fyrir mér, hvort mundi verða talið lýsa meiri fyrirhyggju og mannúð, að hjálpa félitlum strák- um til þess að komast upp í fjöll á skíði, 'sem í svipinn mun vera ein mesta lífshætta, sem unnt er að bjóða ungu fólki upp á í þessu landi, eða girða allar hættulegar brekkur með rafmagnsvír. Hið síðarnefnda mundi spara fólki stórfé, forða mörgum stórslysum, og í þessum sólríku brekkum mætti rækta framtíðarskógana. Og þessar vangaveltur leiddu mig út í fáránlegustu ógöngur. Ég vildi skipa nefnd, ekki til þess að semja ný lagafrumvörp, held- ur til þess að útrýma óþörfum og vanhugsuðum lagasetningum, barnalegum hömlum og jafnvel ýmsu því, sem unnið hefur verið af einna mestum góðvilja til landsfólksins — af því að góð meining enga gerir stoð. Og fyrsta verkefnið sem ég kom auga á handa vini mínum og merkilega brautryðjanda Jóni Oddgeir skyldi vera að höggva niður verulegan hluta þeirra að- vörunarmerkja, .sem komið hefur verið fyrir meðfram þjóðvegum landsins, ef það mætti stuðla að því að einhver tæki mark á þeim sem þá stæðu eftir, en í svipinn gegna þau því hlutverki að vera skotmörk fyrir athafnasama prakkara, sem af eðlisávísun virð ast oft kunna betur skil á manns- sálinni en hinir sem hafa allt sitt vit úr bókum — og skal ég þó síðastur manna vara menn við bókmenntum. Ég er í höfuðatriðum sammála Sveini á Egilsstöðum, nema um orðalagið, sem mér finnst minna á uppflosnaða framsóknarbænd- ur. Það er alls engin ástæða til þess að setja um þetta nein lög. Það væri blátt áfram ískyggileg tilhugsun að það yrði gert, jafn- vel þó Danir hafi gert það. Það er hreinn misskilningur, sem allt- af er að kom betur og betur í ljós, að hægt sé að girða fyrir allar hættur með einföldum laga- bókstaf. Og hér á landi væri ó- hugsandi að ganga eftir því að þeim lögum væri hlýtt, og væri af þeirri ástæðu einni ver farið en heima setið. Og háskalegast af öllu væri þó ef til vill ef það væri í raun og veru hægt, því svo sannarlega er ekkert ömur- legra en að horfa á eftir þrek- miklum æskumönnum, bólgnum af áreynsluleysi og gljáandi á húð og hár af öryggiskennd, ofan í rennusteina Rómar og Parísar í leit að þeim hættum og því vol- æði, sem ekki fyrii’fannst í heima högum eða voru sviptir af fyrir- kyggjusömum aðstandendum. Og í vangaveltum mínum um almætti mannlegrar forsjónar verður mér alltaf að lokum hugs- að til þess elskulega fólks, sem byggir hinar víðáttumiklu stepp- ur Austur-Evrópu. Þar fara nú reyndar bráðum fram „kosning- ar“, í þetta sinn undir amerísku eftirliti, og kandídatinn er byrj- aður að básúna tilboð sín til skjólstæðinganna: Þér skuluð öll fá meira og betra að borða. En norður á hinu kalda og ófrjósama Islandi, sem er hálft undir snjó og klaka, þykja það enn til allrar hamingju sjálfsögð mannréttindi að fólk fái að sýsla um þetta sjálft. Sú hugmynd að löggjafinn seilist svo nálægt einkalífi manna, að foreldrar hafi ekki lengur rétt til þess að láta börnin sín vinna algengustu sveitastörf innan túngarðsins, fínnst mér vera farið að minna á þau lönd þar sem allt er bannað nema það sem leyft er. R. J. Kirkjukór Húsavíkur hélf samsöng s.l. sunnudag Húsavík 26. marz. KIRKJUKÓR Húsavíkur hélt samsöng í Húsavíkurkirkju s.l. sunnudag fyrir fullu húsi og við góðar undirtektir. Söngstjórar voru: Ingimundur Jónsson, Sig- urður Hallmarsson og Sigurður Sigurjónsson. Undirleikari með kórnum var Björg Friðriksdóttir. Einsöngvarar með kórnum voru Eysteinn Sigurjónsson, Karl H. Hannesson og Ingvar Þórarins- son. í kórnum eru um 40 manns, og hefir hann starfað mikið í vetur. Ungfrú Ingibjörg Stein- grímsdóttir, söngkona, dvaldist hér um mánaðartíma og æfði kórinn. Þykir góður árangur hafa fengizt af starfi hennai’. —Fréttaritari. Torino, 18. marz — Yfirréttur hér í borg hefur dæmt leikkon- unni Ginu Lollobrigidu skaðabæt ur að upphæð ein milljón líra, fyrir það að félag eilt, sem fram- leiðir vín, notaði myndir af henni til auglýsinga án leyfis leikkon- unnar. —Reuter. PÁSKAEGG í þúsundatali Glæsilegt úrval til augnayndis og gamans, Ljúffengt sælgæti. Verð við allra hæfi — Okkur er mikil ánægja • « að hafa fengið tækifæri til að birta nokkur sýnishorn af teikningum sem gerðar voru í tilefni páskanna í smábarnaskóla ísaks Jónssonar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.