Morgunblaðið - 28.03.1958, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.03.1958, Blaðsíða 13
TTöstudagur 28. marz 1958 MORCU1SBLAÐIÐ 13 Málfundafélagið Oðinn tuttugu ára Félag sjálfstæðisverkamanna hefir bæði breytt stefnu Sjálfstæðisflokksins og verklýðshreyfingarinnar hlagnús Jóhannesson form. ÁVARP Á ÞESSUM merku tímamótum í starfssögu Málfundafél. Óðins, er það að sjálfsögðu margs og mikils er Óðinsmenn minnast er þeir renna huganum til baka og líta yfir farinn veg. í tuttugu ár hafa þeir verið sameinaðir undir einu merki og samstillt sínum átökum til ár- angursríkra nytjastarfa að mál- efnum Sjálfstæðisflokksins og þá fyrst og fremst verkamanna, sem í æ ríkara mæli hafa fylkt sér undir merki hans á liðnum árum. Óðinn var stofnaður 29. marz 1938, og voru stofnendur 41 að tölu. Á þecsum tímum var hagur verkamanna mjög slæmur. í land inu hafði setið að völdum vinstri stjórn um árhbil, atvinnuleysi var mikið og öll afkoma almenn- ings hin lélegasta. Verkalýðssam- tökin voru reyrð í flokksböndeins hafa talað til þess eins að tefja fyrir eðlilegri þróun og kjara- bótum launþeganna, hefur alltaf verið gripið til sömu rakanna og vitnað til þeirra tíma, þegar verkalýðshreyfingin var á bernskuskeiði og naut ekki við- urkenningar þeirra er réðu fram- leiðslutækjunum. Þessar rök- semdir eru nú löngu orðnar úr- eltar, þó kommúnistar noti þær að vísu ennþá. Verkalýðssamtökin eru nú löngu viðurkennd sem nauðsyn- leg og ein af meginstoðum þjóð- félagsbyggingarinnar í öllum lýð- frjálsum löndum. Það ríður ,því á miklu, að þau verði ekki gerð að leiksoppi pólitískra „spekúlanta“ alheims- kommúnismans, sem lifa eftir þeirri kenningu að verkamaður- inn eigi að vera til fyrir sam- tökin, og fórna öllu sínu fyrir þau, en ekki samtökin fyrir hann, eins og hinn raunverulegi tilgangur er. Eg vek máls á þessu hér vegna þess, að ég vil brýna það fyrir Óðinsmönnum, að verkalýðs- barátta sú sem framundan er á fyrst og fremst að beinast að því að vinna að sem varanlegustum hagsbótum launþeganna, en það ■'.................' ' •'> ■ Núverandi stjórn Óðins. — Fremri röð frá vinstri: Þorsteinn Kristjánsson, Magnús Jóhannesson form., Guðmundur Nikulás- son. Aftari röð frá vinstri: Stefán Hannesson, Hróbjartur Lútliersson og Guðjón Hansson. — Á myndina vantar Baldur Einarsson. verður ekki gert nema byrjað sé á byrjuninni og lögð á það megináherzla, að taka höndum saman við alla þá menn, sem ein- hvers meta gildi íslenzkra alþýðu samtaka og sameiginleg sókn hafin til þess að eyða áhrifum kommúnista í verkalýðshreyf- ingunni. Samstarf það, sem ver- ið hefur með lýðræðisflokkunum um þessi mál hefur að vísu sýnt mikinn árangur, en betur má ef duga skal. f þessu sambandi er vert að geta þess, að Sjálfstæðismenn í launþegastéttum verða að hug- leiða það með sjálfum sér að til þess að betta megi takast, verða þeir að treysta samtök sín svo sem kostur er á og samræma sínar aðgerðir í hvívetna. Það er óhætt að fullyrða það að hér í Reykjavík eru Sjálf- stæðismenn langfjölmennastir í launþegasamtökum, enginn einn flokkur á jafnmarga fylgismenn í röðum reykvískra alþýðumanna og Sjálfstæðisflokkurinn. Það er því vissulega stórt átak sem þessir aðilar geta gert, ef þeir sameinast í starfi. Málfundafélagið Óðinn er sá vettvangur sem megnar það að samhæfa þessa starfskrafta. Ég vil því í fullri alvöru hvetja menn til þess að gerast virkir í starfi og ganga í félagið. Óðinsmenn hafa á liðnum ár- um sýnt það að þeim er treyst- andi til að hafa forystu á hendi, þeir hafa borið fram tillögur og gert ályktanir í hinum ýmsu menningar- og framfaramálum reykvísks alþýðufólks, sem for- ustumenn flokksins hafa síðan. borið fram til sigurs á löggjaf- arsamkundu þjóðarinnar. Margt mætti í því sambandi nefna, en ég læt samt nægja að nefna tvennt: Hugmyndina um smáíbúðir, og skattfrelsi við byggingu eigin íbúða. Báðar þess- ar tillögur munu hafa orðið til á Óðinsfundum. Ég vil svo að lokum þákka öll- um sem unnið hafa að málefn- um félagsins og fjöldans á liðn- um árum og um leið bera fram þá ósk félaginu og félagsmönnum til handa, að Óðni megi auðnast að verða áfram sá útvörður um hagsmuna- og framfaramál verka mannanna, sem raun hefur á orðið þau tuttugu ár, sem liðin I eru frá stöfnun hans. ViBföl við swkkra Óðinsfélaga Magnús Jóhannesson flokks, Alþýðuflokksins, og eng- inn verkamaður var þess um- kominn að hafa áhrif á gang sinna eigin mála, ef hann var utan við þau flokkssamtök, eða xneð öðrum orðum, forsendur þess að verkamenn væru kjör- gengir í trúnaðarstöður og ann- að er máli skipti í sínum eigin hagsmunasamtökum, voru þær, að maðurinn væri flokksbundinn í Alþýðuflokknum. — Þannig var ástandið, er sjálfstæðisverka- menn og sjómenn hófust handa um stofnun Óðins. Það varð því í upphafi eitt af aðalstefnumálum félagsins, að berjast gegn þessu ófremdar- ástandi, og árangurinn af þeirri baráttu sem náðst hefur með af- námi flokkseinræðis í verka- lýðshreyfingunni má að miklu leyti þakka Óðinsfélögum. Sjálfstæðismenn hafa alltaf haft þá skoðun og hafa enn, að verkalýðssamtökin eigi að vera í eðli sínu ópólitísk og hver ein- asti maður eigi þar jafnan rétt hvar í flokki sem hann hefur skipað sér um stjórnmálaskoð- anir. Hlutverk þeirra á að vera það fyrst og fremst að gæta hags- muna og réttar meðlimanna og vinna á félagslegum grundvelli að hinum ýmsu menningarmál- um fjöldans. Á þetta hefur nokkuð skort hér hjá okkur, og of lítið verið gert af því að upplýsa almenning um grundvallaratriði hinnar raun- verulegu kjarabaráttu, en meira gert af hinu, að ala á tortryggni og skilningsleysi milli verka- manná og atvinnurekenda. Mönn- um hefur óspart verið talin trú um það að þessar andstæður sem svo hafa verið nefndar, ættu fátt eða jafnvel ékki neitt sameigin- legt, og það bil sem þarna væri á milli talið óbrúanlegt. I viðleitni þeirra, sem þannig í KVÖLD heldur Málfundafé- lagið Óðinn, félag sjálfstæðis- verkamanna og sjómanna upp á 20 ára afmæli sitt, en afmælis- dagurinn sjálfur er á morgun. í tilefni þess verða birt hér nokkur viðtöl við forystumenn félagsins fyrr og nú. Segja þeir þar nokkuð frá störf- um þessa félagsskapar þróun hans, baráttu og sigrum, við- horfum sínum til hans og fram- tíðaróskum honum til handa. Óðinsmenn hafa aldrei unnið með kommúnisfum Sigurður Halldórsson var fyrsti formaður félagsins og átti drjúgan þátt í stofnun þess. Segir hann í stuttu máli frá ástæðun- um til stofnunar félagsins og þeim jarðvegi sem það er sprott- ið úr. Honum farast orð á þessa leið. — í þann mund er Óðinn var stofnaður var ástandið þannig í verkalýðsmálunum að Alþýðu- flokkurinn var allsráðandi í Al- þýðusambandinu og hafði ein og sömu lög og það. Trúnaðarstörf þar gátu því ekki aðrir hlotið en þeir sem voru Alþýðuflokks- menn. Kommúnistar voru þá enn valdalitlir og gerðu fátt annað en að halda uppi ofstopa á fund- um og viðhafa hótanir á vinnu- stöðum. Þetta ástand var því óþol andi fyrir þá sem vildu ekki láta múlbinda sig í flokksviðjar þjóð- nýtingarflokka. Ég minnist þess- að fyrsti maðurinn, sem ég tal- færði félagsstofnunina við var Bjarni Benediktsson. Benti ég á nauðsyn þess að við verkamenn, sem fylgjandi værum Sjálfstæðis flokknum, hefðum með okkur samtök þar sem við æfðum okk- ur að tala á fundum og flytja hagsmunamál okkar. Tók Bjarni þessu vel og hefir ávallt verið ötull stuðningsmaður samtaka okkar verkamanna síðan. Sum- um ráðamönnum mun í fyrstu haía verið lítið um slíka félagsstofnun enda almennings-syni og fylgismönnum hans eftir álitið það, að Sjálfstæðisflokkur- inn væri ekki flokkur verka- manna. Stofnun Óðins komst þó á og það mun fyrst og fremst hafa verið þessi félagsskapur, Siguröur Halldórsson. sem sneri almenningsálitinu við og sannaði að Sjálfstæðisflokkur inn er jafnt flokkur verkamanna sem annarra stétta. Ég vil sér- staklega taka það fram að allt frá stofnun félagsins hefir verið ríkjandi góður skilningur hjá forystumönnum flokksins á mál- efnum sjálfstæðisverkamanna og sjómanna. Ég tel einnig að Óðinn hafi breytt stefnu Sjálfstæðis- flokksins til frjálslyndis. Óðinn varð tengiliður innan flokksins milli atvinnuveitenda og atvinnu þiggjenda. Og Óðinn hefir vissulega breytt stefnu verkalýðssamatak- anna í landinu til hagsbóta fyrir vinnustéttirnar, því að allir flokk ar hafa leitað samvinnu við Óð- in. Má þar minnast samstarfs- ins í Dagsbrún bæði með Alþýðu flokknum og Héðni Valdemars- að hann var bæði genginn úr Al- þýðuflokknum og Kommúnista- flokknum. Óðinn hefir hins vegar aldrei haft samvinnu við komm- únista.. Það var eins og ég áðan sagði, löngum talið að verkamaður gæti ekki verið Sjálfstæðismaður. Við hófum þegar í upphafi skelegga i baráttu á vinnustöðum gegn hót- j unarpólitík kommúnista. Og i brátt fór svo að okkur tókst að sigrast á áróðrinum gegn okkur, | félag okkar blómgaðist og við fundum árangur af starfinu. Ég vii nú á þessum tímamót- um sérstaklega þakka konum fé- lagsmanna fyrir stuðning þeirra við okkur, en hann var mikill á fyrstu árum félagsins. Heimili þeirra, sem fremstir stóðu í fé- laginu, voru undir lögð og gerð að eins konar félagsheimilum Óðins. Konurnar unnu einnig fyr ir okkur að hlutaveltum og öðr- urn fjársöfnunum og þannig urðu okkar fyrstu sjóðir til, auk félags gjalda, sem þó alltaf voru ,lág. Ég á margar góðar endurminn- ingar frá þessum fyrstu starfsár- um Óðins og ég minnist hinna ágætu samstarfsmanna sem af elju og ósérhlífni börðust ár- angursríkri baráttu. Ég vil þakka öllum félagsmönnum fyrir starf þeirra og stuðning svo og forystu mönnum Sjálfstæðisflokksins og treysli því að þeir stuðli að vel- gengni Óðins svo að hann geti áfram unnið með sama glæsibrag og hingað til. Óðinn haldi vöku sinni Axel Guömundsson var fyrsti ritari félagsins og hefir verið í forystuliði þess allt fram á þenn- an dag. Hann sér nú um útgáfu afmælisrits fyrir félagið. Axel segir nokkuð frá félagsstarfi Óð- ins á fyrstu árum hans: — Félagslífið var mjög fjörugt þegar í upphafi, enda var í mörg horn að líta. Eitt af því minnis- stæðasta frá fyrstu starfsárunum er þegar við stilltum upp fram- boðslista í Dagsbrún. Það var í fyrsta sinn, sem fleiri en einn listi kom fram við stjórnarkosn- ingar þar. Héðinn Valdemarsson og kommúnistar báru að vísu sigur úr býtum en við urðum aðrir í röðinni og bárum því sigur orð af Alþýðufl. — Þegar þetta var, höfðum við engin kjörgögn, • kjörskrá eða annað sem nauðsyn- legt er til þess að fylgjast með kosningum. Hins vegar gátum við á kjörfundinum skrifað niður þá sem kusu og varð það fyrsti vísirinn að kjörskrá okkar. Við urðum því að ganga í húsin í bænum og kynna okkur hverjir Framh. á bls. 14 Úr ferðuiagi Oóiilsléhiya.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.