Morgunblaðið - 01.05.1958, Side 1
20 síður
45. árgangur
98. tbl. — Fimmtudagur 1. maí 1958
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sérfrœðingar frá OÆ.E.C, telja
aðstœður hagstœðar til þunga-
vatnsframleiðslu hér
Sérfræðinganefnd frá stofnuninni
fer héðan i dag til Parísar
Island hefur sérstöðu umfram Önnur
Evrópulönd til ódýrrar framleiðslu efnisins
NÚ á morgni atomaldar kemur í ljós, að i landi voru felast þau
náttúruauðæfi, sem renna stoðum undir nýtingu atomorkunnar i
friðsamlegum tilgangi. Það sem veigamikið atriði er í máli þessu,
er að skilyrðin til hagnýtingar þessara miklu auðæfa eru talin
sérlega hagstæð. Það sem hér er um að ræða er beizlun jarðguf-
unnar til framleiðslu á þungu vatni. Þungt vatn er eitt af þeim
efnum sem skapa undirstöðuna, þá er farið verður að nota atom-
orkuna til raforkuframleiðslu. í dag halda héðan fimm sérfræð-
ingar, sem hingað komu fyrir tæplega viku á vegum Efnahags-
samvinnustofnunarinnar O.E.E.C. í París, til þess að kynna sér
möguleika til þungavatnsframleiðslu hér á landi. Hafa þeir starfað
hér ásamt íslenzkum sérfræðingum. Á blaðamannafundi í gær, sagði
talsmaður hinna erlendu sérfræðinga, að skýrsla sú sem þeir
myndu leggja fram um íslandsför sína og athuganir, myndi leiða
Dr. Kowarski sagði að athug-
un sú er nú hefði fram farið
hefði leitt i ljós, að á hinum
miklu hverasvæðum landsins
væru möguleikar hagstæðir. —
Þungavatnsframleiðsla er hér
möguleg í stórum stíl með því að
nota hveragufuna, sagði dr.
Kowarski.
Undir þessi orð hans tóku sam-
starfsmenn hans, þeir próf. Weiss
frá V-Þýzkalandi og Englending-
arnir dr. C. W. Hart-Jones og dr.
P. T. Walker, en þeir eru báðir
starfsmenn við brezku atvinnu-
rannsóknarstöðina í Harwell.
Þegar við komum aftur til Par-
ísar og gefum skýrslu um athug-
anir okkar og hinna íslenzku fé-
laga, þá get ég fullvissað yður
um, sagði dr. Kowarski, að sú
skýrsla mun verða ykkur hag-
stæð. Við, sem aðeins fjöllum um
hina tæknilegu hlið málsins, sjá-
Jin enga annmarka á þvi að slíkt
iðjuver verði hér reist.
Næsta shref í máli þsssu er, að
eltir 3 vikur verður haldmn fund
ur hjá O.E.E.C., þar sem sérfræð-
ingar ríkisstjórna aðildarþjóða
hér í Evrópu sem sýnt hafa á-
huga á því að þessi athugun færi
hér fram, mæta. Þar munum við
gera grein fyrir athugunum okk-
ar. Síðan munu þeir fara með sín-
ar skýrslur til stjórna sinna, gera
þeim grein fyrir niðurstöðum
okkar, og þá kemst málið vænt-
anlega á það stig, að umræður
hefjist og hin fjárhagslega hlið
málsins verði könnuð, og við skul
um vona að síðan verði farið að
athuga um fjárframlög til mann-
virkisins, sem verður feikilegt og
kosta mun offjár.
Magnús Magnússon, framkv.-
stjóri kjarnfræðinefndar íslands,
er hefur með höndum athugun á
Dr. L. Kowarski á blaðamanna-
fundinum í gærmorgun.
þessum málum fyrir ríkisstjórn-
ina og önnur skyld mál, sagði að
sérfræði'ngarnir hefðu einkum
augastað á Hveragerði, en einnig
hefðu fleiri staðir verið rannsak-
Framh. á bls. 19
í ljós að þeir teldu öll skilyrði til þungavatnsframleiðslu hér á
landi vera hin hagstæðustu.
Sá, sem orð hafði fyrir fulltrú-
um O.E.E.C. var eldri mdður,
virðulegur og hvíthærður, dr. L.
Kowarski að nafni. Hann er aðal
ráðunautur O.E.E.C. í kjarnorku-
málum. Er hann víðkunnur fyrir
þátt sinn í kjarnorkurannsókn-
um, bæði í stríði og friði. Hann
var í Frakklandi er heimsstyrj-
öldin skall á. í júní 1940 tókst
honum að komast undan til Bret-
lands með 180 kg af þungu vatni,
sem hann á þennan hátt bjargaði
undan Þjóðverjum. Þótti þetta
hin frækilegasta för. í Bretlandi
og Kanada starfaði hann styrjald
arárin við kjarnorkurannsóknir,
en er stríðinu lauk hvarf hann
aftur til Frakklands. Geta má
þess að hann veitti því verki for-
ustu er byggður var fyrsti þunga
vatns-kjarnorkuofninn utan
Bandaríkjanna. í Frakklandi
byggði hann fyrstu tvo kjarn-
orkuofna Frakka og hann átti
sæti í kjarnorkumálanefnd
Frakklands. Hann er einn fremsti
kjarnorkufræðingur Frakka og
var hann nemandi Jolliot Curie.
í samtali pínu við blaðamenn-
Gufugos i llveragerði, «em
gæti orðið nokkurs konar „atom-
bær“ íslands.
ina lagði dr. Kowarski áherzlu á,
að það hefði verið eitt hlutverk
félaga hans í þessari för, að
vinna hér með íslenzkum sér-
fræðingum að því að kynna sér
aðeins hina tæknilegu hlið máls-
ir,s.
í dag eru Bandaríkin eina land
ið í heiminum, þar sem þunga-
vatnsframleiðsla er hafin í stór-
um stíl. Síðan áætlanir um
beizlun atómorkunnar til raforku
framleiðslu komu fram og
Evrópuþjóðirnar tóku að gera á-
ætlanir um byggingu slíkra
mannvirkja, vaknaði jafnframt
spurningin um það hvar sú upp-
spretta væri, þar sem hægt væri
að framleiða þungt vatn fyrir
atómverin. Þegar spurt var um
þetta, var það veigamikið atriði
fyrir Evrópulöndin, að sá stað-
ur væri helzt í Evrópu,
eða sem næst henni. Á sinum
tíma var mikill hugur í mönnum
að athuga möguleikana á þessu
i Nýja-Sjálandi, þar sem jarðhiti
er mikill. Náði athugun sú er
fram fór, hámarki árið 1953. Það
kom í ljós að ekki var mögulegt
að koma á fót þungavatnsfram-
leiðslu þar. Hvergi á meginlandi
Evrópu voru slík skilyrði. Nú
kom röðin að Islandi. Þetta var
í desember sl. ,
Fréttir i stuttu máli
BELGRAD, 30 apríl. — Fyrsti
kjarnorkuofn Júgóslavíu var
reyndur í dag og gekk það ágæt-
lega. Hann á að framleiða 10 þús.
kw. af rafmagni. Kjarnorkuofn-
inn var keyptur frá Rússlandi.
KAUPMANNAHÖFN, 30. apríl.
UM þessi mánaðamót verður af-
numið vegabréfaeftirlit á Norður
löndum milli Noregs, Svíþjóðar,
Danmerkur og Finnlands. Samn-
ingur þar að lútandi var undir-
ritaður fyrir einu ári.
PEKING, 30. apríl. — Fyrsta sjón
varpstilraun í Kína verður gerð
á morgun, 1. maí. Sjónvarpstæki
eru þó ekki til í Iandinu meðal
almennings, en nú verður í fyrsta
skipti sjónvarpað til sýningar-
tækja í skemmtigarði í borginni
Peking.
Sérfræðingarnir frá O.E.E.C. og islenzku samstarfsmennirnir. — Á myndinni eru, talið frá vinstri;
Magnús Magnússon framkvæmdastjóri, dr. P. I. Walker, dr. L. Kowarski, dr. P. Frank, aðstoðar-
maður hans, dr. C. W. Hart-Jones, Guðmundur Pálmason verkfræðingur, próf. dr. G. Weiss og dr.
Gunnar Böðvarsson forstöðumaður Jarðborana ríkisins. Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
Kommúnista-einræði gefur
aldrei orðið frjálslynt
7. mai ávarp alþjóðasambands
frjálsra verkalýðsfélaga
ALÞJÓÐASAMBAND frjálsra
verkalýðsfélaga sendir ykkur öll-
um innilegustu bróðurkveðjur í
tilefni 1. maí.
Fyrir níu árum voru þessi orð
rituð á skjaldarmerki Alþóða-
sambandsins:
BRAUÐ FRIÐUR FRFiLSI
Síðan hafa frjáls verkalýðsfé-
lög fengið miklu áorkað, bæði
hvað snertir efnahagslegar um-
bætur og auknar atvinnutrygg-
ingar. Kaup verkamanna hefur
hækkað, vinnuskilyrði verið bætt,
vinnustundum fækkað, ekki að
eins í hinum sterkari iðnaðar-
löndum, heldur og þar sem efna-
hagsaðstæður eru síðri, enda þótt
þar sé margt enn ógjört. Fólk
hefur kynnzt hóflegri velmagun,
einkum í hinum sterkari iðnaðar
löndum. En þó hefur óvætt víð-
tæks atvinnuleysis og efnah^gs-
legrar kyrrstöðlr enn einu sinni
skotið upp kollinum. Það er
aldrei hægt að líta á velmegun
sem sjálfsagðan hlut. Hún fæst
ekki nema með vinnu, baráttu og
skipulagningu.
Allt frá upphafi hefur Alþjóða-
sambandið stuðlað að því, að
sviði. Stofnun alþjóðlegra efna-
hagssamvinnu á æ víðtækara
svæði. 'Stofnun alþjóðlegra efna-
hagsstofnana eða annarra, sem
bundnar eru við ákveðin lönd
eða svæði, er skref í rétta átt,
en samtök frjálsra verkalýðsfé-
laga verða ávallt að vera áhrifa-
mikil innan þeirra, ef þau eiga
að geta lagt fram sem ríkastan
skerf til velferðar mannkynsins.
Alþjóðasambandið ber emnig
þungar áhyggjur vegna þeir.ar
Framh. á bls. 2.
H.
í