Morgunblaðið - 01.05.1958, Síða 8

Morgunblaðið - 01.05.1958, Síða 8
8 MUIUiViyttl.AÐIÐ Fimmtudagur 1. maí 1958 Sigurbur G. Sigurðsson, múrari: Samstarf við verkalýðinn ÞEGAR Alþýðusamband íslands, undir forustu Hannibals Valdi- marssonar, skipulagði verkfallið 18. marz 1955, var afkoma laun- þega sízt lakari en oft áður, enda næg atvinna og nokkur verðlækk un hafði orðið á nauðsynjavör- um eftir desember-verkfallið 1952, en með því fengust fleiri kjarabætur, þótt um beina kaup- hækkun væri ekki að ræða. — Lausn þeirrar vinnudeilu mun líka hafa sannfært marga um það, að bein kauphækkun er ekki alltaf farsælasta kjarabótin, held- ur lækkandi verðlag. Eftir gengisbreytinguna 1950 og vísitöluverkfallið árið eftir, kom stöðvun á verðlagið, þó að- allega árin 1953—1954, enda hækkaði kaupgjaldsvísitalan að- eins um 1 stig á 13 mánuðum. A þeim árum var líka hagur rík- issjóðs hagstæður, með veruleg- um tekjuafgangi á fjárlögum, þrátt fyrjr niðurgreiðslur nokk- urra nauðsynjavara, sem lækk- uðu framfærsluvísitöluna um 10,70 stig. í árslok 1955 var kaupgjalds vísitalan orðin 71 stig og hafði hækkað á árinu um 12 stig, var þó framfærsluvísitalan greidd niður um 12,35 stig. Sú hækkun var nær eingöngu afleiðing hins 6 vikna verkfalls, sem Alþýðu- sambandið stofnaði til. Stjórnmálalegt verkfall Enda þótt verkfallið 1955 væri talið nauðvörn launþega til kjara bóta, munu þó aðrar ástæður hafa legið fyrir. Voru líka kröf- ur verkalýðsfélaganna í fyrstu ekki ákveðnari en það, að verk- fallinu varð að fresta í 18 daga m.a. vegna þess, að eitt fjölmenn- asta verkalýðsfélagið hafði ekki lagt fram ákveðnar kröfur til kjarabóta. Verkfallið hafði heldur ekki staðið lengi þegar stjórn Alþýðu- sambandsins fór að beita sér fyr- ir myndun nýrrar ríkisstjórnar, og mun það einsdæmi í íslenzkri stjórnmálasögu, að félagasamtök, sem í eðli sínu eru ekki stjórn- málaleg, — enda saman sett af launþegum úr öllum stjórnmála- flokkum, — skuli ætla, að mynda ríkisstjórn og án þess að eiga nokkurn sérstakan fulltrúá á Al- þingi. Dagdraumar forseta Alþýðu- sambandsins um ráðherratign urðu ekki að veruleika að því sinni, enda þótt síðar yrðu í breyttri mynd. Loforðin um lausn efnahagsmálanna Þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð eftir síðustu alþingis kosningar, fengu forsvarsmenn verkfallsins 1955 sitt þýðingar mikla hlutverk, sem forsætisráð- herra, á sínum tíma orðaði: í nánu „samstarfi við verkalýðinn". __ Það er að vonum, að laun- þegar geri sér ljóst hvað það samstarf hefur skapað og áhrif þess á efnahag og lífsafkomu. Þegar „stjórn hinna vinnandi stétta“ tók við völdum, gaf hún þjóðinni fyrirheit um það, að öll efnahagsvandræðin skyldu leyst með nýjum leiðum og án þess, að lífskjör almennings væru skert. Fyrsta verk hennar í efnahags- málunum var þó það, að svipta launþega 6 visitölustigum en þeirri launaskerðingu fylgdu lika þau góðu loforð, að hin varanlega lausn kæmi eftir • 4 mánuði. Þá skyldi brotið í blað. Það hefur nú dregizt í 16 mán- uði, að brjóta það blað og hinar nýju og marglofuðu leiðir hafa enn ekki fundizt, þrátt fyrir þrot- laust starf og víst margar and- vökunætur erlendra og innlendra hagfræðinga. Hins vegar hefur ríkisstjórnin verið fundvísari á nýjar leiðir til tolla- og skatta- hækkunar og lögfest gífujlegri hækkanir en áður hafa þekkzt á íslandi. Hin raunverulega kjaraskerðing launþega Með lögum um útflutningssjóð og fl. frá 22. desember 1956 voru lögfestir nýir skattar um 9000 kr. ar tölur, sem sýna ranga mynd hins raunverulega verðlags. Það var þó áður krafa verkalýðstétt- anna, að Vísitalan væri leiðrétt, enda byggjast útreikningar henn ar á gömlum búreikningum 40 verkamanna, sjómanna og iðnað- armanna, sem haldnir voru á tíma bilinu júlí 1939 til 30. júní 1940. Meðalútgjöld þeirra voru þá tal- in, miðað við 5 manna fjölskyldu kr. 4.318,00, sem skipt var í út- gjaldaliði, en síðan lækkuð í kr. 3.853,01. A þeim 19 árum, sem síðan eru liðin hefur lífsafkoma almennings tekið miklum breytingum. Marg- ir nýir útgjaldaliðir bætzt við og aðrir hækkað. Meiri og betri at- vinnumöguleikar hafa líka gert almenningi unnt, að lifa sæmilegu lífi og losa sig úr kreppubúskap áranria fyrir síðustu heimsstyrj- öld. Grunnfótur vísitölunnar er þó enn hinn sami og krafap um leiðréttingu hennar því réttmæt. Ávarp til Langholtssafnaðar Sigurður G. Sigurðsson á hverja 5 manna fjölskyldu og enn er sagt að vanti, a. m. k. um 200 millj. til þess að jafna greiðsluhalla fjárlaga og útflutn ingssjóðs, eða 6.165 kr. til jafn- aðar á hverja 5 manna fjölskyldu. Skatta- og tollahækkanir ríkis- stjórnarinnar verða þá um 15 þúsund kr. á hverja 5 manna fjöl- skyldu tii jafnaðar og er þá ótal- inn stóreignaskatturinn. Það mun flestum vera Ijóst, og ekki sízt launþegum, að þessar skatta- og tollahækkanir skerða mjög lifskjör almennings, enda er framkvæmd þeirra sú, að hún snerti sem minnst hina einhæfu vísitölu. Þegar ríkisstjórnin með bráða- birgðalögunum um festingu kaupgjalds og verðlags frá 28. ágúst 1956 felldi kaupgjaldsvísi- töluna um 6 stig, framkvæmdi hún kauplækkun, sem nam kr. 1.293,20 á árskaup samkvæmt lægsta Dagsbrúnartaxta, miðað við 2000 vinnustundir á ári, og kr. 1.590,00 af árskaupi iðnaðar- manna, Sú lagasetning átti að verða fyrsti áfanginn í hinni raunhæfu lausn efnahagsmálanna og stuðla að verðhjöðnun, sem flestir þráðu. Staðreyndirnar eru þó aðrar, þar sem kaupgjaldsvísital- an hefur síðan hækkað um 6 stig, þótt niðurgreiðslur síðastliðins árs hafi orðið 20,87 stig í fram- færsluvísitölunni og hækkað um 8,52 stig á 2 árum. Þær niður- greiðslur, sem nema milljónatug- um, eru aftur teknar af launþeg- um, með tollum og sköttum. Hver man nú hin stóru orð og þeirra mörgu kröfur? Það eru kaldhæðni örlaganna, að eftir nær tveggja ára valda- feril „stjórnar hinna vinnandi stétta“, skuli launþegar búa við meiri kjaraskerðingu en nokkru sinni áður. Að vísu hafa nokkr- ar launastéttir, meðal hinna hæst launuðu, fengið verulegar kjara- bætur með samþykki ríkisstjórn- arinnar, en hinir lægst launuðu finna enn til minnkandi kaup- máttar launa sinna. Hver man nú hin stóru orð og hinar mörgu kröfur um bætt kjör verkalýðsins, er svo oft hljóm- uðu til almennings síðustu vik- urnar fyrir 1. maí 1955? — Ef til vill hafa þeir einir gleymt, sem þá töluðu hæst? En þeir hafa líka síðan, bætt aðstöðu sína til metorða og valda, með því að tefla verkalýðssamtökunum fram í refskák stjórnmálanna. Með verkum þeirra urðu kröf- urnar um kjarabætur verkalýðs- ins að beinni kauplækkun og lífsafkoma hans var skert, með hækkandi tollum og sköttum. Vísitalan er ekki lengur nein vörn launþegunum gegn hækk- ,andi verðlagi, heldur aðeins falsk Verkalýffurinn mótmælir Samstarf ríkisstjórnarinnar við verkalýðinn hefur í framkvæmd- inni orðið sú: Að nokkrir for- ustumenn verkalýðsfélaga, úr flokki kommúnista, samþykkja þær gjörðir hennar, sem varða launþega, en verkalýðsfélögin sjálf hafa engan tillögurétt og geta því engu breytt, enda þótt ríkisstjórnin fullyrði bæði í blöðum og útvarpi, að allar að- gerðir hennar í efnahagsmálun- um séu í vinsamlegu samstarfi við verkalýðssamtökin. Stefna ríkisstjórnarinnar í efna hagsmálunum hefur til þessa ekki samrýmzt vilja alls þorra verka- lýðsins, sem vill raunhæfar úr- bætur og þá verðhjöðnun, sem gerir útflutningsframleiðsluna starfhæfa án þess, að hún sé verð- bætt árlega með hundruðum milljóna króna. Geta þær upp- bætur líka valdið atvinnuleysi fyrr en varir, því að greyðslugeta ríkissjóðs er ekki óþrjótandi þeg- ar gjaldþol landsmanna er þrotið. — Að því virðist ríkisstjórnin stefna í vinsamlegu samstarfi við kommúnista. Þeirri stefnu mótmælir íslenzk- ur verkalýður í dag. ÞESSI eru tvö frumskilyrði kristi legs safnaðarlífs: Trúrækni og kirkja. Við íbúar Langholtsprestakalls í Reykjavík stöndum nú and- spænis því mikla viðfangsefni að koma upp kirkju. Þetta viðfangs efni mun reynast prófsteinn á trúrækni okkar og kristilega fórnarlund. Nú mun koma í ljós á hversu traustum grundveli hinn ungi söfnuður stendur. Síðan Langholtsprestakall var stofnað og prestur til þess kjör- inn. hafa allar guðsþjónustur orð ið að fara fram utan safnaðarms og mjög torvelt hefur reynzt að koma við nokkru kirkjulegu fé- lagstarfi, sem sóknarpresturinn og aðrir forráðamenn safnaðarins hafa haft mikinn áhuga á að efla. Aðstaða öll til kirkjulegrar starfsemi í söfnuðinum hefur því átt við hina mestu erfiðleika að stríða. Er óviðunandi' að svo fari lengur fram. Því er það, að safnaðarstjórn- in hefir hafizt handa um bygg- ingu Langholtskirkju. Kann ýmsum að þykja það fullmikil bjartsýni, miðað við það takmark aða fjrámagn, sem er til ráðstöf- unar, en það er sannfæring safn aðarstjórnarinnar, að söínuður- inn allur muni sameinast um að byggja kirkju sína og sanna það í verki, að Langholtssöfnuður muni ekki sýna kirkju sinni minni fórnarlund en aðrir söfn- uðir þessa lands. Margir hafa þegar lagt mikið af mörkum til þess að koma Langholtskirku upp, en nú er þörf enn stærri og almennari átaka til þess að ná þeim áfanga, sem nú er stefnt að. Ætlunin er að byggja kirkjuna í tveimur áföngum. Fyrst er að koma upp þeim hluta byggingarinnar, sem ætlaður er til ýmiss konai kirkju- legs félagsstarfs, en síðari áfang- inn er aðalkirkjan sjálf. í fyrra sumar var byrjað á fyrri áfang- anum og er að því stefnt, að hægt verði að taka félags- heimilið til afnota í haust, og hefur þá söfnuðurinn fengið þak yfir höfuðið fyrir guðsþjónustur og annað kirkjulegt starf innan prestakallsins sjálfs, þótt leita þurfi enn um sinn út fyrir presta kallið með meiri háttar guðs- þjónustur. Yfir 8 þúsund mannj búa nú í LanghoitsprestakaKi, og er ekkert prestakall utan Reykja- víkur svo tjölmennt. Þessi stóri söfnuður getur ekki lengur un- að því, að eiga ekkert guðshús. Þótt öll aðstaða til starfs hafi verið erfið, þá hefir þegar komið í ljós mikill áhugi á að halda uppi fjölþættu safnaðarstaríi, ekki sízt æskulýðsstarfi, sem er áreiðanlega áhugamál allra for- eldra í söfnuðinum að sé hægt að sinna sem bezt. Æskulýðsfélag hefur verið stofnað, kvenfélag og bræðrafélag og síðast en ekki sízt kirkjukór. Hafa þó félög þessi ekki neinn samastað fyrir starf sitt. Forráðamenn safnaðarins telja sig því hafa fullgilda ástæðu :il að vera bjartsýnir á trúrækni safnaðarins og fórnarlund hans í þágu kirkju sinnar. Sérhver krist inn maður skilur mikilvægi þess að eiga sína kirkju, og er því ástæðulaust fyrir mig að færa fram sérstök rök fyrir því, að kirkju þurfi að reisa í Langholts prestakalli. Þessi fáu orð eru að- eins rituð í því skyni að hvetja nú alla íbúa prestakallsins til samstilltra átaka um að koma kirkjunni sem allra fyrst upp. Það er ætlun safnaðarstjórnar- innar að hefja um næstu helgi almenna fjársöfnun í prestakall- inu til kirkjubyggingarinnar. — Veltur á miklu um framgang þessa höfuðmáls safnaðarins, að allir bregðist vel við kallinu — Auðvitað eru fjárráð misjöfn, en sérhvert framlag er með þökk- um þegið og það er mikils virði, að sem allra flestir leggi eitthvað af mörkum, því að það eitt út af fyrir sig eflir samhug innan safn- aðarins og skilning á því, að hér er verið að reisa hús, sem er hverjum og einum safnaðarmeð- lim eigi síður mikilvægt en hans eigið heimili, því að kirkjan er bæði á gleði- og sorgarstundum sameiginlegt heimili okkar allra. Eg heiti á okkur öll í Lang- holtssöfnuði að gera nú átak, sem um munar. Minnumst þess, að mjög fámennir sveitasöfn- uðir hafa reist vegleg guðshús og lagt á sig með gleði miklar fórnir í því sambandi. Sýnum það, að trúrækni og fórnarlund skorti ekki til þess að reisa hér í prestakallinu veglegt guðshús, sem skapað geti nauðsynleg skil- yrði til fjölþætts kristilegs satn- aðarstarfs okkur öllum til menn- ingarauka og blessunar. Magnús Jónsson. Sextugur í dag: Finnbogi Björnsson bóndi í Kirkjubœ í Skutulsfirði FINNBOGI Björnsson bóndi að Kirkjubæ í Skutulsfirði á í dag sextugsafmæli. Hann er ættaður úr Barðastrandarsýslu. Bjuggu foreldrar háns, Ástríður Brands- dóttir og Björn Björnsson á Hól- um í Reykhólahreppi. Finnbogi kvæntist Salvöru Krist j ánsdóttur, Ólafssonar bónda á Eyri í Mjóafirði árið 1932. Bjuggu þau fyrst tvö ár á Eyri á móti Kristjáni. Síðan tóku £au við jörðinni allri og bjuggu þar fram til ársins 1946, er þau keyptu jörðina Kirkjubæ í Skut- ulsfirði. Hafa þau búið þar síðan. Þau Salvör og Finnbogi eiga fimm myndarleg börn, sem nú eru öll uppkomin nema eitt. Er heimili þeirra hið myndariegasta enda eru þau hjón bæði hið mesta snyrtifólk. Búskapur Finnboga, bæði á Eyri og að Kirkjubæ mótast mjög af dugnaði hans, hirðusemi og reglusemi.Hann hefir bætt jarð- ir sínar verulega og hefur nú ágætt og myndarlegt bú á jörð, sem áður var smábýli. Hann vmn ur jarðabætur sínar af kostgæfni og vandvirkni, elur búpening sinn afburðavel og uppsker góð- an arð af búi síriu. Finnbogi Björnsson er hið mesta prúðmenni í framkomu, drengur góður og hvers marpis hugljúfi. Eru þau hjón einkar samhent í öllu starfi. Umhverfis þau er alltaf hlýja og ánægja. Á heimili þeirra er öllum tekið með einstakri gestrisni og alúð. Raunar er varla orð á því ger- andi að Finnbogi sé orðinn sex- tugur. Svo unglegur er hann bæði í anda og útliti. En nú er það tekið að tíðkast að jafnvel korn- ungir menn eru sagðir sextugir samkvæmt upplýsingum kirkiu- bóka. Mér þykir ekki óeðlilegt að margir, sem þekkja Finnbi.ga ali þá ósk með sér í laumi, að þeir mættu varðveita æsku sína eins vel og þessi sextugi, sívinn- andi bóndi. En ætli það sé ekki einmitt vinnan úti á túni og sam- vistirnar við kindur og kýr í fjárhúsum og fjósi, sem heldur bóndanum unglegum og hraust- um mitt í annriki hans og erli? Væri ekki reynandi fyrir okkur borgarbúana, sem hraði verald- arinnar er að æra. að nálgast meira náttúruna úti í sveitum, uppi í dal eða inni í firði, þá héid um við ef til vill æsku okkar eins og þessi sextugi bóndi, sem lítur út eins og fertugur og er ævinlega glaður, bjartsýnn og trúir á framtíðina, mátt sinn og megin. Það væri gaman að vera heima hjá Salvöru og Finnboga í Kirkjubæ í dag í vorinu og vina- hópnum. En það verður víst að bíða. Vinir hans senda honum góðar kveðjur og árnaðaróskir með far sæla fortíð og bjartsýna trú á framtíðina. S. Bj.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.