Morgunblaðið - 01.05.1958, Page 19

Morgunblaðið - 01.05.1958, Page 19
Fimmtudagur 1. maí 1958 MORCVmnLAÐIÐ 19 — Þungf vatn Framh. af bls. 1. aðir, t.d. Krísuvík. Hefðu sér- fræðingamir farið til Þorláks- hafnar til þess að athuga þar aðstæður í höfninni með það fyr- ir augum að efni til þungavatns- iðjuversins yrði skipað þar á land. Próf. Kowarski sagði: Ef þær umræður sem fraxnundan eru, og byggðar verða á skýrslum okkar, leiða til þess að Evrópu- þjóðirnar telji sér það kleift að eiga hlutdeild í byggingu þunga vatnsvers hér á landi, þá þykir okkur sennilegt að þjóðirnar muni mynda með sér alþjóðleg samtök, sem svo munu hefja við- ræður við íslendinga um málið. Sérfræðingarnir sögðu að áætlanir þær er nú hafi verið miðað við, sé að þungavatns- framleiðslan verði 100 lestir ári til að byrja með en mögu- leikar væru til aukningar allt upp í 400—500 lesta ársfram leiðslu. Próf. Weiss, sem er sérfræðing- ur í byggingu þungavatnsvera, sagði að bygging 100 lesta vers myndi taka 3—4 ár. Byggingar- vinnan myndi þurfa gífurlegan mannafla, allt að 2000 manns, og áætla mætti að verið myndi kosta um 40 milljónir dollara. Sérfræðíngarnír sögðust hafa kynnt sér mannvirkjagerð hér landi og væri sá þáttur iðnaðar landsmanna sýnilega vel á vegi staddur, en nefndarmenn höfðu skoðað Áburðarverksmiðjuna Sementsverksmiðjuna svo og orkuverin austur við Sog. Dr. Kowarski sagði að gefnu til efni, að hann og „collegar" hans þar á blaðamannafundinum myndu vera á einu máli um að þungt vatn yrði framvegis mjög veigamikið. Það eru um 25 áir síðan þungt vatn var fyrst uppgötvað. AUt vatn, hvar sem er á jörðinni, inni- heldur um það bil sama hundraðs hluta af þungu vatni. I um það bil 7000 lítrum af vatni er einn lítri af þungu vatni. Þetta er ekki mikið magn og mikla orku þarf til að skilja það frá. Nota má annaðhvort varmaorku eða raf orku til þess. Þungt vatn er þvt mjög dýr vara, en þó ekki eins Julius Katona Lög úr söngleikum á tónleikum út- varpsins NÆSTA sunnudag, 4. maí, kl. 4 síðdegis, efnir Hljómsveit Kíkis- útvarpsins tii tónleika í Þjóð- leikhúsinu undir stjórn Hans- Joachim Wunderlich. Viðfangsefni hljómsveitarlnnar á þessum tónleikum eru einvörð- ungu úr óperum og óperettum. Fyrri hlutinn eru aríur og dú- ettar úr óperunum „Aida“, La Traviata“, „Otello" og „Vald ör- laganna" eftir Verdi og úr „Cavalleria Rusticana“ efur Mascagni. Síðari hiutínn er úr ýmsum óperettum, þar á meðal „Leðurblökunni" eftir Strauss, „Betlistúdentinum" og „Die Dub- arry“ eftir Millöcker, og „Pagan- ini“ eftir Lehár. Með hijómsveitinni syngja fjórir söngvarar: Sópransöngkon an Kerstin Anderson og Julius Katona kammersöngvari (tenór) frá Þýzkalandi, og svo Guðrún Á. Símonar og Guðmundur Jónsson. Kammersöngvarinn Julius Kat- ona er mjög þekktur í Þýzka- landi, þar sem hann nú syngur við Hamborgaróperuna og Rikis- óperuna í Berlín. Söngkonan Kerstin Anderson hefur einkum sungið mikið í útvarp víða í Þýzkalandi. Þessir tveir gestii Bærinn kaupir listaverk Á FUNDI bæjarráðs sem haldinn var á þriðjudaginn, var m. a. rætt um kaup á tveimur listaverkum og loks um staðsetningu á högg- mynd. Listaverkanefnd bæjarins hef- ur fjallað um þessi mál og það er í fyrsta lagi tillaga frá nefnd- inni um að höggmyndin „Haf- meyjan“ eftir Nínu Sæmundsson, skuli sett út í Reykjavíkurtjörn í suðvesturhori} hennar. Á þetta féllst bæjarráð. Þá hefur lista- verkanefndin rætt um kaup á höggmyndinni „Knattspyrnu- menn“ sem Sigurjón Ólafsson myndhöggvari hefur gert. Bæj- arráð ákvað að fá umsögn Laug- ardalsnefndar og stjórnar íþrótta- svæðanna um þetta mál. Loks var svo sSmþykkt tillaga frá listaverkanefnd um að bær- inn kaupi listvefnað hjá frú Ester Búadóttur og skal hann settur upp í heilsuverndarstöð- inni. dýr og gull; eins og er er það j koma hingað fyrir milligöngu selt á $62 kílóið í Bandaríkjun- ; þýzka sendiráðsins í Reykjavík. um. Eru þeir væntanlegir til Reykja- víkur í kvöld og koma eingöngu til að syngja fyrir útvarpið. Aðgöngumiðar að þessum tón- leikum verða seldir í Þjóðleik- húsinu. Þungt vatn er notað í kjarn- orkuofnum. Það er ekki nauðsvn- legt en mjög heppilegt. Ýmis ónn ur efni má nota, en þungt vatn er þó langheppilegast svo fram- arlega sem hægt er að framleiða það á sem ódýrastan hátt. Stórt raforkuver myndi þurfa nokkur hundruð lestir af þungu vatni. Bretar hafa hingað til notað grafít sem hægi í sínum kjarn- orkustöðvum, en þungt vatn hef- ur allt þar til fyrir ca. 2 árum verið mjög dýrt. Ein leið til að lækka verðið á þungu vatni, er að nota ódýra orku, t. d. hita- orkuna úr hveragufunni hér á ís- landi, til að framleiða þungt vatn. Miðað við þá ársframleiðslu á þungu vatni sem við höfum nér reiknað með, 100 lestum, þa myndi verðmæti ársframleiðslu Islendinga verða um 6,2 míilj. dala, eða um 100.000.000 íslenzkra króna. Dr. Kowarski lauk máli sínu með því að undirstrika það atriði sem hér skiptir mestu máli og veldur sérstöðu Islands, en pað er að á næstu árum þegar raf- orkuframleiðsla byggist á atom orkunni, þá mun Evrópuþjóðirn- ar skorta þungt vatn. Þær nafa ekki möguleika til að fram- leiða það með ódýrum hætti, annaðhvort verða þær að brenna olíu eða kolum, sem í raumnni er skortur á. Hér á Islandi et mikil ónotuð og ódýr orka. Til viðbótar má svo einnig telja að Evrópuþjóðirnar skortir dollara ísland er miklum mun nær markaðslöndunum. Fjölmenn úfiför Jóns Haraldssonar ÁRNESI, S-Þing., 30. apríl. Útför Jóns Haraldssonar, bónda og póstafgreiðslumanns á Einars- stöðum fór fram í gær að Ein- arsstaðakirkju, að viðstöddu af- ar miklu fjölmenni, hvaðanæva að úr sýsunni. Sóknarpresturinn, séra Sigurður Guðmundsson, Grenjaðarstað, jarðsöng. — Smárakvartettinn frá Akureyri söng við undirleik Jakobs Tryggvasonar. Einsöngvari var Jóhann Konráðsson. Pétur Sig- fússon flutti kveðju. Tvö minn- ingarljóð búrust og las sóknar- presturinn þau upp. Jarðarförin var mjög hátiðleg og virðuleg. ■— Hermóður. Söngskemmtun Fóstbræðra SÍÐUSTU hljómleikar Fóst- bræðra verða á föstudag kl. 7 e. h. en ekki á fimmtudagskvöld eins og misritaðist í blaðinu. Hljómleikarnir hafa verið haldn- ir fyrir troðfullu húsi og við óvenjumikla hrifningu. Kom með góðan þorskafla af Austur-Græn- landsmiðum PATREKSFIRÐI, 30. april. — Togarinn Ólafur Jóhannesson kom hingað í dag af Austur- Grænlandsmiðum, eftir 13 daga útivist. Togarinn landaði tæpum 340 lestum af karfa og þorski. Þorskurinn, sem var 130 leotir, var gotuþorskur. Mun það vera nýmæli, að þorskur veiðist á þess um slóðum. Mestur hluti af fisk- inum verður frystur en hluti af þorskaflanum fer til skreiðar- vinnslu. Ketil- og lestarhreinsun stend- ur nú yfir í togaranum og mim hann að öllum líkindum fara aft- ur út á Grænlandsmið á morgun. Gylfi er á veiðum við Austur- Grænland. — Karl. ískyggilegar horlur á jarðræklarfram- kvæmdum í S-Þing. ÁRNESI, S-Þing., 30. apríl. — ískyggilega horfir hér með jarð- ræktarframkvæmdir í vor og sumar vegna vöntunar á vara- hlutum í ræktunarvélar. Síðan í fyrra hafa engin leyfi verið veitt fyrir varahlutum í jarðýtur, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. í vetur [ hefur því ekki verið hægt að gera vélar ræktunarsambandanna í stand fyrir sumarið eins og venja er til og nauðsyn krefur. Eru nú margar ýtur óvinnufærar á þeim tíma er vélarnar þurfa að vera tilbúnar til sumarstarfanna. Skapar þetta ástand ófyrirsjá' anleg vandræði fyrir ræktunar- samböndin ,sem hafa tekið að sér ræktunarmálefni bænda eins og kunnugt er. Skilningsleysi stjómarvaldanna á þessum mál- i um er beint tilræði við íslenzka bændastétt og íslenzkan landbún að og þá ræktunarþróun er und- anfarið hefur ríkt í sveitum landsins, og hrundið var af stað 1945 með lögunum um ræktunar- samþykktir. Ef þessi mikilvæga þróun verður stöðvuð eða lömuð eins og nú horfir líta bændur á þær ráðstafanir mjög alvarlegum cugum. — Hermóður. Nixon í Argenlínu BUENOS AIRES, 30. apríl (Reut- er) — Varaforseti Bandaríkj- anna, Richard E. Nixon kom í dag fljúgandi til höfuðborgar Argentínu. Hann ætlar að vera viðstaddur hátíðahöldin á morg- un, þegar Frondizi, hinn nýkjörni forseti verður settur inn í em- bættið. Nixon mun nota tækifærið og heimsækja næstu daga ýmis Suður-Ameríku-ríki svo sem Uruguay, Paraguay, Bolivíu, Perú, Ekvador og Venezúela. Libya óskar eina- hagsaðstoðar LONDON, 30. apríl. (Reuter) — Forsætisráðherra Libyu, Abdul Majid Koobar er nú staddur í Lundúnum og á viðræður við Selwyn Lloyd utanríkisráðherra Breta. Það er ætlun hans að semja við Breta um fjárhagS' styrk til Libyu. Getur þetta unga ríki í Norður-Afríku ekki séð sjálfu sér farborða án efnahags- aðstoðar. 663 t!3 ÁRNESI, S-Þing., 30. apríl. — Síðan fyrir páska hefur verið hér stillt og góð tíð, með hægum bata. Snjó hefur stöðugt tekið upp, þótt hægt hafi farið. Víða eru því komnir upp ágætir sauð- fjárhagar, einkum við sjóinn, þar sem snjóminnst var. Sauðfé er þó enn á stöku bæj- um á fullri innigjöf. Ásetningi er lokið og virðast heybirgðir víð- ast hvar vera allgóðar í hérað- inu. — Hermóður. Nora Brocksted til Reykjavíkur HINGAÐ kemur um helgina hia vinsæla og þekkta söngkona, Nora Brocksted, ásamt undirleik- ara og mun hún halda liér tvo til þrjá hljómleika í Austurbæj- arbíói. Nora skipar nú efsta sess meðal dægurlagasöngvara Norð- urlanda, og var fyrir skemmstu valin bezta „jazz-söngkona Norð- urlanda“ í söngkeppni, sem nefnd er „All-Star’s“, er haldin var í Ósló. Þar vakti hún verðskuld- aða athygli og kom öllum á óvart sem jazz-söngkona, því að hún hefur aðallega haldið sig að hin- um rólegri dægurlögum. Þess má geta sem dæmis um hversu eftirsótt Nora Brocksted er til hljómleikahalds, að reynt hefur verið siðastliðin þrjú ár að fá hana hingað, én ekki tekizt fyrr en nú, og því miður ekki nema í þrjá daga. Á hljómleikum þessum kemur fram í fyrsta skipti 14 ára rokk- söngvari, Haraldur Haraldsson. og er hann talinn ágætur ,,rokk- söngvari". Hljómsveit Gunnars Ormslevs leikur nýjustu danslögin og hmn vinsæli dægurlagasöngvari Haok- ur Morthens, syngur með hljóm- sveitinni og annast kynningu skemmtiatriða. Þess má geta að hér er um kveðjuhljómleika Gunnars Ormslevs að ræða, en hann og hljómsveit hans eru á förum til útlanda og munu leika á ýmsum stöðum erlendis í sum ar. — Hljómleikar þessir hefjast á sunnudaginn, 4. maí, í Austur- bæjarbíói, kl. 11,15 síðdegis. Mitt innilegasta þakklæti færi ég öllum þeim, er auð- sýndu mér tryggð og vináttu á sextíu og fimm ára afmæli mínu 21. apríl s.L Lifið heil. Ólafur Árnason, Gimli, Grindavík. Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem heimsóttu mig, færðu mér gjafir og glöddu mig á annan hátt á 70 ára afmæli mínu. Guð blessi ykkur öll. Þórunn Guðmundsdóttir, Fíflholtshjáileigu. Hugheilar hjartans þakkir til allra ættingja og vina fjær og nær, sem glöddu mig á 60 ára afmæli mínu 27. marz síðastliðinn, með heimsóknum, gjöfum og heilla- skeytum, hlýjum orðum og kvseðum, og gerðu mér að öllu leyti daginn ánægjulegan og ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Ólafía Sveiusdóttir, Syðri-Kárastöðum, Vatnsnesi, V-Hún. ÁRNESI, 30. apríl. — Rafmagnið hækkaði hér um 10% frá og með apríl úr 65 aurum kvst. í 71,5 aura. Það er Rafmagnsveita rík- isins sem stendur fyrir hækkun- innL — Hermóður. KMJT HERTERVIG frá Siglufirði andaðist að Stórholti 21 í Reykjavík að- faranótt 30. apríl. Svava Hertervig, Sigurbjörg Hálfdánardóttir. Innilegar þakkir flytjum við öllum þeim sem heiöruðu minningu föður okkar GlSLA JÓHANNESSONAR múrara, frá Seli í Holtum. Börn og tengdaböm. Jarðarför MAGNtTSAR Þ. ÖFJÖRÐ fer fram frá Gaulverjabæjarkirkju laugardaginn 3. mai kl. 14,00. Bílferð verður frá bifreiðastöð íslands kl. 11.30. Vandaraenn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.