Morgunblaðið - 04.05.1958, Page 22
22
M O R CV N fí r 4 Ð1Ð
Sunnudagur 4. maí 1958
r
48. Islandsglíman í dag kl. 5
77 glímumenn keppa um Grettisbeltið
48. ÍSLANDSGLÍMAN verður
Ferming í dag
háð í dag kl. 5 að Hálogalandi.
Að þessu sinni eru glímumenn 11
talsins frá 4 félögum.
Meðal þátttakendanna má
nefna bræðurna Ármann J. Lárus
son Grettisbeltishafa og Kristján
Fyrsta bæjakeppnin
Akranes-Hafnarfj.
AKRANESI, 2. maí. — Fyrsta
bæjakeppnin í sundi milli Akra-
ness og Hafnarfjarðar fer fram
í Bjarnalaug á Akranesi kl. hálf-
fjögur eftir hádegi nk. sunnudag.
Keppt verður um fagran farand-
bikar, sem Kaupfélag Suður-
Borgfirðinga á Akranesi hefir
gefið í tilefni keppni þessarar.
Keppt verður í 8 aðalgreinum og
fjórum aukagreinum. Meðal þátt-
takenda verða beztu sundmenn
beggja kaupstaðanna. — Oddur.
Heimi Lárusson sem flesta sigra
hafa unnið á undanförnum mót-
um. Þeir eru frá UMFR en það
félag sendir 6 glímumenn til
keppninnar og má auk þeirra
bræðra nefna Hilmar Bjarnason
og Hannes Þorsteinsson. Ármann
EINS og skýrt hefur verið frá
verður efnt til „hraðmóts" í
handknattleik að Hálogalandi
í kvöld og hefst keppnin kl. 8.
Verður leiktíminn 2x15 mín.
og það lið úr keppni er tapar
leik. Slík mót eru mjög vinsæl
erlendis enda æfinlega spenn-
andi og þá ekki sízt nú hér er
KR, ÍR og FH, þrjú efstu lið
á íslandsmótinu mætast ásamt
sendir 3 keppendur m. a. þá Krist
ján G. Tryggvason og Kristján
Andrésson. Þá eru tveir keppend-
ur utan af landi Ólafur Eyjólfs-
son frá UMF Eyfellingi og Ólaf-
ur Guðlaugsson frá UMF Dags-
brún, en hann varð þriðji í
Skjaldarglímunni í vetur.
Eins og sjá má af þessari upp-
talningu er um jafna menn að
ræða ef frá er talinn Ármann
sem verið hefur nær undantekn-
ingarlaust sigurvegari á glímu-
mótum síðari ára.
úrvalsliði annarra félaga.
Úrvalsliðið er skipað eftirtöld-
um mönnum. Gunnar Gunnars-
son Fram, Guðm. Gústafsson
Þrótti, Valur Benediktsson Val
fyrirliði, Geir Hjartarson Val,
Kristinn Karlsson Ármanni, Ingv
ar Sigurbjörnsson Ármanni, Hall
dór Lárusson Aftureldingu, Guð-
jón Jónsson Fram, Ágúst Þórar-
insson Fram, Rúnar Guðmanns-
son Fram, Karl Benediktsson
Fram.
í fyrsta leik mætast F Hog úr-
valsliðið og síðan ÍR, KR. Síðan
leika Ármann og KR í kvenna-
flokki en að lokum fer fram úr-
slitaleikur milli félaganna er
vinna í tveim fyrstu leikjunum.
Mót þetta fer fram á vegum
Handknattleikssambandsins.
Fram vann ÍBK 3:2
KEFLAVÍK, 2. maí — í gærdag,
1. maí, fór hér fram kappleikur
í knattspyrnu milli ÍBK og Fram.
Veður var hið ákjósanlegasta til
keppni, bjartviðri og hægur norð-
vestan andvari. Áður en keppnin
hófst, lék Lúðrasveit Keflavíkur
og eins í leikhléi. Leikur-
inn var mjög skemmtilegur, eink-
um framan af. Stóðu Keflvíking-
ar sig mjög vel í fyrri hálfleik,
sem lauk með 2:0 þeim í vil. í
seinni hálfleik sótti Fram sig
mjög. Leið eigi á löngu, þar til
þeir jöfnuðu leikinn, og er hon-
um lauk höfðu þeir gert 3:2.
Rétt er að geta þess, að þó að
lið Fram hafi sýnt mjög skemmti-
legan leik, var hér ekki um sterk-
asta lið félagsins að ræða, þó að
nokkrir af beztu mönnum þess
hafi leikið með, eins og t. d.
Reynir Karlsson, sem kom inn á
völlinn í hálfleik.
Um kvöldið voru skemmtanir
í samkomuhúsum bæjarins á
vegum 1. maí-nefndar. —Ingvar.
Á föstudaginn átti Fritz Weiss
happel fund með fréttamönnum
og kynnti þá fyrir tveim þýzkum
söngvurum, sem nýlega komu til
landsins. Eru það óperusöngkon-
an Kerstin Anderson og Julius
Katona, kammersöngvari (tenór).
Söngvararnir eru mjög irægir í
heimalandi sinu. Kerstin Ander-
son ' starfar við Rikisóperuna í
Berlín og hefur m. a. suugið í
La Traviata, Carmen og Boheme.
Júlíus Katona starfar við Ber-
línaróperuna og Hamnorgar-
óperuna. Hann hefur einkum lagt
fyrir sig verk eftir Mozart og
stundað nám í ítaliu, i Berlín og
Vin.
Þýzku listamennirnir koma
Háteigssókn:
Ferming í Dómkirkjunni 4. maí
klukkan 11 f. h.
Séra Jón Þorvarösson.
Drengir:
Baldur Ólafsson, Drápuhlíð 3.
Benjamín Grendal Magnússon,
Grænuhlíð 7.
Eggert Sævar Atlason, Ból-
staðarhlíð 10.
Guðgeir Einarsson, Meðalholti 12.
Guðmundur Ármann Sigurjóns-
son, Miklubraut 60.
Hjörtur Benediktsson, Miklu-
braut 60.
Jóhann Pétur Sigurðsson,
Eskihlíð 18.
Jón Örn Ámundason, Laugarás-
vegi 31.
Júníus Hafsteinn Kristinsson,
Bogahlíð 18.
Karl Harry Sigurðsson, Miklu-
braut 60.
Magnús Ólafsson, Mávahlíð 14.
Ólafur Reynir Sigurjónsson,
Bólstaðahlíð 27.
* KVIKMYNDIR *
Næturiestin
Róm — Paris
ÞETTA er amerísk-ítölsk kvik-
mynd, sýnd í Austurbæjarbíó’.
Leikstjóri er Vittorio de Sica, og
Jennifer Jones og Montgomery
Clift í aðalhlutverkurnim. Segir
í myndinni frá dmeriskri konu,
Mary Forbes (Jennifer Jones),
sem er gift vestra og á dóttur 7
ára gamla. Hefur frúin dvalizt
um mánaðartíma hjá syst .t sinni
í Róm og ekki verið lengi að
krækja sér í brennlieitan italsk-
amerískan elskhuga, Giovanni
Doria að nafni (Montgomery
Clift), sem þar er kennari, en
virðist þó ekki kunna ítölsku,
því að hann talar alltaf ensku,
einnig við hina ítölsku járnbraut
armenn og embættismenn. — Frú
Forbes ætlar með lestinni Róm-
París kl. 8,30 á leið heim til sín
til Philadelphiu, og gerist mynd-
in öll á járnbrautarstöðinni, en
elskhuginn er þangað kominn til
þess að fá frúna til að hætta við
ferðina, hvað pó ekki ber ár-
angur. — Annað gerist í raun
og veru ekki í pessari mynd. —
Nú mun margur að sjálfsögðu
spyrja hversu pað megí takast
að gera langa kvikmynd um ekki
margbrotnara etni og ég svara
hiklaust: Það hefur alls ekki tek-
izt, enda þótt leikstjórinn sé hinn
víðfrægi de Sica. Myndin er
sem sé full af margskonar auka
atriðum, sem ekkert koma sögu
þráðinum við og miða að því
einu, að því er virðist, að teygja
sem mest úr myndinni, enda er
hún frámunalega langdregin og
þar seinagangur í öllu, og spenn-
an vitanlega engin. Með öðrum
orðum: leiðinleg mynd og leik-
urinn rétt í meðallagi.
fram á hljómleikum sem Rikis-
útvarpið gengst fyrir í Þjóðléik-
húsinu kl. 16 í dag. Hljómsveit
Ríkisútvarpsins leikur undir
stjórn Hans Joachim Wunder-
lich. Auk þýzku söngvaranna
syngja þau Guðrún Á. Símonar
og Guðmundur Jónsson. Á efnis-
skránni eru aríur og dúettar úr
frægum óperum og óperettum.
Þýzka listafólkið lýsti ánægju
sinni yfir komunni hingað, en
ísienzkir sóngvarar eru þeim að
góðu kunnir. í Hamborg og Stutt
gart hafa þau starfað með Fin-
ari Kristjánssyni, og Kerstin And
erson gat þess einnig, að hún
hafði verið samtiða Guðmundi
Jónssyni við nám í Sviþjóð.
Sigurður Jóhann Guðjónsson,
Lönguhlíð 13.
Sigurður Karlsson, Barmahlíð 41.
Símon Sverrir Ragnarsson,
Birkimel 8.
Steindór Gíslason, 'Bólstaðarhlíð 3
Sveinbjörn Rafnsson, Blöndu-
hlíð 17.
Þorsteinn Ingólfsson, Bergþóru-
götu 37.
Þorvaldur Ólafsson, Stórholti 32.
Þór Ingimar Þorbjörnsson,
Mávahlíð 45.
Vigfús Lúðvík Guðmundsson,
Bogahlíð 14.
Vilhjálmur Sigurður Eyþórsson,
Stórholti 41.
Stúlkur:
Agnes Ingvarsdóttir, Nóatúni 30.
Anna Sigríður Ingvarsdóttir,
Grettisgötu 73.
Anna Sigurðardóttir, Stórholti 18.
Auður Guðmundsdóttir, Máva-
hlið 11.
Brynhildur Hrönn Aðalsteins-
dóttir, Bólstaðarhlíð 30.
Emma Þórdís Stefánsdóttir,
Stórholti 12.
Guðný Edda Magnúsdóttir,
Skipholti 9.
Guðrún Bjarnfríður Baldursdótt-
ir, skála 4 við Háteigsveg.
Guðrún Stefánsdóttir, Drápu-
hlíð 40.
Guðrún Sveinsdóttir, Miklu-
braut 52.
Guðrún Tryggvadóttir, Grænu-
hlíð 6.
Gyða Bergþóra Georgsdóttir,
Háteigsvegi 15.
Helga Karitas Nikulásdóttir,
Barmahlíð 50.
Ingibjörg Sigurðardóttir, Barma-
hlíð 51.
Jónína Þorsteinsdóttir, Bólstaðar-
hlíð 33.
Kristín Guðbjörnsdóttir, Skip-
holti 36.
Margrét Þóra Guðlaugsdóttir,
Barmahlíð 54.
Marta María Jensen, Háteigs-
veg 17.
Sigríður Halldóra Svanbjörns-
dóttir, Flókagötu 19.
Sigríður Margrét Halldórsdóttir,
Drápuhlíð 33.
Svanborg Rannveig Briem,
Lönguhlíð 9.
Þórunn Sigurðardóttir, Löngu-
hlíð 11.
- BONN
Frh. af bls. 11.
við sig innan um þysinn hjá stúd
entum. En kannski ættu menn
nú að spyrja einhvern bæjarbúa,
hvert halda skyldi og eftir nokkra
umhugsun mun hann að jafnaði
ráða mönnum til þess að skoða
gamla kirkjugarðinn, þvi það
borgi sig vel.
Menn ganga um hliðið inn í
þennan friðarreit. Tré kasta
skuggum sínum yfir grafirnar,
en á þeim standa mörg nöfn
frægra manna. Hér hvílir
móðir Beethovens, kona og sonur
Schillers, svo og hinn óhamingju
sami Schumann, sem lézt á geð-
veikrahæli við Bonn. Þarna er
líka grafreitur Wesendonk-fjöl-
skyldunnar og ein af gröfunum
þar er nvílustaður Matthildar,
sem hafði svo mikil áhrif á líf
meistarans Wagners. ' Hér eru
menn komnir inn í annan heim
og borgarysinn nær ekki til þessa
friðsæia reits.
Það væri líka ómaksins vert,
að kynnast dálítið bæjarbúum í
Bonn, en þaS er ekki auðvelt
að komast i náið samband við
þá. Bonnfóikið er íhaldssamir
bæjarmenn og borgarar, sem
ekki eru að íljótir að kynnast.
Það krefst tíma að kynnast bæn-
um og íbúum hans. Bonn er mjög
fögur borg, en að vísu hefur hún
látið nokk.ið af hinum forna svip
sinum, við að verða höfuðborg.
Bonn hefu. miklu afkastað á hin
um síðustu 9 árum og bæjarbú-
ar hafa ástæðu til að vera stoltir
af þessum gamla bæ, þessari
Þyrnirósu, sem vaknað’ af svefni
og varð að höfuðborg hins end-
urborna rikis.
Almennur fundur
Kvenréttindafélag Islands, Alþýðusamband Islands,
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og Verzlunarmanna-
félag Reykjavíkur halda.
almennan fund
um atvinnu- og launamál kvenna í Tjarnareafé mánud.
5. maí kl. 20,30. Formaður K.R.F.Í., Sigriour J. Magnús-
son, flytur ávarp.
Framsögumenn: Frá A.S.Í. Herdís Ólafsdóttir
— B.S.R.B. Valborg Bentsdóttir
— V.R. Anna Borg
— K.R.F.Í. Hulda Bjarnadóttir
Frjálsar umræður.--------Öllum heimill aðgangur.
Undirbúningsnefndin.
íbuð óskast
Undirritaðir óska eftir íbúð fyrir fámenna
fjölskyldu, sem er nýkomin til landsins.
AÐVENTISTAR
sími 13899.
Málverkahremsun
Get bætt við mig nokkrum olíumálverkum til hreins-
unar. Verð til viðtals milli kl. 10—12 fyrir hádegi,
Bæjarbókasafninu, kjallara (syðri dyr).
(Geymið auglýsinguna)
Kristín Guðmundsdóttir.
Tilkynning
um áburðarafgreiðslu í Gufunesi
Áburður verður afgreiddur frá og með mánudeginum 5.
maí og þar til öðru vísi verður ákveðið, eins og hér segir:
Alla virka daga kl. 7.30 f.h. — 6.30 e.h.
Laugardaga kl. 7.30 f.h. — 3.00 e.h.
Til hagræðis fyrir kaupendur eru afgreiðslunótur út-
gefnar í Gufunesi. - Gerið svo vel að geyma auglýsinguna.
ÁBUR»ARVERKSMIÐJAN H.F.
Hraðkeppni í hand-
knattieik í kvöid
4 lið keppa i karlaflokki, 2 i kvennafl.
Þýzkir óperusöngvarar
syngja í Þjóöleikhúsinu