Morgunblaðið - 04.05.1958, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 04.05.1958, Qupperneq 23
Sunnudagur 4. maí 1958 MORGVNBLAÐVÐ 23 — Dulles Frh. af bls. 8. hin venjulegu kvöldverk, aö undirrita skjöl og taka ákvarð- anir um ýmsar framkvæmdir. — Kl. 7 um kvöldið var vinnutím- anum lokið. Þessi dagur var i engu frábrugðinn venjulegum starfsdegi hans. Hann hafði hald- ið tvo fjölmenna fundi, blaða- mannafundinn og starfsliðsfund- inn. Auk þess hafði hann haldið 14 minni fundi og talað einslege við 22 starfsmenn ráðuneytisins, 6 einstaklinga aðra og einn er- lendan sendiherra. Hann hafði talað ótal mörg símtöl. Róleg kvöldstunð heima Að lokum var Dulles ekið heim í Cadillac-bifreið. Að þessu sinni hafði honum ekki verið boðið út, svo hann sat heima, snæddi kvöldverð með konu sinni. Kvöldverðurinn var súpa, nautatunga, aspargus, hrísgrjóna- búðingur en ekkert kaffi. Þegar Dulles er heima á kvöld in, lítur hann stundum yfir biöð- in. Annars kýs hann heldur að hvíla sig, hlusta á útvarpið, lesa bækur, eða tefla við konu sína Þetta kvöld þurfti hann eins og svo margir aðrir borgarar aó verja talsverðum tíma í skatt- framtalið sitt. Eisenhower forseti les oft kú- rekasögur, þegar hann er kom- inn upp í á kvöldin. Dulles viil fremur leynilögreglusögur. Hanr. háttaði kl. 10 og las þangað til svefninn sigraði hann. — Blýnáman Frh. af bls. 1. danskra króna verið lagðar í framkvæmdir. Var í fyrstu áætl- að að hægt væri að vinna í nám- unni blý og zink fyrir um 130 milljónir danskra króna. Nú eftir verðfallið verður það varla met- ið á meira en 50 milljónir d. kr. 100 manna starfslið Námutækin í Meistaravík eru talin mjög fullkomin. Þau eru óil grafin inn í fjallið og hreinsa blýgrýtið betur en tíðkast í oðr- um blýnámum. Er það nauðsyn- legt vegna þess að flutnings- kostnaður frá Meistaravík tii Belgíu er mjög mikill. Nú munu um 100 manns vera starfandi í Meistaravík. Er staiís- liðið hálaunað, því að ella væri erfitt að fá fólk til starfa norður á heimskautssvæðinu. Þeir eru þó ekki mjög einangraðir, því aö gerður hefur venð góður flug- völlur í Meistaravík og eru flug- samgöngur allgóðar. Geysilegur halli . Þegar fjármagn er fest í námu - rekstri er reiknað með því að fyrirtækið greiði hluthöfum aft- ur höfuðstólinn um leið og málm- urinn er uppgenginn. Ella er tap á rekstrinum og því ekki hag- kvæmt að vinna hann. í fyrstu útreikningum um rekstur blý- námunnar í Meistaravík var gert ráð fyrir að félagið myndi end- urgreiða hlutaféð að minnsta kosti tvöfalt. Eins og verðþróunin er nú á blýi virðist hins vegar sýnt að Baðker Nýkomin tékknesk baðker A. Jóhannsson og Smith hf. Brautarholti 4 — Sími 24244 Maður óskast til hjólbarðaviðgerða. — Upplýsingar: B A R Ð I N N H.F. Skúlagötu 40. Höfum til gluggagirði 1%” Blikksmiðjan Crettir Brautarholt 24 Bifreiðast/órar Okkur vantar nokkra reglusama bifreiðastjóra. Bifreiðastöð Steindórs Sími 1-1588. Grafvél %” cub. yard óskast leigt i 3 mánuði. Tilboð merkt: Grafvél — 8170, sendist afgr. Morgunblaðsins fyrir 5. maí. hallinn verði geysilegur. Af 15 milljón danskra króna höfuðstól er ekki búizt við að félagið geti endurgreitt nema 2,5 milljónir króna og af 12,5 milljón króna ríkisframlagi verða ekki endur- greiddar nema 5,5 milljónir d. króna. Að vísu getur þetta brey tzt ef blýverðið hækkar aftur, en engin merki eru verðhækkunar á því sviði. DANSAÐ \ i dag kl. 3 — 5 $ v \ s 't s s I s s s ) I s s ) ALLT 1 RAFKERFIÐ Bílaraftækjaverzlun Halldórs Ólafssonar Rauðarárstíg 20. — Sími 14775. F R í M E R K 1 Islenzk keypt hacstaverðl. Ný veröskri ókeypis. J. S. Kvaran. Oberst Kochs Allé 29. Kóbenhavn - Kastrup. ;[SJEÍaT" I. O. G. T. Svava nr. 23. Fundur i dag kl. 2. — Inntaka, kosning, Kvikmyndasýning o. fl. 1 Gæzlumenn. Víkingur. Fundur annað kvöld, mánudag, kl. 8,30 í G.T.-húsinu. Æt. Barnastúkan Æskan nr. 1. Fundur í dag kl. 2. Framhalds- sagan, kvikmynd og fleira. Mætið öll. Gæzlumaður. Samkomur KFUM í dag kl. 1,30 Y.D. og V.D. síð asti fundur kl. 8,30 e.h. fórnar- samkoma Sér Bjarni Jónsson vígslubiskup talar. Allir vel- komnir. Bræðraborgarstíg 34. Sunnudagaskóli kl. 1. Sam- koma kl. 8,30. Allir velkomnir. Hafnarfjörður. St. Morgunstjarnan nr. 11. Munið fundinn annað kvöld. Fjölmennið. Æðstitemplar. Zion. Almenn samkoma í kvöld kl. 8,30. Hafnarfjörður samkoma í dag kl. 4 e.h. Allir velkomnir. Heimatrúboð leikmanna. Hjálpræðisherinn. Kl. 11. Helgunrasamkoma, kl. 14 Sunudagaskóli, kl. 16 Útisam- koma, kl. 20,30 Hjálpræðissam- koma kapt. Guðfinna Jóhannes- dóttir stjórnar. Mánudag kl. 16 Heimilissamband. Almennar samkomur Boðun fagnaðarerindisins, Hörgshlíð 12, Reykjavík kl. 2 í dag, sunnudag. — Austurgötu 6, Hafnarfirði kl. 8 í kvöld. F élogslíf Fimleikanámskeiðin hefjast í ÍR- húsinu mánud. 5- maí. Frúarfl. kl. 4,50. Kvennafl. kl. 8,50. Kennari Unnur Bjarnadóttir. Vormót I. fl. á Melavelli mánudag 5. maí kl. 8,30 e.h. K.R. — Þróttur. Dómari Bjarni Jensson. Vinno Hreingerningar Vanir menn. Fljót og góð 1 viiuia. — Sími 23030. — ALLI. Gömlu dunsornii í bvöld Bezta harmónikuhljómsveitin í bænum Hljómsveit JÓNATANS ÓLAFSSONAR NÚMI ÞORBERGSSON stjórnar dansinum Silfurtunglið Dansað i siðdegiskaffitimanum ÓLI ÁGÚSTAR syngur með hljómsveitinni. Drekkið síðdegiskaffið í Silfurtunglinu. Silfurtunglið. Bazar Kvenfélagið Hrönn heldur bazar í Grófin 1, mánu- daginn 5. maí klukkan 2. Margt góðra muna. KONUR, komið og gerið góð kaup! Bazarnefndin. Móttaka fermingarskeytanna er að Amtmannsstíg 2B Vatnaskógur — Vindáshlíð HALLDÓR JÓNASSON rafvirkjameistari. lézt 27. þ.m. Jarðarförin hefur farið fram. Vandamenn. Minningarathöfn um son minn EYJÓLF STEFÁNSSON iðnnema, sem drukknaði 27. jan. s.l. fer fram frá Fossvogs kirkju, mánudaginn 5. maí kl. 3 e.h. Jarðsett verður frá Akraneskirkju, þriðjudaginn 6. maí kl. 1.30. Þeim er vildu minnast hins látna er bent á góðgerðarstofnanir. Stefán Eyjólfsson. Útför eiginmanns míns og föður okkar ÞJÖÐÓLFS GUÐMUNDSSONAR fer fram mánudaginn 5. þ.m. frá Fossvogskapellu kl. 1,30. Lovísa Vigfúsdóttlr, Gunnar Þjóðólfsson. Ragnar Þjóðólfsson, og aðrir vandamenn. Við þökkum innilega öllum fjær og nær auðsýnda vin- áttu og samúð við andlát og jarðarför JÓNlNU G. SVEINSDÓTTUR frá Vatnskoti, Þingvallasveit. Símon Pétursson og börnin. Hjeu-tans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför eiginkonu minnar MARfU STEINÞÓRSDÓTTUR Guö blessi ykkur öll. Kristján Jóhannesson Ytri Hjarðardal ÖnundarfirðL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.