Morgunblaðið - 13.05.1958, Síða 2
s
MORCVTSHI. ÁÐ1Ð
ÞriðTntfagiir 13. maí 195
Thor Thors færði Minnesota
Flateyjarbók í afmælisgjöf
Frá hátíðaholdunum í Minneapolis
Thor Thors sendiherra flytur ávarp sitt í móttökuveizlu ríkis-
stjórans í Minnesota. Hjá honum stendur Orville Freeman ríkis-
stjóri en hann er af norskum og sænskum ættum.
,,Láki sleginn á 1.500 kr.
AtiDARAFMÆLIS eins af sam-
bandsríkjum Bandaríkjanna,
Minnesota, er minnzt um þessar
mundir. Aðalhátíðahöidin stóðu
um helgina. Thor Thors sendi-
herra var viðstaddur þau sem
fulltrúi íslands. Hafði ríkisstjórn
Minnesota sérstaklega heiðrað
Norðurlandaþjóðirnar með þvi
að bjóða sendinefndum þeirra til
hátíðahaldanna. En mikill hluti
íbúa Minnesota-ríkis er af nor-
rænu bergi brotinn.
Komið til Minneapolis
Sendinefndir Norðurlandaríkj-
anna komu allar með einni og
sömu flugvél til flugvallarins við
Minneapolis þann 8. maí. f þeim
hópi voru m. a. Ástríður prins-
essa, dóttir Ólafs Noregskonungs,
Bertil prins frá Svíþjóð og for-
sætisráðherrar þriggja Norður-
landaríkja: Einar Gerhardsen frá
Noregi, H. C. Hansen frá Dan-
mörku og Kuuskoski frá Finn-
landi. Af íslendingum voru með
flugvélinni Thor Thors sendi-
herra og Stefán Hilmarsson sendi
ráðunautur og konur þeirra.
Fjölmenni var á flugvellinum
til að fagna komu allra þessara
tignu gesta. Af Vestur-íslending-
um voru m. a. á flugvellinum
Valdimar Björnsson, _ Björn
Björnsson ræðismaður íslands,
Tryggvi Aðalsteinsson og Grettir
Jóhannesson.
Voru ávörp flutt á flugvellin-
um. Þar talaði m. a. Thor Thors
sendiherra. Gat hann þess í byrj-
un ræðu sinnar, að Hermanni
Jónassyni forsætisráðherra hefði
verið boðið til Minnesota-hátíða-
haldanna. Þakkaði hann þann
heiður sem íslandi væri með
þessu sýndur, en því miður hefði
forsætisráðherrann á síðustu
stundu orðið að hætta við för-
ina vegna áríðandi stjórnarstarfa.
Móttökufagnaður i Lemington-
hóteli
Síðar þennan sama dag, efndi
ríkisstjóri Minnesota, Orville
Freeman til móttökufagnaðar í
viðhafnarsal hins glæsilega
Lemingtons-hótels í Minneapolis.
Voru þar saman komnir um 1500
veizlugestir auk heiðursgestanna
frá Norðurlöndum. Veizlustjóri
var frú Eugene Anderson fyrr-
um sendiherra Bandaríkjanna í
Kaupmannahöfn. Var þarna hin
Bezla verlíð, sem
komið hefur
STYKKISHÓLMI, 12. maí. —
Allir Stykkishólmsbátar eru nú
hættir róðrum. Vetrarvertíð hef-
ur verið sú bezta, sem nokkurn
tíma hefur komið í Stykkishólmi.
Aflamagn varð rúmlega 35%
meira en í fyrra, þó nú væru gerð
ir út fimm bátar í stað átta í
fyrra. Heildarafli til vertíðarloka
hefur orðið 3.033 lestir í 374 róðr-
um, eða 8.1 lest í róðri, en í fyrra
2.242 lestir í 366 róðrum eða að
meðaltaU fimm lestum minna í
róðri.
Aflahæstur á þessari vertíð
varð mb. Tjaldúr með 762 lestir
í 84 róðrum, eða 9.1 lest í róðri.
Skipstjóri og eigandi hans er
Kristján Guðmundsson. Næst-
hæst varð Brimnes með 684 lestir
í 76 róðrum. Skipstjóri á því er
Grímúlfur Andrésson. Aflahæst-
ur í fyrra var Arnfinnur með 457
lestir eða nákvæmlega sama afla
magn og lægsti bátur hefur nú.
Undanfarið hefur verið mjög kalt
í veðri hér í Stykkishólmi og
gróðri því ekkert farið fram. Hef-
ur oft verið frost um nætur.
— Árni.
bezta skemmtun. Flutt voru stutt
ávörp og færðu fulltrúar Norð-
urlanda Minnesotaríki afmælis-
gjafir. Bertil Svíaprins afhenti
að gjöf sænska krystalskál fork-
unnarfagra, Einar Gerhardsen
færði Minnesota 200 ára gamla
ölkrús, H. C. Hansen gaf postulíns
vasa með mynd af hafmeyjarstytt
unni í Eyrarsundi og fylgdu hon-
um kveðjur frá dönsku konungs-
hjónunum og dönsku þjóðinni, og
Kuuskoski forsætisráðh. Finna
færði Minnesota að gjöf fallegt
handunnið gólfteppi.
Thor Thors sendiherra flutti
ávarp fyrir íslands hönd, þar
sem hann rakti gömul kynni af
Minnesota, sem hann hefur áður
heimsótt. Hann óskaði Minnesota-
ríki og íbúum þess allra heilla,
að auðna mætti á næstu 100 ár-
um fylgja þeim sem nú búa þar,
börnum þeirra og barnabörnum.
Loks færði hann ríkisstjórn
Minnesota að gjöf frá íslandi ljós
Krían verður að
slökkva helfumáv-
inum á flólfa
ÞÁ er krían komin til Reykja-
víkur. Á sunnudaginn og í gær,
mátti sjá framvarðasveitir hátt
á flugi yfir gósenlandi þessa
merkilega fugls, Tjarnarhólman-
um.
En síðdegis í gær höfðu engar
kríur sést í hólmanum, enda var
„kominn köttur í ból bjarnar“,
því hettumávurinn, sem er held-
ur hvimleiður fugl, hefur lagt
undir sig Tjarnarhólmann. Slíkt
hefur að vísu komið fyrir áður,
og krían ekki látið það á sig fá
og tekist að stökkva landræn-
ingjunum á brott. Vonandi end-
urtekur það sig nú, því enginn
myndi vilja skipta á hettumávum
og kríunni.
Mink banað við
Laxá
ÁRNESI, 7. maí. — Eins og
skýrt hefur verið frá áður, varð
vart við mink við Laxá í Aðaldal
i vetur.
Síðan hefur árangurslaust ver-
ið reynt að veiða þetta skað-
semdardýr. í gær tókst Finnboga
Stefánssyni Geirastöðum við Mý-
vatn, að granda dýrinu í svoköll-
uðum Straumeyjum norðan við
Nes — í eyjum þessu er grýtt
land og því erfitt að fást við
minkaveiðar. Varð Finnbogi að
sprengja með dínameti oftar en
einu sinni til þess, að hrekja dýr'-
ið úr fylgsni sínu en við s'ðustu
sprengjuna tókst það og var þá
veiðihundur hans fljótur að
hremma bráðina. Dýnð sem
veiddist var hvolpafull læða. Er
þetta fyrsti minkurinn, sem veið-
ist við Laxá í Aðaldal. — Fréttar.
Hús brennur ofan
af fjölskyldu
SÍÐDEGIS í gær var slökkvilið
kallað að E-götu 6 í Blésugróf.
Var þar nær alelda lítið timbur-
hús, einlyft og ris, er brunaverðir
komu á vettvang. Brann húsið að
mestu og er ónýtt talið, þó að
það hangi uppi. Þarna bjó eig-
andi hússins Óskar Guðmunds-
son bifvélavirki. Hann bjó þarna
með fjölskyldu sinni, konu og 2
bömum 3 og 5 ára. Var innbú
hans óvátryggt og húsið mjög
lágt vátryggt. /
prentað eintak af Flateyjarbók
fagurlega innbundið.
Orville Freeman ríkisstjóri
Minnesota hélt í samkvæmi þessu
ræðu, þar sem hann rakti sögu
Minnesota og hvernig saga þess
væri fléttuð örlögum vesturfar-
anna, einkum frá Norðurlöndum.
Hann sagði að 100 ár væru ekki
langur tími á mælikvarða fornra
ríkja, eða ef borið væri saman
við þá staðreynd að fyrir meira
en 1000 árum var Alþingi ís-
lendinga stofnað. Samt kvaðst
hann vona, að gstirnir sæju, að
margt hefði áunnizt á þessum
skamma tima.
Mill ræðuhalda voru sungin lög
frá Norðurlöndum. M. a. sungu
íslendingarnir „Hvað er svo
glatt“.
Skólaslit
að Laugum
ÁRNESI, 1. maí — Héraðsskól-
anum að Laugum var slitið í gær
og nemendum afhent- próf-
skírteini sín. Gagnfræðadeild
starfar þó enn. Sýning á handa-
vinnu námsmeyja og smíðisgrip-
um pilta hafði áður farið fram,
ennfremur leikfimisýning og
söngkórar skólans höfðu sungið.
f skólanum stunduðu alls 122
nemendur nám í vetur. 26 í gagn-
fræðadeild, 43 í eldri deild, 41 í
yngri deild og 12 í smíðadeild.
Fæðiskostnaður pilta var kr. 22,30
og stúlkna kr. 17,85. Nemendur
þyngdust að meðaltali rúm 4 kg
yfir skólatímann. Heilsufar var
gott í skólanum í vetur.
Hæstu einkunn í eldri deild
hlaut Álfur Ketilsson, Ytra-Fjalli
í Aðaldal 8,97 og í yngri deild
Jón Þór Þóroddsson frá Syðri-
Bakka, Kelduhverfi, 8,39.
Að kvöldi 29. apríl var samsæti
fyrir nemendur, kennara og
starfsfólk í hátíðasal skólans. Þar
ávörpuðu kennarar nemendur.
Við afhendingu prófskírteina
kvaddi skólastjórinn, Sigurður
Kristjánsson, nemendur með
ræðu. Notaði hann sem ályktun-
arorð: Vertu trúr yfir litlu, yfir
mikið mun ég setja þig.
Landspróf og próf gagnfræða-
deildar hefjast á Laugum 13. maí.
Nú þegar hafa stórum fleiri
umsóknir um skólavist borizt fyr-
ir næsta vetur en hægt er að
fullnægja. —Fréttaritari.
AKUREYRI, 12. maí. — f gær
kvaddi stjórn Skógræktarfélags
Eyjafjarðar blaðamenn á sinn
fund og skýrði frá starfi félags-
ins á undanförnum árum og eins
frá fyrirhugaðri gróðursetningu
á þessu vori. Félagið hefur nú
um 80.000 plöntur, er það hyggst
gróðursetja, og er áætlað að
Skógræktarfélag Akureyrar fái
af þessu 30.000 plöntur, álika mik
ið fari í reiti Skógræktarfélags
Eyjafjarðar, en afgangur veiði
gróðursettur á vegum ýmissa
deilda félagsins í sýslunni. Að
þessu tilefni var minnzt 28 ára
afmælis Skóræktarfélags Eyja-
fjarðar, en það var stofnað 11.
maí 1930. Gróðrarreitur félags-
ins, sem nefndur hefur verið
Vanareitur, er nú 20 ára gamall.
í fyrrasumar voru gerðar ýmsar
mælingar á trjám þar í reitnum.
Hæst er birkið, enda gróðursett
fyrst. Er það rúmlega fimrn
metrar á hæð. Einnig voru mæld-
ar 100 lerkiplöntur gróðursettar
1951 og reyndist meðalhæð
þeirra 1,81 m. Af þeim voru 8
plöntur á þriðja meter á hæð.
Á BÓKAUPPBOÐI Sigurðar
Benediktssonar í Sjálfstæðishús-
inu á laugardaginn, var gaman-
blaðið Láki selt á 1.500 kr. Af
Láka komu alls út 2 lítil tölublöð
árið 1919. Ábyrgðarmaðurinn var
Pétur Jakobsson, hinn kunni fast
eignasali, en haft er fyrir satt,
að tveir unglingar, Halldór Guð-
jónsson frá Laxnesi og Tómas
Guðmundsson, hafi ritað blaðið.
Af öðrum ritum, sem seld voru,
má nefna:
5 rit eftir Jón Aðils, frumútg.
í ágætu bandi (850 kr.). Fjóludal-
ur, ljóðakver eftir Guðmund
Hjaltason (Rvík 1875: 575 kr.).
Ungar vonir eftir Steinþór Sig-
urðsson (Rvík 1919, tölus. eintak:
400 kr.). Vér brosum og Verkin
tala eftir Sigurð ívarsson (Rvík
1929 og 1931: 350 kr.). Úr kaup-
staðarlífinu, pési eftir „Mána“
Messur voru
vel sóttar
EINS og kunnugt er var síðasti
sunnudagur hinn almenni bæiía-
dagur íslenzku þjóðkirkjunnar.
Að því er dómprófastur tjáði Mbl.
í gærkvöldi voru fluttar tólf
messur hér í Reykjavík þann dag
og voru þær vel sóttar.
Árssprotar á lerkinu sl. sumar
voru 38 cm. Þá var einnig gerð
mæling á blágreni og furu.
Reyndust meðalárssprotar blá-
grenisins 10 cm að lengd, en skóg
arfurunnar rúmlega 14cm. Síð -
astliðið sumar voru einnig athug
uð ýmis eldri tré, sem eru í eigu
Skógræktarfélags Eyjafjarðar,
m. a. lindifura á Grutid í Eyja-
firði. Þar voru mæld 12 tré og
var meðalhæð þeirra 6,31 m. Að
því er næst verður kcmizt var
sáð til þessara trjáa árið 1905.
Gert er ráð fyrir að plontun
á vegum félaganna hér í Evja-
firði hefjist í næstu viku. Vonast
er til að tíðarfar fari heldur batn-
andi, en það hefur að undan-
förnu verið óvenjuslæmt. Skóg-
ræktarfélag Akureyrar ráðgerir
að efna til ferða til plöntunar
þrisvar í viku, á mánudags-
þriðjudags- og fimmtudags-
kvöldum. Undanfarin ár hafa
þessar ferðir verið mjög vel sótt-
ar, og færðu forustumenn skóg-
ræktarfélaganna sérstakar þakkir
fyrir hið mikla og óeigingjarna
sjálfboðastarf, sem unnið hefur
verið. — vig.
(Rvík 1893: 260 kr.). Bernskan
eftir Sigurbjörn Sveinsson (Rvík
1907—8: 400 kr.). Niðjatal saman
tekið af Th. Krabbe (Rvík 1914:
310 kr.). Unga ísland 1.—20. árg.
600 kr. Óðinn, bundinn að mestu,
2.300 kr. Tímarit Jóns Pétursson-
ar 990 kr. Um kristnitökuna eftir
B.M. Ólsen (Rvík 1900: 200 kr.).
Lítil varningsbók eftir Jón Sig-
urðsson (Höfn 1861: 130 kr.).
Snorri Sturluson eftir Sigurð
Nordal (Rvík 1920: 460 kr.).
Kviðlingar Káins (Winnipeg 1920
með eiginhandaráritun höfund-
ar: 350 kr.). Bókaskrá Halldórs
Hermannssonar 1. og 3. bindi:
1.100 kr. Lögfræðingur Páls
Briem 700 kr. Dýravinurinn,
(Höfn og Rvík 1885—1916: 2.000
kr.). Jónsbókarútg. frá 1858: 400
kr. Icelandic Illuminated Manus
cripts, útg. af Munksgaard 1935:
2.200 kr. Víg Snorra Sturlusonar
eftir Matthías Jochumsson (Eskif
1879: 725 kr.). Eimreiðin, (bundin
að nokkru) 2.400 kr.
Skógræktarfélag
Slykkishólms 10 ára
STYKKISHÓLMI, 12. maí. —
Skógræktarfélag Stykkishólms
og nágrennis er tíu ára um þess-
ar mundir, og var tíundi aðal-
fundur þess haldinn i gær. Á ííu
árum hefur félagið gróðursett 37
þúsund plöntur og þar af 25 þús-
und plöntur í Sauraskógi, en þar
á félagið 15 hektara lands. Hitt
er gróðursett í gróðurreit félags-
ins rétt við Stykkishólm. Gert er
ráð fyrir gróðursetningu 13 til 14
þúsund plantna í ár, en fyrsta ár-
ið voru gróðursettar 400 plöntur.
Fundinn sátu Snorri Sigurðs-
son, erindreki Skógræktarfélags
íslands, og Daníel Kristjánsson,
skógarvörður að Hreðavatni. —
Stjórn félagsins skipa þeir Bjarni
Lárusson, verzlunarm., Christian
Zimsen og Guðmundur J. Bjarna-
son. — Fréttaritari.
Kjarnorka og kven-
hylli á Akranesi
AKRANESI, 12. maí. — Leikfé-
lag Akraness sýndi leikinn Kjarn
orka og kvenhylli eftir Agnar
Þórðarson í Bíóhöllinni hér,
þrisvar sinnum um helgina, á
föstudag, laugardag og sunnudag.
Leikstjóri var Þórleifur Bjarna-
son. Aðsókn hefði mátt vera
meiri. Aðalhlutverk léku Þorgils
Stefánsson, frú Bjarnfríður Leós-
dóttir, Halldór Bachmann og Þór-
leifur leikstjóri. Leikfélag Akra-
ness ætlar að sýna leikinn á
nokkrum stöðum utan bæjar. —
Aður á þessu leikári hafði félagið
leikið Frænku Charleys.
Öilng stnrfsemi skógræktor-
féloganna d Akureyri og Eyjarfirði