Morgunblaðið - 13.05.1958, Blaðsíða 16
16
MORCVWBLAÐIÐ
Þriðjudagur 13. maí 195
„Þá hlýt ég líka að hafa leyfi
til að álíta, að það hafi verið eitt-
hvað, sem þú getur ekki verið
þekktur fyrir að tala um“.
„Mín vegna máttu álíta hvað
sem þú vilt, Amy frænka. Erindi
mitt í París var algert einkamál“.
„Og þú vilt ekki segja mér
hverja þú hittir þar. Þú þarft
þess heldur ekki, því að ég veit
það frá öðrum heimildum og þú
skalt sannarlega ekki hæla þeim
vinum“.
„Nú, svo þú veizt það líka,
Amy frænka“.
Gremjuroði litaði vanga hans,
en gamla frúin brosti.
„Ég veit miklu fleira, en þú
heldur, Ron“.
„Þú ert bæði ráðrík og hégóma
gjörn, kæra frænka", sagði hann
eftir stutta þögn. — „Það er í
senn bæði styrkur þinn og veik-
leiki. Auðvitað hefi ég lengi vitað
það, að þú treystir mér ekki“.
Madame Cortez spennti langar,
magrar greiparnar og það fór
hrollur um hana. — „Þetta er
ekki rétt hjá þér, Ron. Enda þótt
þú hafir oft sagt mér ósatt «g
fært þér það í nyt á margvís-
legan hátt, þá ber ég sarnt traust
til þín“.
Hann varð undrandi, en efaðist
samt ekki um það, að hún sagði
satt.
„Ég á erfitt með að trúa þér.
Þú segist treysta mér, en samt
má ég ekki þekkja læsinguna á
skápnum. Hvað það snertir, er
farið með mig eins og hvern ann-
án samstarfsmann í verzluninni".
Hún lyfti hendinni, hálf-mót-
mælandi og hálf-biðjandi í senn.
— „Það getur verið að ég geri
rangt, Ron. Kannske er ég bara
gömul, hégómagjörn og tortrygg-
in kona. En síðan maðurinn minn
dó, hefi ég vakað alein yfir leynd
armálum fyrirtækisins, vegna við
gangs þess og velgengni. Eg hefi
á langri ævi vanið mig á það,
að treysta engum fyllilega, nema
sjálfri mér. En ef dauða minn
skyldi bera skyndilega að hönd-
um — og við því má búast á
mínum aldri — þá geturðu látið
gjaldkerann afhenda þér bréf,
þar sem ég skýri þér frá sam-
setningu læsingarinnar . . . .“
Rödd hennar skalf örlítið: „Þá
skilirðu vonandi tilfinningar mín
ar í þinn garð“.
Það varð löng þögn. Ron starði
niður á gólfið og andlit hans var
alveg svipbrigðalaust. Það var
ekki hægt að geta sér neitt til
um hugsanir hans. Að lokum
greip hann um hönd gömlu frú-
arinnar og kyssti hana.
„Þökk, Amy frænka. Eg vona
þá bara, að þess verði enn langt
að bíða, að ég læri að opna skáp-
inn þann arna“.
Þá var drepið létt á dyrnar.
Síðasti viðskiptavinur Joans
síðdegis kom ekki á tilsettum
tíma og svo reyndist hún þar að
auki mjög erfið viðureignar. Hún
veitti því athygli, að Joan vildi
IBLÐISt!
IBIJÐIB!
5 tveggja herbergja íbúðum í I. byggingarflokki,
er enn óráðstafað.
Upplýsingar eru veittar, alla virka daga kl. 1—3.
Sími 34472.
Sameignarfélagið Laugarás.
ChevroEet ’57
Höfum til sölu nýjan og ókeyrðan Chevrolet Bel Air
’57 model.
BÍLASALAN
Klapparstíg 37. — Sími 19032.
KASTMOT
verður haldið við Árbæjarstíflu, laugardaginn 17.
maí og hefst kl. 14,00.
Öllum stangaveiðimönnum er heimil þátttaka, en
hana ber að tilk. í verzl. „Veiðimanninn", fyrir
föstudag 16. maí, og eru nánari upplýsingar gefnar
á sama stað.
Kastblúbbur stangaveiðimanna í Reykjavík.
Ijúka verkinu sem fyrst og svo
hélt hún því fram að hárið hefði
ekki verið skolað nægilega vel
og krafðist þess að Joan skolaði
það aftur. í hárgreiðslustofunni
höfðu viðskiptavinirnir auðvitað
alltaf rétt fyrir sér. Klukkan var
tuttugu mínútur gengin í sex,
þegar Joan gat loks fylgt henni
til dyra.
„Þér komið of seint til madame
Cortes", sagði madame Claire á-
hyggjufull.
„Haldið þér að ég viti það
ekki?“, svaraði Joan önuglega.
Þetta hafði verið langur og erf-
iður dagur og taugar hennar voru
reyndar til hins ýtrasta.
„E?g sagði þetta ekki til þess
að móðga yður“, tautaði madame
Claire stillilega.
„Fyrirgefið þér“, sagði Joan og
brosti afsakandi. — „Það var
síðasti viðskiptavinurinn sem
eyddi tímanum svona fyrir mér
að þarflausu“.
„Já, ég veitti því líka athygli,
að það var mjög erfitt að gera
henni til hæfis“.
Joan flýtti sér að setja nauðsyn
legustu áhöldin í töskuna sína.
Svo leit hún sem snöggvast í
spegilinn. Henni þótti leiðinlegt
að hún skyldi ekki getað lagað
sig svolítið til. Það var hugs-
anlegt, að hann væri þar staddur,
enda þótt það væri ekki líklegt.
Ungur maður, eins og Ron Cortes,
var ekki líklegur til að sitja og
horfa á, þegar ömmusystir hans
væri hjá hárgreiðsludömunni.
Um þetta leyti dagsins var hann
sennilega inni í reyksalnum eða
við drykkjarborð vínstúkunnar.
Hún tók sér samt tíma til að
greiða hárið og nota púður og vara
lit. Hann hafði sent henni blóm
— eða réttar sagt: hann hafði
sént Lisette blóm. Joan hafði fyrr
óskað þess, að hún væri Lisette,
en í þetta skiptið óskaði hún þess
heitar en nokkru sinni áður.
Hún hljóp upp tröppurnar, eft-
ir ganginum og stanzaði örlítið
móð fyrir framan dyrnar á íbúð
madame Cortes. Dyrnar voru
ekki alveg lokaðar og hún heyrðí
rödd gömlu frúarinnar mjög
greinilega:
„. . . . ef dauða minn skyldi
bera skyndilega að höndum —
og við því má búast á mínum
aldri — þá geturðu látið gjald-
kerann afhenda þér bréf, þar sem
ég skýri þér frá samsetningu læs
ingarinnar. Þá skilurðu vonandi'
tilfinningar mínar í þinn garð . .“
Joan hafði ósjálfrátt orðið á-
heyrandi og nú gat hún ekki gert
vart við sig undir eins.
Meðan hún hikaði, heyrði hún
rödd Rons, sem talaði 1 allt öðr-
um tón, en þegar hann talaði
við hana, kvöldið áður:
„Þökk Amy frænka. Eg vöna
þá bara að þess verði enn langt
að bíða, að ég læri að opna skáp-
inn þann ama“.
Joan flýtti sér að banka á dyrn-
ar, því að hún skammaðist sín
fyrir að standa og hlusta á það,
sem alls ekki var ætlað hennar
eyrum að heyra.
Ron opnaði dyrnar.
„Velkomin, mademoiselle Lis-
ette. Frænka mín átti von á yður
fyrr“.
„Eg biðst afsökunar á því, að
ég skuli ekki koma á réttum tíma.
Eg losnaði ekki fyrr úr stofunni“.
„Verið alveg ókvíðnar", sagði
hann brosandi. — „Eg skal tala
máli yðar við hina reiðu, gömlu
frú“.
Það var eitthvað í máli hans og
framkomu, sem kom Joan úr jafn
vægi. Hún hafði alltaf talið sér
trú um að hún gæti komið kulda-
lega og óþvingað fram, þegar hún
vildi, við hvern sem í hlut ætti.
Það var hún nú ekki alveg viss
um lengur. Ron Cortes var öðru
vísi en allir aðrir.
Ron sneri sér að gömlu kon-
unni og sagði léttum rómi:
„Þú verður að fyrirgefa ma-
demoiselle Lisette, þó að hún
komi heldur seint, Amy frænka“.
„Það er alltaf leiðinlegt, þegar
fólk kemur ekki á tilsettum
tíma“, svaraði madame Cortes. —
„Eg þykist vita, að það sé ekki
sök Lisette einnar að henni hef-
ur seinkað. Nú skulum við koma
inn í svefnherbergið, mademois-
elle. Seinna fáið þér nægan tíma
til að tala við frænda minn . . .“
Svefnherbergið var stórt, tví-
breiður klefi — vel en ópersónu-
lega búinn húsgögnum, eins og
venjulegt er á skipum. Madame
Cortes settist fyrir framan speg-
ilinn og Joan byrjaði þegar á
hársnyrtingunni.
BIFVELAVIRKJAR
eða menn vanir bifreiðaviðgerðum, óskast nú þegar.
Upplýsingar gefur EgiII Hjálmarssonar í síma 34616,
milli kl. 7—9 e.h. næstu daga.
TIL SOLIi
Minni gerð af De Soto 1955, einkabifreið, lítið keyrð,
í mjög góðu standi. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir
15. maí merkt: „De Soto — 7969“.
a
r
L
ú
ó
„Þetta er fallegur hringur,
Bárður. Sagðirðu ekkí að bróðir
þinn hefði átt hann?“ — „J-ú-ú,
hann átti hann“. — „Það stend-
ur hérna inni í honum Stígur
Vagnsson. Það er nafnið, sem
Markús kallaði þig“. Þorparan-
um brá sýnilega við að heyra
þetta.
„Það er víst ekki hægt að gera
mikið við hárið á mér?“, sagði
madame Cortes í spurnartón.
„Eg skal gera mitt bezta,
madame — en ef ég á að segja
alveg eins og er, þá held ég að
þér þyrftuð að fá yður nýtt perm
anet“.
„Svo virðist sem hin unga
dama kunni að selja vörur sín-
ar“, sagði Ron hlæjandi og studdi
sig við dyrastafinn.
„Þetta er alveg satt sem hún
segir“, svaraði madame Cortes.
— ,AJidré í París sagði nákvæm-
lega það sama, en þá hafði ég
hvorki tíma til þess né annars.
Eg hugsaði sem svo að ég gæti
fengið permanent í hárið á leið-
inni. Það verður vonandi hægt,
áður en við komum til New
York?“. Hún mætti augnatilliti
Joans í speglinum. — „Getum
við ákveðið það, mademoisella
Lisette? Það þarf að vera
snemma dags, því að ég vil að því
sé lokið, þegar ég byrja á mín-
um störfum".
„Við gætum sagt einhvern
morguninn klukkan níu. En það
væri kannske of snemma dags?“,
sagði Joan.
„Klukkan níu? Nei, þá er nú
komið nálægt hádegi“, sagði
madame Cortes hlæjandi. — „Eg
kem klukkan átta. Og ég vil ekki
sjá neitt kalt permenent. Eg get
ekki fellt mig við þessar nýju
aðferðir. Það á að vera gott, gam-
aldags permanent“.
„Þú skalt ekki halda að ég
muni halda í höndina á þér þeg-
ar þ>ú stingur höfðinu inn í þessa
viðbjóðsiegu vél“, sagði Ron
hlæjandi. — „En þegar því er
lokið skal ég koma með kampa-
vínsflösku. Væri annars ekki
þjóðráð að koma með eina
kampavínsflösku núna- Við gæt-
um skálað fyrir þinni endur-
vöktu fegurð, Amy frænka. Eg
get alltaf drukkið kampavín og
ég held að mademoiselle þarfn-
ist hressingar, hún er svo þreytu
leg“.
„Þreytt er ég nú ekki“, full-
yrti Joan — „en það getur vel
verið að ég sé dálítið taugaóstyrk.
Þetta er fyrsti starfsdagur minn
á skipi“.
Joan þagnaði skelfd yfir glappa
skotinu, sem hún hafði gert og
madame Cortes starði á hana með
undarlegu augnaráði. Hún hnykl-
aði brýnnar.
„Hvers vegna segið þér það?
Eg hitti yður þó á Fleurie i
fyrra“.
SUUtvarpiö
Þriðjudagur 13. maí.
Fastir liðir eins og venjulega.
19.00 Þingfréttir. 19.30 Tón-
■leikar: Óperettulög. 20,30 Daglegt
mál (Árni Böðvarsson cand.
mag.), 20.35 Erindi: Bretar og
stórveldapólitíkin í upphafi 19.
aldar; II. (Bergsteinn Jónsson
cand. mag.) -r.00 Tónleikar. —
21,30 títvarpssagan: „Sóion Is-
landus“ eftir Uavið Stefánsson
frá Fagraskógi. 22,10 Iþi-óttir
(Sig. Sigurðsson). 22,30 „Þriðju-
dagsþátturinn". —• 23.25 Dag-
skrárlok
Miðvikudagur 14. maí
Fastir liðir eins og venjulega.
— 12.50—14.00 „Við vinnuna“:
Tónleikar af plötum. — 19.00
Þingfréttir. — 19.30 Tónleikar:
Óperulög (plötur). — 20.30 Lest-
ur fornrita: Hænsa-Þóris saga; I
(Guðni Jónsson prófessor). —•
20.55 Tónleikar: Stefan Askenase
leikur noktúrnur eftir Chopin
(plötur). 21.10 Erindi: Draumur
og veruleiki (Bergsveinn Skúla-
son). 21.35 Tónleikar (pl.). —•
21.45 Upplestur. Hugrún les frum
ort kvæði. — 22.10 Erindi: Hirð-
ing æðarvarpa og æðardúns (Ól-
afur Sigurðsson bóndi á Hellu-
landi). — 22.35 íslenzku dægur-
lögin: Maíþáttur S.K.T. — Hljóm
sveit Magnúsar Ingimarssonar
leikur. Söngkonur: Adda Örnólfs-
og Ðidda Jóns. Kynnir: Baldur
Hólmgeirsson. — 23.15 Dagskrár-
lok.