Morgunblaðið - 01.06.1958, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 01.06.1958, Qupperneq 9
Sunnudsgur 1. júní 1958 MORCr\RT 4 ÐIÐ 9 Þjóðleikhúsið: ,,Kysstu mig Kata u Leikstjóri: Sven Age Larsen Hljómsveitarstjóri: Saul Schechtman Gamanleikur í 2 þáttum. — Tónlist og söngtextar eftir Cole Porter. — Texti eítir Samuel og Bella Spewaclc. — ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ frumsýndi sl. fimmtudagskvöld gamansöngleik inn „Kysstu mig Kata“. Hefur hið víðfræga ameríska tónskáld, Cole Porter, samið tónlistina og söngtextana í leiknum en að öðru leyti er textinn eftir þau hjónin Samuel og Bella Spewack. Efni leiksins má svo að nokkru rekja alla leið til leikrits Shakespeare's „The Taming of the Shrew“. Það standa því vissulega margir góðir höfundar að leiknum, enda er hann bráðskemmtilegur, fullur gáska og góðri kimni og prýddur fögrum dönsum og skemmtileg um sviðsbúnaði og leiktjöldum. Hefur söngleikur þessi verið sýndur víða um heim og alls staðar hlotið mikið lof. Leikurinn gerist í leikhúsi, þar sem verið er að sýna leikrit Shakespeare's „The Taming of the Shrew“ en aðalhlutverkin i leikritinu eru í höndum Lilli Vanessi, sem leikur Bianca og Fred Graham’s er leikur Petru- chio. En sá hængur er á að þessir ágætu leikarar voru eitt sirm hjón, en höfðu skilið fyrir einu ári og eiga greinilega ýmsar sax- ir óuppgerðar sín á milli. Er leikriti Shakespeare’s haganlega fléttað inn í átökin milli þessara fyrrverandi hjóna, sem bæði eru skapmikil, en þykir vænt hvoru um annað þrátt fyrir allt. Atök- in á milli þeirra eru því ærið hörð en jafnframt kostulega skemmtileg og lýkur svo, að eins og Petruchio í leikriti Shakes peare’s tekst að temja „kven- skassið", þá tekst einnig leikar- anum Fred Graham að vinna aft ur konu sína. Er ekki ástæða til að rekja efni leiksins nánar enda ekki rúm til þess hér. — Hins vegar skal það tekið fram strax, að leiksýning þessi er Þjóð leikhúsinu og öllum, sem að henni hafa unnið til mikils sóma. Hefur og ekkert verið til sparað að gera sýninguna sem glæsileg- asta á hvívetna. Hefur leikstjórinn, Sven Age Larsen, sett leikinn á svið af sinni öruggu smekkvísi og kunnáttu og auk þess hefur hann ásamt danska ballettdans- aranum Svend Burch, samið dansana, sem eru léttir og fagrir. — Þá hefur ameriski hljómsveit ■ arstjórinn Saul Schechtmann æft hljómsveitina og stjórnar henni en söngstjóri er Magnús Bl. Jóhannsson. — Var það vissulega mikill fengur að fá hingað hinn ameríska hljómsveitarstjóra, sem greinilega er mjög handgenginn tónlist Cole Porters. Þá var það eigi síður heppileg ráðstöfun að fá hingað sænsku óperu- og óper- ettusöngkonuna Ulla Sallert til þess að fara með annað aðalhlut- verk leiksins, Lilli Vanassi alias Bianca. Heillaði hún alla með frábærum söng sínum og bráð skemmtilegum leik og því öruggi í allri framkomu að ánægja var á að líta. Söngkonan þekkir þenn an leik og þetta hlutverk til hlít- ar ,enda hefur hún leikið þaö víða um lönd við mikla hrifn- ingu áhorfenda. Annað aðalhlutverkið, Fred Graham, alias Petruchio, leikur og syngur Jón Sigurbjörnsson með ágætum. Jón er mikil- hæfur leikari og vex með réttui* maður á réttum stað í þessu hlutverki. Þá voru þeir Ævar Kvaran og Bessi Bjarnason hreint afbragð 1 hlutverkum bófanna og Rúrik Haraldsson var skemmtilegur í hlutverki Harrison Howells. Af öðrum leikendum — en þetr eru margir — er ástæða til að nefna Sigríði Þorvaldsdóttur, er leikur Lois Lane og Bianca. — Sigríður er ung og óreynd leik- kona, útskrifuð úr leikskóla Þjóð leikhússins alveg nýlega, og þvi ekki tiltökumál að hún hefur ekki hlutverkið fyllilega á valdi sínu. Þó er leikur hennar furðu- góður, en söngur hennar síðri. Eins og áður er sagt er mikið um fagran dans í þessum leik Koma þar fram nemendur Lisu og Eriks Bidsteds og sýna nú, sem áður, hversu glæsilegum árangri þau hjónin hafa náð með kennslu sinni. Sólódansarar eru Svend Bunch og Bryndís Schram Er Bunch góður kunnáttumaður í list sinni og Bryndís heillar alla með sínum mjúku hreyfingum og yndisþokka. Söngfólk úr Þjóðleikhúskórn- um syngur í leiknum með mestu prýði, enda eru þar margar ág- gætar raddir. Lothar Grund hefur teiknað leiktjöld og búninga og leyst hverju nýju hlutverki, en hann hvort tveggja ágætlega af hendi. Dansatriði. er líka góður söngmaður, með þróttmikla og karlmannlega rödd sem hann beitir af mikilli smekkvísi. Hann er vissulega Lucentio (Arui Jónsson) og Bianca (Sigríður Þorvaldsdóttir) Egill Bjarnason og Júlíus Danielsson hafa þýtt leikinn. Leikhúsgestir tóku leiknum með miklum fögnuði og hylltu að leikslokum með mörgum fram- köllunum og dynjandi lófataki alla þá sem unnið hafa að þvi að gera þessa leiksýningu svo glæsilega, sem raun ber vitni, einkum hinn sænska gest, U±la Sallert og Jón Sigurbjörnsson Jg leikstjórann og hljómsveitar- stjórann. Sigurffur Grímsson. Norræn bygginga- máiaráðstefna í Oslo Dagana 15.—17. september n. heldur Norrænn byggingardagi (Nordisk byggedag), ráðstefr sína í Osló og er það 7. skipl Sem ráðstefna N. B. D. er haldi en hefur verið á fjögurra ái fresti í höfuðborgum Norðu landa til skiptis. Að þessu sim verða einkum tekin fyrir tvö vei efni byggingariðnaðarins, sem n eru mjög ofarlega á baugi, þ. bygging smáíbúðarhúsa og hei; arskipulag byggingarfran kvæmda (totalprojektering). — sambandi við ráðstefnuna verði opnuð byggingariðnaðarsýninj hin stærsta sem haldin hefur ve: ið á Norðurlöndunum til þessi með helztu tækninýjungum og fj breyttum byggingarefnum. Þeim, sem áhuga hafa, er hei; il þátttaka í ráðstefnu þessan Allar upplýsingar eru veittar hj ritara íslandsdeildar samtal anna, Gunnlaugi Pálssyni, ark tekt, Borgartúni 7. Þátttöku b« að til kynna fyrir 15. júní n.k. Lilli Vanassi (Ulla Sallert) og Fred Graham (Jón Sigurbjörnsson) Hilmar Jónsson: Keflvákingar sýna glæsilegt fordæmi FÁIR bæir á landinu munu á síð ari árum hafa vaxið með eins skjótum hætti og Keflavík. Slík bæjarfélög eiga ætíð nokkuð á hættu að verða upplausnaröflum og öfgamönnum að bráð. Nægir að benda á Kópavog og Neskaup- stað í því sambandi. Þar hafa fá- kænir lýðskrumarar náð verulegri fótfestu. Keflvíkingar hins vegar hafa haldið tryggð við gamla og góða siðu. Trúboðar Stalins sál- uga hafa ætíð átt hér erfitt upp- dráttar. 1 siðustu bæjarstjórnar- kosningum biðu vinstri flokkarn- ir í Keflavík verulegt afhroð, ekki sökum þess að þeir hefðu dug- litla foringja heldur munu Kefl- víkingar ekki hafa talið ástæðu til að votta þeim flokkum trúnað, sem eiga aðild að mestu aftur- Þakkir lil Áithaga- félags Akraness ATTHAGAFÉLAG Akraness í Reykjavik hélt konunglega skemmtun á Akranesi 17. þ. m og auglýsti að ágóðinn af skemmt uninni ætti að renna til minnis- merkis drukknaðra sjómanna á Akranesi. Nú hefur félagið sent til minnismerkisins kr. 5.185,00. sem var ágóði af skemmtuninni. Um leið og ég færi félaginu hjart ans þakkir fyrir peningana, tek ég mér vald til að færa félaginu þakkir fyrir rækt þess við Akra- nes, og þó sérstaklega fyrir hug þann, s'em á bak við býr þegar þeir, sem fluttir ei’u frá Akranesi, fara að starfa að framgangi þess. að þeim Akurnesingum, sem fórn uðu öllu fyrir starf sitt, fyrir byggðarlag sitt, fyrir ástvini sína, verði reist minnismerki. þeim til heiðurs og í þakklætis- skyni. Við, sem að því vinnum hér heima á Akranesi, að drukkn uðum sjómönnum verði reist minnismerki, tökum fagnandi i framrétta hönd. Við finnum að i framtaki ykkar liggur sterk hvót til meiri dáða og við þökkuin ykkur einnig fyrir það. F. h. framkvæmdanefndar Akranesi, 28. maí 1958 Svbj. Oddsson. halds- og svikastjórn, er nokknt sinni hefur setið að völdum á 1*- landi. Foringi Alþýðuflokksins hér á að baki nijög merka sögu i þágu verkalýðssamtakanna á Suð urnesjum og bæjarfulltrúi Fram- sóknar er annálaður fyrir dugnað. Þrátt fyrir sína verðleika urðu þessir heiðursmenn að gjalda svika flokksbræðra sinna í ríkis- stjórn. Ber það vott um dóm- greind áuðurnesjamanna að sýna á þennan hátt fákunnandi lýð- skrumurum lítilsvirðingu. Þrátt fyrir þessa stefnufestu eru Kefl- víkingar eftirbátar annarra bæj- arfélaga á sumum sviðum. Ætla ég aðeins að minna á eitt atriði máli mínu til sónnunar: Bókasafn Keflavíkurbæjar var eitthvert minnsta og verst hirta bókasafn á landinu. Geta ber þess áður <tn lengra er haldið að nokkrir ung- mennafélagar unnu mikið og ó- eigingjarnt starf við safnið mot- an það var í bernsku, enda mus Ungmennafélagið hafa atyrkt starfsemi þess fyrstu árin. Þegmr bæjar- og héraðsbókasafn var míí á stofn á þessu ári fyrir GwlÞ bringusýslu með aðsetri í Kefht- vík, lá í hlutarina eðli að torrióm- menn þess yrðu að súpa aeyðft af þeirri óstjórn, er ríkt bafltt áður í málefnum lestrarfélagsina. Bókakostur héi’aðssafnsins ©r þvi. tilfinnanlega lítill. Er almenn- ingur sýndi mikinn áhuga fyrir stofnuninni var undirrituðum ljóst, að gi'ípa varð til einhverra fjóröflunarráða. Stakk ég upp á að fyrirtæki og einstaklingar leggðu safninu lið með frjálsum framlögum. Sú liðsbón virðist ætla að bera ríkulegan árangur, því nú þegar hafa fjórir aðiiar: Kaupfélg Suðurnesja, Olíusamlag Keflavíkur, Sparisjóðurinn og Jó- hann Eilerup lyfsali gefið safn- inu allháar fjáiupphæðir. Fleiri munu sigla í íjölfar þeirra. Yfir- leitt hefur undirritaður mætt alls staðar velvild og skilningi í sam- bandi við þetta mál, því mér er ekki kunnugt um að héraðsbóka- söfn hafi verið styrkt á þennan hátt. Hafi þeir þökk fyrir. Hil iiiar Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.