Morgunblaðið - 01.06.1958, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.06.1958, Blaðsíða 10
10 MORCVNTiT 4 ÐIÐ Sunnudagur 1. júní 1958 bar það við morgun nokkurn, að aðstoðarmaður hans kom gleið- brosandi til móts við Hitchcok, er hann kom til vinnu sinnar: — Ég hefi komizt að raun um, að ein af ijgg" ungu aðstoðar- stúlkunum hef. ir leikhæfi- leika, sagði að- stoðarmaður. inn. Hitchcok §t§L?\Si ræskti sig og 'UWíáv, varð þung- brýnn: — Er þá aldrei hægt að taka nokkra kvikmynd, án þess að eitthvað verði til trafala í miðri myndatökunni? Georges Bidault var að spjalla við starfsbróður sinn um gáfna- prófið, sem nýliðar í franska hernum verða að gangast undir: — Hugsa sér, að þrír af hundr- aði héldu, að konungur réði ríkj- um í Frakklandi, sagði þingmað- urinn. — Ja-há, sagði Bidault. En hvað má þá segja um þá 97 af hundraði, sem álitu, að Frakk- landi væri stjórnað af stjórn? Er kvikmyndaframleiðandinn Alfred Hitchcok var að nnna að töku nýjustu kvikmyndar sinnar, Þessi andlit á myndinni koma ekki ókunnuglega fyrir sjónir, en í fljótu bragði getum við þó ekki minnzt þess, að við höfum oft séð myndir af þeim í blöðun- um. Hins vegar höfum við oft séð myndir af skyldmennum þeirra. Stúlkan er María Scicolone, systir Sophiu Loren, og með henni á myndinni er Romano, sonur einræðisherrans Mussolini. Hér eru þau stödd á jazztónleik- um í Róm. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn, sem þau hittast. Síð- ur en svo. Þau hafa lengi verið góðir vinir, enda eiga þau sam- eiginlegt áhugamál, tónlistina | Hún er söngkona, en hann er | píanóleikari. Og auðvitað velta ! menn því fyrir sér, hvort þau ... Frank Sinatra vakti fyrstur at- hygli á Maríu Scicolone sem söng konu. ' HÉR á dögunum skömmu éftir að stjórn Felix Gaillards féll í Frakklandi, voru þeir Konrad Adenauer og Ludwig Erhard að ræða um það, hver myndi nú setjast í forsætisráðherrastólinn í Frakkandi — Segðu mér mér nú hrein-, skilnislega, sagði Aden- j auer, hver held ur þú, að taki ] við af Gaill- ard? — Skyldi það | ekki verða Ró- bert Schuman? sagði Erhard. — Róbert Schuman! En hann er alltof gamall? sagði forsætis- ráðherrann. Schuman er 71 árs, en Aden- auer 82. í fréttunum muni ekki að lokum rugla saman reitum sínum og anga í heilagt hjónaband. Þess má geta, að Vélstjórar - Utgerdarmenn ESTOR D-3 ESTOR D-3 lyrirbyqgir festingu þéttihringa i kempr í veg fyrir sótmyndun í véfinni og þess vegna verður mínna slit á fóðr- ingum og bullum. i inniheldur sýrueyðandi efni, sem varnar tæringu á slitflötum vélarínnar. i afreksolian stóreykur endingu vélanna og skapar marg aukið öryggí. ESTOR 11-3 (gSV JTUimð ESTOR ESTOR ESTOR ESTOR 4 4 OLI UFELAQlfi M F. Leikonan Paulette Goddard og rithöfundurinn Eric Maria Rem- arque giftu sig fyrir skömmu. Þau eru ekki kornung, en hafa þó strengt þess heit að koma í veg fyrir, að rómantíkin kafni i þrasi hversdagslífsins. Þau hafa því leigt sér hvort sína íbúð ^ — að vísu í sömu bygging- unni — og heimsækja hvort annað öðru hverju. Er þau halda vinum sínum veizlur, eru M þau gestgjafar til skiptis. Framtíðin mun leiða í ljós, hvort þetta er rétta leiðin til hjónabandssælunnar. Sagt er, að Pierre Pflimlin hafi látið mikið á sjá síðustu dagana, áður en stjórn hans sagði af sér. Hann dregur held- ur enga dul á, að hann hefir orðið að beita ýmsum ráðum til að þola allt það, sem á hann var lagt. — Hvernig getið þér unnið 24 klukkustundir á sólarhring? spurði þingmaður nokkur Pflim- lin, — Tja, sagði Pflimlin og brosti dauflega Það er sprautum og pillum að þakka. — Já, einmitt já, sagði þing- þingmaðurinn. Sprautum og pillum. Ef til vill er það einmitt þetta, sem franska lýðveldið hefir þörf fyrir! Gina Lollobrigida neytti at- kvæðisréttar síns eins og aðrir ítalir sl. sunnudag. Hér sést hún afhenda kjörseðil sinn á kjörstað. Hún greiddi atkvæði sitt í þorp- inu Sabaudia, skammt suður af Róm. Einar Ásniundsson hæstaréttarlögmaður. Hafsteinn Sigurðsson hcraðsdónislöginaður Sími 15407, 19P1Ó. Skritstofa Hafnarstræti 5.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.