Morgunblaðið - 22.06.1958, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.06.1958, Blaðsíða 11
Sunnudagur 22. júní 1958 MORCVNBL AÐIÐ 11 Ekki þarf annað en að nefna þessi mál til að allir skilji húð- strýkingu þá er Hermann Jónas- son veitti sjálfum sér og fylgis- mönnum sínum með þeim orð- um, sem Tíminn taldi ástæðu til að svartletra eftir honum. Spor í hvaða átt ? Ungir stúdentar á leið til mótmælafundarins á Lækjartorgi. REYKJAVÍKURBRÉF Laugard. 21. júní 17. júní Veðrið gat ekki verið fegurra en það var hér í bæ 17. júní. Þátt- taka almennings I hátíðahöldun- um hefur og aldrei verið meiri. Það var tilkomumikil sjón að sjá manngrúann á Arnarhóli, bæði síðari hluta dags, þegar börnin stóðu þar í litskrúði, og einnig að kvöldinu, þegar hinir fullorðnu settu sinn svip á. staðinn. — Ánægjulegt var að heyra, að útlendir ferða- langar, sem víða hafa far- ið, höfðu orð á, hversu allt færi fram með mikilli prýði. Þeir dáðust sérstaklega að því, að ölvunar yrði svo til ekki vart. Sögðu þeir, að í heimalöndum sínum bæri því miður mun meira á drukknum mönnum á svipuðum tyllidögum. Hins veg- ar þótti sumum þeirra, að um kvöldið hefðu of margir verið áhorfendur í stað þess að taka þátt í dansinum á götunni. Varp- aði einhver því fram, hvort það e. t. v. kæmi af því, að sú skemmtun hæfist of seint og yngsta kynslóðin tæki þess vegna minni þátt í henni en ella. Ófagur svipur Hér er getið um þennan dóm erlendra manna um hátíðahöldin 17. júní bæði vegna þess, að glöggt er gests augað og af því, að ýmsir, er hingað koma, fá aðra mynd af bæjarlífinu en þessa, T. d. var nýlega í erlendu blaði birt grein um ísland af tilefni landhelgisdeilunnar. — Greinin var í heild vinsamleg, en hófst á lýsingu á viðureign greinarhöfundar við tvo drukkna menn, er slógust upp á hann, þegar hann var að skoða mynda- styttu hér í bænum. Menn í því líku ástandi sjást víða um lönd, en staðreynd er, að óvíða eða hvergi vaða þeir hversdagslega jafnt uppi á almannafæri sem hér. Þetta er blettur á bæjar- lífinu, sem verður að mást af. Almenningur og lögregla verða að taka saman höndum um að koma endurbótum á. En svo að aftur sé vikið að þjóðhátíðinni, skal því skotið fram, að hvimleitt er að heyra söngvara syngja hástöfum fyrir dansi á erlendri tungu einmitt þenna dag. íslenzku dansljóðin eru sjálfsagt misjafn kveðskap- ur og flest harla rýr en þó mundu þau láta betur í eyrum á þess- um degi en erlendur leirburður. Cistivináttii n Á milli góðra vina hefur löng- um tíðkazt að þeir heimsæktu hvor annan, þegar færi gefst. Slíkar heimsóknir hafa nú um nokkurt árabil tíðkazt á milii Norðmanna og íslendinga. All- stórir hópar hafa farið héðan til Noregs að vori til og dvalizt þar 2 eða 3 vikur við skógrækt, og norskir skógræktarmenn komið hingað í staðinn. Að þessu sinni fóru Norðmennirnir héðan að morgni hins 17. júní og Islend- ingarnir komu heim að kvöldi. Sumir Norðmannanna, sem hér dvöldu, eru forustumenn í skóg- rækt í heimalandi sínu. Mikils- vert var þess vegna að heyra dóm þeirra um möguleika til skógræktar hér. Þeir töldu, að hún væri að vísu örðugleikum háð en þó ekki meiri en víðs vegar í Noregi, þar sem hún væri iðkuð. Trjávöxtur suns staðar á landi hér væri og slík ur, að með afbrigðum mundi þykja hvarvetna í Noregi. Eng- inn efi er á, að skógrækt er eitt af mestu framtíðarmálum Is- lands. Hún mundi hafa meiri breytingu í för með sér á land- kostum en menn í fljótu bragði gera sér grein fyrir. í þeim efn- um hefur með réttu oft verið vitnað til heiðanna á Jótlandi. Þar hefur á hundrað árum orðið svo mikil breyting, að enginn skyldi trúa að óséðu. Til sann- indamerkis eru þar enn geymd nokkur landflæmi, svo að menn geti borið saman það, sem áð- ur var og nú er orðið. Þar má vissulega sjá undursamleg um- skipti. Með nægri elju og þol- gæði mun sams konar breyting verða á okkar góðu fósturjörð. Blaðamanna- fundurinn Þeim er utan við standa hættir oft til að gera lítið úr gildi slíkra funda sem Norræna biaðamanna- fundarins, er hér var háður und- anfarna daga. Satt er það, að ályktanir og umræður á slíkum_ fundum valda sjaldan tímamót- um, þó að sitthvað komi þar fram, sem gagnlegt kann að vera. Fyrir litla þjóð sem íslend- inga hefur það þó mikla þýð- ingu, að slíkir fundir séu öðru hvoru haldnir hér. Islendingar þurfa á skilningi og samúð að halda ekki síður en aðrar þjóðir. Það lýsir sér t. d. á hagnýtan hátt nú í landhelgismálinu. — Hingaðkoma áhrifamanna hefur þess vegna mikið gagn í för með sér, því að yfirleitt skilja þeir málefni okkar mun betur eftir en áður. íslenzkt þjóðlíf er á ýms an hátt sérstætt. Erlendir menn gera sér trauðlega grein fyrir eðli þess nema þeir hafi litið landið og þjóðina eigin augum. Reglan er og sú, að þeir eru vinveittari okkur eftir að hafa komið hing- að, þó að sjálfsagt séu þar á undantekningar eins og gengur og gerist. Verkföll í aðsigi Enn er svo að sjá sem alvar- leg verkföll séu í aðsigi. Sér- staka athygli vekur, að fyrsta félagið, eða með þeim fyrstu, sem samþykkti að veita stjórn sinni heimild til boðunar verk- falls var Járnsmiðafélagið. Eins og kunnugt er fara kommúnist- ar þar með stjórn. Að þessu sinni héldu þeir völdunum þar með aðstoð Framsóknarmanna hér í bæ. 1 fyrra þreyttust Tíminn og Þjóðviljinn aldrei á ósannindun- um um að Sjálfstæðismenn beittu sér fyrir þeim þráiátu verkföllum, sem þá urðu. Nú er ekki um að villast hverjir forustuna hafa. Þar er í farar- broddi félag, sem kommúnistar og Framsóknarmenn lögðu ofur- kapp á að tryggja sér völdin í. Skyldi Tíminn hafa manndóm til að viðurkenna þátt sinna flokksmanna í því, sem nú ger- ist í þessum efnum? Á föstudaginn skorar Tíminn á aðila að láta verkföfl niður falla á meðan landhelgisdeilan stendur. Sama dag segir Þjóðvilj- inn frá þeirri ákvörðun Dags- brúnar að fá samningstíma stytt- an úr 6 mánuðum í einn. Leynir sér ekki, að kommúnistar v-lja með þessu móti hafa vöndinn á lofti yfir ríkisstjórninni. Ætlunin er að hóta verkfalli, verði ekki að þeirra vilja farið. Framsókn- armenn bera ábyrgð á þessum aðförum ekki síður en kommún- istar. En skilningur almennings á þeim voða sem lýðræðislegum stjórnarháttum er búinn með þessu fer óðum vaxandi. Ekki vantar frekjuna Hvað sem um Framsóknar- menn verður að öðrr leyti sagt, þá vantar þá a. m. k. ekki frekjuna. Hermann Jónasson hafði sig til á sjálfan þjóðhátíð- ardaginn að koma fram á svalir Alþingishússins og segja þessi orð: „Hér á landi hefur það alltaf verið talið skylt hverjum góð- um dreng að standa við orð sin.'1 Tíminn skilur, að þessi orð úr munni forsætisráðherrans núver- andi muni vekja sérstaka athygli og prentar þau með stórum, svörtum stöfum. Sama daginn og það var gert skrifuðu stjórnar- blöðin í forustugreinum um þessi málefni: Tíminn skrifaði um hinn „mik- ilvæga ávinning“ í efnahagsmál- unum Þjóðviljinn um baráttu SósíalistafloHksins gegn „her- stöðvum í landi voru“ og Al- þýðublaðið um það að „Islend- ingar verða að taka höndum sam- an í landhelgismálinu og sýna heiminum með einingu sinni að þeim sé alvara“ Tíminn vitnar í Eystein Jóns- son og hagfræðingana Jónas Har- alz og Jóhannes Nordal um, að bjargráðin sælu hafi verið „merkilegt spor“ „stigið í rétta átt“. Til þess að dæma um, hvort svo sé í raun og veru þarf að átta sig á hvert stefnt hafi verið með þessum „bjargráðum“ og hvert framhaldið eigi að vera. Hvað sem um hagfræðingana tvo er, þá hefur Framsóknarflokk- urinn aldrei fengizt til þess að segja hvert hann ætlar sér í þess- um efnum. Menn muna, að fyrir tveimur árum var af flokksins hálfu lof- að „varanlegri lausn“ í efna- hagsmálunum og Eysteinn Jóns- son ítrekaði það áður en þingið kom saman á sl. nausti, að nú þyrfti að gera þessar „varan- legu ráðstafanir" enda hefðu stjórnarflokkarnir ágæta aðstöðu til að koma þeim fram. Eftir að hafa setið yfir málunum allt haustið, allan veturinn og langt fram á sumar, þá er árangurinn um hina „varanlegu lausn“ ekki meiri en svo, að hælzt er um yfir að stigið hafi verið „spor í rétta átt“, án þess að gera nokkra grein fyrir hvert áframhaldið eigi að vera. Hálfkák og hálf- yrði Eysteins Eysteinn Jónsson hælist um yf- ir því, að í „raun og veru“ hafi verið stigið „hálfa leið út úr uppbótarkerfinu með hinu nýja yfirfærslugjaldi, sem gengur út og inn í kerfinu“. Hér er sann- arlega um hálfyrði að ræða og forðazt að gera grein fyrir því hvað fyrir manninum í raun og veru vakir. Ef Eysteinn tel- ur sig „í raun og veru“ eitthvað hafa áunnið, þá er það fyrst og fremst sigur hans yfir sjálfum sér, því að hingað til hefur eng- inn verið natnari en Eysteinn Jónsson í því að meta hvað hverj um og einum ætti að skammta og að sjá um, að enginn fengi meira en honum þótti henta. Eng inn hefur verið þrautseigari t baráttunni gegn því að allir landsmenn búi við einn og sama rétt en einmitt Eysteinn Jónsson. r „Oraunhæfu verð- lagsákvæðin44 Þegar Hermann Jónasson var að grafa undan stjórnarsamstarfi Framsóknar og Sjálfstæðismanna og undirbúa eigin valdatöku. þá ferðaðist hann um landið og gerði sér tíðrætt um hinn ofsalega milliliðagróða. Þá átti afnám hans að verða lausn á öllum vanda. Eitt af aðalafrekum núverandi stjórnar, sem hún hefur hælt sér mest af, var og setning nýrra verðlagsákvæða, er áttu að gera útaf við gróða milliliðanna. Um eðli þessara ráðstafana liggja nú fyrir merkilegar upplýsingar. Milljónartap KRON á s. 1. ári segir sína sögu.. Ekki er síður eftirtektarverð yfirlýsing Sam- bandsforstjórans, Erlends Einars- sonar, á aðalfundi þess nú fyrir skemmstu. Þá fjölyrti hann um hin „óraunhæfu verðlagsákvæði“, sem nú væru í gildi. Hér hefur farið sem oft ella, að þeir, sem ætla sér að beita ranglæti, verða sjálfum sér verstir. Því miður eru verðlagsákvæði núverandi ríkisstjórnar ekki hin eina „óraunhæfa" ráðstöfun henn ar. Sú lýsing SÍS-forstjórans á við um flestar eða allar ráðstaf- anir hennar í efnahagsmálum frá upphafi fram til þessa dags. Kommúnistar láta svo sem stjórnin hafi áður fylgt „stöðv- unarstefnu". Sú stefna hafi nú verið yfirgefin. Þessi fjarstæða er svo mikil, að jafnvel Tíminn hefur ekki getað látið henni ómótmælt. Enda hefur verðlagið sjaldan hækkað meira á jafn skömmum tíma en meðan hinni svokölluðu stöðvunarstefnu var fylgt. Á þeim tíma hækkaði vísi- talan, ef allt hefði verði talið með um rúm 20 stig. Úr því að svo tókst til á meðan talað var um stöðvun, má nærri geta, hvernig fara muni eftir að lagt er út á þá leið, sem stjórnarliðið sjálft kallar verð- bólguleiðina. Með þennan feril að baki þarf einkennileg brjóst- heilindi til að koma fram á sval- ir Alþingishússins til að gefa yfirlýsingu um orðheldni svo sem Hermann Jópasson gerði á þjóð- hátíðardaginn. „Friðlýst land44 Síðasta slagorð, sem kommún- istar hafa fundið til að dylja svik sín í varnarmálunum, er að koma af stað hreyfingu undir nafninu „Friðlýst land“. Það er merkileg fyrirmunun, að komm- únistar skuli ekki átta sig á, að allt skvaldur þeirra um þessi mál verkar einungis á almenning til að auka fyrirlitningu hans á óheilindum og brigðmælgi komm- únista. Ríkisstjórnin, og þá ekki sízt kommúnistar, hafa haldið þannig á varnarmálunum, að þau eru orðin gersamlega dautt mál í áróðri. Enginn, ekki einu sinni æstustu flokksmenn kommún- ista, taka lengur nokkurt mark á orðum þeirra í þessum efnum. En Hermann Jónasson talar dig- urbarklega: „Sumir tala um samninga sem við erum bundnir við Atlants- hafsbandalagið. Vitanlega kemur ekki annað til mála en að við höldum alla samninga meðan þeir eru haldnir við okkur“. Þetta segir maðurinn, sem fyr- ir tveimur árum taldi það ganga landráðum næst að bent skyldi á, að samkvæmf gerðum samning- um hefðum við skuldbundið okk- ur til að leita samráðs við Atl- antshafsbandalagið áður en ákvörðun væri tekin um upp- sögn varnarsamningsins. Sjálfur lofaði hann að segja þessum samningi upp, en efndi þá heit- strengingu með þeim hætti að endurnýja samninginn. Síðan fór hann suður til Parísar til að halda ræðu á fundi Atlantshafs- ráðsins um hollustu sína við bandalagið. Ræðu, sem hann af einhverjum ástæðum, hefur aldrei fengizt til að birta hér á landi. Eins og menn muna, þá vildi svo einkennilega til, að það var fyrst nokkrum dögum eftir að sú ræða var haldin, að Banda- ríkjamenn fengust til að láta stjórnina fá þann hluta af sam- skotalánmu, sem þeir voru búnir að dragast á að veita. Má raun- ar segja, að þar hafi jafn óhönduglega verið að farið af beggja hálfu. Úr því að Bánda- ríkjastjórn vildi styrkja ríkis- stjórn Hermanns Jónassonar með þessu fé, átti hún vitanlega að gera það með öðrum hætti en að auðmýkja forsætisráðherrann svo augljóslega, sem hér var gert. Landhelgismálið Óþarft ætti að vera að brýna íslendinga í landhelgismálinu. Ekki er kunnugt um neinn þann, sem ekki telji sjálfsagt að sækja þar svo langt fram sem frekast er fært. Menn hljóta því að spyrja við hvað Alþýðublaðið eigi þegar það segir á þjóðhátíðar- daginn: „------íslendingar verða að taka höndum saman i land- helgismálinu og sýna heiminum með einingu sinni að þeim sé alvara" Hvaða óeining er það sem Al- þýðublaðið á hér við? Er það óeiningin innan ríkisstjórnarinn- ar? Þar hefur oft gengið á ýmsu, Frh. á bls. 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.