Morgunblaðið - 22.06.1958, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 22.06.1958, Qupperneq 18
18 MOTtCFlXJtr AÐIÐ Sunnudagur 22. júní 1958 — Reykjavlkurbréf Framh. af bls. 11. en aldrei hafa 'orðið frekari átök um neitt mál þar en einmitt land- helgismálið. Af hverju er Al- þýðublaðið æ ofan í æ að brýna menn til einingar og gleðjast yfir því að nú skuli hóflega rætt um málið af öðrum? Er það gleðin yfir því, að stjórnin skuli ekki rétt þessa dagana vera að rofna út af meðferð málsins? Hér sem ella hefna óheilindin sín. Þjóðin á kröfú til að fylgjast með því sem í raun og veru er að ger- ast í þessu máli af ríkisstjórn- arinnar hálfu. Því fremur sem stjórnin hefur hvað eftir annað gert leik að því að sundra þjóð- inni í máli, þar sem mikið liggur við, að allir standi saman. Morðin I Ungverja landi Um morðin í Ungverjalandi þarf ekki að fjölyrða. Þar var vegið að þeim mönnum, sem áður höfðu verið sviknir í tryggðum. Sök þeirra var sú ein, að þeir vildu verja frelsi lands síns gegn innlendum svikurum og erlend- um yfirdrottnurum. Með drápi þeirra hefur frelsishugsjónin fengið nýja píslarvotta og nöfn þeirra munu að eilífu höfð í heiðri meðal siðmenntaðra þjóða. — Kennarar Frh. af bls 3 ein af kennurunum, segir að vissulega sé þreytandi að ganga um söfnin, en hins vegar sé þar margt sem gaman sé að sjá. „Hér í safninu úir og grúir af skipa- líkönum frá öllum tímum — já, meira að segja sáum við islenzk- an fiskibát", sagði Kolfinna að lokum og hlammaði sér á bekk ásamt þremur kynsystrum sín- um. Héðan fara kennararnir til Hafnar og taka sér síðan far heimleiðis með ms. Heklu. — G. Þ. P. Hannyrðasýning Júllönu Jónsdóttur FYRIR helgina opnaði Júlíana Jónsdóttir sýningu á listsaumi, sem unninn hefur verið af henni sjálfri og nemendum hennar síð- astliðin 14 ár. Sýningin er á Sólvallagötu 59, en þar hefur Júlíana kennt hann- yrðir síðan 1944. Einnig hefur hún kennt stúlkum á Patreks- firði og Akranesi á námskeiðum. Á sýningu þessari, sem fyllir 5 stofur, eru 110 munir. Júliana hefur áður haft 4 hannyrðasýn- ingar í Reykjavík, eina á Akra- nesi og eina á Patreksfirði og er þetta hennar síðasta sýning, að því er hún segir sjálf. Myndin hér tii hægri er af hluta af teppi, sem Júlíana er sjálf að sauma eftir biskupsteppi frá Hólum, sem nú er geymt í Þjóðminjasafninu. Á henni sést Jón Ögmundsson, er. hann er emn af þeim fimm biskupum sem sauma á í teppið. Hina mynd ina saumaði ein af námsmeyjum Júlíönu af hesti tengdaföður síns. Sími 2 24-80 Lítið járnsmíðaverkstæði til sölu Fréttabréf úr Norður-Þingeyjarsýslu: Kalt og gróðurlaust vor. Tvœr brýr í byggingu ÆRLÆK, N-ÞING., 18. júní — í vetur voru frost þrálát þó ekki stigu þau sérstaklega hátt og jarðbönn lengst af fram í marz- lok og lengur á mörgum bæum. Snjóþyngsli voru aldrei mikil og tók ekki fyrir bílflutninga fyrr en um miðjan febrúar og aldrei langtímum saman. Vorið var kalt og gróðurlaust fram um fardaga. Heylausir urðu nokkrir bændur, en allt bjargaðist þó af, því hreppurinn átti nokkrar birgðir, sem miðlað var á milli, og kjarn- fóður var nægilegt hjá Kaup- félagi N-Þing. á Kópaskeri. Sauð- burður gekk sæmilega og sums staðar vel. Margt var tvílembt Víkurkirkju berasl stórgjafir VÍKURKIRKJU bárust tvær höfðinglegar gjafir á hvitasunnu- dag. Hjónin Ragnar Emilsson og Sigrún Jónsdóttir gáfu kirkjunni „antipendium“ til minningar um föður Sigrúnar, Jón Jónsson. Frú Sigrún hefur sjálf teiknað og saumað það. Þá var kirkjunni einnig gefið eitt eintak af ljósprentun á Guð- brandsbiblíu til minningar um þau hjónin Rannveigu Einars- dóttur og Jón Brynjólísson. Gef- endur eru börn, tengdabörn og barnabörn þeirra hjóna. Sóknarprestur þakkaði þessar ágætu gjafir. Bærinn fær leyfi og er neiiaö um leyfi Á FUiNJjl bæjarráðs á íimmtu- daginn, var tilkynnt að Inn- flutningsskrifstofan hefði neitað um fjárfestingaleyfi til bygging- ar kjötmiðstöðvar fyrir Reykja- vík. — Á þeim sama fundi var aftur á móti tilkynnt að sknf- stofan hefði veitt 800 þús. kr. fjárfestingarleyfi til sorpeyðing- arstöðvarinnar. og fé yfirleitt hraust. Hjálpaði mikið að hret komu engin á sauðburði, svo hægt var að gefa lambám úti. Búið mun nú alls staðar að sleppa lambám, en kýr eru ekki látnar út ennþá. Síð- ustu daga hefur rignt og má heita að skógarhlíðar séu nú orðnar algrænar, enda nú hlýrra í veðri. Verið er að endurbyggja brú á Brunná hjá Klifhaga. Gamla brúin var frá 1928, en er nú orðin of þröng stórum bílum og vinnuvélum. Aðra brú er einnig verið að byggja á Þverá. Talið er að umferð um þær geti hafist snemma í ágúst. —Fréttaritari. - S.U.S. Framh. af bls. 13 — Flugmálastjórnin veitir styrk, sem kemur sér vel.því nám ið er dýrt. Þegar hér er komið, tökum við að ræða um Bandaríkin vítt og breitt, og spyr ég Lárus fyrst um borgina, Tulsa, sem hann dvaldist í. — íbúarnir í Tulsa eru um 250 þúsund. Tulsa er mikil olíuborg, og einnig er þar mikill iðnaður, og er olían aðalhráefnið, sem not- að er til iðnaðarins. Mavgir hafa atvinnu við Douglas-verksmiðj- urnar, en í Tulsa er ein af verk- smiðjum Douglas-félagsiris — (Stærsta verksmiðjubygatngin er tæp míla ó lengd). Þá hefur American Airlines aðalverk- stæði sín í borginni. Það er óhætt að segja, að Tulsa liggi serlega vel við ílugsamgöngum innan Bandarikjanna, enda er mikil um ferð um fiugvöllinn þar. — Ferðaðist þú mikið um Bandríkin? — Já. Ég fór frá Tulsa, sem liggur svo til í miójum Banda- ríkjunum, vestur til Kaliformu, allt til Kyrrahafsins, og þaðan þvert yfir til austurstrandarinnar og kom við í ýmsum stórborgum. Þaðan hélt ég svo norður á bóg- inn og komst lengst í notðuratt til Windsor-Kanada. Ég ferðað- ist alltaf í bíl og hafði því gott tækifæri til að kynnast landj og lýð. ásamt húsnæði á góðum stað í bænum. Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 25. þ.m. merkt: „Smiðja — 6236“. Skrifstofan verður lokuð mánudaginn 23. iúní n.k. Tollstjóraskrifstofan. Arnarhvoli. F ramtíðaratvinna Stórt fyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða til sín Ivanan skrifstofumann nú þegar. IUmsóknir, er gréini aldur, menntun og fyrri störf, skulu sendar aígreiðslu Mbl. fyrir 24. Þ.m., merktar: 4027 l Smurstöðin Sœtúni 4 Seljum allar teguntiir af smurolíu. r’ljót og góð afgireiðsla,'sími 16-2-27. Iðna&arhúsnœði úsamt síma til sölu. Stærð 50 ferm. Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 26. þ.m. merkt: „Iðnaður — 6235“. Til sölu nýr ókeyrður Volkswagen 1958 Verðtilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 29. júní merkt: Iðnaðarhúsnæði 100—200 ferm. húsnæði óskast til leigu fyrir léttan iðnað. Fyrirframgreiðsla kemur til greina. Tilboð með nánari uppl. sendist afgr. Morgunblaðsins mejkt: „Iðnaðarhúsnæði — 6240“. — Eru ferðalög ekki dýr vestra? — Nei, þvert á móti ódýr. Það má segja, að ég hafi verið á stöð- ugu ferðalagi í 2 mánuði, eftir að skólanum sleppti, og var ég svo heppinn að geta jafnfrarrit unnið eftir því, sem til féll, og gat ég haldið mér alveg uppi á þeim peningum og greiddi auk þess allan ferðakostnað. — Hvernig féll þér við Banda- ríkjamenn yfirleitt? — Prýðilega. Mér koma þeir fyrir sjónir sem opinskóir, glað- lyndir og vingjarnlegir menn, sem gera sér lítinn mannamun. Þó er munurinn á hvítum rnönn- um og dökkum gagnger Svert- ingjarnir búa í sérstökum hveif- um, hafa sína eigin strætisvagna og þar fram eftir götunum, enda hafa þeir engin samskipti við þá hvítu. Kynþáttaaðgreiningin er þó meiri í Suðurfylkjunum, en minni, þegar norður dregui — Hvernig litist þér á eftir dvölina og þau kynni, sem þú hefur haft af Bandaríkjunum, að setjast að vestra? — Maður með fasta atvinnu þarf engu að kvíða. Lífskjör eru mjög góð vestur þar. Einkum veitti ég því eftirtekt, hvað „af- borgunarkerfið", et svo mætti segja, er útbreitt. Gerir pað mönnum kleift að eiguast 611 helztu þægindi, svo ekki sé taiað um sitt eigið hús og sinn eigin bíl, sem þykir sjálfsagt", og eru það hans lokaorð, því nú verð ég að kveðja. Ég þakka Lárusi fyrir samtalið og góðgerðir og skunda niður á Morgunblað með fiam- leiðsluna. S. B.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.