Morgunblaðið - 03.07.1958, Side 2

Morgunblaðið - 03.07.1958, Side 2
z M U K f, V n tf I ,4 V I V Fimmtudagur 3. júlí 1958 De Gaulle heitir Serkj um í Alsír sömu rétf- indum og Frökkum Mikið var um dýrðir í Kaupmannahöfn sl. mánudajj, er lífvörður sitt hátíðlegt. Á myndinni sést lífvörðurinn gan ga í fararbroddi varða fram hjá Konunglega leikhúsinu á leið til Amalienborg til konungs héit 300 ára afmæli mörg þúsund fyrrverandi líf- að hylla konungshjónin. Hreppsneíndar- kosningar í Skagafirði HOFSÓSI, 1. júlí. — Úrslit hreppsnefndarkosninganna í nokkrum hreppum Skagafjarðar sýslu urðu sem hér segir: í Holts hreppi, voru kosningar óhlut- bundnar og eftirtaldir menn kjörnir: Jón Gunnlaugsson, Móa felli, Steingrímur Þorsteinsson, Stóra-Holti, Sveinn Jónsson, Bjarnargili, Ríkarður Jónsson, Brúnastöðum, og Jón Guðvarðar son, Saurbæ. í sýslunefnd var Frétf af hreppsnefndar- kosningu Hr. ritstjóri! Vegna óheppilegrar frásagnar fréttaritara yðar af hreppsnefnd- arkosningu í Mosfellssveit vil ég biðja yður að birta eftirfarandi athugasemdir: Fréttamaðurinn getur þess, að fyrsti maður A-listans hefði nær fallið fyrir 3. manni iistans vegna útstrikana. Það er rangt, því að minnsta kosti 50% af þeim útstrikunum, sem gerðar eru, hefði þurft til viðbótar. Eg er þeirrar skoðunar að frá- sögn fréttamannsins sé óþörf og ódrengileg að því leyti, að hann kemur sér jafnframt hjá að skýra frá því, að annar og þriðji mað- ur C-listans, svo og annar maður B-listans hlutu einnig útstrikan- ir. Ég undirritaður, sem var þriðji maður A-listans lýsi því yfir, að ég myndi ekki hafa tek- ið sæti í hreppsnefnd, sem mér væri tryggt með því að strika út félaga minn, er ég átti sjálfur þátt í að styðja í fyrsta sæti. Dælustöðinni Reykjum, 1. júlí. Örn Steinsson. ★ Þegar fréttin var send lágu ekki fyrir frá kjörstjórn nákværnar upplýsingar um hve mikil brögð voru að útstrikunum. Þær tölur lágu síðar fyrir og sýndu eina útstrikun á B-listanum, 3—4 á C-listanum, en 12 á A-listanum. Fréttaritari Mbl. í Mosfellssveit sér ekkert ,,ódrengilegt“ við að skýra frá staðreynöum. kosinn Jón Gunnlaugsson, Móa- felli. 1 Hólahreppi var samkomulags listi og þessir menn Kjörnir: Frið björn Traustason, Hólum, Trausti Pálsson, Brekkukoti, Guðmundur Ásgrímsson, Hlíð. Sigurður Sig- urðsson, Sleitustöðum og Árni Sveinsson, Kálfsstöðum í Við- víkurhreppi var einnig samkomu lagslisti og þessir kosnir: Sigur- mon Hartmannsson, Kolkuósi, Friðrik Pálmason, Svaðastöðum, Sverrir Björnsson. Viðvik, Krist- ján Hrólfsson, Hofdölum, og Björn Gunnlaugsson, Brimnesi. í Fellshreppi voru kosningar óhlutbundnar og þessir kosnir: Pétur Jóhannsson, Glæsibæ, Tryggvi Guðlaugsson, Lónkoti, Stefán Jónsson. Heiði, Kjartan Hallgrímsson, Fjöllum og Björn Jónsson, Felli. í Haganeshreppi voru kosningarnar óhlutbundnar og þessir kosnir: Salómon Einars son, kaupfélagsstjóri, Haganes- vík, Guðvarður Pétursson, Minni Reykjum, Árni Eiríksson, Reykj- arhóli, Hermann Jónsson, Yzta- mói og Jón Kort Ólafsson, Haga nesi. B. J. ★ í frétt um hreppsnefndarkosn- ingar í Eyrarsveit í Snæíellsnes- sýslu, í blaðinu í fyrradag höfðu fallið niður nöfn þriggja manna, sern kosnir voru af D- lista, lista Sjálfstæðismanna. Það voru þessir menn: Halldór Finns son, bifreiðarstjóri, Hörður Páls- son, bóndi og Kristleifur Bjarna- son, smiður. Nasser íijá Tító BELGRAD, 2. júlí. — NTB. — Reuter. — Nasser, foseti Ara- biska sambandsríkisins, kom í dag til Dubrovnik í Júgóslavíu. Var honum fagnað með 21 fall- byssuskoti. í fylgd rneð Nasser voru m.a. fjölskylda hans og Fawsi utanríkisráðherra. Tító forseti, Popovitsj utanrikisráð- herra og Gosnjak varnarmálaráð herra tóku á móti Nasser. Óku þjóðhöfðingjarnir síðan um göt- | ur borgarinnar til einbýlishúss utan við borgina, en þar mun Nasser dveljast ásamt fylgdar- liði sínu, þar til hann fer í heim- sókn til Bosníu. Ekki er dregin dul á það í Júgóslavíu, að heim- sókn Nassers veiti Tító nokkurn siðferðislegan styrk í deilum hans við Sovétríkin. Enginn ágreining- ur! sagði Krúsjefí MOSKVU, 2. júlí. — Antonin Novotny, forseti Tékkóslóvakíu, kom til Moskvu j dag til að ræða við sovézka ráðamenn. Kom hann með sovézkri þrýstiloftsflugvél, og tók Krúsjeff á móti honum á flugvellinum .í för með honum voru ýmsir áhrifamiklir meðlimir tékkneska kommúnistaflokksins. Sagði Krúsjeff í ávarpi, er hann flutti, að þeir þyrftu ekki að ræða nein ágreiningsefni, af því að enginn ágreiningur væri milli Sovétríkjanna og Tékkóslóvakíu. Novotny svaraði og sagði, að vin- áttusamband Tékka og Rússa væri þyrnir í augum sameigin- legra óvina þeirra. Benti hann á, að á 11. þingi tékkneska komm- únistaflokksins hefði komið Ijós- lega fram, að tékkneskir komm- únistar væru eindregið fylgjandi hollustu annarra kommúnista- ríkja við Sovétríkin. ALGEIRSBORG, 2. júlí — NTB — Reuter — De Gaulle forsætis- ráðherra fór í dag í rannsóknar- ferð í þyrilvængju yfir stór svæði í Alsír. Lýsti hann yfir því, hvað eftir annað, að hann teldi það skyldu sína að veita öllum íbúum landsins sömu réttindi. Öryggis- nefndin kvað ætla að reyna stefnufestu forsætisráðherrans í Alsírmálunum á fundi, sem hers. höfðinginn mun eiga með nefnd- inni á morgun. Verður fjallað um framtíð landsins á fundinum. Öryggisnefndin hefur setið á 3 fundum sl. sólarhring, og sam- kvæmt góðum heimildum mun hafa verið til umræðu ályktun, SÞ vilja ekki flytja ofæzlulið f rá Kóreu o PEKING, 2. júlí. NTB — Reuter — Yfirmaður gæzluliðs SÞ í Kór_ eu sendi kínversku stjórninni í dag orðsendingu, þar sem það er ítrekað, að gæzlulið SÞ í Kóreu geti ekki horfið þaðan, meðan enn hefur ekki fengizt útkljáð, hvenær frjálsar kosningar verða haldnar um gjörvalla Kóreu. Orð sendingin var afhent i nafni þeirra 16 þjóða, sem eiga gæzlu- liðssveitir á vegum SÞ í Suður- Kóreu. Sagði í orðsendingunni, að ekkert yrði gert í þessu máli, fyrr en allsherjarþing SÞ hefði fjallað um það. IEr þetta svar við orðsendingu kínversku stjórnarmnar frá 6. maí sl., þar sem þess er | krafizt, að allar erlendar her- sveitir í Kóreu yrðu fluttar það- 1 an. í orðsendingunm segir, að | þessar 16 þjóðir geti ekki fallizt á það, og brottflutningur gæzlu- liðs SÞ yrði nokkur raunveru- leg lausn á Kóreuvandamálinu, né heldur yrði það tii þess að draga úr spennu þjóða í n illi í Austur-Asíu. Leikflokkur íBolungavtk | BOLUNGARVÍK, 1. júlí. — Á sunnudagskvöld sýndi leikflokk- ur úr leikskóla Ævars Kvaran hér 2 stutt leikrit í Félagsheimil- inu. Þótti hinum ungu leikend- um vel takast og var fjölmenni á sýningunni cg leikurur.um þökk uð góð frammistaða. — Fréttar. Hreppsnefod Gaul veri abæ jar hrepps SELJATUNGU, 1. júlí: — Hrepps nefndarkosningarnar hér í Gaul- verjabæjarhreppi voru óhlut- bundnar. Á kjörskrá voru 146 og á kjorstað komu 108 kjósendur. Kjósa skyldi 5 menn í hrepps- nefnd og voru þessir kjörnir: ívar Jasonarson, Vorsabæjarhóli, er hlaut 90 atkv. Stefán Hannes- son, Arabæ, 76 atkv., Tómas Tómasson, Fljótshólum, 62 atkv., Jón Sigurðsson, Syðri Gengishól- um, 55 atkv. og Stefán Jasonar- son, Vorsabæ, 53 atkv. Er hann nýr maður í hreppsnefndinni. Sýslunefndarmaður var kosinn Gunnar Sigurðsson, Seljatungu, með 43 atkv. Varamaður er Stefán Jasonarson, er hlaut 34 atkvæði. Áhugi rikti mikill meðal hrepps búa fyrir kosningunum og var fjöldi manns viðstaddur talningu atkvæða, er fór fram laust eftir klukkan 11 á sunnudagskvöldið í félagsheimilinu Félagslundur. — Formaður kjörstjórnar var Guð- mundur Jónsson á Syðri Velli. Hrcppsnefnd G^rðahrepps í GRAÐAHREPPI voru hrepps- nefndarkosningarnar óhlut- bundnar. í nýju hreppsnefndinni eiga sæti: Björn Konráðsson Vif- ilsstöðum, Guðmundur Magnús- son, Dysjum, Einar Halldórsson Setbergi, Jóhann Eyjólfsson Sveinatungu og frú Sigríður Johnsen, Marklandi. í sýslunefnd var kjörinn Björn Konráðsson. Ensklr sfúdenlar li! Valnajökuls , I SUMAR eru væntanlegir hingað til lands 5 enskir stúdentar, sem munu kynna sér fugla- og dýra- j líf í nágrenni Vatnajökuls. Stúd- í entarnir leggja af stað frá Eng- , landi 21. júlí n.k. og munu dvelj- ast nokkuð við vísindarannsóknir á hálendi fslands og m.a. fara ' langar sleðaferðir inn yfir jökl- ana. Auk annars ferðabúnaðar eru stúdentarnir nestaðir með 1 Brooke Bond-tei, sem framleið- endur þeirrar tegundar hafa gefið þeim í tilefni leiðangurs- þar sem þess er krafizt af de Gaulle, að hann geri afdráttar- laust grein fyrir þvi, hvernig hann ætli að leysa Alsírvanda- málið. Evrópumenn í Alsír vilja, að landið verði hluti af Frakk- landi, en íbúarnir njóti sömu rétt inda og Frakkar. Nokkrum hluta evrópskra Alsírbúa stendur stuggur Sí því, ef de Gaulle veit- ir öllum Alsírbúum sömu rétt- indi, og Alsír verði jafnframt að nokkru leyti sjálfstætt ríki, þar sem Evrópumenn í Alsír yrðu þá í miklum minnihluta t. d. í kosningum. I Reutersskeyti, er barst í kvöld segir, að mikill mannt'jöldi hafi verið saman kominn til að fagna de Gaulle, er hann kom til Al- geirsborgar. Var hér aðallega um Evrópumenn i Alsír að ræða. Ekki voru áformuð nein op- inber hátiðahöld, er de Gaulle kom til Algeirsborgar í kvöld, en á öllum opinberum byggingum voru fánar dregnir að hún og víða gat að líta myndir af de Gaulle. 1 dag heimsótti de Gaulle marga staði í Vestur-Alsír. Hélt hann ræðu á einum stað og hét því, að allir innfæddir skyldu fá sömu réttindi og Frakkar í Alsír. — Fögnuðu áheyrendur þá ákaft. Ræðan var þýdd á arabísku, og síðan gekk de Gaulle milli manna og heilsaði Serkjum með handa-. bandi. Síðan fór de Gaulle til aðal stöðva útlendingaherdeildai innar í Sidi Bel Azbes. Macmillan Framh. af bls. 1 það, sem Vesturveldunum og Sovétríkjunum hafði farið í milli, en upphaflega hafði verið samið um að halda leyndu því, er þeim færi á milli um þessi efni. Hafi Ráðstjórnin ekki einu sinni ráð- fært sig við Vesturveldin í þessu sambandi. Eisenhower leggur áherzlu á það í bréfi sínu, að Vesturveld- in munu halda áfram að reyna að finna lausn á ágreiningsmál- um austurs og vesturs. Hann kvartar undan því eins og Mac- millan, að Sovétstjórnin hafi virt að vettugi málamiðlunartillögur Vesturveldanna frá 31. maí sl. varðandi dagskrá fundar æðstu manna. Á sínum tíma lofaði sovézki utanríkisráðherrann Gro myko því, að tillögum þessum yrði svarað innan skamms, en ekkert svar hefir borizt. í bréfi sínu segir de Gaulle, að höfuðvandamáiið í sambandi við afvopnunarmálin sé að koma á sameiginlegu eftirliti á vegum alþjóðlegrar stofnunar, er sjái um að smám saman verði ónýtt- ar birgðir kjarnorkuvopna og komið í veg fyrir framleiðslu nýrra kjarnorkuvopna. Bendir de Gaulle á, að bann við kjarnorku- vopnatilraunum sé gagnslaust nema sem þáttur í alþjóða af- vopnunarsamningi. — Gomulka Framh. af bls. 1 verið skorinorður um, að Pól- verjum yrði ekki þolað að láta i ljós andúð í garö Sovétríkjanna, eins og gert hafði verið í Pól- landi þegar eftir aftökurnar í Ungverjalandi. Sagði Gruson, að andúð þessi hefði meðal annars komið fram á fundi í félagi pólskra rithöfunda í Varsjá. — Hafði formaðurinn hvatt félags- menn til að rísa ur sætum og standa þögulir í eiaa mínútu í virðingarskyni við Nagy. Allir viðstaddir stóðu á faítur að þrem- ur undanteknum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.