Morgunblaðið - 03.07.1958, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.07.1958, Blaðsíða 15
Fimmtndfl pair 3. júlí 1958 MOFCT’\nr 4ÐÍÐ 15 Björgimtirskúta Breiðaíjarðar FRÁ alda öðli hefur það verið hlutskipti íslendinga að sækja björg í bú í greipar Ægis, og svo mun enn vera um ókomnar aldir. Engum blandast hugur um að á velgengi í þessari viðureign byggist afkoma þjóðarbúsins að mestu leyti, þótt jmsar aðrar stoðir renni þar undir. í aldalangri baráttu þjóðar- innar til fiskveiðar, hefur hún öðlazt þá reynslu og hæfni á því sviði, að engin þjóð í heimi stendur henni á sporði og er þá mikið sagt. Nú á seinni árum hefur tækni og framfarir stór- bætt öryggi sjófarenda, fyrir óþrjótandi elju og störf þeirra manna sem að því hafa unnið, og ótalin þau mannslíf og verðmæti er bjargað hefur verið, og á þar Slysavarnafélag íslands stærst- an þáttinn. Það orkar engan veg inn tvímælis að sá kostnaður er lagður hefur verið fram í þessu sambandi hefur gefið ríkulegan ávöxt. Þrátt fyrir það, þótt skip- in séu útbúin hinum beztu tækj- um til öryggis, sem völ er á hverju sinni, þurfa þó skipin í ýmsum tilfellum á aðstoð að halda um veiðitímann, það er því hin mesta nauðsyn að íslend- ingar eignist fleiri björgunar- skip sem gætu þá einnig annazt gæzlustörf við strendur lands- ins. Frá kauptúnum Breiðafjarð ar munu nú vera gerðir út um 30 fiskibátar’ og 1 togari, væri því ekki vanþörf á, að Breiðfirð- ingar eignuðust björgunarskútu, enda hafa breiðfirzkir sjómenn bæði fyrr og síðar rætt og ritað um þetta nauðsynjamál breið- firzkrar alþýðu. Árið 1955 gáfu heiðurshjónin frú Svanhildur Jó hannsdóttir og Þorbjörn Jóns- son 50 þús. krónur til stofnunar bjögunarskútusjóðs Breiðafjarð- ar. Briðfirzk alþýða mun lengi minnast þessara g'öfugu hjóna, brautryðjandastarfs þeirra og stórhugar til lausnar þessu mikla nauðsynjamáli kauptúnanna við norðanvert Snæfellsnes. Þá hefur verið hafin fjársöfn- un í verstöðvum við Breiðafjörð og hefur þar safnazt allstór upp- hæð eða 300 þúsund krónur og sýnir það glöggt áhuga sjómanríb í þessu efni. En betur má ef duga skal og er ekki að efa að þeir menn sem með þessi mál fara munu leggja allt kapp á að hefj- ast nú þegar handa um áfram- haldandi söfnun í þessu sam- bandi og vonandi skorast enginn sannur Breiðfirðingur undan því að leggja sinn skerf fram þessu mikla nauðsynjamáli til fram- dráttar. Enn mun ekki ákveðið hve stórt hið væntanlega björg- unarskip skuli vera, þó mun nokkuð hafa verið ritað og rætt um málið og menn ekki á eitt sáttir, en engum heilvita manni blandast hugur um það, að fyr- irhugað björgunar- og gæzluskip verður að vera a.m.k. um 200 tonna skip, ef það á að koma að fullum notum. Þá ber að athuga þá staðreynd að íslendingar eru nú að færa út landhelgi sína í 12 mílur frá yztu annesjum, og mun því mikil nausyn á, að fjölga gæzluskipum ef þessi ráðstöfun íslendinga á að koma að fullum notum. Myndi þá stór, hraðskreið breiðfirzk björgunarskúta koma að miklu gagni við gæzlu hins nýja friðunarsvæðis. Breiðfirð- ingar verða því að leggja alla áherzlu á að fyrirhuguð björg- unarskúta verði bæði stór og hraðskreið til þess að hún komi að fullum notum sem björgunar- og gæzluskip hins nýja friðun- arsvæðis Breiðfirðinga. Breiðfirðingar, tökum höndum saman og hrindum þessu mikla 1 áhugamáli okkar í örugga höfn. Magnús Ó. Jónsson. Stykkishólmi. Flutningur hollenzks lierliðs til Nýju-Guineu DJAKARTA, 2. júlí. — Reuter. — Utanríkisráðherra Indónesíu Su- bandrio sagði í dag, að ákvörð- un sú, er Hollendingar hefðu tek- ið í sl. viku, um að senda her- sveitir til vesturhluta Nýju- Guineu myndi aðeins verða til þess að „auka spennuna milli þessara tveggja landi“. Svæði þetta er undir yfirráðum Hollend- inga, en Indónesar halda því fram, að hollenzka stjórnin hefði átt að láta það af hendi við Indó- nesíustjórn, er Indónesía varð lýð veldi eftir heimsstyrjöldina síðari. Subandrio sagði, að sending hol- lenzku hersveitanna hefði valdið íbúunum í vesturhluta Nýju- Guineu „miklum áhyggjum", þar sem þeir teldu aukið hollenzkt herlið „alvarlega ógnun við ör- yggi sitt“. Ykkur sem minntust mín með gjöfum, heimsóknum og skeytum á 60 ára afmæli mínu 8. júní 1958, þakka ég hjartanlega. Kristín Ágústsdóttir, Neskaupstað. Öllum þeim fjölmörgu er heiðruðu mig og fjölskyldu mína á sextugsafmæli mínu hinn 22. júní sendi ég hug- heilar þakkir og kveðjur. Sérstaklega þakka ég stjórn Kaupfélags Húnvetninga og stjórn Sláturfélags A.-Húnvetninga fyrir ágætar gjaf- ir er félögin gáfu okkur hjónunum. Starfsfólki félaganna þakka ég einnig fagra gjöf. Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps vil ég þakka mikinn — og að vanda — góðan söng við þetta tækifæri. Samvinnumönnum héraðsins, er við þetta tækifæri héldu okkur veglegt og glæsilegt aímælis- og kveðjuhóf í Húnaveri þakka ég af öllu hjarta. Gæfan fylgi ykkur öllum. Guð blessi ykkur öll. Jón Baldurs. Hafnarfjarðarliðið ,,með 4 miðherj- náði jafntefli við Fram 2:2 um 1. deildar lið Hafnarfjarðar og Fram mættust í 4. leik íslands- mótsins sem fram fór í fyrra- kröld. Leiknum lyktaði með jafn tefli 2 mörk gegn 2. Sú marka- tala gefur ekki rétta liugmynd um gang leiksins, því Fram sýndi meira og betra spil. Á köflum náði liðið fallegum samleik, en mjög var undir hælinn lagt hvern ig tókst að nýta tækifærin, sem gáfust. Kapphlaup við vörn Fram. Fram náði allgóðn byrjun, án þess að komast í færi. En ekki leið á löngu áður en breytt leik- aðferð Hafnarfjarðarliðsins tók að hafa áhrif. Albert lék nú í stöðu miðherja og Bergþór sem innherji. Albert lá þó aftur en Bergþór frarn, og sendingarnar sem Albert gaf Bergþóri upp miðjuna ollu mikilli hættu við Frammarkið og sköpuðir upp- lausn í Framvörninni. Á 12. mín. skorar Bergþór eftir sendingu frá Albert og kapphlaupi við vcirn Fram, sem Berþór vann, enda er hann harður mjög á sprettinum. Hvað eftir annað eftir þetta mark, bar svipaða hættu að marki Fram, en knattleikni Berg þórs er ekkj eins mikil og hraði hans, og honum tókst ekki að nýta sendingarnar til marka. Fyrstu 30. mín. voru Hafnfirð- ingar einir um marktækifæri, þó ekki skoruðu þeir nema 1 rnark. •ft Fram tekur völdin. En siðasta stundarfjorðunginn náðu Fram-menn sér vel á strik. Sú sóknarlota hófst með marki er Grétar Sigurðsson skoraði, eftir sendingu frá Björgvin mið- herja frá hægri. Eftir það mark náði Fram góðum kafla með virk um samleik, stöðuskiptingum og nær látlausrj sókn. Átti Hafnar- fjarðarliðið í vök að verjast. Á 37. mín. nær Guðm. Óskarsson knett inum og sendir til Björgvins mið- herja sem sótti að og skoraði örugglega. Lauk þannig hálfleik 2:1 Fram í vil. ★ í síðari hálfleik náði Fram enn tökum á leiknum og sótti fast. Átti Grétar fast skot, sem Ragn- ar markvörður varði í horn og lilu síðar bjargaði Jón Pálmason á marklínu, eftir að Ragnar hafði misst knöttinn frá sér. •fc Fjórir miðherjar. Sókn Fram var þung mjög og nutu framherjar góðrar aðstoðar framvarðanna Guðjóns og Kagn- ars og jafnvel bakvarðanna. Þá breytti Albert fyrirliði um xeik- aðferð. Setti fjóra menn í mið- herjastöðu þ.e. alla framherjana, en var sjálfur aftar. Þetta ruglaði vörn Fram svo að framverðirnir hörfuðu aftur og allan þunga dró úr sókn Fram. Þess í »tað tóku Hafnfirðingar að sækja. Albert mataði framherjana með falleg- um sendingum og síðan hófst kapphlaup þeirra við Fram. Leik aði’erð þessi, sem líklega hefur aldrei sézt hér áður, oili upp- lausn í Framliðinu, og breytti vörn Hafnfirðinga í sókn. Náðu Hafnfiröingar opnu tækifæn um miðjan hálfleikinn, en Fram tókst að ’hreinsa* á síðustu stundu. Á 30. mín. tekst svo Hafnfir'ðingum að jafna. Sigurjón sendi fyrir markið og Bergþór skoraði. Rétt á eftir áttu Hafnfirðingar tvö tækifæri sem mistókust. Gejr áttu skot á markvörð og Albert hörkuskot rétt utan við. En eftir það voru tækifærin öll Fram-manna, en þeir voru óheppnir mjög. Theódór fram- verði Hafnarfjarðar tókst að bjarga á marklínu. Litlu síðar átti Björgvin laglega fyrirsendingu, sem Guðmundi Óskarssynj mis- tókst að nýta og rétt fyrir leiks- lok komust 3 Fram-menn í gegn um Hafnarfjarðarvörina, Dag- bjaxtur skaut laust, en hitti stöng! SKRA um skatt á stóreignir samkvæmt lögum nr. 44/1957 liggur frammi á Skattstofnuni í Reykjavík, Hverfisgötu 6, dagana 3.—16. júlí n.k. að báðum dögum meðtöldum, kl. 10—12 og 13—16 dag hvern, þó aðeins kl. 10—12 á laugardögum. Athugasemdir við skrána skulu sendar til Skattstofunnar í Reykjavík á sama tíma. Reykjavík 2. júlí 1958. Skattstjórinn í Reykjav’ík ★ Liðin. Hafnarfjarðarliðið mætti til leiksins eins og vængbrotinn fugl. Fimm leikmenn þess meiddust í leiknum við Val, en fjórir þeirra mættu þó tii leiksins þó meiddir væru þ. á. m. Albert, sem hlaut slæm meiðsli í fæti og gat því lítt beitt sér. En samt var það hann, sem öðrum fremur á þetta stig sem Hafnarfjarðarliðið nú fékk í mótinu. Með skipulagningu liðs síns braut hann samleik og sókn Fram-manna, og sýndi hverja þýðingu það hefur fyrir lið að hafa fyrirliði, sem kann til verka sinna. Þegar liðsmönn- um hans vex fiskur um hrygg hvað snertir knatttækni og kunn áttu verður erfitt við Hafnfirð- inga að eiga. Ragnar tók nú stöðu markvarðar og skilaði henni mjög sæmilega, en Vilhjálmur Skúlason kom inn sem miðvörð- ur og var öruggur og traustur, en stundum nokkuð seinn. Theo- dór er traustur og einn efnileg- asti maður liðsins. Bergþór vakti athygli með hraða sínum. En í heild var leikur Hafnfirðinga nú lakari en móti Val og einkum Akranesi. Framliðið náði nú sóknarleik sem á köflum var betri en liðið j hefur fyrr í sumar náð, þó með þeim alvarlega galla, að liðinu tókst ekki að nýta tækifærm sem | sköpuðust. Björgvin sýndi beztan leik framherja í heild, en Guð- j mundur Óskarsson sem sýndi á köflum mjög fallegan leik í fyrri hálfleik, „hvarf“ í þeim síðari. Grétar er skotfastur og vaxandi j leikmaður. Framverðirnir Ragn- ; ar og einkum þó Guðjón áttu ! mestan þátt í undirbúningi sókn- | arinnar og unnu mjög vel. En : þeir ásamt öftustu vörninni alln ! fundu engin ráð við „4 miðherja" ■ leikaðferð Hafnfirðinga. A. St. Konan mín, móðir okkar og tengdamóðir IIÓLMFRlÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR Langholtsveg 34, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. júlí kl. 1.30. Ingimar Sveinsson, börn og tengdabörn. Jaröarför eiginmanns míns ÞORSTKINS BRANDSSONAR sem andaðist að Sjúkrahúsinu Sólvangi, Hafnarfirði, laugard. 28. júní, fer fram frá Fríkirkjunni föstudaginn 4. júlí og hefst með bæn að heimili hans Álfaskeiði 29 kl. 1.30. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna og annarra vandamanna. Þóra Jónsdóttir. Útlor hjai’LKærs sonar míns og bróður okkar ÞÓRÐAR ÞORSTEINSSONAR Suðurgötu 30, Keflavík, sem lézt 26. f.m. fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 5. júlí kl. 2.45 e.h. Anna Bjarnadóttir og dætur. Útför mannsins míns, föður og tengdaföður ÞÖRÐAR GlSLASONAR frá Stóra-Botni, Bergstaðastræti 39, fer fram frá Dóm- kirkjunni föstudaginn 4. júlí kl. 2 e.h. Sesselja J. Jónsdóttir, Gísli Þórðarson, Laufey Sveinsdóttir, Jórunn Þórðardóttir, Einar Jónsson, Guðbjörg Þórðardóttir, Páll Friðriksson, Kristján Jónsson. Þakka innilega sveitungum og vinum fyrir alla Jpeirra miklu hjálp og samúð við andlát og jarðarför mannsins míns HALLDÓRS ÓLAFSSONAR Saurhóli Fyrir mína hönd og ættmenna hans. Margrét Magnúsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.