Morgunblaðið - 13.09.1958, Blaðsíða 10
10
MORGV1SBLAÐ IÐ
L'augardagur 13. sept. 1958
Utg.: H.f. Arvakur, Reykjavfk.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vign
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðaistræti 6 Simi 22480
Askriftargjald kr 35.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 2.00 eintakið.
KJÖT, MJÓLK, FISKUR OC BRAUÐ
Ifyrradag bættist hækkun á
brauðverði við aðrar
verðlagshækkanir, sem
orðið höfðu í vikunni. Hin nýja
hækkun á brauðverðinu bætist
ofan á aðra, sem varð skömmu
eftir lögfestingu bjargráða ríkis-
stjórnarinnar í vor. Ef báðar
hækkanirnar, sem V-stjórnin
hefur þannig orðið völd að, eru
teknar saman, hækka þær brauð-
verðið um 11%—16%.
Það, sem af er vikunnar, eru
afrek V-stjórnarinnar í verðlags-
málum, því þessi:
Á mánudag hækkaði kjöt um
h. u. b. 12%.
Á þriðjudag hækkuðu mjólkur-
afurðir úr 9% til 32%.
Á miðvikudag hækkaði fisk-
verð frá 10% upp í nær 29%,
og þó raunar mun meira, ef við- !
bótarniðurgreiðsla á saltfiski er!
talin með, því að þá er hækkun
hans 65%. En auðvitað verður í
almenningur að borga pening ,
ana, sem til niðurgreiðslnanna J
fara. Þeir eru af honum teknir j
með hækkuðum sköttum í stað
þess að hið raunverulega verð sé
greitt milliliðalaust.
Á fimmtudag hækkaði brauð-
verð. Hækkanir þess eftir bjarg-
ráðin nema samtals 11%—16%.
Geri aðrir betur á fjórum dög-
um. Hér er þó ekki allt talið,
því að gegn þessu kemur 1,38%
lækkun á kaffi, ekki vegna
nýrra bjargráða V-stjórnarinnar,
heldur af því að kaffiverð á
Brazilíumarkaði hefur lækkað
sem þessu nemur. Víst er góðra
gjalda vert að almenningur fær
að njóta þeirrar lækkunar, en
skammt mun hún draga á móti
öllum hækkununum.
★
Kjöt, mjólk, fiskur og brauð!
Varðar verðlag annarra neyzlu-
vara meira hag hvers einasta
mannsbarns í landinu? Ætli
pyngjan verði ekki mun léttari
hjá margri húsmóðurinni og
heimilisföðurnum næstu mánuð-
ina, á meðan þetta nýja verð
verður að greiða að fullu og eng-
in uppbót fæst i vísitöluhækk-
un?
Auðvitað kemur svo vísitölu-
hækkunin á sínum tíma og verð-
ur ekkert smáræði. En hvort
tveggja er, að allir vita, að vísi-
tölugrundvöllurinn er orðinn al-
rangur, og þó að almenningi veiti
sízt af kauphækkunum, eiga at-
vinnuvegirnir erfitt undir þeim
að standa. Hér er því stefnt út í
meiri ófæru en nokkru sinni fyrr.
★
Hækkanirnar nú ganga og svo
fram af mönnum, að jafnvel
Tíminn treystir sér ekki íengúr
til að þegja um þær. I fyrstu
virtist þó svo, að hann ætlaði sér
að reyna að „eyða“ þeim með
þögn sinni, eins og fleiri óþægi-
legum staðreyndum. Nú hefur
blaðið þó séð, að þögnin mundi
gera skömm mannanna, sem lof-
uðu „varanlegu bjargráðunum"
enn þá meiri en ella, og segir því
loks á föstudag frá því, sem verið
hefur að gerast alla vikuna.
Þögn Tímans var þó virðingar-
verð miðað við það athæfi Eram-
sóknarbroddanna að reyna að
velta sökinni á afleið-
ingum eigin gerða yfir á aðra.
Eysteinn Jónsson, maðurinn, sem
alltaf er að minnka, haíði
brjóstheilindi til þess fyrir
nokkrum dögum að kenna Sjálf-
stæðismönnum um þessa þróun
verðlagsmálanna. Þar vitnaði
hann sérstaklega til þess, að
Sjálfstæðismenn hefðu valdið
kauphækkunum í sumar. í því
sem öðru sneri Eysteinn Jónsson
sannleikanum alveg við.
Það voru kommúnistar og
Framsóknarmenn, sem beittu sér
fyrir fyrstu kaupdeilunum á
þessu sumri. Nægir í því sam-
bandi að minna á samningana við
Skjaldborg og Járnsmiðafélagið.
Sjálfstæðismenn áttu aftur á
móti hlut að máli um það, að
skýrra gagna var aflað frá efna-
hagsmálasérfræðingi ríkisstjórn-
arinnar um, hvort kauphækkun
handa farmönnum væri nauð-
synleg til þess að bæta upp það
misrétti, sem þeir töldu sig öðr-
um fremur hafa orðið fyrir vegna
bjargráða V-stjórnarinnar í vor.
Jónas Haralz taldi ótvírætt, að
svo væri: Að á hlut farmanna
hefði verið gengið meira en ann-
arra.
Um þá yfirlýsingu sérfræðings
stjórnarinnar hefur Tíminn vand
lega þagað. Ef aðrir ættu í hlut,
mundi Tíminn vafalaust fullyrða,
að með því væri verið að gera
leik að því að láta líta svo út
sem kauphækkunin til farmanna
hefði verið fordæmi að almennri
kauphækkun, í stað þess að hún
var einungis til að bæta úr mis-
rétti, sem V-stjórnin hafði beitt
þessa stétt. Hvað vakir fyrir Tím-
anum skal hér ekki sagt. Senni-
lega ræður þar venjuleg skamm-
sýni og ævilöng tregða á bvi að
segja hið sanna.
★
Hvort sem Tíminn og önnur
stjórnarblöð beita að þessu sinni
þögn eða beinum ósannindum til
að reyna að velta sökinni af V-
stjórninni, er það þýðingarlaust.
Stjórnin hefur nú setið í meira
en tvö ár. Henni hefur gefizt
meira en nægur tími til þess að
koma úrræðum sínum í fram-
kvæmd. Tilraunir til að skýla
sér á bak við aðra sanna ein-
ungis lítilmennsku þeirra, sem
það reyna. Gersamlegt úrræða-
leysi valdhafanna var því miður
áður alkunnugt.
Meginorsökin til þess, hvernig
komið er, er sú, að vinstri flokk-
arnir hafa allir í hóp reynt að
dylja staðreyndir efnahagslífsins
fyrir almenningi og véla um fyr-
ir honum. - Með blekkingum sín-
um virðast þeir þó fyrst og
fremst hafa blekkt sjálfa sig með
þeim árangri, að allt, sem þeir
aðhafast, verður til þess að auka
vandræðin, í stað þess að draga
úr þeim.
Tilraunir stjórnarflokkanna til
þess, að draga athygli almenn-
ings frá hinum geigvænlegu
verðhækkunum nú, munu ekki
takast. Á sömu leið er þýðingar-
laust fyrir þá að kenna hver öðr-
um um eða reyna að velta ábyrgð
inni yfir á einhverja aðra.
Sök stjórnarflokkarin er sam-
eiginleg og hvílir á þeim einum.
Áhrif vanefnda og blekkinga
verða ekki með neinu móti um-
flúin. Sá tími mun og koma, að
valdhafarnir verða að gera kjós-
endum reikningsskap gerða
sinna, og þá munu þeir vissulega
skera upp svo sem þeir hafa
sjálfir sáð.
T ungleldflaugin
sett úr 300,000
HVER á himingeiminn? Flestir
mundu sennilega svara: Enginn
sérstakur. Og satt að segja hefur
lögfræðingum enn ekki komið
saman um það á hvaða forsend-
um hægt sé að gera tilkall til
himingeimsins eða einhverra
hluta hans, enda þótt frétzt hafi
um Japana einn, sem að undan-
förnu hefur selt „jarðir“ á Mars
með góðum hagnaði.
★ ★ ★
Allt bendir samt til þess, að
einn góðan veðurdag taki stór-
veldin að deila um himingeim-
inn og um einstaka hnetti. Við
vitum, að Bandarírijamenn hafa
þegar gert eina tiiraun til þess
að skjóta eldflaug til tunglsins,
en mistekizt — og áfram verður
haldið þar til vel tekst. Einnig
er talið fullvíst, að Rússar hafi
þegar gert eina eða fleiri tilraun-
ir, sem farið hafa á sömu lund og
í Bandaríkjunum, en auðvitað
vilja Rússar ekki viðurkenná, að
þeim hafj mistekizt — og segjast
ekki hafa byrjað slíkar tilraunir.
★ ★ ★
Kapphlaupið um fyrstu tungl-
ferðina er því í rauninni hafið —
áður en menn hafa komið sér
saman um það hvernig þjóðum
skuli heimilt að „nema land“
utan jarðar. Auðvitað verður
byrjað á tunglinu og getspakir
menn geta sér til, að sá, sem
fyrstur verður á staðinn geri til-
kall til björtu hliðarinnar, en
hinn síðari verði að láta sér
nægja þá dimmu. Spaugari einn
gat sér þess til, að þá yrði tungl-
inu skipt í „Vestur-Tungl“ og
„Austur-Tungl“. En einn vand-
ann gat hann ekki leyst: Flótta-
mannavandamálið, sem að sjálf-
sögðu yrði þá aðalvandamólið á
tunglinu!
0 En án alls gamans, þá er
þessi fyrsta tilraun Banda-
ríkjamanna vel þess virði, að
henni sé meiri gaumur gefinn en
gert hefur verið, enda þótt í
fljótu bragði virðist ekki vera
um að ræða neitt geysimikið
stökk frá gervitunglaeldflaugun-
um.
Bandaríkjamenn tilkynntu það
samtímis því sem þeir greindu
frá fyrirhuguðum tilraunum, að
ólíklegt væri, að fyrstu tilraun-
irnar tækjust. Hér væri maðurinn
að fara inn á ókunna stigu — og
líkindin til árangurs væru 10%.
★ ★ ★
Það er ekki ætlun bandarísku
vísindamannanna, að geimskeytið
hæfi tunglið sjálft. Þrátt fyrir öll
Síðasta þrep eldflaugarinnar
fer um geiminn með 22,500
mílna hraða á klukkustund. —
Þetta er Thor-eldflaug, sömu
gerðar og notuð verður til
tunglferðarinnar. — Við hana
verður bætt fjórða og neðsta
þrepinu, sem er stærst og afl-
mest, enda hlutverk þess að
koma Thor langleiðina út úr
gufuhvolfi jarðar.
vísindi nútímans er hægar sagt
en gert að miða skeytinu svc, að
það hæfi tunglið — jafnstórt og
tunglið annars er. Fyrsta skeytið
mun flytja mikið af margbrotn-
um mælitækjum, sem eiga að
gefa hinar margvíslegustu upp-
lýsingar um himingeiminn. Það
er til einskis að reyna að telja
upp þær upplýsingar, sem hér er
um að ræða — og nægir að benda
á það, að þessi fjögurra þrepa
bandaríska eldflaug ásamt öllum
mælitækjum og útbúnaði er sett
saman úr 300.000 einstökum hlut-
er sam-
hlutum
um. Ef eitthvert ákveðið tæki eða
hlutur bregzt af einhverjum
ástæðum, þegar skeytinu er skot-
ið — þá getur það kollvarpað til-
rauninni.
0 Tilraunina er aðeins hægt að
gera fjóra daga í mánuði
hverjum, þegar tunglið er næst
jörðu. Og „rétti tíminn“ er aðeíns
fjórar mínútur hvern dag. Ef til,-
raunin tefst af einhverjum ástæð-
um í nokkrar mínútur, þegar
komið er að rétta tímanum, getur
svo farið, að allt verði um seinan
og bíða verði „fjögurra mínútn-
anna“ næsta dag. Og fari einnig
svo síðasta daginn, að einhver
hindrun komi í Ijós á síðustu mín-
útunum, verður að fresta tilraun-
inni um mánuð.
★ ★ ★
Slík er nákvæmnin. En samt er
eldflaugatæknin og geimsiglíng-
arnar ekki komnar hærra stig en
svo, að vísindamennirnir treysta
sér ekki til að miða eldflauginni
nákvæmar en það, að hún fari
framhjá tunglinu einhvers staðar
innan 50.000 mílna fjarlægðar frá
því, ef allt gengur að óskum.
50.000 mílur er enginn smávega-
lengd hjá okkur hér á móður
jörð, en „aðeins millimetfi í
geimnum“ sagði nafntogaður vís-
indamaður á dögunum.
★ ★ ★
Enda þótt vísindamennirnir
bandarísku teldu sig geta miðað
skeytinu á tunglið mundu þeir
ekki gera það í þessari fyrs'tu
tilraun. Eldflaugin með öllum
mælitækjunum eyðilegðist að
sjálfsögðu, þegar hún hæfði tungl
ið. Tilraunin og farmurinn eru
dýrmætari en svo, að skynsam-
legt sé að eyðileggja allt vísvit
andi.
0 Ráðgert er, að fjarstýra eld-
flauginni, þegar hún er kom-
in framhjá tunglinu — og láta
hana beygja — og ganga síðan
umhverfis tunglið, eins og tunglið
gengur umhverfis jörðu. Auðvit-
að er ekkert hægt að segja um
það hvort þessi fjarstýriútbúnað-
ur virkar, þegar fjarlægðin er
orðin svona mikil milli senditæk-
is og móttökutækis. Hér er allt
á tilraunastigi og enginn getur
sagt neitt ákveðið fyrirfram. Ekki
er heldur nein fullvissa fyrir bví,
að senditækin í eldflauginni, sem
eiga að senda allar upplýsingar
til jarðarinnar jaínóðum, séu
nógu sterk — eða, að skilyrði séu
fyrir hendi til þess konar loft-
skeytasendinga um allan geim.
★ ★ ★
Fullvíst er, að vísindamenn
hafa nú mestan áhuga á að fá
upplýsingar um þann hluta
tunglsins, sem frá okkur snýr og
mannlegt auga hefur aldrei séð.
Mjög fullkomið, sterkt og litið
sagt neitt ákveðið fyrirfram.Ekki
ið búið til í þessum tilgangi, —
og er ætlunin að þetta tæki sendi
myndir af öllu tunglinu. Hefur
tunglið segulsvið? Hvert er hita-
stigið? Slíkar og þvílíkar — og
miklu fleiri eru spurningarnar,
sem mennirnir ætla að fá svar
við. Hvort þetta tekst í næsta
mánuði, á næsta ári eða seinna —
því vill enginn spá. En við von-
um, að það verði sem fyrst.
Sennilega verður tunglið ekkert rómantískt í augum fyrstu
tunglfaranna. Svona myndir heilla ekki unga elskendur, aðeins
vísindamennina.
★ HONG KONG, 11. sept. —
Reuter. — Sendiherra kínverska
alþýðulýðveldisins í Júgóslavíu
hefir verið leystur frá störfum.
Engar nánari skýringar hafa
verið gefnar á því, hvers vegna
sendiherrann hættir störfum.