Morgunblaðið - 13.09.1958, Síða 20
VEÐRIÐ
Stinningskaldj og skúrir.
PtrgawWiiMli
208. tbl. — Laugardagur 13. september 1958
SELMA LACERLÖF
Sjá grein á bls. 6.
Vísitöluhækkun um 20 stig
Verðbólguskriðan heldur
stöðugt áfram og vísi-
talan rýkur upp.
Frá því í maí og þar
til í ágúst hækkaði vísi-
talan um 10 stig. En síð-
an í ágúst og þá sérstak-
lega nú á allra síðustu
dögum hefur hver ný
verðhækkunin rekið
aðra, eins og öllum er
kunnugt. Nýtt verð hef-
ur komið á landbúnaðar-
vörurnar, fisk og brauð-
vörur. Er talið af fróðum
mönnum, að eins og nú
horfir, muni þessi hækk-
un ekki nema minna en
öðrum 10 stigum til við-
bótar. Þannig kemur til
20 stiga hækkunar á vísi-
tölunni á þeim stutta
tíma, sem liðinn er, síðan
,,bjargráðin“ svokölluðu
voru samþykkt í vor.
Þetta talar skýru máli
um það, hvernig þróunin
er í verðlagsmálunum,
hvernig verðgildi pening
anna rýrnar og hvernig
lífskjör almennings fara
síversnandi.
Rúrik, Lárus og Helga i hlutverkum sínum.
Rannsókn smyglmálsins lokið
Enn þrjár sýningar hjá
Leikhúsi Heimdallar
Milli 40 og 50 manns hafa komið þar
meira og minna við sögu
HEITA má að í gaerdag hafi ver-
ið lokið hér í Reykjavík yfir-
heyrslum í hinu umfangsmikla
smyglmáli Tungufossmanna. Var
t>á búið að kalla fyrir rannsókn-
ardómara málsins, Guðmund
Ingva Sigurðsson, milli 40 og 50
manns og suma margsinnis. Þá
er það upplýst hverjir eru eig-
endur að 197 spírabrúsum, og
eru það 13 menn. Alls var um 200
brúsum smyglað á land. Verður
málið nú í heild sent dómsmála-
ráðuneytinu til umsagnar, en það
mun gefa sakadómi fyrirmæli um
hve marga skuli ákæra fyrir
beina þátttöku í smyglmálinu eða
eru á einn eða annan hátt við-
riðnir málið.
Þegar yfirheyrzlu lauk í gær,
var búið að skrifa á sjötta hundr-
að blaðsíður í sakadómsbók. All-
ir þeir menn, sem setið hafa í
varðhaldi, hafa nú verið látnir
lausir. En geta má þess, að í sam-
bandi við rannsókn eldri smygl-
mála, sem fram hefur farið sér-
staklega suður í Hafnarfirði, sat
einn maður í varðhaldi í gær,
vegna meintrar þátttöku í tveim-
ur fyrri smyglsendingum með
TungufosSi.
Eins og sagt er frá hér að ofan,
varð upplýst um eigendur að alls
197 spírabrúsum, en alls komu í
leitirnar 159 fullir brúsar. Auk
þess fundust 30 tómir brúsar. Er
ekki vitað með vissu, hvort þeir
tilheyra þessari síðustu smygl-
sendingu eða fyrri „sendingum".
Mennirnir 13, sem sagðir eru
eiga margumrædda 197 spíra-
brúsa, sem smyglað var á land
fyrir nokkrum vikum, er Tungu-
foss kom frá útlöndum, eiga allt
frá 4 brúsum upp í 40 brúsa hver.
Allir voru mennirnir skipverjar á
Tungufossi.
Þá hefur tekizt að upplýsa með
hverjum hætti spíranum var
komið hér á land. Var bátur feng-
inn sunnan með sjó, til að fara
til móts við Tungufoss. Voru fjór-
ir menn á bátnum: Skipstjóri og
hás'eti hans og tveir „fulltrúar"
Tungufoss-manna, er smyglið
áttu. Það hefur komið í ljós, að
ekki var dregið neitt úr ferð
skipsins þá er báturinn kom til
móts við það og stefnu þess var
í engu breytt. — Smyglinu var
varpað fyrir borð, svo sem kunn-
ugt varð þegar í upphafi rann-
sóknarinnar og voru brúsarnir
bundnir saman, 4 og 4 í poka, og
kaðall bundinn á milli pokanna.
Brúsarnir voru ekki alveg fullir,
og vegna loftsins, sem í þeim var,
flutu þeir á sjónum.Spírabrúsun-
um var síðan bjargað upp í bátinn
og farið með aflann til lands.
Fékk skipstjórinn 15.000 krónur
fyrir þennan flutning en háset-
inn 1000 kr. hjá skipstjóranum.
Þess skal getið að „fulltrúar”
Tungufoss-manna munu ekki
hafa átt neitt í smyglfarminum.
Við rannsókn málsins kom
ekkert í ljós, er bent geti til þess
að skipstjórinn á Tungufossi hafi
verið samsekur eða hafi vitað um
þetta athæfi skipverja sinna.
Meðal þeirra voru yfirmenn á þil
fari og í vél svo og hásetar. Höfðu
skipverjar er yfirheyrðir voru
Bæjaráðstefna
á Sauðárkróki
í GÆRKVÖLDI hófst norður á
Sauðárkróki fundur kaupstaða á
Vestur-, Norður- og Austurlandi.
Eru þar 18 fulltrúar samankomn-
ir auk Jónasar Guðmundssonar,
framkvæmdastjóra Sambands
bæja- og sveitafélaga.
Baldur Eiríksson, forseti bæj-
arstjórnar Siglufjarðar og formað
ur undirbúningsnefndar, setti
fundinn og tilnefndi sem fundar-
stjóra Guðjón Sigurðsson, vara-
forseta bæjarstjórnar Sauðár-
króks, og til yara Sigurjón Sæ-
mundsson, bæjarstjóra, Siglu-
firði. Ýmis mál mun fundurinn
láta til sín taka er varða málefni
kaupstaðanna og mun fundurinn
standa fram á sunnudaginn.
Viðurkennir ekki land-
staðhæft að skipstjórinn hafi ekk
ert um smyglið vitað.
Geta má þess að lágmarkssekt
vegna smygls á áfengi er kr. 400
fyrir hvern lítra, en að auki er
svonefnd „persónusekt", sektin
fyrir að brjóta lögin um þetta
efni, sem er kr. 4000.
Ekki kvaðst Guðmundur Ingvi
Sigurðsson, rannsóknardómari,
geta um það sagt á þessu stigi
hve búast mætti við mörgum á-
kærum í sambandi við þetta mál.
Síldarmjölið
hœkkar um
54T«
SÍLDARVERKSMIÐJUR ríkisins
hafa tilkynnt um verðið á síldar-
mjölinu á þessiu hausti. Er verð-
ið miðað við að mjölið sé afhent
i skip i verksmiðjuhöfn og er það
393 krónur hver 100 kg. sekkur,
sé hann tekinn fyrir 15. þessa
mánaðar, en að þeim tíma liðnum
leggjast á það vextir.
I fyrrahaust var síldarmjöls-
verðið, fyrir sama magn 255 kr.
Nemur hækkunin nú frá því í
fyrra 54,1%.
SÝNINGUM á gamanleiknum
„Haltu mér — slepptu mér“ átti
að ljúka um síðustu helgi sökum
starfa tveggja leikaranna við
Þjóðleikhúsið. Nú hefur Þjóðleik
húsið hins vegar góðfúslega veitt
leyfi.sitt til örfárra sýninga enn,
svo að ákveðið hefir verið að
Leikhús Heimdallar taki upp
sýningar að nýju og verður næsta
sýning annað kvöld kl. 8,15 í Sjálf
stæðishúsinu.
Eins og alkunna er hefir leik-
ritið „Haltu mér — slepptu mér“
verið sýnt við mjög góðar undir-
tektir, bæði hér í Reykjavík og
úti um land og hefir verið upp-
selt á flestar sýningarnar. Alls
Albert kominn úr
„eldlínunni44
VARÐ- og björgunarskipið Al-
bert kom hingað til Reykjavíkur
seint í gærkvöldi. Hefur Albert
verið úti í 12 sólarhringa og ver-
ið stöðugt „í eldlínunni" út af
Vestfjörðunum. f fjölda erlendra
blaða hafa birzt myndir af Albert
þar sem hann verður að sveigja
undan brezku herskipi sem er
margföld stærð Alberts, og kem-
ur öslandi í kjölfar varðbátsins.
hefir leikritið verið sýnt 36 sinn-
um og ætíð við jafnmikinn
fögnuð áhorfenda. Ekki verður
unnt að hafa fleiri en þrjár
sýningar og má því búast
við, að færri komist á þessar
sýningar en vilja, og er því
ástæða til að hvetja fólk til þess
að tryggja sér miða í tíma.
Aðgöngumiðasölu verður þann
ig háttað, að miðar verða seldir
kl. 2—4 daginn fyrir sýningu og
frá kl. 2 sýningardagana.
Rússneskur
togarisást
f GÆRDAG sást hér við larid til
ferða verksmiðjutogara austan
frá Rússiandi. Er hér um að ræða
2000 tonna skip, og er togari þessi
skutbyggður, þ. e. a. s., tekur
vörpuna inn um skutinn. Ekki var
talið að togarinn myndi vera á
leið á íslandsmið, heldur myndi
hann vera á leið til Nýfundna-
landsmiða. Var togarinn út af
suðurströndinni og á leið vestur
með landinu.
Tékkneskir
Fiskuðu í dauðum sjó út
af Austfjörðum
Eastbourne var hér enn i gær
í GÆRKVÖLDI var vitað um 16
brezka togara, sem voru að veið-
um fyrir innan fiskveiðitakmörk-
in. Voru níu þeirra út af Vest-
fjörðum og sjö út af Austfjörð-
um. Þar voru auk þess 5 togarar
fyrir utan línuna. Þeir, sem voru
fyrir innan, voru í algeru afla-
leysi og höfðu verið með 2—5
körfur í „hali“. Sumir létu reka
og voru togaramenn undir þilj-
um.
Herskipið HMS Eastbourne var
enn hér við land seinnihluta dags
í gær. Var það út af Vestfjörð-
ur yfir brezkum landhelgisbrjót-
um þar. En heyra mátti á við-
skiptum þess við nærstadda tog-
ara að herskipið myndi mjög
bráðlega vera á förum héðan.
Síðdegis í gær var birgðaskip
herskipanna brezku, Black Rang-
er út af Norðfirði og var sýnilega
á heimleið. Er ekki vitað að ann-
að birgðaskip sé nú á leiðinni.
styrkir
r
RÍKISSTJÓRN Tékkóslóvakíu
hefur boðið fram styrki til há-
skólanáms þar í landi veturinn
1958/9. Hefur menntamálaráðu-
neytið lagt til, að Hallfreður Örn
Eiríksson, cand. mag., hljóti styrk
inn til nóms í slavneskum fræð-
um og Haukur Jóhannsson stú-
dent, til verkfræðináms, en hann
hlaut einnig námsstyrk frá Tékkó
slóvakíu síðastliðinn vetur.
(Frá menntamálaráðuneytinu).
Styðja Danir einhliða út-
fœrslu í 12 mílur við
Fœreyjar ?
helgisbreytinguna
PARÍS, 12. september. — Einka-
skeyti frá Reuter. — Franska
utanríkisráöuneytið birti i dag
yfirlýsingu þar sem sagði m.a.
Síðustu vikurnar hafa nokkur
ríki tilkynnt þá ákvörðun sína
eða áform um að færa út land-
helgi sína eða áskilja sér einka-
rétt til fiskveiða á ákveðnum
svæðum utan hefðbundinnar
viðurkenndrar þriggja mílna
landhelgi. Franska stjórnin gerir
kunnugt, að hún getur ekki við-
urkennt ákvarðanir um breyting
ar á almennt viðurkenndum land
helgismörkum hvort sem um er
að ræða einhjiða aðgerðir eða
samninga, sem franska stjórnin
á ekki aðild að
Hlíf mótmælir
verðhækkunum
FUNDUR stjórnar og trúnaðar-
ráðs V.m.f. Hlífar, sem haldinn
! var 10. sept. sl., mótmælti
harðlega hinum gifurlegu hækk-
unum á landbúnaðarafurðum og
fiski og telur hér vera um mikla
kjararýrnun að ræða.
Ósfaðfest frétt fœreyska útvarpsins
Í FRÉTTATÍMA Ríkisútvarpsins kl. 10 í gærkveldi var flutt sú
írétt samkv. einkaskeyti útvarpsins frá Þórshöfn í Færeyjum, að
færeyska útvarpið hefði skýrt svo frá í sambandi við umræður
Dana og Breta um landhelgismálin í Lundúnum, að danska stjórn-
in mundi framkvæma einhliða útfærslu fiskveiðilandhelginnar í
12 mílur í samræmi við ákvörðun lögþingsins, ef ekki næðist
jákvæður árangur af viðræðufundunum í Lundúnum. Hafði út-
varpið í Færeyjum þessa fregn eftir aðilum, sem málunum eru
kunnugir, en lögð var áherzla á það í skeytinu til útvarpsins, að
fréttin væri óstaðfest. —