Morgunblaðið - 25.09.1958, Síða 3
Fimmtudagur 25. sept. 1958
MORCVTSBL 4 ÐÍÐ
3
:: bridce ::
AÐALFUNDUR Tafl- og bridge-
klúbbsins var haldinn í Sjó-
mannaskólanum fimmtudaginn
18. þ.m. Formaður félagsins,
Sófus Guðmundsson, setti fund-
inn, en fundarstjóri var kjörinn
Hjörtur Elíasson og fundarritari
Þórður H. Jónsson. Fundurinn
var vel sóttur og kom fram mikill
áhugi hjá félagsmönnum.
Virkir meðlimir félagsins eru
nú á annað hundrað manns og er
fjárhagur félagsins mjög góður.
Á fundinum lágu fyrir all
miklar lagabreytingar um starf-
semi og fyrirkomulag félagsins
og var á fundinum kosin nefnd til
að starfa að þessum málum og
var einnig ákveðið að halda fram
haldsaðalfund innan eins mán-
aðar, og átti nefndin þá að skila
störfum.
Núverandi stjórn skipa eftir-
taldir: Sófus Guðmundsson, for-
maður, Ragnar Þorsteinsson,
Þórður Jónsson, Björn Benedikts
son, Þórður Elíasson.
Vetrarstarfsemi Tafl- og
bridgeklúbbsins hefst í kvöld í
Sjómannaskólanum og fer þá
fram almenn tvímenningskeppni.
Aðalfundur Bridgefélags
kvenna var haldinn föstudaginn
19. þ.m. Formaður félagsins,
Rósa ívarsdóttir, setti fundinn
en fundarstjóri var kjörinn Rann
veig Þorsteinsdóttir og fundar-
ritari Kristjana Steingrímsdóttir.
Meðlimir félagsins eru nú um
hundrað, og er fjárhagur félags-
ins góður, enda hefir starfsemi
félagsins verið mjög öflug og
fjölbreytt. íslenzk kvennasveit
var nú send á Evrópumót í fyrsta
sinn og náði all góðum árangri
og sýndi hve miklar framfarir
hafa orðið hjá félagskonum.
Vetrarstarfsemin verður senni-
lega með líku sniði og verið hefir
undanfarin ár og hefst vetrar-
starfsemin sennilega um næst-
komandi mánaðamót og verður
Enginn hörgull á sementi
Afgreiðslan i Reykjavikurhöfn stendur
til bóta meö sementspakkhúsi
MEÐAL þeirra, sem standa í
húsbyggingum í Reykjavík,
hafa heyrzt nokkrar óánægju-
raddir að undanförnu með
sementsafgreiðsluna frá Akra-
nesverksmiðjunni. Segja menn
í þeirra hópi að sementsflutn-
ingurinn frá skipi í Reykjavík
urhöfn hafi verið mjög kostn-
aðarsamur, vegna þess að
vörubílarnir hafi orðið að
bíða í löngum röðum. Var
þetta einkum áberandi, þegar
ein Hvalfjarðarferjan kom til
bæjarins hlaðin sementi.
Jón E. Vestdal, forstjóri sem-
entsverksmiðjunnar sagði Mbl.
hins vegar í gær, að hann sé í
e'ngum vafa um það að verk-
smiðjan geti auðveldlega full-
nægt þörfum Reykvíkinga, svo að
afgreiðslan muni brátt komast 1
lag.
Byrjunarörðugleikar
Það sem hefur valdið erfiðleik-
um að undanförnu er þetta:
0 Sementsskipið Dacia bil-
aði og gat ekki sinnt
flutningunum. —
^ Fólk í Reykjavík óttað-
ist, áður en Dagsbrúnar-
samningarnir tókust, að verk-
fall myndi skella á og menn
voru því taugaóstyrkir.
@ Ekki hafði tekizt áður
en til þessara atburða
kom að safna birgðum í
Reykjavík. Smápantanirnar
hafa því tafið afgreiðslu úr
skipum í Reykjavíkurhöfn,
sagði Jón.
Smápantanir afgreiddar úr
pakkhúsi.
Þetta stendur nú allt til bóta,
hélt hann áfram. Dacia er kom-
in úr viðgerð. Hún fór fyrstu
ferðina í morgun (miðvikudag).
hafi verið flutt á bílum frá Akra-
nesi til Reykjavíkur?
— Ég hef heyrt um eitt eða
tvö tilfelli, svaraði Jón E. Vest-
dal. í þeim báðum stóð þannig
á að kaupendurnir höfðu bíl uppi
á Akranesi og notuðu ferðina sem
til féll til sementsflutnings.
300 tonna notkun á dag
— Hvað þarf Reykjavík mikið
sement á dag?
— Við gerðum athugun á þvi
í sumar, að þegar sementsnotkun
in væri mest, gæti hún nálgast
300 tonn á dag. Við höfum sent
mest 300 tonn á dag. Stærsta send
ingin með Daciu var 312 tonn.
Um hörgul á sementi verður
ekki að ræða, hélt dr. Jón E. Vest
dal áfram. Áður en Dacia bilaði
var markaðurinn hérumbil mett-
aður og nú liggja fyrir pantanir
um 2—300 tonn. Eftirspurnin var
mest rétt áður en menn héldu að
verkfall myndi skella á. Þá
leigðum við Hvalfjarðarferjuna
og sendum hana eina ferð með
308 tonn af sementi.
Nóg til áramóta
— Eigið þið til nóg hráefni og
sement fyrir næstu vikur og mán
uði?
— Já og meira en það. Við eig-
um nú 2000 tonn af sementi í
geymslum og 20 þúsund tonn af
sementsgjalli. Sementsnotkun
það sem eftir er af árinu verður
ekki meiri en um 25 þúsund tonn.
Dacia siglir nú á hverjum virk
um degi milli Akraness og
Reykjavíkur. Hún kemur til
Reykjavíkur fullhlaðin kl. 8 á
morgnana og klukkan 6 síðdegis
er hún komin tóm upp á Akra-
nes og er hlaðin þar um nóttina.
Fram að þessu hefur sements-
verksmiðjan á Akranesi afgreitt
um 12 þúsund tonn en þar af hafa
um 7200 tonn farið til Reykjavík-
ur, sagði Jón E. Vestdal að lok-
um.
Þegar sementið kom um það leyti, sem menn óttuðust að
verkfall væri að skella á, myndaðist biðröð vörubíla við höfn-
ina, eins og myndin sýnir.
Þá höfum við fengið til afnota
vörugeymslu við austurhöfnina.
Úr henni verða héðan í frá af-
greiddar pantanir, sem eru minna
en 2 tonn. Afgreiðslan úr skipinu
ætti því að ganga be.tur, þegar
aðeins stærri pantanir verða af-
greiddar frá skipshlið.
— Hefur það komið fyrir með-
an Dacia var biluð, að sement
eins og áður í Skátaheimilinu við
Snorrabraut.
Núverandi stjórn er þannig
skipuð: Rósa ívarsdóttir, formað-
ur, Eggrún Arnórsdóttir og Guð-
rún Bergsdóttir. Varastjórn skipa
þær Margrét Ásgeirsdóttir og Sig
urbjörg Ásbjörnsdóttir.
Spilið, sem hér fer á eftir er
einkar skemmtilegt og vinnst
sögnin á óvenjulegan hátt. Sumir
erlendir bridgespilarar segja, að
í spili þessu komi fram „óvenju-
legasta svínun í bridgesögunni“.
y 7 4 2
♦ G 7 3 2
♦ K D 3
A G 8 7 6 3 A 9 3
V G N V 10 5 3
♦ 8 V A ♦ D 10 9 4
* Á 10 9 7 S 4» G 6 5 4
3 2
♦ ÁK2
V Á K D 9 8 6
♦ Á K 6 5
Suður er sagnhafi og spilar 6
hjötu. Vestur spilar út hjarta
gosa. Suður drepur og tekur tvo
slagi til viðbótar á tromp og vest-
ur kastar laufi og spaða. Næst
spilar hann út tígulás og kóng
og vestur kastar laufi í seinni
tigulinn. Nú virðist sem suður
verði að gefa tvo slagi á tígul, en
þó er einn möguleiki eftir. Það
hefur komið í Ijós að vestur átti
í byrjun ellefu svört spil. Ef
meðal þeirra eru spaðagosinn
og laufásinn er hægt að vinna
spilið. — Nú tekur suður á spaða
ás, síðan lætur hann út spaða 2,
svínar tíunni. Nú kemur laufa-
kóngur frá blindum og spaðakóng
er kastað í hann. Nú er sama
hvað vestur lætur út, suður kast-
ar tveim tíglum í laufadrottningu
og spaðadrottningu.
Vegna bilunar sementsflutningaskipsins Dacia var Hvalfjarðar-
ferjan Ieigð til að flytja einn farm, 308 tonn, frá Akranesi til
Reykjavíkur. Mynd þessi, sem Ijósmyndari Mbl. hefur tekið,
sýnir er ferjan var affermd í Reykjavíkurhöfn.
Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni falið
eitirlit með banni við tilraunum
með kjarnorkuvopn ?
VÍNARBORG, 22. sept. — NTB.
1 — AFP. — Annar aðalfundur
Alþjóða kjarnorkumálastofnun-
arinnar hófst í Vínarborg í dag.
Fundinn sitja 400 fulltrúar frá
69 ríkjum. Formaður indónesisku
nefndarinnar var einróma kjör-
inn forseti fundarins. Hefir hann
verið formaður sendinefndar hjá
SÞ og tók þátt í undirbúningnum
að stofnsetningu Alþjóða kjarn-
orkumálastofnunarinnar.
í Reutersfregn er það haft eftir
góðum heimildum í Vínarborg,
að Alþjóða kjarnorkumálastofn-
uninni verði falið eftirlit með
stöðvun tilrauna með kjarnorku-
vopn, ef ráðstefnan, sem hefjast
á í Genf 31. okt., gerir samning
þar að lútandi. Ef svo fer, verð-
ur kjarnorkumálastofnuninni fal
ið tæknilegt eftirlit, en hin póli-
tíska hlið málsins verður ftir-
látin SÞ.
Austurríski forsætisráðherrann
Júlíus Raab hélt ræðu við opnun
fundarins og sagði m.a., að kjarn
orkan myndi á komandi árum
hjálpa mannkyninu í baráttunni
gegn sjúkdómum og fátækt. Við
verðum aðeins að gæta þess að
nota hana á réttan hátt, sagði
Raab.
Fjölmennasta sendinefndin er
frá Bandaríkjunum, og formaður
hennar er ráðgjafi Eisenhowers
Bandarikjaforseta í kjarnorku-
málum, Lewis Strauss. Ýmsar
stofnanir, sem heyra undir SÞ,
hafa sent áheyrnarfulltrúa
STAKSTEINAR
Misnotkur
Alþýðusambandsins
Alþýðublaðið birtir í gær
grein, þar sem misnotkun komm
únista á Alþýðusambandinu
ásamt kosningum til Alþýðusam-
bandsþings er rædd á hispurslaus
an hátt. Segir þar m.a.:
„í þeim kosningum til Alþýðu-
sambandsþings, er nú standa yfir,
stendur baráttan um það, hvort
kommúnistar eiga áfram að fara
með völd í Alþýðusambandinu
eða hvort losa eigi verkalýðssam-
tökin undan yfirráðum þeirra. í
því sambandi er vert að minnast
þess, að kommúnistar hafa mis-
notað aðstöðu sína í Alþýðusam-
bandinu á hinn herfilegasta hátt,
síðan þeir komust þar til valda
1954. Hámark misnotkunar
kommúnista á Alþýðusamband-
inu var það, er þeir létu mið-
stjórn sambandsins samþykkja
það, að Alþýðusambandið skyldi
beita sér fyrir stofnun „kosninga-
samtaka“, eins og það var kallað.
Leiddi það ævintýri til þess, að
nokkrir kommúnistar, er fóru
með stjórn Alþýðusambandsins,
lýstu því yfir, að verkalýðssam-
tökin styddu ný kosningasamtök
kommúnista, Alþýðubandalagið
svokallaða. Þessa yfirlýsingu
gáfu kommúnistar fyrir hönd
nær 30 þúsund meðlima Alþýðu-
sambandsins, manna, sem eru af
öllum stjórnmálaflokkum. Hefur
þvílík misnotkun á verkalýðssam
tökunum aldrei átt sér stað fyrr
né síðar“.
Treysta á Framsókn
Þessi ummæli Alþýðublaðsins
hafa vissulega við fyllstu rök að
styðjast. Kommúnistar hafa mis-
notað Alþýðusambandið gróflega,
og munu halda áfram að gera
það, ef þeir fá aðstöðu til þess.
Eina von kommúnista nú, er að
Framsóknarmenn í verkalýðsfé-
lögunum hjálpi þeim til þess að
halda meirihluta á Alþýðusam-
bandsþingi. Framsókn gamla er
að vísu nærri fylgislaus innan
verkalýðssamtakanna. En hún
fær þó vanalega kosna örfáa full-
trúa á Alþýðusambandsþing. Her
mann Jónasson hefur lofað Hanni
bal Valdimarssyni því, að þessir
fulltrúar muni styðja hann. Gegn
því hefur Hannibal lofað Her-
manni, að hin nýja Alþýðusam-
bandsstjórn skuli styðja vinstri
stjórnina og Eystein til þess að
Ieggja á nýja skatta og tolla.
Á síðasta Alþýðusambands-
þingi var að vísu gerð hátíðleg
samþykkt um það, að dýrtíðarráð
stafanir, sem fælu í sér nýjar
álögur á þjóðina, mætti alls ekki
gera. En félagsmálaráðherrann
var ekki fyrr laus við fulltrúana
á Alþýðusambandsþingi en hann
hjálpaði Eysteini Jónssyni til
þess að leggja nokkur hundruð
milljónir króna í nýjum sköttum
og tollum á launþegana.
Nýir skattar
Svona heldur forseti Alþýðu-
sambandsins, félagsmálaráðherr-
ann, formaður Alþýðubandalags-
ins, sem ekki þorði að útskýra
málstað íslands í landhelgismál-
inu á verkalýðsþinginu í Bret-
landi, vel orð sín við verkalýðinn.
Hann Iætur sér ekki nægja að
svíkja síðasta Alþýðusambands-
þing. Áður en komandi þing er
byrjað, er Hannibal farinn að
semja við Eystein um nýja skatta
og tolla á almenning í Iandinu.
Það er sannarlega engin furða,
þótt Hermann og Eysteinn láni
Hannibal nokkur Framsóknarat-
kvæði á Alþýðusambandsþingi
til þess að freista þess að fá hann
kjörinn. Svo dyggilega hefur
hann gengið erinda skattráns-
stefnunnar, sem haft hefur í för
með sér stórfellda lífskjaraskerð-
' ingu.