Morgunblaðið - 25.09.1958, Blaðsíða 20
Ógnaröld í Frakklandi
Sjá bls. 11.
í göngunum á Gnúpverjaafrétti var allgott veður nú á þessu hausti. En skammt var oft í regn-
skúrirnar og stundum skullu þær yfir. Hérsést hvar ein skúrin nálgast, en sólargeislarnir reyna
að brjótast gegnum úlfgrátt regnskýið. — Sjá grein á bls. 8.
„Ég héit að það væri komið stríð!"
sagði ytirmabur varnamáladeildar, er
hann sá herflutninga varnarliðsins
Fatlað fólk œtlar að
stofna landssamtök
Hér r bœnum verður félag siofnað
annað kvöld
FATLAÐ fólk hér í Reykjavik
Á ÞRIÐJUDAGINN varð fólk í
nágrenni Reykjavíkur vart við
miklar bílalestir varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli, sem voru á
leiðinni frá Hvalfirði og suður á
Reykjanes. í lestum þessum voru
m. a. margir stórir vörubílar og
drógu sumir fallbyssur á eftir
sér.
Tómas Árnason, sem er deild-
arstjóri varnarmáladeildar, átti
viðtal við stjórnarblaðið Þjóð-
viljann, sem birti fregn um þessa
herflutninga á forsíðu í gær.
í viðtalinu er Tómas spurð-
ur:
— Gefur varnarmáladeild
nokkra skýringu á herflutningum
þessum?
Tómas svarar:
— Enga skýringu aðra en þá,
að þeir hafa ekki farið fram
með samþykki okkar, og að varn-
armáladeild hefur þegar gert ráð
stafanir til að hafa samband við
rétta aðilja, svo að slíkt sem
þetta endurtaki sig ekki.
Síðar í samtalinu skýrir deild-
„Hausti“ Kristjáns
Albertssonar
%
vel tekið
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hafði í gær
frumsýningu á leikritinu„Hausti‘’
eftir Kristján Albertsson rithöf-
und. Leikstjóri var Einar Páls-
son. Leiksýningunni var ágæt-
lega tekið og voru leikendur, leik
stjóri og höfundur leikritsins
kallaðir fram hvað eftir annað
í leikslok. Leikhúsið var þétt-
skipað áheyrendum. Voru for-
setahjónin meðal leikhúsgesta.
Þetta er fyrsta leikritið, sem
Þjóðleikhúsið frumsýnir á þessu
hausti.
arstjóri varnarmáladeildar svo
frá, að hann hafi ekki haft hug-
boð um þessa herflutninga, fyrr
en hann sá bílalestina á Hafn-
arfjarðarveginum, er hann átti
leið þar um.
Síðan hefur stjórnarblaðið
Þjóðviljinn eftirfarandi um-
mæli eftir Tómasi Árnasyni
deildarstjóra:
— Þegar ég sá þetta hélt ég að
komið væri stríð.
Tómas sagði, að það hefði
aldrei átt sér stað fyrr, að her-
flutningar í stórum stíl færu
fram á aðalþjóðvegum landsins
þann hluta dagsins, sem umferð
væri mest og án þess að leitað
hefði verið til þeirra aðilja ís-
lenzkra, sem með mál þessi færu.
„Slíkt verður áreiðanlega ekki
leyft í framtíðinni“, sagði deild-
arstjórinn og hélt enn áfram:
„Ég veit ekki hvort hér er um
samningsbrot að ræða af hálfu
Bandaríkjamanna, skal ekkert
um það segja að svo stöddu,
sagði Tómas. Það sem herinn
átti að gera, var að tilkynna
Birni Ingvarssyni lögreglustjóra
á Keflavíkurflugvelli um flutn-
inga þessa en síðan hefði hann
gert þær ráðstafanir sem nauð-
synlegar hefðu þótt, t. d. í sam-
bandi við umferðarstjórn, en
Bandaríkjamönnunum var alls
ekki leyfilegt að taka stjórnina í
sínar hendur og á eindæmi sitt.
Tómas Árnason segir að lok-
um ,að bandaríski herinn muni
samkvæmt samningum hafa leyfi
til herflutninga á þjóðvegum úti
séu samráð höfð við íslenzka að-
ila um þá, en fram til þessa hafi
allir slíkir meiriháttar flutningar
farið fram að nóttu til, þegar um-
ferðin er minnst á vegunum.
Ekki ætlað til birtingar
Mbl. sneri sér til Tómasar Árna-
sonar í gær og spurði hvort um-
mælin í kommúnistablaðinu
væru rétt höfð eftir honum. Hann
kvað þau myndu vera efnisiega
rétt. Hins vegar, sagði hann, að
blaðamanni Þjóðviljans, sem
hringdi til hans, myndi hafa vcr-
ið Ijóst, að þau voru ekki ætluð
til birtingar og enn síður mættu
ummælin skiljast sem nein opin-
ber yfirlýsing fyrir hönd varn-
armáladeildar. Ummælin um að
hann hefði haldið að komið væri
stríð, kvaðst Tómas hafa sagt I
gamni og hlyti blaðamanninum,
er við hann talaði, að vera það
Ijóst.
Tómas útskýrði þetta mál
þannig, að venjulega væri það
lögreglustjórinn á Keflavíkur-
flugvelli, sem fengi tilkynningu
frá varnarliðinu um herflutn-
inga. Ef þeir færu fram um ná-
grenni Reykavíkur væri lögreglu
stjóranum í Reykjavík gert að-
vart um það. Til dæmis væri það
venja, að þegar sprengiefni á veg
um varnarliðsins væri flutt um
Reykjavíkurhöfn, stæðu íslenzkir
lögreglumenn vörð um flutninga
leiðina.
Eigi kvaðst Tómas vilja leyna
því, að þeir í varnarmáladeixd
væru mjög óánægðir yfir því,
að varnarliðið hefði framkvæmt
þessa herflutninga án undanfar-
ins leyfis, sérstaklega að setja
vopnaða verði meðfram veginum.
Ráðuneytið hefur falið lögreglu
sjóranum á Keflavíkurflugvelli
að afla nánari upplýsinga um
málið.
LEIGUBÍ LST J ÓRI einn hér í
Reykjavík hefur verið sektaður
um 12.500 krónur fyrir að hafa
selt áfengi og fyrir að hafa það
undir höndum í bíl sínum til
sölu.
Þetta gerðist hér í bænum í
fyrrakvöld, milli klukkan 7 og 8.
Þá komu tveir ungir menn, báðir
innan við tvítugt, inn á lögreglu-
stöðina. Þeir báru upp erindi sitt
við varðstjórann, en það var að
kæra leigubílstjóra fyrir að
hafa selt þeim áfengi. Höfðu þeir
keypt það í bíl hans fyrir 170
kr. og afhentu þeir varðstjóra
flöskuna. Piltarnir sögðu lögregl-
I unni frá því hvaða bil um væri
að ræða og einnig frá því hvar
í miðbænum bíllinn væri á þeirri
stundu.
hefur unnið að því í sumar að
ganga endanlega frá stofnun fé-
lags, er vinni alhliða að hvers-
konar hagsmunamálum fatlaðs
fólks og áhugamálum þess. Er
nú svo komið að stofnfundiir fé-
lagsins verður haldinn á morgun
kl. 8,30 síðd. í Sjómannaskólanum
og hefur stjórn félagsins beðið
blöðin að hvetja alla þá, er fatl-
aðir eru til þess að mæta á þess-
um fundi, en formaður stjórnar-
innar, Sigursveinn D. Kristins-
son, sagði í gærdag, að eftir því
sem næst væri komizt við laus-
lega athugun myndu vera hér í
Reykjavík um 100 manns, sem
væri meira og minna fatlaðxr. ■—
Félag þessa fólks ber nafnið
Sjálfsbjörg.
í sumar er leið, á undirbún-
ingsfundi, er lög væntanlegs fé-
lags voi'u samþykkt og stjórn
þess kosin, voru mættir um 80
manns.
í gærdag ræddu blaðamenn við
nokkra stjórnarmenn félagsins,
er gátu þess að félag'þetta myndi
hafa nóg að starfa og væri þá
fyrst að nefna að koma upp hús-
næði fyrir starfsemina, því það
er hugmynd okkar, sagði Sig-
ursveinn að stofna til landssam-
taka fatlaðs fólks. í þessu hús-
næði yrði þjálfunarstöð og vinnu
skóli. Þar væri æskilegt, að geta
látið fólk utan af landi búa, er
það væri til dvalar í þjálfunar-
stöðinni. Við þurfum að vinna
að leiðréttingu mála öryrkjanna,
sem sviptir eru öryrkjastyrk frá
því opinbera að meira eða minna
leyti, ef þeim tekst að afla sér
lítilsháttar tekna, sagði Sigur-
sveinn.
Á Siglufirði er búið að stofna
slíkt félag með aðild 40—60
manna, á ísafirði og Akureyri er
stofnun félaga í undirbúningi og
þannig verður að því stefnt að
Sjálfsbjargarfélög verði í öllum
kaupstöðum landsins, er stundir
líða fram.
Félagið hefur fengið leyfi til
merkjasölu einn sunnudag árlega.
Að þessu sinni er merkjasölu-
FREGNIR berast nú af hinum
svonefndu „Nýju Fylkismiðum"
um að veiðin þar hafi glæðzt á
ný. í fyrradag hafi verið þar
mjög góð veiði.
Karfaaflinn á þessum slóðum
hafði minnkað mjög í síðustu
Ennfremur skýrðu piltarnir
frá því, að þeir hefðu í „höndun-
um“ sönnunargögn, máli sínu til
stuðnings: Voru það númer þeirra
peningaseðla er þeir höfðu borg-
að bílstjóranum áfengið með.
Lögreglan brá þegar við og fann
brátt bíl og bílstjóra. í bílnum
var gerð áfengisleit og fundust
í honum 18 flöskur af áfengi.
Við rannsókn og athugun á
peningaseðlum þeim er fundust
í fórum bílstjórans, kom í Ijós,
að seðlanúmerin voru hin sömu
og piltarnir höfðu gefið upp við
lögregluna. Var bílstjórinn þegar
handtekinn.
Leigubílstjórinn játaði brot sitt
og var hann sektaður um kr.
12.500 fyrir lögbrot þetta, sem
fyrr greinir, og áfengið gert
upptækt.
dagur félagsins sunnudaginn 26.
október. Heitir félagið á alla vel-
unnara sína að kaupa merki þess
dags.
Einnig verður haldinn bazar til
ágóða fyrir félagið og verður leit-
að til fyrirtækja og verzlana í
bænum um framlög.
Það fólk, sem hefur áhuga fyrir
málefnum Sjálfsbjargar getur
gerzt styrktarfélagar. Er þeim
veitt móttaka í verzluninni Roða
á Laugavegi 74:
Formaður félagsins er Sigur-
sveinn D. Kristinsson, ritari Theó
dór. Jónsson, Skeggjagötu 23,
gjaldkeri Zophonías Benediktsson
Faxaskjóli 16, meðstjórnendur
Gils Sigurðsson, Kjartansgötu 8
og Edda Bergmann Guðmunds-
dóttir, Þormóðsstöðum, Skerja-
firði.
Hvergi orðið vart
við veiki í sauðfé
YFIRSTJÓRN sauðfj árveikivarn
anna skýrði Mbl. svo frá í gær,
að henni hefði enn sem komið er
ekki borizt nein tilkynning um
vexki í fé því sem undanfarið
hefur verið rekið af fjalli.
Á hverjum degi hafa sauðfjár-
veikivarnirnar látið birta gangna
mönnum og réttarstjórum til-
kynningu um að gera tafarlaust
viðvart og grípa þá til nauðsyn-
legra ráðstafana, ef vart verður
við kindur, sem virðast vera veik
ar.
Réttum er nú að ljúka að þessu
sinni, er t.d. búið að rétta .vestur
í Syðri-Dölum, en einmitt þar var
helzt óttast að veikinnar myndi
nú aftur verða vart. Sama máli
gegnir um féð í Þverárrétt í Staf-
holtshreppi.
Að vísu er ekki enn gengið
endanlega úr skugga um hvort
mæðiveikinnar hafi hvergi orðið
vart, en víst er að helzt myndi
veikin hafa komið fram nú í
göngunum, ef hún hefði stungið
sér niður.
] viku, og það jafnvel svo, að tog-
I ararnir voru farnir að leita að
fiski á öðrum slóðum, t. d. við
Grænland. Þar var lítill fiskur.
Munu togarar sem voru við Græn
land hafa hraðað för sinni á Nýju
Fylkismið.
★
Togarinn Fylkir er nú í öðrum
leiðangri á Nýfundnalandsmið-
um að leita karfamiða. Hafði
hann í fyrradag fengið góðan afla
og fallegan karfa, nokkurn spöl
frá Nýju Fylkismiðum. Er verið
að rannsaka þessi mið nánar og
því ekki að svo stöddu neinu sleg-
ið föstu um að tekizt hafi að
finna ný karfamið á þessum vest-
lægu miðum.
Sæmundur Auðunsson er skip-
stjóri á Fylki í þessum leiðapgri,
sem hinum fyrri, og með honum
er Jakob Sigurðsson sem er karfa-
sérfræðingur Fiskideildarinnar.
Prentmyndasmiðir
I GÆR fór fram kosning full-
trúa á þing Alþýðusambands ís-
lands í Prentmyndasmiðafélagi
íslands. Kjörinn var Sverrir
Gíslason. Varafulltrúi Jón Stef-
ánsson.
Filfur komu upp um sprútisulu
Karfaaflinn glœðist á ný