Morgunblaðið - 08.10.1958, Blaðsíða 3
Miðvik'udagur 8. okt. 1958
MORCVTSBL 4 ÐIÐ
3
íslenzk stúlka fékk
kristilegri samkomu
E: á förum suður á Filabeinsströndina
til kristnihoðsstarfa
köllun á
í Brussel
A SÍÐASTLIÐNU hausti var ís-
lenzk stúlka, sem dvalizt hefir er-
lendis nokkur undanfarin ár, á
mjög fjölmennri kristilegri sam-
komu, er haldin var suður í
Brússel. Hún hlýddi þar á ræðu,
sem formaður kristniboðsfélags,
er starfar suður á Fílabeinsströnd
inni í Vestur-Afríku, hélt. „Það
var sem ég heyrði hina voldugu
upp kristniboðsstarf á Fílabeins-
ströndinni. Þessi stúlka heitir
Halla Bachman dóttir Hallgríms
Ijósameistara í Þjóðleikhúsinu.
Er tíðindamaður blaðsins
spurði Höllu um aðdragandann
að því, að hún hefir nú gerzt
kristniboði meðal hinna frum-
stæðu þjóðflokka í Afríku, komst
hún m.a. svo að orði, að vorið
H illa Bachmann, sem er útlærff af Fóstruskólanum, á allmörg
„fósturbörn“ hér í Reykjavík, frá þeim árum, er hún var fóstra.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.).
Guðsrödd, sem kallaði mig þang-
að suður til starfs fyrir sig úti á
akrinum hvíta, því að enn eru
orð Krists tímabær, er hann
sagði: Uppskeran er mikil, en
verkamennirnir fáir“. — Þannig
komst þessi íslenzka stúlka að
orði í samtali við Mbl. í gær. Hún
er senn á förum til að taka
Rússar mótmæla
1949 hafi hún komizt í kynni við
hinn lifandi Krist í gegnum
starfsemi K.F.U.M. og K. hér í
bænum.
Árið 1951 fór hún til Belgíu,
þar sem hún innritaðist í Biblíu-
skóla í Brússel og var þar við
nám í 2 ár. Hún kvaðst hafa
haft litla undirstöðumenntun í
frönsku, en í Biblíuskólanum hafi
hún orðið að nema á franska
tungu, og því fljótlega náð valdi
á málinu.
„Fyrir þá, sem ef til vill ekki
vita hvað Biblíuskóli er“, sagði
Halla, „er þess að geta, að þar
lærum við að skilja betur og
meta hið lifandi orð Guðs og
kærleika hans“.
Frá Belgíu lá leiðin til Frakk-
lands, og Halla var þar einnig
við nám á Biblíuskóla og lauk
þaðan prófi 1957, en þá var
henni boðin staða við Biblíuskól-
ann, sem hún hafði verið á í
Brússel. Þar starfaði hún í
kristniboðsstöð, og þangað kom
mikið af fólki, sem starfar á
kristilegum vettvangi — og þar
komst hún í kynni við marga
kristniboða, sem störfuðu víðs
vegar í heiminum, svo sem Indó-
nesíu, austur á Formósu, á mörg
um stöðum í Afríku og víðar. Var
það henni ómetanlegt að heyra
þá segja frá ferðum sínum og
reynslu.
Hún gat þess að á heimssýn-
ingunni hafi Biblíufélögin í
Brússel látið útbúa geysistóra
Biblíu, þar sem lesa mátti ýmsar
ritningargreinar af skuggamynd
um. Þar voru og seldar Biblíur á
flestum tungumálum heims. „Og
ég frétti", sagði Halla, „að þar
hefðu íslendingar komið og keypt
tvær íslenzkar Biblíur. Þótti
mér það undarlegt að þurfa að
fara alla leið til Brússel til að
kaupa sér Biblíu. — En vegir
Drottins eru órannsakanlegir, og
veit ég af renyslu", sagði Halla,
„að það er þess vert að fara enn
lengri vegalend til þess að finna
hinn lifandi Krist“.
— Hvernig leggst það nú í
yður að fara suður undir mið-
baug, í myrkviði Afríku?
— Ég hlakka mikið til þess að
hefja starf í kristniboðsstöðinni
þar syðra, og það skiptir mig
rnestu máli. Um þá erfiðleika,
sem fram undan eru í sambandi
við loftslag, hitabeltissjúkdóma
og gerbreytta lifnaðarhætti, hef
ég í rauninni ekki mikið hugsað.
Ég hefi hitt kristniboða, sem starf
að hafa á Fílabeinsströndinni, og
láta þeir vel af dvölinni þar. —
Ég á að vera komin til Parísar
16. nóv., — og frá hafnarborginni
Marseille fer ég með skipi 27.
nóv. áleiðis til Sassandra, sem er
aðalhafnarborg Fílabeinsstrand-
arinnar. Þaðan liggur svo leiðin
um 150 mílur inn í landið til
bæjarins Gagnoa, sem er bær
innfæddra manna og telur um 30
þús. íbúa. Fílabeinsströndin er
frönsk nýlenda síðan 1893, og
kristniboðsstöðin þar, semégmun
starfa við, tók til starfa 1942, en
þar eru nú starfandi 10 kristni-
boðar. Þjóðflokkurinn nefnist
Betés og mállýzka þeirra er nefnd
sama nafni. Mér er sagt að íbúarn
ir séu taldir gáfaðir og hraustir
vel, og vinsamlegir kristniboðum,
en fastheldnir mjög á sína trú,
sem er sambland af heiðni og
kristni.. Þeir trúa á anda og ótt-
ast þá mjög, og færa þeim fórnir
til þess að sefa reiði þeirra. —
Á þessum slóðum er kaþólsk
kristniboðsstöð, sem rekur skóla,
sjúkrahús og kirkju. Kristniboðs-
stöð sú, sem ég mun starfa við
í Gagnoa, er eign Babtisatkirkj-
unnar. Við munum starfa tvsér
saman, og verður með mér útlærð
svissnesk hjúkrunarkona. Hún á
að annast þá, sem sjúkir eru á
líkama, en ég þá, er þunga eru
hlaðnir, en þar á við sama gamla
meðalið og á dögum Krists: Hið
lifandi Guðs-orð, sem er Kristur
sjálfur. Því enn í dag segir hann:
„Komið til mín allir þér, sem
erfiðið og þunga eru hlaðnir, og
ég mun veita yður hvíld“.
I sumar hefir Halla verið að
búa sig undir kristniboðsstarfið,
og hún gat þess t. d., að hún
hefði fengið fyrirmæli um það,
að ekki mætti hún hafa með
ferðis föt, sem væru úr ull eða
nælon, heldur einungis bómull-
arföt. Nælon-klæðnaður er mjög
óhollur þar um slóðir og í ull
ina sækja skordýr, sem éta hana.
Hún gerir ráð fyrir að vera kom
in- til kristniboðsstöðvarinnar um
miðjan desember, — og það mun
taka hana 4 mánuði að komast
niður í mállýzku Betés-manna.
En nokkuð mun hún geta notazt
við frönsku, því að hún er kennd
í öllum skólum þar.
Halla mun dveljast á Fílabeins
ströndinni samfleytt næstu þrjú
árin, en fá að þeim tíma liðr.um
8 mánaða orlof. Til þess að venj-
ast hitabeltisloftslaginu, mun
hún og hin svissneska stalla
hennar fara með skipi suður, en
það ferðalag tekur um 2 vikur,
og þannig venjast þær smám
saman loftslaginu. Svo mikill er
munurinn á meginlandsloftslagi
Evrópu og hitabeltisloftslagi
Fílabeinsstrandarinnar, að hvít
um mönnum er ráðlagt heilsu
sinnar vegna, að dveljast eigi
lengur syðra en þrjú ár í senn. —
Og hvítum mönnum, er fara á
þessar slóðir í fyrsta skipti, er
eindregið ráðið frá að fara með
flugvélum, því svo snöggar
breytingar á loftslagi þola menn
tæpast.
Ekki er kunnugt um, að fs-
lendingur hafi áður starfað svo
sunnarlega í Afríku, en Halla
kvaðst hafa heyrt þess getið í
Brússel, að maður af íslenzkum
ættum hefði verið kristniboði
suður í Belgisku-Kongó. En sá
staður — Gagnoa — sem Halla
mun dveljast á, er skammt fyrir
norðan miðbaug, eins og sést á
kortinu. — Sv. Þ.
mynd af Stalin
WASHINGTON, 6. okt. — Rúss-
neski sendiherrann í Washing-
ton, Mensjikov, mótmælti í dag
við utanríkisráðuneytið mynd,
sem bandarísk sjónvarpsstöð
sjónvarpaði 25. fyrra mánaðar, en
hún fjallaði um dauða Stalins.
Sagði sendiherrann, að slíkir at-
burðir yrðu einungis til þess að
auka á viðsjárnar með Rússum
og Bandaríkjamönnum, stjórn-
inni bæri að sjá um að þetta
endurtæki sig ekki. Murphy að-
stoðarutanríkisráðherra mun
hafa svarað því til, að sjónvarps-
stöðin væri óháð einkafyrirtæki,
sem í engu væri á snærum
Bandaríkjastjórnar. Myndin, sem
hér um ræðir, heitir „Samsærið
gegn Stalin“. Þar sést m. a., að
Stalin fellur á gólfið eftir að
hafa fengið slag, er hann situr
fund með undirtyllum sínum.
Þjónn kemur hlaupandi með
vatnsglas til að gefa Stalin, en
Krúsjeff slær það úr höndum
hans. Nokkru síðar segir Malen-
kov við félaga sína: Þið spyrjið
einskis, þó að þið fréttið lát hans
einhvern næstu daga.
Fílabeinsströndin er á milli Líberiu og Ghana og eru ibúarnlr rúmlega hálf milljon. Þaffan
er skammt að miðoaug.
STAKSTFIWÍÍ
„Alþýðublaðið uppgötv-
ar ný sannindi“
Undir þessari fyrirsögn hirtir
Þjóffviljinn í gær eftirfarandi
grein:
„f fyrradag kemur í Ijós aff
Alþýffublaðið hefur gert nystár-
lega og ógnarlega uppgötvun, og
birtir þaff hana feitletraða í
ramma á forsíffu. Stórfréttin er
svohljóðandi: „Framsókn opinber
að samvinnu viff kommúnista í
Vkf. „Öldunni". (Svo hljóffar
fyrirsögnin meff myndarlegu
letri, og siðan kemur sjálf frétt-
in:) Þau tiðindi hafa gerzt á
Sauðárkróki, aff Framsóknar-
menn hafa opinberlega gengið til
samvinnu við kommúnista í
Verkakvennafélaginu „Öldunni“.
Fara þeir ekki leynt meff þá sam-
vinnu sína, en annars staðar hafa
þeir þó reynt að leyna þeirri
samvinnu, er um hana hefur ver-
iff aff ræffa“.
Trúlegt er aff lesendur Alþýffu-
blaðsins háfi sett hljóða, þegar
þeir fréttu um þessi ósköp. En
það má benda fréttamönnum Al-
þýðublaðsins á að fleiri slík
dæmi mun unnt aff finna ef vel
er leitað. Þaff hefur þannig geng-
iff fjöllunum hærra í meira eu
tvö ár að Framsókn sé opinber
að samvinnu við kommúnista í
ríkisstjórn íslands — og að Al-
þýffuflokkurinn sé opinber að
hinu sama. Ættu Alþýðublaðs-
menn aff kynna sér hvað hæft
kann aff vera í þessum sógum
og skýra lesendum sínum frá niff-
urstöðunum".
Gylfi „hægri krati“?
í þessari grein hæðist Þjóffvilj-
inn réttilega að Alþýðublaðinu
fyrir aff þykjast vera að berjast
gegn kommúnistum en styffja þá
þó til valda, þar sem mestu máli
skiptir. Sumir kynnu að ælla, að
Þjóðviljinn færi mýkri höndum
um þá Alþýðuflokksmenn, sem
af mestu kappi hafa unnið að
þjónustusemi flokks sins viff
kommúnista og Framsókn. En það
er eitthvað annað. Gylfi Þ, Gisla-
son fær þessa kveffju i Þjóövilj-
anum í gær:
„Kaupgjaldssérfræðingur AI-
þýðublaðsins, Gylfi Þ. Gíslason,
heldur því líka fram, aff viff hefff-
um veriff fullsæmdir af mun
lægra kaupi, og sýnir það raunar
hvorki meiri né minni umhyggju
fyrir kjörum verkalýðsins en viff
var aff búast úr hægrikrataátt-
inmi — — — .
Nei, það er fásinna að það hafi
verið hækkandi kaupgjaldí dag-
launafólks aff kenna, aff verff-
bólguskrúfan fór aftur af stað af
þeim krafti, sem raun hefur vitn-
að upp á síffkastið, enda vogar
sér tæplega nokkur tnaður aff
halda slíku fram nema hægri-
krataspekingar. Þeim einum er
svona hér um bil sama hverju
þeir halda fram, aðeirrs ef þeir
hafa von um að geta þóknazt
íhaldinu'*.
Þetta eru þakkirnar, sem aiim-
ingja Gylfi fær hjá þeim. sem
hann hefur reynzt bezt. Hér hefur
fariff eins og annars staðar, aff
kommúnistar launa mönnunum,
er svikiff hafa fólk sitt í hendur
þeim, meff spotti og svívirðingum
á meðan þeir geta ekki látið ann-
aff banvænna í té.
Stjórnin neitaði að kæra
Kommúnistar reyna að kenna
Atlantshafsbandalaginu um of-
beldi Breta. Sjálfir hindruffu þeir
þó, að Bretar væru kærffir fyrir
bandalaginu. Með því sviptu þeir
Island möguleikanum á aðstoff
bandalagsins gegn óhæfuverkum
Breta og sjálfa sig rétti til aff
ásaka þaff af þessum sökum.