Morgunblaðið - 11.10.1958, Qupperneq 9
taugardagur 11. okt. 1958
m O R C V 1\ B L 4 Ð I Ð
9
Alþýðusambandið þarf
trausta og örugga forystu
Hagsmunir verkamanna eiga
að ganga íyrir hagsmunum
kommúnistaflokksins
1 GÆR birti Morgunblaðið viðtöl við nokkra verkamcnn í
Dagsbrún, þar sem rætt var við þá um álit þeirra á núver-
andi stjórn félagsins og starfsemi fulltrúa þess innan Al-
þýðusambandsins. í dag birtast enn nokkur viðtöl við Dags-
brúnarmenn svipaðs eðlis. Þessi mál eru efst á baugi hjá
verkamönnum þessa dagana því á morgun Iýkur kosningu
fulltrúa til Alþýðusambandsþings.
Kommúnistar nota
verka-
menn sem
skálka-
skjól
Höskuldur Eyfjörð Helgason
verkamaður í Sorpeyðingarstöð-
inni, sagði m. a. þetta:
— Langt er síðan hagur verka-
manna hefir verið jafn-knappur
og nú, enda viðurkenna jafnvel
kommúnistar sjálfir að dýrtíðin
sé með versta móti. Þeir töldu
það þó sitt aðalbaráttumál að
halda henni niðri þegar þeir kom
ust í stjórn að reyndin hefur orð-
ið allt önnur.
Dagsbrúnarstjórnin er of ein-
ráð. Okkur verkamönnum finnst
stöðugt gægjast fram, að forráða-
menn Dagsbrúnar séu ekki að
berjast fyrir okkur, og hefur það
aldrei komið eins skýrt fram eins
og síðan núverandi stjórn tók við
völdum. Kommúnistar nota okk-
ur sem skálkaskjól, þeir snið-
ganga okkur og hafa haft sam-
ráð við stjórnina um að halda
niðri kaupinu. Svo eru þeir að
reyna að berja því inn í hausinn
á okkur að þeir séu beztu menn,
sem hugsanlegir séu til að hafa
forystu um okkar málefni og
reyna að skelfa alla þá verka-
menn, sem ekki fallast á þetta
sjónarmið, með því að kalla þá
öllum illum nöfnum til þess að
reyna að vekja tortryggni í þeirra
garð. Þetta verður æ meira áber-
andi eftir því sem hallar undan
fæti hjá kommúnistum.
Kommúnistum finnst nefnilega
allt í lagi „að vinna fyrir“ okk-
ur verkamennina meðan við er-
um að hjálpa þeim upp í valda-
stólana, en þegar þangað er kom-
ið er umhyggjan fyrir verka-
mönnunum gleymd. Það er því
full ástæða til'þess fyrir verka-
menn að gera sér ljóst að komm-
únistar hafa ekkert á ASÍ-þing
að gera, sem fulltrúar þeirra.
Kommúnistar hafa
brugðizt
trausti
verka-
manna
Hörður Þórðarson, verkamað-
ur hjá Hitaveitunni segir:
Verkalýðsbaráttan verður á
hverjum tíma að miðast við hags
muni verkamanna, en þeir eiga
ekki að þurfa að fórna sér og sín
um í baráttu fyrir flokkshags-
munum, eins og kommúnistar
hafa krafizt að við gerðum hvað
eftir annað. Það er ekkert spaug
fyrir fátæka barnamenn að láta
reka sig út í verkföll, verkföll,
sem gefa svo ekkert í aðra hönd,
annað en aukna dýrtíð í landinu.
Verkföll eiga að vera til þess að
verkamenn fái kjör sín bætt, en
eitcki til stuðnings vissum stjórn-
málaflokum. Kjarabaráttan verð
ur að miðast við þaðaðkjör verka
lýðsins batni raunverulega. Þetta
hlýtur að vera kjarninn í allri
verkalýðsbaráttu.
Kommúnistar hafa gersamlega
brugðizt því hlutverki, sem verka
menn hafa falið þeim. Þeir hafa
frá fyrstu tið sett eigin hagsmuni
ofar hagsmunum verkamanna,
þc hefir þetta aldrei orðið áþreif-
anlegi’a en eftir að kommúnist-
ar komust í ráðherrastólana. —
Lnda þótt kaup verkamannsins
hafi nokkuð hækkað, þá hefur
dýrtíðin færzt svo í aukana, að
sífellt verður erfiðara fyrir verka
mann með þungt heimili, að láta
launin endast fyrir lífsnauðsynj-
um. Mér finnst því ástæða til að
kommúnistar verði leystir undan
þeirri ábyrgð að stjórna hags-
munabaráttu reykvískra verka-
manna. Veit ég að fjöldi verka-
manna mun taka undir þessi orð
mín, sagði Hörður Þórðarson að
lokum.
Mesta hagsmunamál
verkalýðsins að
Alþýðu-
samband-
ið hljóti
trausta
og örugga
forustu
Guðbjörn Jensson bifreiðar-
stjóri hjá Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjunni: Ég kýs lýðræð-
issinna sem fulltrúa Dagsbrúnar
á þing Alþýðusambandsins vegna
þess að ég álít að þeir vinni bet-
ur að málefnum verkalýðsins en
kommúnistar. Sem dæmi um sleif
arlag kommúnistastjórnarinnar í
Dagsbrún vil ég nefna að þeir
hugsa ekkert um að ganga úr
skugga um að aðbúnaður verka-
manna á vinnustað sé sómasam-
legur, eins og þeim ber þó skylda
til að gera.
Þá finnst mér að Alþýðusam-
band íslands eigi fyrst og fremst
og eingöngu að hugsa um kiara-
og baráttumál verkalýðsins, en
að það sé ekki hlutverk þess að
skipta sér af hinum almennu
stjórnmálum í landinu. Hins veg
ar hafa kommúnistar misnotað
það sér til pólitísks framdráttar.
I þessu sambandi vil ég láta
það álit mitt í ljós, að mér finnst
„stjórn hinna vinnandi stétta“,
eins og ríkisstjórn sú er nú sit-
ur nefnir sig, hafa unnið illa að
kjaramálum verkalýðsins, því að
allar þær verðhækkanir, sem orð
ið hafa í tíð hennar hafa verkað
þannig, að verkamaðurinn hefur
borið minna úr býtum við þær
hækkanir, sem hann hefur fengið,
heldur én hann hefur á sama
tíma orðið að greiða fyrir hækk-
andi verðlag á vörum og þeirri
þjónustu, sem honum er nauð-
synlegLað kaupa.
í sambandi við þessar kosning-
ar finnst mér rík ástæða til að
minnast á hið mikla ranglæti,
sem mikill hluti verkamanna er
beittur með því að halda þcim
sem aukameðlimum í Dagsbrún.
Það er sýnilegt að þetta gera kom
múnistar vegna þess að þeir ótt-
ast um völd sín í félaginu. Mér
er kunnugt um, að það eru margir
félagsmenn sem taldir eru auka-
meðelimir, sem eiga fullan rétt til
þess að verða fullgildir meðlimir,
enda er ekkert réttlæti í því, að
þessir menn, sem greiða jafnhátt
félagsgjald og við, njóti ekki
sömu réttinda.
Ég vil að endingu beina þeirri
eindregnu hvatningu tíl hinna
fjölmörgu aukameðlima í Dags-
brún að fara og krefjast réttar
sins í félaginu. Fyrr en þeir hafa
gert það, geta þeir ekki fengið að
kjósa og þanriig látið í ljósi álit
sitt á stjórn kommúnista á verka
lýðsmálum.
| Það er eitt mesta hagsmunamál
I verkamanna í landinu, að Alþýðu
sambandið hljóti trausta og ör-
, ugga forustu, sem ber hag þeirra
I fyrir brjósti, en notar ekki þessi
Bandarískur bókmennta■
fræðingur heldur
hér fyrirlestra
um Abraham Lincoln
og nútíma-ljóðlist
sterku samtök til framdráttar
pólitískri hentistefnu. Þessu tak-
marki verður aðeins náð með því
að lýðræðissinnar sigri í kosn-
ingunum til Alþýðusambands-
þings.
í SAMBANDI við Amerísku bóka
sýninguna, sem nú stenduri yfir
á Laugavegi 18, er hér kominn
dr. Roy P. Basler, deildarstjóri
í þingbókasafninu í Washington.
Mun hann dveljast hér fram á
fimmtudag og halda tvo opinbera
fyrirlestra. Sá fyrri mun fjalla
um Abraham Lincoln og rit hans
og verður á Amerísku bókasýn-
ingunni kl. 8,30 á sunnudag, en
sá síðari um nútíma-ljóðlist í
Bandaríkjunum, og verður í há-
tíðasal Háskólans á þriðjudags-
kvöldið kl. 8,30. '
í gær gafst fréttamönnum tæki-
færi til að ræða við dr. Basler.
Hann er maður rúmlega fimm-
tugur að aldri, sérfræðingur í
enskum og bandarískum bók-
menntum og kunnur vestanhafs
fyrir ritstörf sín, einkum um ævi
Abrahams Lincolns Bandaríkja-
Það verður að hjnlpa börnum,
sem ekki geto fylgzt með í nómi
Stutt samtal við Helmer Norman,
rektor í Stokkholmi
í SÍÐASTA mánuði var staddur
hér á landi merlcur skólamaður
sænskur, Helmer Norman, íektor
frá Stokkhólmi, sem þar hefur
yfirumsjón með sérkennslu
barna, sem geta ekki fylgzt með
í venjulegu námi. Hér sótti Nor-
man rektor námskeið, sem hald-
ið var fyrir 15 til 20 kennara,
sem eru að búa sig undir að
kenna börnum, sem eru afbrigði-
leg að einhverju leyti. Tíðinda-
maður Mbl. hitti Norman að
máli og innti hann eftir skipan
þessara mála í Stokkhólmi.
— Starf mitt er í því fólgið,
að veita þeim börnum úrlausn,
Helmer Norman rektor
sem ekki geta fylgzt með í skól-
um af einhverjum orsökum.
Orsakirnar eru ýmist líkamlegar
eða andlegar. Þessi börn setjum
við í sérstakar bekkjardeildir og
eru flest fimmtán börn í hverri
svo auðveldara sé fyrir kennar-
ana að leiðbeina hverju einstöku
barni. Með þessu móti njóta
börnrn sín betur en ella og meiri
líkindi eru til, að hæfileikar
þeirra komi í ljós. Þessi börn eru
oft sízt verri gáfum gædd, en önn
ur börn, enda þótt sjóndepra eða
andlegir kvillar hafi hindrað
nám þeirra áður.
Auk þessa höfum við sérstak-
ar deildir fyrir börn, með trufl-
anir á tilfinninga- eða viljalífi.
Þau börn hafa oft ekki hemil á
athöfnum sínum og geta því eng-
an veginn fylgzt með í venju-
legri bekkjardeild. Með því að
hafa þau sér vinnum við tvennt:
Við komum í veg fyrir að þessi
börn valdi truflunum í bekkn-
um og hjálpum þeim sjálfum til
að öðlast félagslegan þroska.
— Hvað viljið þér segja um
dvöl yðar hér í Reykjavík?
— Viðfangsefni mitt hér hef-
ur verið að skýra frá þessu fyr-
irkomulagi okkar. Hér hef ég
orðið var við mikinn áhuga á
því, að L-_..zkir kennerrr afli
sér þeirrar sérmenntunar, sem
þarf til að leiðbeina slikum börn-
um, sem hér hefir verið getið. Is-
lenzku kennararnir sem áður
hafa kynnt sér þessi mál voru sér
staklega áhugasamir, en í sept. í
fyrra voru sex íslenzkir kenn-
arar á námskeiði hjá okkur í
Stokkhólmi. Þetta starf er erfitt
og krefst meiri ',:nu en ven'"-
legt kennstustarf og auk þess
getur ke.marinn ckki vænzt sama
árangurs. En þjóðfélagið verður
að hjálpa þessum börnum og
hlýtur einnig sín l_an fyrir það
þegar frá líður.
forseta og fyrir útgáfu sína á
ritum Lincolns, sem kom út árið
1953 í átta stórum bindum. Auk
þess hefur hann ritað nokkrar
bækur um aðrar bókmenntir,
auk fjölda tímaritsgreina um
svipað efni. Dr. Basler láuk dokt-
orsprófi í bókmenntasögu frá
Duke University í Colorado árið
1931. Hann var um árabil háskóla
kennari í bókmenntasögu og gerð
ist starfsmaður Library of Con-
gress árið 1952. Snemma á þessu
ári var hann skipaður yfirmaður
einnar af sex daildum þess safns,
þeirrar er geymir allar orða- og
uppsláttarbækur þessa stærsta
safns í heimi, handrit þess, landa-
bréf, tónbókmenntir og fleira.
Dr. Basler er nú á fyrirlestrar-
ferð um 6 lönd, Frakkland, Hol-
land, England, Þýzkaland og ís-
land og heldur héðan til Eng-
lands, þar sem hann mun m.a.
koma fram í sjónvarpi og tala um
þingbókasafnið, en það er eins
og áður er sagt stærsta bókasafn
í heimi, telur 10—11 millj. bóka
auk skjala, handrita o. fl. Ferð-
in er farin í sambandi við 150
ára afmæli Abrahams Lincolns
12. febr. næstkomandi. Höfðu
margir erlendir aðilar beðið um
mann til fyrirlestrahalds þá, en
þar se... bandarískir sérfræðing-
ar um Linccln . erða önnum kafn
ir í sambandi við afmælishátíð-
ina heima .1 það leyti, var ákveð
ið að dr. Basler færi nú fyrir-
lestraferð til ofangreindra landa.
Fyrirlesturinn á sunnudaginn
nefnist The Lincoln Legend og
fjallar um Abraham Lincoln og
rit hans, einkum um þau áhrif,
sem hann hefur haft á stefnur
í bandarískum bókmenntum,
bæði með ritum sínum og lifs-
stefnu. Hann verður haldinn á
Laugavegi 18A, þarsem Ameríska
bókasýningin er til húsa og er
öllum heimill ókeypis aðgangur.
Fyrirlesturinn á þriðjudags-
kvöldið í hátíðasal Háskólans
nefnist Trents in Contemporary
American Poetry og fjallar um
nútíma-ljóðskáld í Bandaríkjun-
um, verk þei.ra og stefnur í
ljóðagerð síðustu ára og mun
hann að lokum lesa upp tvö ljóð
máli sínu til skýringar. Mun fyr-
irlestur þessi án efa vekja athygli
þeirra mörgu sem hér hafa áhuga
á nútíma-ljóðlist. Verður sá fyrir
lestur einnig öllum opinn.
Gjöf til barnaskóla Mýrasýslu
LAUGARDAGINN 20. sept. sl.
hélt skólanefnd Barnaskóla Mýra
sýslu fund og var þar mættur hr.
skrifstofustjóri Ólafur Bjarnason,
Reykjavík. Afhenti hann barna-
skólanum staðfesta skipulagsskrá
fyrir minningarsjóð Björns
bónda Ólafssonar frá Stafholts-
veggjum, ásamt sparisjóðsbók
með innstæðu að upphæð kr.
12.000,00 — tólf þúsund krónur.
Minningarsjóð þennan gefur
Barnaskóla Mýrasýslu hr. klæð-
skerameistari Elís Ólafsson á ísa-
firði til minningar um bróður
sinn, Björn Ólafsson.
í skipulagsskrá sjóðsins segir
m.a.:
„3. gr.: Tilgangur sjóðsins er að
efla menntun í átthögum þeirra
bræðra, en í því augnamiði skal
veita þeim börnum verðlaun, sem
íá hæsta aðaleinkunn í hverri
deild barnaskólans í Stafholts-
tungum. Má verja til slíkra verð-
launaveitinga allt að % — þrem-
ur fjórðu— hlutum ársvaxta af
innstæðu sjóðsins í lok hvers
reikningsárs, en verðlaun skulu
vera jörn til allra nemenda, er
þau hljóta — !4 — einn fjórði
hluti ársvaxtanna skal ávallt
leggjast við höfuðstólinn.
4. gr.: Tekjur sjóðsins verða:
Vextir af höfuðstól, eins og hann
er á hverjum tíma, svo og gjafir
og áheit, sem honum kann að á-
skotnast, en vaxtatekjur einar
koma til úthlutunar samkvæmt
áramótauppgjöri.
5. gr.Verðlaun úr sjóðnum
skulu veitt í fyrsta sinn í lok
skólaárs 1972, en á því ári, hinn
14. marz eru liðin 100 ár frá fæð-
ingu Björns Ólafssonar. Verðlaun
skulu þá afhent við skólaslit, og
ávallt árlega síðan.
6. gr.: Stjórn sjóðsins skipa:
formaður skólanefndar, sem* er
formaður sjóðsstjórnar, og með-
stjórnendur, skólastjóri og odd-
viti Stafholtstungnahrepps“.
Vegna skólanefndar Barna-
skóla Mýrasýslu færi ég hr.
klæðskerameistara, Elís Ólafs-
syni, ísafirði, miklar og góðar
þakkir fyrir þessa rausnarlegu
gjöf til skólans.
Bergur Björnsson,
Form. skólanefndar.