Morgunblaðið - 11.10.1958, Blaðsíða 15
Laugardagur 11. okt. 1958
MOkmnSBL 4 ÐIÐ
15
Mynd þessi er af einu málverka Guðmundar frá Miðdal á
sýningu hans, sem opnuð er í dag að Skólavörðustíg 43. —
Máiverkið er af Múla í Aöaldal, gamla bænum.
Málverkasýning Cuð
munáar frá Miðdal
t DAG kl. 2 síðd. opnar Guðm.
Einarsson frá Miðdal málverka-
og höggmyndasýningu í vinnu-
sal sínum að Skólavörðustíg 43.
Á þessari sýningu verða 55 vatns
litamálverk, 5 olíumálverk, 4
höggmyndir og nokkrar rader-
ingar.
Náttúrumyndir
öll málverkin á sýningunni
eru gerð á síðastliðnum tveimur
árum. Eru myndirnar fyrst og
fremst af gömlum bæjum, fjall-
lendi og ýmsum dýrum. Allar
myndirnar eru teknar beint úr
íslenzkri náttúru og að leik-
mannsdómi einkar fagrar. Mál-
verkin eru öll til sölu. Vatnslita-
málverkin kosta frá kr. 2200,00
niður í kr. 600,00, en olíumál-
verkin frá 7000 kr. niður í 1200
kr. Raderingarnar eru myndir
frá gömlu Reykjavík. Mappa
með 9 myndum kostar 150 kr.
Mikið á ferðalögum
Að undanförnu hefir Guð-
mundur frá Miðdál verið mikið
á ferðalögum víðs vegar um
landið. Hefir hann fengið fyrir-
myndirnar að þessum myndum
sínum á þeim ferðalögum.
Sýningin verður opin frá því
kl. 2 e. h. til 10 daglega, nema
á sunnudögum en þá verður sýn-
ingin opin frá kl. 10 f. h. til kl.
10 e. h. Sýningin stendur frá
11.—26. október.
Mórgum mun án efa leika hug-
ur á að sjá þessa nýju sýningu
hins mikilvirka og þekkta lista-
manns.
í gær gafst blaðamönnum kost-
ur á að sjá sýninguna í hinum
skemmtilegu húsakynnum lista-
mannsins.
Jónas Haralz
ráðuneytisstjóri
viðskiptamála-
ráðuneytisins ?
SKÝRT var frá því hér í Mbl. í
gær, að Þórhallur Ásgeirsson
ráðuneytisstjóri viðskiptamála-
ráðuneytisins, hafi fengið tveggja
ára frí frá störfum vegna kjörs
hans I stjórn Alþjóða gjaldeyris-
sjóðsins.
Ekki hefur ráðuneytið til-
kynnt hver gegna muni störfum
Þórhalls á meðan. En Mbl. hef-
ur fregnað, að Jónas Haralz
hagfræðingur, sem verið hefur,
— frá því hann kom að utan —,
sérfræðingur ríkistjórnarinnar í
efnahagsmálum, taki við ráðu-
neytisstjórastörfum í viðskipta-
málaráðuneytinu. Jónas Haralz
var um nokkurra ára skeið starfs
maður Alþjóðabankans og fór
víða um lönd á hans vegum, sem
sérfræðingur í efnahagsmálum.
U nglinga
vantar til blaðburðar í eftirtalin hverfi
Miðbœinn
Hringbraut
Nesveg
Seltiarnarnes (Skjólbr.J
otgimtMaMfr
Aðalstræti 6 — Sími 22480.
Silíurtunglid
DANSLEIKUR
NÝJU DANSARNIR í kvöld kl. 8
Hljómsveit Aaage Lorange leikur. —
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4. — tJtvegum skemmtikrafta.
Símar 19965 og 11378. SILFURTUNGLIÐ
Vimiiíigar í Happ-
drætti Háskólans ;
DREGTÐ var í gær í 10. flokki
happdrættis Háskólans um 945
vinninga að upphæð kr. 1.195.000.
Hæsti vinningur, 100 þús. kr.,
kom á hálfmiða nr. 1024, sem
seldir voru í umboði Guðrúnar
Ólafsdóttur og Jóns Arnórssonar
í Bankastræti.
50 þús. kr. komu á nr. 33133,
hálfmiða, sem seldfr voru í ,
Verzl. Þorvaldar Bjarnasonar h.f. i
og Elísar Jónssonar á Kirkjuteig. !
10 þús. kr. komu á eftirtalin
númer: 5549, 17318, 17833, 18541,
20430 og 24335.
5 þús. kr. vinningar komu á
nr. 7805, 10658, 11627, 19318,
27667, 28781, 33707, 40578, 43086
og 43680.
(Birt án ábyrgðar).
Kait borð
Hótel Borg
framrcitt í dag
og í kvöld
Opnum nýja verzlun í dag
Seljum alls konar barna- og kvenfatnað.
GdlOiíID SVO VFL. —
Verzl. Iða
Laugaveg 28
Sendisvein
^ukið viðskiptin. —
Auglysið í Morgunkladinu
S í m i
2-24-80
vantar nú þegar á afgreiðslu blaðsins.
Vinnutími kl. 9—6 e.h.
3llorjgtmM£*$!ý
Hjartanlegar þakkir færi ég öllum vinum og vandamönn-
um, sem glöddu mig með gjöfum, blómum og skeytum og
hlýjum handtökum á 80 ára afmæli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Guðmundsdóttir, Réttarholti.
Hjartans þakkir og kærar kveðjur færi ég börnum mín-
um, barnabörnum, tengdafólki og öðrum vinum og vanda-
mönnum, sem glöddu mig á 70 ára afmælisdaginn og
gerðu mér hann ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Steinsdóttir,
Karlsskála.
Vantar leiguhúsnœði
Óska eftir góðri 3ja herbergja íbúð til lelgu nA
þegar. Þrennt í heimili. Fyrirframgreiðsla kemur tlt
greina. — Upplýsingar í síma 16709.
Egcgert Kristjánsson & Co, hf.
að hún er búin til úr ekta,
hollenzku kjúklingakjöti, feiti og
seyði. Pakkað á heilsusamlegasta
máta. Honig’s kjúklinga-
súpa er góð byrjun
á góðri máltíð.
IÓLAFUR FINSEN
fyrrverandi héraðslæknir lézt að heimili sínu á Akranwd,
í gær, þann 10. október.
Börn og tengdabörn.
Maðurinn minn
GUDMUNDUR MAGNÚSSON
fyrrum bóndi á Ferjubakka andaðist á Landakotsspítala lð.
október.
Guðrún Sigrurðardóttlr.
Jarðarför mannsins míns, föður, tengdaföður og bróður
SVEINBJÖRNS SIGHVATSSONAR
Bergstaðastræti 43, fer íram mánudaginn 13. þ. m. kl. 1.30
frá Fossvogskirkju.
Jarþrúður Jónasdóttir, börn, teirgdasynir og systnr.
GUDRÚN JÓNASSON,
Amtmannsstíg 5, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
þriðjudaginn 14. október, kl. 2 e. h. Jarðað verður í gamla
kirkjugarðinum. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent
á Slysavarnafclag íslands.
Gunnþ. Halidórsdóttir og fósturbörn.
Minningarxxthöfn um móður okkar
GUÐRÚNU SVEINSDÓTTUR
frá Kjarnholtum fer fram í Fossvogskirkju mánudaginn Í3.
okt. kl. 10.30. Athöfninni verður útvarpað. Jarðsett verður
í Haukadal sama dag kl. 3. — Blóm afþökkuð, en þeir sem
vildu minnast hennar eru beðnir að láta líknarstofnanir
njóta þess. Bílferð verður austur að athöfninni í Fossvogs-
kirkju lokinni.
'törnin.