Morgunblaðið - 12.10.1958, Page 1

Morgunblaðið - 12.10.1958, Page 1
24 siður 45 árgangur 233. tbl. — Sunnudagur 12. október 1958 Prentsmiðia Morgunblaðsins Þjóbviljinn segir atvinnurekendur ekki hefðu samið nema leyniyfirlýsingin hefði verið gefin Lúðvik segir vandann ekki annan en svikja loforð sitt. Tvistig Hermanns Eðvarð i vandrœðum með ,,lyga-bombuna' TÍMINN og Þjóðviljinn neyð- ast í gær til að játa tilvist leyniyfirlýsingarinnar, sem Lúðvík Jósefsson og Hermann Jónasson gáfu fyrir nær 3 vikum vegna Dagsbrúnar- samninganna. Viðurkenning Þjóðviljans Þjóðviljinn viðurkennir berum orðum, að þessi sérsamningur ríkisstjórnarinnar við vinnuveit- endur hafi verið forsenda þess, að Dagsbrúnarsamningarnir tók- ust. Viðurkenningin stendur svartletruð á 5. síðu Þjóðviljans í gær og er svohljóðandi: „Ef forsætisráðherra hefði neitað að fallast á að reiknað væri með nýja Dagsbrúnar- kaupinu, hefði hann þar með neitað að viðurkenna Dags- brúnarsamningana. Atvinnu- rekendur hefðu þá sagt, að þeir gætu ekki samið upp á þau býti að ríkisstjórn lands- ins viðurkenndi samningana ekki“. Með þessu er játað svo, að ekki verður um villzt, að Þjóð- viljinn gerir sér ljóst, að leyni- yfirlýsingin var liður í heildar- samningunum og án hennar hefðu þeir ekki komizt á. Ef ómerkja á þetta loforð Lúðvíks og Hermanns, leiðir þess vegna óhjákvæmilega af því að sjálfir Dagsbrúnarsamningarnir falla úr gildi. Þetta er rökstuðningur Þjóðviljans sjálfs, sem hann kemst ekki undan. í sama dálki fullyrðir Þjóð- viljinn: „Þetta er hiðstæð yfirlýs- ing og birt hefiur verið í lok allra kaupgjaldssamninga á Islandi um langt skeið“; Enginn veit betur en Þjóðvilj- inn, að þetta er ekki rétt. Þess er skemmst að minnast, að eng- in slík yfirlýsing var gefin eftir Hlífar-samningana á dögunum, svo að aðeins síðasta dæmið sé nefnt. Lygabomban springur í örmum Eðvarðs Og ef yfirlýsingin var sjálf- sögð og alvanaleg, af hverju var þá öll leyndin? Af hverju sagði þá Eðvarð, að samninganefnd Dagsbrúnar hefði „aldrei séð né heyrt þessa yfirlýsingu"? Af hverju talar Þjóðviljinn þá í gær á fyrstu síðu um „lyga- bombu íhaldsins um áhrif Dags- brúnarsamninganna á verðlag- ið“? Og strax á eftir „lyga- bombu“-talinu bætir Þjóðviljinn við: „Jafnframt skal það tekið fram, að yfirlýsing sú, sem forsætisráðherra gaf atvinnu- rekendum, var enginn þáttur í samningunum, hún var aldrei birt samninganefnd verkamanna og þeir áttu að sjálfsögðu engan þátt í henni“. Svo sem játning Þjóðviljans á 5. síðu sýnir, haggar leyndin við verkamenn engu um gildi sér- samnings ríkisstjórnarinnar við vinnuveitendur. Leyndin sannar einungis, að stjórnin ætlaði að blekkja verkamenn. Blygðunarleysi ríkisstjórnarinnar Þeir munu hins vegar fáir, sem trúa því, að ríkisstjórnin sé svo blygðunarlaus, að hún hafi þag- að um þennan þátt samninga- gerðarinnar við sjálfan Eðvarð Sigurðsson. Ef svo hefði verið, mundi Eðvarð nú snúa heift sinni gegn ríkisstjórninni, sem að hans sögn á að hafa svikið Dagsbrún í tryggðum. í stað þess standa Eðvarð, Lúðvík og Hermann allir í hóp berir að svikum og vita auðsjá- anlega ekki sitt rjúkandi ráð. Þjóðviljinn er gersamlega tví- saga um það, sem átt hefur sér stað. Hann reynir að kenna Her- manni um og talar um „yfirlýs- ingu forsætisráðherra", þó að allir viti, að það var Lúðvík Jósefsson, sem upphaflega samdi yfirlýsinguna og fékk einungis samþykki Hermanns við hana. Engum kemur heldur annað til hugar en að Hannibal Valdi- marsson, sjálfur verðlagsmála- ráðherrann, hafi hér verið með i ráðum. Málflutningur Eðvarðs Sigurðssonar byggist á því, að ekki einungis Lúðvík Jósefsson og Hermann Jónasson hafi svik- ið hann í tryggðum, heldur og Hannibal Valdimarsson, sjálfur forseti Alþýðusambands íslands. Lúðvík segir: Bara að svíkja Úrræðin til þess að sleppa úr svikastíunni eru þessum kump- ánum og samboðin. Þjóðviljinn birtir á fremstu síðu í gær gleið- letraða yfirlýsingu eftir Lúðvík Jósefssyni, þar sem efnið er ein- faldlega það, að ráðherrann seg- ist skulu svíkja vinnuveitendur um það, sem hann lofaði þeim á dögunum og reyndi þá að halda leyndu! Nokkru loðnari yfirlýsing, sem mönnum þó er ætlað að skilja á sama veg, er einnig birt eftir Her- manni Jónassyni. Hermann reyn ii þó að hafa vaðið fyrir neðan sig, en vantar auðsjáanlega ekki viljann til svikanna, ef hann sér færi á að koma þeim fram. Með þessum yfirlýsingum er stjórnarherrunum rétt iýst. Fyrst reyndu þeir að leyna verkalýð- inn hinu sanna. Þegar þeir svo eru staðnir að verki, segja þeir daginn, sem kosningar í Dagsbrún til Alþýðusambandsins eiga að hefjast, að þetta geri ekk ert til, þeir séu reiðubúnir til að svíkja allt, sem þeir hafi lofað. Æðstu valdamenn landsins bæta sem sagt tilboði um svik of- an á blekkingarnar, sem þeir eru staðnir að í alþjóðar-augsýn. Hver trúir slíkum mönnum? Er hægt að hugsa sér harðari for- dæmingardóm en þeir sjálfir hafa kveðið upp yfir athæfi sínu með þessum yfirlýsingum nú? Minn- ast menn þess, að hafa nokkurn tíma fyrr séð jafnófyrirleitna svikara standa uppi, afhjúpaða í svikum sínum og tvöfeldni? Þar berjast þeir um, reiðubúnir til þess að vinna allt til að koma sér úr öngþveitinu, er þeir sjálfir hafa komið sér í, annað en hið eina, sem heiðarlegum mönnum sæmir, að játa yfirsjónir sínar og viðurkenna, að þeir eru ekki þeim vanda vaxnir, sem þeir hafa tekizt á hendur. Hlorfur á samkomulagi um fiskveiðilögsögu Fœreyja Kaupmannahöfn, 11. okt. Einkaskeyti til Mbl. VIÐRÆÐUM sérfræðinganna frá Danmörku, Færeyjum og Bret- landi um fiskveiðilögsögu Fær- eyja lauk í gær. Menn höfðu bú- izt við einhverri tillögu að við- ræðunum loknum, en hún kom ekki fram. Sérfræðingarnir náðu ekki samkomulagi um öll atriði málsins, en viðræðurnar voru já kvæðar og færðu menn nær mark inu. Talið er að lausn málsins sé ekki langt undan. Sjónarmiðin sem fram komu viðræðunum verða nú lögð fyrir stjórnir Danmerkur og Bretlands, en síðan munu Danir og Bretar taka upp samningsviðræður að nýju. í gær ræddu sérfræðingarnir fyrst og fremst um verndun hrygningarstöðvanna. Þessi mynd sýnir hvernig geimfar, sem sent yrði frá jörðinni til tunglsins, mundi lenda á tunglinu. Geimfarið yrði útbúið sérstökum tækjum til að vinna á móti aðdráttarafli tunglsins, þannig að lendingin yrði hæg. Undirbúningur og framkvæmd slíkra ferða til tunglsins er skýrð rækilega í bók Gísla Halldórssonar verkfræðings, „Til framandi hnatta". Bandarísk eldflaug tií tunglsins? Eitt merkilegasta afrek sögunnar, segja visindamenn Cape Canaveral, 11. okt. — Reuíer. — ELDFLAUGIN „Pioneer“ sem skotið var í áttina til tungls- ins var nálægt réttri braut, þegar síðast fréttist, en vís- indamenn búa sig undir Það, að eitthvað kunni að fara af- laga, þannig að gervihnöttur- inn sem eldflaugin flytur kom ist ekki á braut sína kringum tunglið. En þótt gervihnött- urinn færi af fyrirhugaðri braut sinni, mundi hann samt geta gefið mikilvægar upp- lýsingar um geiminn meðan hann er á lofti og vísinda- mönnum tekst að halda radíó- sambandi við hann. 2 vikur Rafgeymarnir i gervihnettin- um eiga að endast í tvær vikur. Sex tímum eftir að eldflauginni hafði verið skotið á loft, var reiknað út að nún væri komin um 80.000 kílómetra frá jörðiniU. Vísindamenn sem höfðu sam- band við eldflaugina dag sögðu, að upplýsingarnar sem kæmu frá henni bentu til þess, að hún kynni að fara út af fyrirhugaðri braut sinni. Tækin í góðu lagi Landvarnaráðuneyti Bandaríkj anna tilkynnti í kvöld, að tækin Framh. af bls. 1 SUNNUDAGIIKINN 12. OK'l'OBER Efni blaðsins er m.a.: Bls. 3: Sr. Guðm. Guðmundsson, Útskálum: Jesú fyrirgefur syndir. 6: Trésmiðir, hrindið árás kommúnista á félag ykk- ar! 7: Sverrir Hermannsson: —- Árásuni á Stúdentafélag Reykjavíkur svarað. 8: Tvö kvöld á Broadwa) (s-a-m). Kvennasíða. Nýju umfeVðarreinarnar á Miklatorgi. Leikdómur Sig. Grímsson- ar um ..Ilorfðu reiður um öxl“. Ritstjórnargreinin nefnist: „Eiga Framsóknarmenik að ráða Alþýðusamband- inu?“ Á leið til tunglsins (Ut- an úr heimi). 13: Reykjavíkurbréf. 15: Fólk í fréttunum. 1 9: 10: — 12:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.