Morgunblaðið - 12.10.1958, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 12.10.1958, Qupperneq 7
Sunnudagur 12. okt. 1958 MORGUWBL.4ÐIÐ 1 Sverrir Hermannsson: Árásum á Stúdentafélag Reykjavíkur svarað VEGNA furðulegra skrifa v:nstri blaðanna að undanförnu um Stúdentafélag Reykjavíkur er rétt að þau mál, sem til umræðu hafa verið séu rædd nokkuð og skýrð af hálfu félagsins. Það er að vísu fjarri lagi, að Stúdenta- félagið fari að elta ólar við það þótt skriffinnar Alþýðublaðsins og Tímans sletti úr klauf að félaginu. En svo mjög sem hall- að hefir verið réttu máli og log- ið víða frá um hagi félagsins á síðum þessara blaða þykir rétt að svara þeim nokkrum orðum. Sökum þess að ástæðan fyrir uppþoti þessara blaða er um- ræðufundur um landhelgismálið, sem félagið gekkst fyrir 28. sept. s. 1., er rétt að skýrt sé frá þeim fundum, sem félagið hefir efnt til á þessu starfsári. S. I. haust hélt Stúdentafélagið fund um kjördæmamálið. Nú munu allir sammála um, að hér sé um stórpólitískt mál að ræða og jafnvel að annað meira hiti- mál pólitískt sé vart finnanlegt. Framsögumaður var ráðinn Jón P. Emils, fyrrv. frambjóðandi Alþýðuflokksins og núverandi miðstjórnarmaður hans. — Ekk: var þá minnzt á hlutdrægni af hálfu Stúdentafélagsins. S. 1. vor var fundur haldir.n um efnahagsmálin. Enginn fer í grafgötur um, að þar er um stór- pólitískt mál að ræða. Fram- sögumenn voru hagfræðingarnir Jónas Haralz og Jóhannes Nor- dal. Annar þessara manna, Jónao I aralz, hafði að mestu undir- búið þær ráðstafanir í efnahags- málum, sem ríkisstjórnin gerði s. 1. vor. Nú lá það ljóst fyrir að stærsti stjórnmálaflokkur þjóð- arinnar var í veigamiklum atrið- um andstæður þeim ráðrtöfur.- um, sem gerðar voru. Samt sem áður var engum af forystumönn- um hans boðin framsaga, og hefði þó verið nærtækt að leita til eins af þingmönnum hans, prófessors Ólafs Björnssonar, sem er einn kunnasti hagfræðingur þessa lands. Ekki hevrðist eitt orð um það þá af hálfu Alþbl. og Tímamanna að neinum væri mismunað. Þá var haldinn fundur um prentfrelsið, og enda þótt þar sé ekki um að ræða pólitískt mál að áliti manna vestantjalds, þá má geta þess, að framsögumenn voru Helgi Sæmundsson, ritstj. Alþýðublaðsins og Jóha ■ íes úr Kötlum. Þá er komið að siðasta funa- inum og þeim merkasta, fund- inum um landhelgismálið, þar sem Ólafur Thors, fj'rrv. for- sætisráðherra hafði framsögu. Þá er fyrst til að taka að strax að lokinni Genfarráðstefnunni ákvað stjórn Stúdentafélagsins að gangast fyrir fundi urn mál- ið. Var leitað til Davíðs Ólafs- sonar, fiskimálastjóra, urn að hafa framr'jgu í málinu. Af ýms- um ástæðum sá hann sér það ekki fært. Var málinu síðan hald- ið vakandi, en tök voru ekki á að boða til umræðufundar yfir hásumarið. Það næsta, sem skeð- ur í málinu, er að á stjórnar- fundi í féiaginu 24. sept. s. 1. var ákveðið að halda fund um málið og fara þess á leit við Ólaf Thors að hann hefði framsögu. Við þessi málalok vildu tveir að- dáendur núverandi ríkisstjórnar í stjórn félagsins ekki una og sögðu sig úr stjórninni eins og kunnugt er. Töldu þeir eðlilegra að leita til forsætis-, utanríkis- eða sjávarútvegsmálaráðherra, enda þótt Alþýðublaðið og Tím- inn fordæmi nú harðlega að pólitískur maður skyldi valinn. Frá umræðufundinum sjálfum er það skemmst að segja, að hann var geysifjölmennur og félaginu til stórsóma fyrir val á fram- sögumanni. Framsöguræða Ólafs Thors var ein sú bezta ræða, sem flutt hefir verið um landhelgis- málið. Játa það allir er á hlýddu og einnig pólitískir andstæðingar hans. Hann rakti ýtarlega sögu landhelgismálsins frá upphafi, sér í lagi stækkun landhelginn- ar 1952, sem gerð var undir hans forystu og svo allan gang mála og málatilbúnað síðan. Hvatti hann menn pijög til samstöðu í málinu. Hvert orð í ræðu hans var satt og rétt, enda hafa vinstri blöðin ekki getað bent á eitt einasta atriði í málflutningi hans, sem rangt væri eða ósatt. Þess í- stað hafa þau lagt allt kapp á að útbreiða óhróður um ræð- una og fundinn. Skyldi það líka vera gert í þeim tilgangi að efla þjóðareininguna og bjargfasta trú manna erlendis á samheldni ís- lenzku þjóðarinnar? Nú ber þess vel að minnast, að 3 af 6 ráðherrum eru félagar í Stúdentafélagi Reykjavíkur og var þeim því innsrn handar að mæta á fundinum og ræða m.'.lið. Hvers vegna mætti enginn þeirra? Eða töldu þeir málið út- rætt af sinni hálfu eftir hin fjöl- mörgu útvarpsávörp sem þeir höfðu flutt um málið? önnur hlið er til á þessu máli. I máli sem landhelgismálinu hljóta hin pólitísku samtök fólks- ins í landinu að hafa alfa forystu. Það var því þegar af þeirri ástæðu eðlilegt, að einhver leið- togi þeirra hefði framsögu í málinu. Og hver skyldi þá valinn: Sá sem hefir að baki sér 42% þjóðarinnar, 19%, 18% eða 15%. Ef þjóðareining er fyrir hendi, hvernig getur Stúdentafélag Reykjavíkur hafa rofið hana með þvi að fá forystumann stærstu félagasamtaka þjóðarinnar til að reifa málið á fundi sínum? Það liggur ljóst fyrir, að Sjálfstæðis- flokkurinn sem aðrir flokkar stendur einhuga að stækkun landhelginnar. Þess vegna er tal vinstri blaðanna um að Stúdenta- félagið hafi rofið þjóðareiningu út i hött og stórskaðlegt málstað okkar í landhelgismálinu. Hitt er svo annað mál, að Ólaf- ur Thors var ekki sammála ríkis- stjórninni í einu og öllu varð- andi framkvæmd máisins t. d. hvað snertir ,,Paynters“-málið. En á að trúa því, að hinn minnsti skoðanamismunur jafngildi land- ráoum að áliti aðstandenda ríkis- stjórnarinnár? Til eru fyrirmynd- ir um slíkt í ýmsum þjóðfélög- um. Sé þannig ástatt um þá herra, sem hér ráða, þá eiga lýð- ræðisfélög eins og Stúdentafélag- ið verk fyrir höndum. Neitun stjórnarliða í útvarps- ráði virðist benda allhastarlega til þess, að hér skuli ekki rikja fullt mál- og skoðanafrelsi. Rök þeirra fyrir neituninni eiga sér enga stoð. Virðist neitunin aðal- lega þyggð á því, að ágreiningur ÆR Nýlega var dregin til okkar ær, sem við eigum ekki, mark: sneitt fr. hægra, heilrifað bit fr. vinstra. Sá, sem á þessa kind, tali við undirritaðan og sanni eignarrétt sinn. — Sig- urður Gíslason, Hvaleyri, Hafn arfixði. ■— FORD '55 2ja dyra, sem alltaf hefur ver- * ið í einkaeign, nýkominn til l landsins og í mjög góðu lagi, I til sölu og sýnis frá kl. 3—6 ■að Grenimel 24, á morgun, — * mánudag. — Veiðtilboð óskast. I hafi verið um málið innan stjórn- ar Stúdentafélagsins og því gerð í minningu þeirra stúdenta, sem ekki vildu una við lýðræðislega afgreiðslu málsins. Þarf þetta eng um að koma á óvart, því að hér eru á ferðinni sömu mennirnir, sem ekki vildu hiíta lögum og reglum um kjör fulltrúa á þjóð- þing íslendinga árið 1956. Að gefnu tilefni skal það tek- ið fram, að einu mennirnir, sem gert hafa tilraun íil „byPingar" í Stúdentafélagi Reykjavíkur eru hinir svonefndu vinstri menn. Arið 1953 gerðu þeir slíka tilraun, sem mistókst hrapallega og trúi því hve sem vill, að hún hafi verið gerð í því augnamiði einu að gera félagið að „ópóli- tísku menningarfélagx" svo not- uð séu þeirra eigin orð. Samnefnari fyrir orð og skrif þessara manna um Stúdentafélag- ið og mál þess að ’indanförnu er eftirfarandi klausa, sem Hannes á horninu skrifar í Al- þýðublaðið s. 1. sunnudag undir nafninu „Gamall stúdent": „Og síðan hafa stjórnendur Stúdentafélags Reykjavíkur beitt slíkri valdníðslu í félaginu að tugir stjórnarmeðlima er ekki höfðu sömu skoðun sáu sig til- neydda að segja sig úr stjórn- inni“. Þeir, sem sagt hafa sig úr stjórn Stúdentafélags Reykjavík- ur frá upphafi eru samtals 2 — tveir —. Nýlenduvöravetzlun til sölu Til sölu er fremur lítil nýlenduvöruverzlun á góð- um stað í Reykjavík. Verzlunin hefir starfað lengi á sama stað og er í fullum gangi. Hentugt tækifæri fyrir mann til að skapa sér og fjölskyldu sinni at- vinnu. Þeir, sem kunna að hafa áhuga á þessu, sendi afgreiðslu ÍVIbl. bréf með upplýsingum um nafn, heimilisfang og símanúmer merkt: „Nýlenduvöruverzlun — 7949“. U ngíinga vantar til blaðburðar í ettirtalin hverfi Miðbceinn Hringbraut Nesveg Seltjarnarnes (Skólabr.) Aðalstræti 6 — Sími 22480. Hið vel þekkta heimapermanent Fœst í flesfum snyrtivöruverzlunum um land allt Þér, sem œtlið að kaupa eða selja bíl, athugið að flestir bílur, sem eru til sölu seljast hjá okkur Látið AÐSTOÐ aðstoða yður Bifreiðasalan AÐSTOÐ við Kalkofnsveg. Sími 15812. Nýkomið: bordbúnadur Norti'kt silfurplett. Vidar Jðn SipunílGson Skcrlýrípaverzlun L. B. S. saumlausu netnælonsokkarnir max-g eftirspuiðu frá ísrael. — Sokkarnir eru með tvöföldum sóla. LII.JUBÚÐ Bergstaðastxseti 55. Verzlunarstörf Karl eða kona óskast í raf- tækjaverzlun, gott kaup. Um- sækjendur sendi mynd og gefi upplýsingar um fyrri störf. — Tilboð mex’kt: „Verzlunai'störf — 7952“, sendist blaðinu. Halló stúlkur Ungur maður er á heima í sveit, á stórt bú og nýjan bíl, óskar eftir að kynnast góðri stúlku á aldrinum 20—35 ára, með hjónaband fyrir augum. Má hafa eitt barn. Æskilegt að mynd fylgi. Tilboð sendist afgr. blaðsins rnerkt: „7948“. ATHUGIÐ að borið samar við útbi'eiðslu, er la rgtum *»dýrrra aS auglýsa t M.crgunblaðmu, en ) öðrum blöóum. — JHorgtttifcto&td CUF/W EKK/ UÞÞ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.