Morgunblaðið - 12.10.1958, Side 12

Morgunblaðið - 12.10.1958, Side 12
12 MORCVNBLAÐ1Ð Sunnudagur 12. okt. 1958 Utg.: H.f. Arvakur, Reykjavík. f'ramkvæmdastióri: Sigíús Jónsson. Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Ola, sími 33045 Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðaistræti 6. Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480 Askriftargjald kr 35.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 2.00 eintakið. EIGA FRAMSÓKNARMENN AÐ RÁÐA ALÞÝÐUSAMBANDINU? UTAN UR HEIMI Nokkur mælitækjanna í gervihnettinum Á leið til tunglsins AÐ er reynsla íslenzks verkalýðs að langvarandi völd og stjórnarforysta Framsóknarflokksins hefur ævin lega í för með sér erfiðleika og bágindi fyrir allan almenning í landinu. Þegar fyrsta vinstri stjórn Hermanns Jónassonar hafði farið með völd á árunum 1934—1939 hafði hallærisástand skapazt á íslandi. Stórkostlegt atvinnuleysi ríkti við sjávarsíð- una, lánstraust þjóðarinnar var þorrið og gengi krónunnar fallið. Núverandi vinstri stjórn hefur aðeins setið í rúm tvö ár við völd. Á þeim stutta tíma hefir hún lagt á almenning nýjar opinberar á- lögur, sem nema nokkuð á annan milljarð króna á ári. Hún hefitr ennfremur framkvæmt dulbúna lækkun á gengi íslenzkrar krónu um 55%. Krefst oddaaðstöðu í Alþýðusambandsstjc*rn Það er vissulega hlálegt, að Framsóknarflokkurinn, sem allt- af hefur verið verkalýð landsins þyngstur í skauti cg tekið af mestri ósanngirni á kröfum hans, skuli nú krefjast þess að sér verði fengin oddaaðstaða í stjórn Alþýðusambands fslands, heildar samtaka verkalýðsins.Það, sem er ennþá furðulegra er þo það, að kommúnistar, sem jafnan hafa þótzt skeleggastir forystumenn verkalýðsins, skuli hafa samið við Framsóknarflokkinn um að veita honum þessa aðstöðu. Kommúnistar gera sér Ijóst, að það er vonlaust fyrir þá að fá meirihluta á Alþýðusambands- þingi. Framsóknarmenn reyna þó að hjálpa kommúnistum á alla lund. En allt bendir til þess, að sú hjálp muni ekki duga, enda e- Framsóknarflokkurinn fylgisrýr innan verkalýðssamtakanna, eins og vænta mátti. En kommúnistár og Tímamenn vilja samt ekki gefast upp við að halda stjórn Alþýðusambandsins Þess vegna reyna þeir alls konar samninga- makk til þess að tryggja áfrám- haldandi úrslitaáhrif kommún- ista á stjórn samtakanna. Til þess á að nota Dagsbrún Kommúnistar ugga nú mjög að sér í kosningum þeim, sem nú fara fram í Dagsbrún á fulltrú- um til Alþýðusamb.þings. Þeir vita, að yfirgnæfandi meirihluti verkamanna í félaginu fyririítur og vantreystir Framsóknarfiokkn um. Reykvískir verkamenn vita, af sárbiturri reynslu, að Fram- sóknarflokkurin níðist alltaf á Reykjavík þegar hann getur og þorir. Verkamenmrnir í Dags- brún eru ekki ginnkeyptir fyrir því, að fá verstu óvinum bæjar- félagsins völdin í heildarsamtök- um verkalýðsins. Þeir telja, að auðvald SÍS, sem Framsóknar- flokkurinn hefur að sterkasta vopni sínu, hafi orðið r.ægilega sterka aðstöðu í þjóðfélaginu, þó að þessi auðhringur leggi ekki einnig undir sig st'órn heildar- samtaka verkalýðsins. Dagsbrúnarverkamennirnir hljóta því að verða tregir til þess að láta nota atkvæði sín til þess að fá Framóknar- flokknum úrslitaáhrif í stjórn Alþýðusambands íslands. Bjóðast nú til að svíkja! Það sætir vissulega engri furðu, að sú yfirlýsing ríkis- stjórnarinnar í samningum at- vinnurekenda við Dagsbrún að kauphækkun Dagsbrúnarmanna skuli að vörmu spori tekin af þeim með hækkuðu verðlagi, hef ur vakið mikla athygli, og andúð verkamanna. Dagsbrúnarstjórnin leynir Dagsbrúnarmenn þessari yfirlýsingu, því vitanlega hafa Eðvarð Sigurðsson og samstarfs- menn hans í samninganefnd Dags brúnar haft fulla vitneskju um hana. Það er óhugsandi, að sjálfur verðlagsmálaráðherr- ann, forseti Alþýðusambands ís- lands, Hannibal Vaidimarsson, hafi svikizt um að skýra stjórn Dagsbrúnar frá þessu samkomu- lagi. Hafi hann gert það, er vand- séð, hvernig nokkur verkamaður eða verkalýðssinni getur treyst þeim manni. Kommúnistar hafa lagt mikið upp úr þýðingu þess fyrir verka- lýðinn að verðlagsmálin væru í höndum forseta Alþýðusamoands ins, sem einnig er þingmaður kommúnistaflokksins og réð- herra. Verkamenn hafa nú fengið gott tækifæri til þess að sann- reyna innihald þeirrar staðhæf- ingar kommúnista. Það voru Her- mann Jónasson og Lúðvík Jós- efsson, sem gáfu þá yfirxýsingu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að kauphækkunin, sem Dagsbrún knúði fram, skyldi þegar koma fram í hækkuðu verðlagi. Vitan- lega hafa þeir haft samráð um þá yfirlýsingu við ráðherrann, sem verðlagsmálin heyra undir. En getur það verið, að hvorki Lúðvík Jósefsson eða Hannibal Valdimarsson hafi talið það ó- maksins vert að láta stjórn Dags- brúnar vita um þetta þýðingar- mikla atriði? Það er frekar ólík- legt. En það er athyglisvert, að í gær svara bæði Þjóðvxljinn og Tím- inn uppljóstrun hinnar leynilegu yfirlýsingar ráðherra sinna með því að bjóðast til þess að svíkja hana.M Viðhorfið er þá þannig, að fyrst svíkja kommúnistar Dagsbrúnarmenn með því að leyna þá samkomulaginu um að kauphækkunin skuli þegar koma fram í hækkuðu verð- lagi. Þegar verkamenn fá hins vegar að vita um Ieyniplaggið og fyllast reiði og andúð á framferði kommúnista og Framsóknarmanna, þá bjóðast málgögn þessara flokka til þess að svíkja sjálft ieyni- plaggið, yfirlýsingu sína um að ka.uphækkun Dagsbrúnar- manna skuli tekin af þeim með nýjum verðhækkunum! Hvar er æra þessara manna? Hvernig geta þeir vænzt þess að einn einasti heiðarlegur verka- maður ljái þeim atkvæði sitt? ÞAÐ VAR ÞOKA á Cape Cana- veral í fyrrinótt, en kl. 3,42 (staðartími), þegar „Pioneer", fjögurra þrepa eldflauginni var skotið upp, birti yfir öllu um- hverfinu. Bjartur glóandi strókur stóð aftur úr eldflauginni, hún var kyrr andartak, síðan tók hún að lyftast hægt, jók stöðugt hrað ann — og þegar hún hafði náð um 20 m hæð komst fyrst skriður á hana. Bjarminn barst í þok- unni langar leiðir, það var eins og hún flyti á jörðinni. „Pioneer" var nú kominn af stað. Ekki hafði skeikað nema um 10 sekúndur miðað við fyrirfram gerða áætl- un. Þetta var önnur tilraun, sem Bandaríkjamenn gerðu til að koma gervitungli á braut um- hverfis tunglið. Mikil var eftir- vænting þeirra, sem biðu á Cape Canaveral. Vísindamenn lásu jafnóðum úr merkjunum, sem bárust frá „Pioneer" og um- hverfis stóðu samverkamenn. — Dauðakyrrð rikti í sölum tilrauna stöðvarinnar. Innan stundar varð ljóst, að eldflaugin var komin út af að- dráttarsviði jarðar og var fyrsta tæki gert af mannanna hönd- Eldflaug bandaríska flughersins sem flvtur gervihnöttinn á braut- ina kringum tunglið. um, sem kemst út í hinn raun- verulega geim. Áður hafði Van- guard-gervitunglið komizt hæst, 2.500 mílur út frá jörðu. Skömmu eftir að eldflaugin var komin af stað, var tilkynnt, að hún hefði náð 25.000 mílna hraða á klst. og væri á réttri stefnu á hinni 221,000 mílna löngu leið, sem framundan var. Þegar eldflaugin var komin út úr aðdráttarsviði jarðarinnar hægði hún ferðina mjög. Ef allt gengur vel er áætlað, að eldflaugin verði í 50.000 mílna fjarlægð frá tunglinu eftir 2‘/2 sólarhring. ------• Framan á efsta þrepi eldflaug- arinnar situr gervimáninn, ef mána skyldi kalla, því hann er keilulaga. Öll eldflaugin er sett saman úr 300.000 einstökum hlut um, og bili einn, eða samband rofni í einni af þúsundum leiðslna — þá fer allt út um þúfur. Öll vegur eldflaugin 50 smálestir og er 30 metra löng, en hún léttist mikið áður en hún yfirgaf segul- svið jarðar, því þá hafði hún brennt nær tjllu eldsneytinu — og losað sig við neðstu þrepin. Sjálfur „gervimáninn“ vegur um 40 kg., en tæplega helming- ur þess er þungi mælitækjanna, sem komið er fyrir inni í keil- unni. Meðal þeirra tækja er sjónvarpssenditæki, sem ætlað er að senda myndir til jarðarinnar af þeim helmingi tunglsins, sem frá jörðu snýr og mannlegt auga hefur aldrei litið. Enda þótt eld- flaugin komist alla leið og gervi- tunglið fari einnig á hina ákveðnu braut umhverfis tungl- ið, er engu hægt að spá um það, | hvort þessi sjónvarpssending tekst. Aldrei hefur gefizt tæki- færi til þess að reyna sjónvarps- sendingu í geimnum og verið get- ur, að eitthvað það komi í ljós, sem hindrar slíkar sendingar með þeim tækjum, sem hér um ræðir. Auk sjónvarpstækisins eru margvísleg margbrotin mælitæki meðferðis. Sumt það, sem rann- saka á, er ofvaxið skilningi ann- arra en þeirra, sem við þessi fræði fást. Hins vegar verður reynt að ráða margt, sem jarðar- búar hafa oft velt fyrir sér — t.d. hitastig á tunglinu, segulsvið þess o. fl. Að vísu hafa vísinda- menn komizt mjög nærri um margt með fullkomnum tækjum, en engan veginn eru þeir full- vissir um að niðurstöður þeirra séu laukréttar. Þegar eldflaugin nálgast tungl- ið verða vísindamenn að fylgj- ast mjög nákvæmlega með ferð hennar. Með nokkurra mínútna millibili er staða „gervitungls- ins“ reiknuð út — og í tiltekinni fjarlægð frá tunglinu verður lítil raketta á „gervitunglinu" tendr- uð. Rakettan á að setja gervi- tunglið inn á rétta braut um- hverfis tunglið, því að annars kæmist gervitunglið undir áhrif aðdráttarafls þess — og félli „til tunglsins“. Þessi raketta verður tendruð með sérstökum hljómerkjum annaðhvort frá Cape Canaveral eða rannsóknarstöð á Hawaii. Rannsóknarstöðvarnar, sem fylgj ast með ferð eldflaugarinnar eru fjórar, sú þriðja er á Jodrell Bank í Englandi. Milli allra þessara staða er beint þráðsamband og allar upplýsingar um ferðir eld- flaugarinnar berast samstundis á milli. Á Jodrell Bank er geysimikill „radíó-stjörnukíkir". Ytri sjón- skífa hans er 250 fet á breidd. Strax og eldflaugin kom upp fyr- ir sjóndeildarhringinn frá stjörnu kíkinum í morgun sást hún í kíkinum. Var fylgzt nákvæmlega með ferðum hennar þar til hún hvarf aftur undir sjóndeildar- hringinn, en í fyrramálið geta vísindamennirnir aftur fýlgzt með henni. Þessi „kíkir“ gæti fylgt eldflauginni milljónir mílna út i geiminn. Hann er jafnframt þeim eiginleikum gæddur, að samkv. mælingum hans er hægt að reikna út hraða eldflaugar- innar. Allar upplýsingar eru Hluti af „þrlðja þrepinu" settur á eldflaugina sendar til Cape Canaveral, sem síðan hefur samband við „raf- magnsheila", sem reiknar á auga bragði út stöðu eldflaugarinnar. ----—• Þegar þetta er ritað heldur eld flaugin enn stefnu sinni og má ætla, að hún komist því klakk- laust að tunglinu. Allt er nú kom ið undir því, að vel takist til þegar rakettan er tendruð. En færi svo, að heppnin yrði þá ekki með og gervitunglið lenti á tunglinu! Vissulega yrði það bandarískum vísindamönn- um mikil vonbrigði. Ráðagerðir um víðtækar rannsóknir á tungl inu og vonir um mikilvægar upp- lýsingar yrðu að engu um stund- arsakir. Samt sem áður yrði sú tunglför mikill, tæknlegur sigur. Vafalaust mundu margir vilja segja, að það væri stærsti sigur, sem maðurinn hefur unnið á vís- indabrautinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.