Morgunblaðið - 12.10.1958, Page 16

Morgunblaðið - 12.10.1958, Page 16
16 MORCUNBLAÐ1Ð Sunnudagur 12. ok't. 1958 NÝ BÓK LEIÐIIM TIL ÞROSKANS Frá því að sögur hófust hafa verið til menn, gæddir ó- venjulegum skynjanagáfum. Flest trúarbrögð eiga rætur sínar að rekja til slíkra dulvísra manna. Þar koma spá- menn og sjáendur mjög við sögu, en auk þess hafa á öll- um öldum verið svo að segja í hverju byggðarlagi ó- freskir menn, sem séð hafa það, sem öðrum var hulið. Þeir hafa átt sér víðar veraldir, byggðar álfum og önd- um eða englum. Ganga um þetta ótölulegar sagnir. Flestir verða einhvern tíma varir skynjana, sem þeir geta ekki samræmt hversdagsreynslu sinni. Er því senni- legt, að allir hafi vísi að þeim skilningarvitum, sem dul- vísum mönnum eru gefin í ríkara mæli en öðrum. Til þess benda draumar, sem náskyldir eru annarri dul- rænni reynslu. iiðillinn ,sem bók þessi er rituð eftir, heitir Guðrún SigurSordóttir Hún er fædd að Torfufelli í Eyjafirði og komin af góðu og ráðvöndu fólki í báðar ættir. Guðrún telur, að fyrst hafi farið að bera á verulegum miðilshæfileikum hjá sér árið 1952, en síðan hefur hún haft reglulega fundi að minnsta kosti einu sinni í mán- uði með litlum hópi samstarfsmanna. Þessir fundir standa stundum yfir á þriðju klukkustund, og er miðill- inn í transi allan tímann. Það lesmál, sem bók þessi flyt- ur, hefur verið hljóðritað á segulband á árunum 1954— 57. Lýsingarnar eru teknar af segulbandinu óbreyttar með öllu, eins og þær komu af vörum miðilsins. Enda þótt hér sé að mestu leyti um skyggnilýsingar að ræða, er mið- illinn þó í svo djúpum transi meðan hún lýsir því, er fyrir . hana ber, að ekki man hún neitt af því, þegar hún vaknar. Það er ósk útgefanda til handa lesendum þessarar bók- ar, að þeim verði auðgengnari leiðin til þroskans eftir lesturinn en áður. Þá er tilganginum með útgáfunni náð. í bók þessari eru meðal annars eftirfarandi lýsingar: Maður deyr Endurfæðingarlaug í öðrum heimi Konan og bjarti maðurinn Umhyggja kærleikans Hvíta húsið Ljósin tólf Takmörkin milli lífs og dauða Hringmyndaði salurinn Bláklæddu mennirnir þrír Ókennileg áhöld Skeyti, er fara milli manna Sveit manna send eftir deyjandi barni Farið í geimfari Sjúkravitjun í stórborg Silfursírengurinn siitnar Börur úr rósum Hvítklæddi maðurinn og fræðsla hans Hérna megin við brúna Farið til jarðarinnar Maður við útför sjálfs sín Leiðin til þroskans Aðalumboð Bókaforlag Odds Björnssonar Akureyri I. O. G. T. VÍKINGUR Fundur annað kvöld, mánudag, í G.T.-húsinu kl. 8,30. Skýrslur og innsetning embættismanna. Er- indi: Sundkappinn Eyjólfur Jónsson flytur erindi um Erma- sund fyrr og nú. — Fjölsækið stundvislega. — Æ.t. Barnastúkan Svava Fundur í dag kl. 2. — Mætum öil á fyrsta fundi vetfarins. Gæ/.Iuinenn. Hafnarfjörður St. Daníelsher nr. 4 Hátíðafundur þriðjud. 14. þ.m. í Góðtemplarahúsinu kl. 8,30. — Félagar, fjölmennið. — Allir tempiarar velkomnir. — Æ.t. . hrærivélar ENNFREMUR lausar skálar berjapressur og kvarnir — Jfskla. Austurstræti 14 sími 11687 BEZT 4Ð AUGLÝSA í MOIiGUtsBLAÐllXU Bokamenn ! Höfum opnað bókamarkað í Ingólfsstræti 8. McVg hundruð fáséðra bóka og tímarita. — Þetta er tvímælalaust f jölskrúðugasti bókamarkaður, er hér hefur ver- ið haldinn um áiratugi. — Bókamannamarkaðurinn ingólfsstræti 8. Einkaumboð : JJtjótfi 'œraverz Vesturveri — Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.