Morgunblaðið - 12.10.1958, Page 17

Morgunblaðið - 12.10.1958, Page 17
Sunnudagur 12. okt. líraa MORGl'lSBLAÐIÐ :7 Olafur Bergmann Erlingsson — sextugur EKKI geri ég það alveg óhikað að minnast Ólafs Bergmanns Erlingssonar í dag er hann verð- ur sextugur. Hann er svo óvenju- lega hlédrægur maður að ég veit að hann muni kunna því miður vel að vera gerður að umtals- efni á prenti. En ekki verður í allt horft. Hann er búinn að skila þjóðinni svo miklu og merkilegu dagsverki og er svo merkur maður að þögn um hann við slík tímamót í ævi hans væri, eftir siðvenjum okkar, beinlínis mín, að eftir mig vekist einhver upp til þess að halda áfram þessu umvöndunarstarfi; þess er ;nn mikil þörf. Aðfinnslur mínar sýna þó a. m. k. að ég hefi veitt því athygli og talið það máli skipta, hvernig útgerð bóka hef- ur verið háttað. Og ekki hefi ég getað annað en tekið eftir því, hve bækur þeirra fyrirtækja, er Ólafur hefir stjórnað, hafa stað- ið framarlega um vandaðan og smekkvíslegan frágang og stöðug lega orðið um þetta fremri eftir því sem árin liðu. Mætti margur forleggjarinn taka hann sér til fyrirmyndar. Greinilega vissi Ásmundur biskup hvað hann var að gera er hann valdi Ólaf sér til ráðuneytis um útgáfustarf Biblíufélagsins. Að því er ég bezt veit hefir og enginn maður á opinberum vettvangi borið slíkt lof á Ólaf sem Ásmundur biskup, sem aldrei hefir heyrst að væri skrumari. Sem forseti Biblíufélagsins veit hann það öllum mönnum betur, hve mik- ið félagið á viðgang sinn núna síðustu árin þessum framkvæmda stjóra sínum að þakka. Eins og bókaverzlun er háttað hér á landi, ræður hver bóksali litlu sem engu um það, hvaða bækur íslenzkar hann hefir á boðstólum. Valið er í höndum forleggjaranna. Um erlendar bækur er öðru máli að gegna; þar eru hendur hvers bóksala minna fjötraðar. Og þar er hann trúnaðarmaður þjóðarinnar. Al- kunna er það, hvert orð fer af vali erlendra bóka í verzlun þeirri, er Ólafur veitir forstöðu; meira að segja hafa blöðin hvað eftir annað haft orð á því. Og varla kem ég svo þar inn að ég sjái ekki fleiri eða færri kunna menntamenn í búðinni. En raun var mér að því, er hann sagði mér fyrir nckkrum vikum að sér virtust betri bækurnar sífellt verða meira og meira út- undan; svo væri sem lestrar- smekk fólksins hrakaði. Mundu, ekki blöðin geta gert eitthvað til að halda honum í réttu horfi? Þetta er alvörumál. NÝ EÐA NÝLEG óviðurkvæmileg, enda trúi ég því vart að ekki muni aðrir láta til sín heyra. Sakar þá varla að ég rauli með. Enda þótt Ólafur sé einn hinna fremstu fagmanna í prentara- stéttinni, ætla ég að hans verði lengst getið sem forleggjara og bóksala. í þeim greinum hefir hann mest nytsemdarverk unnið menningunni. Hann er nú búinn að vera forleggjari í 37 eða 38 ár, þó að í smáum stíl væri fyrst í stað. Öll þessi ár hefir hann aldrei gefið út þá bók, er honum væri til vansæmdar, en aftur á móti margar sem honum eru til mikils heiðurs. Það er mikið ábyrgðarstarf sem forleggjari velur sér og þjóðin á mikið undir því, að hann hafi ávallt þarfir hennar og menningu fyrir aug- um. En ekki eru þeir margir, sem meira gagn vinna henni en athafnasamir, bókavandir og smekkvísir forleggjarar. Við höf- um dæmin fyrir okkur þar sem voru menn eins og Sigurður Kristjánsson og Oddur Björns- son, og fékk þó Oddur minnu áorkað fyrir það, að sjálf þekkti þjóðin ekki sinn vitjunartíma. Enginn mun neita því, að þessa þrjá eiginleika, er nú voru nefndir, hafi Ólafur Bergmann Erlingsson haft til að bera. Um það hafa verkin sýnt merkin. Ekki stefnir hann heldur úrleiðis enn, nú er hann hefur hafið heildarútgáfu rita Þorvalds Thor- oddsens, valið sér hina beztu menn til að vinna að henni og leggur á það höfuð áherzlu að á einn og allan hátt skuli svo verða frá henni gengið sem hæfir minningu hins frábæra lærdóms- manns, er um langt skeið varp- aði ljóma á ísland meðal fram- andi þjóða, og enn mun halda áfram að gera svo, er rit hans koma að nýju í þeirri útgáfu, er svari til kröfu tímans. Lifi Ólafur það, að ljúka henni efti; því sem hún er nú að hefjast, verður hún honum ærinn minnis- varði, þó að ekki kæmi annað til, sem þó er margt, ems og þegar var sagt. Ég hefi fengið á mig miðlungi gott orð fyrir það, hve dómharð- ur ég hefi verið um íslenzka bókagerð. í áratugi hefi ég fund- ið henni margt til foráttu og vítt hana. Eigi að síður er það von 3|a herb. íbúð óskast til kaups nú þegar, milliliðalaust, helzt á hita- veitusvæði. — Tilboð merkt: „Góð útborgun — 7957“ sendist afgr. Mbl. fyrir n.k. miðvikudagskvöld. Einaittgrunarkork fyrirliggjandi Sparið byggingar- og hitakostnaðinn með því að nota einangrunarkork frá okkur. Jónsson & Júllusson Garðastræti 2 — Sími: 15430 & 19803 Smaragd í öllu er Ólafur Erlingsson mikill traustleikamaður. Talað orð hans er eins gott og innsigli annarra. Samvinnugóður er hann slyngur að velja sér gott starfs- fólk, og er sérstaklega vel lát- inn af því, enda er hann laus við nöldur og smámunasemi, og sjálfur bæði samvinnugóður og ákaflega mikil starfsmaður. Því miður hefir heilsa hans nú um tólf mánaða skeið staðið ærið völtum fótum, og þar á ofan er hann orðinn mjög vinnulúinn. Gjarna hefði ég viljað taka í hönd honum á þessum mikla áfanga- degi ævi hr.ns til þess að þakka löng og góð kynni. En af þeirri ástæðu, er nú var greind, finnst mér sem heimsókn bæri meori vott um ónærgætni en vinsemd. Skiptir líka minnstu um heim- sóknirnar. En mörgum veit ég að muni verða hugsað hlýlega og þakklátlega til hans þó að e’-cki sýni þeir sig honum. Og góí'an hug veit ég að hann kann að meta, þó að hvorki fjasi h?,nn um það né annað, Sn. J. Bazar Kvenfélagið Keðjan heldur bazar í Góðtemplarahúsinu, uppi, þriðjudag- inn 14. okt. kl. 2,30, stundvíslega. Bazarnefijdin. Dömur Eftirmiðdags- og kvöldkjólar teknk fram á morgun. — Mjög smekklegt úrval. Hattaverzlunin „Hjá Báru' Austurstræti 14. Óskadraumur unga fólksins Einkaumboð: Rammagerðin Hafnarstræti 17 Spónlagður krossviður teak, mahogny og álmur (finnskur) fyrirliggjandi. Pantanir óskast sóttar strax. Akur hf. Hamarshúsinu (vesturenda) símar 13122—11299 Steidn tslandi heldur söngskemmtun í Gamla bíói sunnud. 12. þ.m. kl. 3 e.h. og mánudaginn 13. þ.m. kl. 7,15 e.h. Við hljóðfærið Fritz Weisshappel Aðgöngumiðar seldir í bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. Breytt söngskrá Síðustu söngskemmtanir að þessu sinni. DUGLEGA SENDMSVEINA vantar okkur nú þegar á ritstjórna- skrifstofuna kl. 10—6. Aðalstræti 6 — Sími 22480. SÍ-SLETT POPLIN (N0-IR0N) MINEBVH.CÍÍHrtci" STRAUNING ÓÞÖRF

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.