Morgunblaðið - 18.10.1958, Síða 2
2
MORGl'NBL AÐ1Ð
Ráöstefna
PARÍS, 17. okt. (Reuter). —
FASXARÁÐ Atlantshafsbanda-
lagsins, $em er skipað fulltrúum
meðiimaríkjanna 15, kom saman
tit fundar í dag til að ræða um
sérstaka ráðstefnu, sem reyni að
finna lausn á Kýpur-vandamál-
inu.
Formælandi ráðsins sagði í
dag, að góður árangur tiefði
náðst á fundinum og allt gengi
núí greiðar. Við erum að nálgast
samkomulag, sagði hann.
Averoff og Spaak ræddust við
Fundur:nn var haldinn eftir
að þeir Averoff utanríkisráð-
herrá Grikkja og Spaak fram-
kvæmdástjóri NATO höfðu rætt
saman um skilyrðin sem Grikkir
setja fyrir þvi, að þeir taki þátt í
slíkri ráðstefnu.
Spaak vilí, að haldin verði ráð
stefna deiluaðilanna þriggja,
Breta, Grikkja og Tyrkja, þar
sem fulltrúar griska og tyrkn-
eska þjóðbrotsins á Kýpur verði
einnig. Grikkir vilja, að Banda-
ríkjamenn, Frakkar og ítalir taki
einnig þátt í ráðstefnunni.
Formælandi ráðsins sagði, að
þetta atriði væri nú til umræðu,
og að samkomulag um málamiðl
un í því væri sennilegt.
Bakari
bráðkvaddur
við vinnu sína
f FYRRADAG varð Magnús Þor-
kelsson, bakari, í Bernhöftsbak-
aríi bráðkvaddur við vinnu sína
þar. Magnús var 64 ára gamall,
til heimilis að Höfðaborg 74.
Enn forsljóra-
skipti við Bæjar-
útgerð Hafnarfj.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ skýrir frá því
í gær, að enn einu sinni hafi orð-
ið forstjó.raskipti við Bæjarút-
gerð Hafnarfjarðar.
Segir blaðið að Axel Kristjáns-
son, forstjóri Rafhaverksmiðj-
unnar, sem verið hefur annar
tveggja framkvæmdastjóra fyr-
irtækisins, hafi nú óskað eftir
því að verða leystur frá stðrfum.
Á sínum tíma tók hann við því
af Kristni Gunnarssyni, sem út-
gerðarráð bæjarútgerðarinnar
hefur nú samþykkt að ráða sem
framkvæmdastjóra á nýjan leik.
Spennandi
skákmót
HAFNARFIRÐI. — 5. umferð í
skákmótinu var tefld í fyrra-
kvöld og fóru leikar þannig, að
Sigurgeir Gíslason vann Halldór
Jónsson, Stígur Herlufsen vann
Kristján Finnbjörnsson, biðskák
ir urðu hjá Hauki Sveinssyni og
Skúla Thorarensen svo og Birgi
Sigurðssyni og Gunnari Gunnars
syni.
Eftir umferðina er Sigurgeir
efstur með 4 vinninga og bið-
skák, 2.-3. Birgir og Gunnar
með 2Vz og biðskák hvor, 4. Hall-
uúr 2Vz v„ 5. Stígur 2 og 2 bið-
ská'.úr, 6. Skúli IVz og bið-
skák, 7. Haukur 1 vinning og i
2 biðskákir og 8. Kristján með
engan vinning.
6. umferð verður tefld kl. 2 á
sunnudag í „Gúttó“, og þá tefla
saman Skúli og Kristján, Birgir
og Sigurgeir, Halldór og Haukur
og Gunnar og Stígur (þeir fyrr-
nefndu hafa hvítt).
Fremur góð aðsókn hefir ver-
ið að þessu skákmóti, sem mun
vera hið eina hér sunnanlands
um þessar mundir. — G. E.
- Laugardagur 18. okt. 1958
um Kýpur?
Endanleg örlög Kýpur
Averoff sagði Spaak hvaða skil
yrði Grikkir settu fyrir þátttöku
sinni í ráðstefnunni, þannig að
hún ýrði jákvæð og árangursrík.
Grikkir hafa mestar áhyggjur út
af endanlegum örlögúm eyjar-
innar, því þau skip.ti meira máli
en bráðabirgðaáætlanir um frið-
un hennar. Averoff tók ekki þátt
í umræðum fastaráðsins í dag.
Rólegt
Á Kýpur var allt méð heldur
kyrrum kjörum í dag, fáir bar-
dagar eða slys.
Nýir þjóðvegir
í Dalasýslu
ÞESSI þingskjöl hafa verið lögð
fram á Alþingi:
Breytingartillögur við vegalög
frá Friðjóni Þórðarsyni, þar sem
lagt er til, að eftirtaldir vegir
verði teknir í tölu þjóðvega:
Hamraendavegur af þjóðvegin-
um hjá Snóksdal að Bæ í Mið-
dölum. Seljalandsvegur af þjóð-
veginum hjá Blönduhlíð um
Hörðadal vestan ár að Seljalandi.
Neðribyggðarvegur af þjóðveg-
inum nálægt Knarrarhöfn um
„Neðribyggð", fyrir Skorravíkur-
múla, á þjóðveginn hjá Hellu.
Dagverðarnesvegur af þjóðvegin-
um við Fábeinsá að Dagverðar-
nesi. Hjarðarholtsvegur af Vest-
urlandsvegi innan Búðardals um
Hjarðarholt, norðan Laxár í Döl-
um að Sámsstöðum. Þá hefur
einnig verið lagt fram frumvarp
til laga um heimild fyrir ríkis-
stjórnina til að innheimta
skemmtanaskatt með viðauka
fyrir árið 1959, en lög sama
efnis hafa gilt um árabil.
Danslagakeppni SKT 1958 heldur áfram í Góðtemplarahúsinu
■im þessa helgi. í kvöld verður valið milli átta laga við gömíu
dansana. Hljómsveit undir stjórn Carls Billich kynnir lögin og
leikur fyrir dansinum og söngvarar með hljómsveitinni í kvöld
verða þau Adda örnólfsdóttir, Sigmundur Helgason og Gestur
Þorgrimsson, sem jafnframt er kynnir. Myndin að ofan er af
hljómsveitinni.
Maður drukknar
BÆJARÚTGERÐ Reykjayíkur
tilkynnti í gær, að Steingrimur
Kristmundsspn, háseti á togar*
anum Þorkeli mána, hefði fallið
fyrir borð og drukknað. Stein-
gríms hafði verið leitað en ár-
angurslaust.
Þetta gerðist er togarinn var á
leiðinni til Vestmannaeyja, en
þangað þurfti að flytja veikan
mann á skipinu.-
Steingrímur heitinn var kom-
inn undir fimmtugt, einhleypur
maður, sem lengi hefur verið á
sjónum. Hann átti heima að
Leifsgötu 6 hér í bænum.
Fréttaritari Mbl. í Eyjum sím-
aði til viðbótar þéssari frétt, að
hinn sjúki skipverji, hafi ekki
verið lagður þar í sjúkrahús og
muni hann hafa haldið flugleiðis
til Reykjavíkur. 1 Vestmanna-
eyjum tók togarinn þrjá menn.
— Hann hafði verið að veiðum
á Öræfagrunni.
ítalir œtla að kvikmynda „Pétur
Caut44 og „Brúðuheimilið"
STOKKHÓLMI, 17. okt. — NTB.
— Tveir ítalskir kvikmyndafram
leiðendur eru nú staddir í Sví-
þjóð til að ræða við hinn fræga
sænska leikstjóra og kvikmynda-
frömuð, Alf Sjöberg, um mögu-
leikana á því, að hann taki að
sér að stjórna töku tveggja kvik-
mynda eftir leikritum Ibsens. Er
þetta ein af aðalfréttum sænsku
blaðanna í dag. Annað leikritið
sem um ræðir er „Pétur Gautur*,
og á þýzki leikarinn Curd Jiirg-
ens að leika hann. Hitt er
„Brúðuheimilið", og er í ráði að
ítalska leikkonan Guilietta Mas-
sini (sú sem lék í „La Strada“)
leiki hlutverk Nóru.
Norðmcnn þreyttir á verðbólgunni
SAMKVÆMT rannsókn, sem
norska Gallup-stofnunin fram-
kvæmdi nú nýlega, eru Norð-
menn hlynntir því að gefa efiir
launauppbætur, ef með því væri
hægt að stöðva verðbólguna þar
í landi.
Mikið af þvotti
eyðilagt á snúru
í FYRRAKVÓLö var þvottur
eyðilagður í allstórum stíl, þar
sem haan hékk á snúrum við
hús hér í Miðbænum. Er tjónið
metið á 2—3 þús. kr.
Þetta gerðist við húsið Tjarn-
argötu 3. Kona hafði hengt þvott
sinn á snúrur við húsið og aðrar
snúrur við Tjarnargötu 5. Um
klukkan 5 í fyrrakvöld fór konan
út og var þvotturinn þá á sin-
um stað og óskemmdur. Hún
kom aftur um kl. 10 um kvöldið
að snúrunum til að taka þvott
sinn inn. Varð húsmóðirin þess
þá áskynja að búið var að rista
í sundur löK, sængurver og ann-
an þvott sem á snúrunum var.
Rannsóknarlögreglan hefur
verið beðin að rannsaka þetta
skemmdarverk og biður hún alla
þá, sem einhverjar upplýsingar
geta gefið, að gera sér viðvart.
í rannsókninni tóku þátt tvö
Spurningin, sem fyrir þá var
lögð, hljóoaði þannig:
Viljið þér afsala yður launa-
uppbótum, ef með því væri hægt
að stöðva verðhækkanir og verð-
bólgu?
Svör manna skiptust þannig:
80% vildu afsala sér launaupp-
bót.
12% vildu ekki.
8% gátu ekki svarað.
Við athugun á svörunum kom
í ljós, að mjög lítill munur var
á afstöðu manna, eftir því hvar
í flokki þeir standa, atvinnu
þeirra og öðru er að jafnaði hef-
ur áhrif á skoðun manna.
Málverkasýning
í DAG verður opnuð á Akranesi
málverkasýning og sýndar mynd
ir eftir sex málara: Pétur Frið-
rik, Ninu Sæmundsson, Svein
Björnsson, Höskuld Björnsson og
Sigfús Halldórsson, svo og nokkr
ar myndir eftir próf. Magnús
Jonsson.
Sýmngin verður í Sjómanna-
heimiiinu og mun standa yfir í
vikutíma. Er sýning þessi á veg-
um Höskuldar Skagfjörð, er í
sumar hefur ferðazt allvíða um
með sýningar á málverkum.
Stjórnin í Líbanon fœr
einróma traust þingsins
ÞINGIÐ í Líbanon veitti í dag
hinni nýju stjórn Karamis ein-
róma traust. Þar með var lokið
fimm mánaða stjórnarkreppu og
borgarastyrjöld í landinu. Þing-
andi utanríkisráðherra, en þeir
eru báðir erlendis.
Karami hélt sjö mínútna ræðu
til að gera grein fyrir stefnu
stjói narinnat og sagði þá. m. a.:
Sjöberg hefur játað, að þessar
fréttir séu á rökum reistar, en
hann kveðst ekki geta sagt neitt
frekara um málið eins og stend-
ur. Hann segir, að verkefnin séu
heillandi, og að honum sé óhætt
að ljóstra því upp, að kvikmynda
takan á „Pétri Gaut“ verði gerð
á ítalíu og í Svíþjóð. Sjöberg
hefur ekki fengizt við kvik-
myndir síðustu árin, en verið
leikstjóri við Dramaten í Stokk-
hólmi. Hann er þekktur um all-
an heim sem kvikmyndastjóri,
ekki sízt fyrir myndina „Fröken
Julie“ eftir leikriti Strindbergs.
Frá Bréfaskóla S.Í.S.
17 kennarar annast 25
námsgreinar
mennirnir 50, sem sátu þingfund 1 „Við þurfum ekki að fara aftur
inn, greiddu nýju stjórninni at- yfir fortíðina. Við erum staðráðn
kvæði. 16 þingmenn voru fjar- jir að gleyma henni“.
verandi, þeirra á meðal Sami ! í stjórninni eru 4 menn, tveir
Solh fyrrverandi forsætisráð- Júr hópi uppreisnarmanna og
herra og Charles Malik, fyrrver- J tveir úr hópi hægri manna.
í GÆR hafði Vilhjálmur Árna-
son skólastjóri Bréfaskóla SÍS
fund með blaðamönnum og
skýrði þeim frá starfsemi skól-
ans.
Námsgreinar Bréfaskóla S.Í.S.
eru nú 25 að töiu. Á síðustu 10
árum hefir fjöldi þeirra meira en
þrefaldazt. Nýjasta námsgrein
skólans er spænska, en kennsla í
þeirri grein er að hefjast þessa
dagana. Kennslu í spænsku ann-
ast Magnús G. Jónsson, mennta-
skólakennari, en hann hefir þýtt
og samið kennslubréfin. Kennslu
bréfin í spænsku verða fyrir
byrjendur og eru 10 að tölu, um
200 bls. Margar fyrirspurnir hafa
verið gerðar um spænskukennslu
undanfarin ár, og er því ekki ó-
líklegt, að nemendur verði all-
margir í þessari nýju námsgrein
Bréfaskólans.
Á siðasta ári var tala nýrra
nemenda, er í skólann bættust,
792, og er þá samanlagður nem-
endaföldi frá því að skólinn tók
til starfa íyrir 18 árum, á 10. þús-
undinu.
Nemendur Bréfaskólans eru
úr öHum Jandshlutum. Að töl-
unni til flestir úr Reykjavík, en
hlutfallsiega fleiri úr ýmsum
öðrum byggðarlögum. Þeir eru á
ýmsum aldri, allt frá drengjum
og stúlkum ir.nan 15 ára, til full-
orðins fólks um og yfir sextugt.
Flestir nemenda eru þó á aldrin-
um 15—30 ara.
Nokkrir góðir námsmenn nota
bréfakennsluna til undiroúnings
landsprófs með ágætum árangri.
Nokkuð af fólki, er dvelst í
sjúkrahúsum, á vistheimilum og
fangelsum, stundar nám við skól
ann, ef það hefir heilsu og að-
stöðu tiL
Kennslutilhögun Bréfaskólans
er óbreytt frá því sem verið hef-
ir. Nemendur geta lesið eina
námsgrein í einu, eða fleiri, ef
þeir óska. Þeir ráða námshraða
sínum hver og einn og njóta
námsins jafnt, hvar sem þeir
dvelja á landinu, eftir því sem
póstsamgöngur leyfa.
Bréfakennslan fer fram sem
trúnaðarmál milli skólans, nem-
enda hans og kennara. Fram-
burðarkennsla í nokkrum tungu
málum fyrir Bréfaskólann mun
verða í Ríkisútvarpinu í vetur,
eins og verið hefur og á útvarps-
stjóri og útvarfisráð miklar þakk
ir skilið fyrir fcað liðsinni og vin
semd, sem það þannig sýnir
Bréfaskólanum og nemendum
hans. Kennarar Bréfaskólans
eru 17 að tölu, allir reyndir kenn
arar og vel menntir, hver í sinni
grein.
Minka veiðiliundur
keypt ur á 7000 kr.
AKUREYRARBLAÐIÐ Dagur
skýrir frá því, að minkaveiði-
hundar Karlsens minkabana,
séu nú orðnir töluvert útbreidd-
ir. Hafi hann fyrir nokkru kom-
ið með hunda og selt í Eyjafirði,
Óxnadal, Fnjóskadal og Aðaldal.
Dýrasti hundurinn fór að Arn-
arfelli í Eyjafirði og kostaði 7
þúsund kr. „Gefur það auga
leið, segir Dagur, hvers við þykir
þurfa í baráttunni við hið litla
dýr, sem árið 1932 var flutt til
landsins í þeirri von að orðið
gæti upphaf nýrrar atvinnugrein
ar, en er nú orðið landplága“. í
þessari sömu grein skýrir blaðið
frá því, að minkaveiðar með slík
um veiðihundum hafi orðið mjög
árangursrikar.
„Guðspckivika64
hefst á morgun
KOMINN er hingað til lands J.
E. van DisseL forseti Evrópusam
bands Guðspekifélaga. Mun hann
dveljast hér í hálfa aðra viku í
boði Guðspekifélags fslands.
í sambandi við komu hans
hingað efnir félagið 'til „Guð-
spekiviku", sem hefst á morg-
un (sunnudag). Flytur hann þrjá
opinbera fyrirlestra og einn fyrir
félagsmenn á vikunni. Allir fyr-
irlestrarnir vsrða haldnir í Guð-
spekifélagshúsinu og hefjast kl.
8,30. Frú Guðrún Indriðadóttir
túlkar fyrirlestrana. Fyrsti fyr-
irlesturinn er annað kvöld, sunnu
dag, og þá leikur Þorvaldur
Steingrímsson einleik á fiðlu við
undirleik Gunnars Sigurgeirsson
ar.