Morgunblaðið - 18.10.1958, Síða 9

Morgunblaðið - 18.10.1958, Síða 9
Laugardagur 18. c»kt. 1958 MORC.VHMAÐIO Kampmann ritar um land- helgismál Fœreyinga KAMPMANN fjármálaráð- herra Dana, sem veitt hefur forstöðu dönsku nefndinni sem rætt hefur bæði við Eng- lendinga og Færeyinga um stækkun færeysku landheig- innar, ritaði nýlega grein um málið í danska blaðið Dagens Nyheder. Birtist hér lausleg þýðing hennar, þar sem fisk- veiðivandamál Færeyinga eru rædd. Gamalt færeyskt máltæki seg- ir: „Sauða ull er Færeyja gull“. Þetta máltæki var kannske rétt í gamla daga, en nú eru það fiskveiðarnar, . sem eru undir- staða lífs og velmegunar eyja- skeggja og þannig hefur það ver- ið í marga mannsaldra. Þegar verzlunareinokunin var afnumin 1856 komst skriður á þróun fisk- veiðanna, sem þá voru enn frem ur þýðingarlitlar. Sem dæmi má nefna að þá voru aðeins 20% út- flutningsafurðanna fiskafurðir. Síðustu áratugi hafa fiskafurðirn ar hins vegar oft numið yfir 95% af útflutninginum þó hvalafurð- irnar hafi átt sinn þátt í því að þær lækkuðu niður í 90% á síð- astl. ári. Einnig má benda á það, að samkvæmt skýrslu FAO um efnahagslega þýðingu fiskveið- anna í einstökum löndum eru Færeyjar á toppinum með 3 % tonns fiskafla á íbúa. Það er því eðlilegt að landhelg ismálin hafi stórmikla þýðingu, bæði efnahagslega og stjórnmála lega meðal Færeyinga. Stjórn- málaleg þýðing þeirra minnkar ekki við það, að landhelgisvíkk- un íslendinga í 12 sjómílur kem- ur til framkvæmda aðeins fáum mánuðum áður en lögþingskosn- ingar eru haldnar í Færeyjum. Helmingur fiskafla Færeyinga var tekinn á íslandsmiðum þeg- — Utan úr heimi Framh. af bls. 8 undan og valdhafarnir hafi ekki verið nógu hyggnir í fjármá'.a- stjórn sinni. Enda þótt olíugróðinn fari stöð ugt vaxandi e<r eyðslan farin að vaxa hraðar nú orðið. Ef skyndilega drægi úr olíuvinnsl- unni vegna þess, að olíulindirn- ar þryti eða af einhverri annarri ástæðu, væri undirstöðum kippt undan 90% af tekjustofnun rík- isins. Ekkert hefur verið gert til þess að koma á fót iðnaði, sem gæti staðið sjálfstæðum fótum án stuðnings olíulindanna — og engúm hefur dottið í hug að leggja í varasjóð. Fólk er farið að venjast því, að eyða hver sem betur getur. íbúarnir, sem nú eru að verða vel menntaðir og lifa hinu bzta lífi, mundu vera lítt fallnir til að taka upp fyrra líferni, sem tíðkaðist áður en olíuævintýrið hófst. Það yrði hörmung. ★ Nasser lítur Kuwait stöðugt girndarauga. Það er opinbert leyndarmál, að hann vildi gefa mikið fyrir að Kuwait gengi í Arabíska sambandslýðveldið svo að milljónir sárfátækra Araba fengju líka að njóta olíugróðans. Egypzkir kennarar vinna baki brotnu í skólum Kuwait reyna að ala nemendur upp í „hinum arab- iska sameiningaranda“ jafnframt sem þeir troða lestri og skrift í börnin. Og á markaðstorgum Kuwait eru áróðursmenn Nassers á hverju strái með and-vestræn- an áróður. Eins og sakir standa eru hins vegar engin sýnileg merki þess, að hinar 200,000 sálir furstadæm- isins séu óðfúsar að láta 28 millj- ónir Egypta og Sýrlendinga, sem enga olíu eiga, njóta olíugróðans með sér. ar fyrir fyrri heimsstyrjöldina er heildaraflamagn þeirra nam 20— 25 þús. tonnum. í byrjun 3. ára- tugs aldarinnar jókst heildarafli þeirra upp í 30—40 þúsund tonn og var nú yfirgnæfandi meiri- hluti aflans tekinn á íslandsmið- um, en veiðarnar á heima- miðum minnkuðu niður í aðeins 4—5 bús tonn. í lok 3. áratugs- Viggo Kampmann. Myndin tekin er hann steig upp í flug- vél, er flutti hann til Færeyja. ins byrjuðu Færeyingar að sækja á Grænlandsmið. Varð það ekki til að draga úr fiskveiðum þeirra kringum ísland, en hins vegar til þess að veiðar á heimamiðum drógust enn saman. Á „feitu“ árun um kringum 1930 veiddu Fær- eyingar 50 þúsund tonn við ís- land og 20 þúsund tonn við Græn land. Við lok 4. áratugsins fóru veiðarnar við ísland hins vegar að dragast saman, jafnframt þvi sem þýðing veiða á Græn- landsmiðum og Barentshafi jókst. Eftir lok síðari heimsstyrjald- arinnar jókst heildarafli Færey- inga enn svo að á 5 ára tímabil- inu 1952—56 var árlegur meðal- afli Færeyinga 80.000 tonn. Það skiptist þannig að 13% eru veidd kringum Færeyjar, 22% við ís- land en langmestur hluti var fenginn á hinu fjarlægustu mið um, svo sem 41% við Grænland og 23% í Barentshafi. Síðustu ár hafa veiðarnar á heimamiðum aftur glæðzt heldur en þó fá Fær eyingar ekki nema um 15% af 90.000 tonna heildarafla þar. Þó verður að taka fram, að veruleg- ar síldveiðar eru nú í kringum Færeyjar en þær eru ekki taldar rneð hér. Það má ekki skilja hið litla afiamagn í kringum Færeyjar svo að þar sé fiskleysi. Stað- reyndin er sú, að við Færeyj- ar hafa hin síðustu ár veiðzt að meðaltali um 70.000 tonn af fiski, en aðeins 15% af því aflamagni falla í hlut Færey- inga. Hitt veiða aðallega ensk og skozk skip. Koma 41% í hiut enskra skipa og 37% i hlut skozkra. Þar við bætist Iítils háttar veiði Norðmanna og Þjóðverja. Á s.l. öld veiddu Færeyingar eingöngu á færi í opnum róðrar- bátum. Enn eru til á eyjunum 1700 bátar af þeirri gerð. Hafa þeir flestir samt verið búnir vél- um. Mestur hluti heimaveiða Færeyinga byggist nú á lóðun- um, sem eru með þúsundum öngla og er kastað út frá stórum þilfarsbátum. Kannske er það venja sem ræður því að línu- veiðar eru enn svo þýðingar- miklar í Færeyjum, en eins getur það verið að smekkur útflutnings markaðanna ráði þar nokkru um. Þeir óska eftir stórum þorski (saltfiski) og stóri þorskurínn veiðist einmitt bezt á línuna. Togararnir koma með bland- aðri afia og að jafnaði er fiskur þeirra smærri nema botnvarpan sé mjög stórriðin. Togveiðar við Færeyjar eru líka kostnaðarsam- ar vegna þess hve botninn í kring um eyjarnar er ójafn. Það eru mestmegnis gamlir, brezkir tog- arar, sem dunda við togveiðar kringum Færeyjar. Þeir eru of litlir og of úr sér gengnir til þess að geta keppt um togveiðarnar í Norðurhöfum. Fyrir stríðið samanstóð fær- eyski fiskveiðiflotinn, auk smá- bátanna, af 150 skútum og skonn- ortum og 10 gufutogurum. Á stríðsárunum notuðu þeir stærri skipin mest til fiskflutninga milli Færeyja og Bretlands. Þeir misstu 4 togara og 30 skonnortur. Skipstöp þessi kostuðu mörg mannslíf. Að stríðinu loknu var færeyski fiskiflotinn aukinn stór lega, en því miður fólst aukning hans mest í því að kaupa úrelta og úr sér gengna togara í öðrum löndum. Óhjákvæmilegt var því að „gera hreint“ í fiskifl. og frá því um 1950 hefur mikið verið gert að því að endur- hyggja eldri gufukynta tog- ara og fá stærri nýtízkulega diesel-togara. Fram að þessu hafa verið fengnir 5 slikir en 2 eldri togarar hafa verið end- urbyggðir. Þar að auki eru til 3 eldri en vel nothæfir diesel- togarar og 3 togarar eru í smíðum. Einmitt þessa dag- ana eru menn að velta fyrir sér, hvort þeir eigi að panta enn einn nýjan og stóran tog- ara. Það er mikið vandamál í Færeyjum hvernig fé verði útvegað til að byggja fleiri nýja togara svo að þeir mörgu Færcyingar, sem upp á síð- kastið hafa orðið að leita at- vinnu á íslandi geti fengið at- vinnu heima. Vandamálið má einnig leysa með smíði minni vélbáta. Er áhugi að vakna í Færeyjum á hinum nýju vélbátum úr stáli. Fjárhagslegur grundvöllur landsmiðum með því að sækja þeim mun fastar á miðin umhverfis Færeyjar. Það er því ofur skiljanlegt, að Færeyingar hafi einsett sér að ef 12 mílna landhelgi kemst á kringum ís- land, þá skuli hið sama gilda kringum Færeyjar. Þetta er þeim mun skiljanlegra, þar sem breyt- ing íslenzku landhelginnar ger- ist á tíma þegar veiðarnar kring um Færeyjar hafa farið vaxandi. Og maður getur ekki láð Færey- ingum, þó þeir vilji stefna að því með stækkun landhelgi sinnar, að aulrinn hluti aflans, sem veiðist þar sé tekinn af fær- eyskum skipum. Hins vegar skulum við gera okkur grein fyrir því, að þjóð réttarleg afstaða við víkkun færeysku landhelginnar er önnur en hjá íslendingum. Hér skiptir ekki eins miklu máli deilan, hvort einhver þjóð hafi einhliða rétt til að ákveða stærð fiskveiðiland- helgi sinnar, þar sem fisk- veiðilandhelgin við Færeyjar hefur þegar verið ákveðin með samningi við Stóra-Bret- land árið 1955. í samningi þessum var ákveðin fiskveiði landhelgi, sem allviðast er 3 sjómilur en nær þó lengra út, einkum vestan við eyjarnar. Eins og málin hafa snúizt á Norður-Atlantshafi, mun nú svo komið, að allir viðurkenna að þessi landhelgislína er algerlega úrelt, og ekki verður hjá því komizt, að víkka hana. Það sjón- armið að íslendingar og Færey- ingar hafi nokkra sérstöðu og að íbúum þessara eyja verði að veita sérstaka vernd, er einnig mjög eðlilegt. Bezt væri ef hægt væri að koma alþjóðlegri skipan á þessi mál á öllu Norður-Atlants hafinu. Er enda líklegt að árang ur umræðnanna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna verði sá, að haldin skuli ný sérfræðinga- ráðstefna, þar sem reynt skuli að ná slíku alþjóðlegu samkomu lagi. Viðræðurnar við Englendinga nú fjalla því fyrst og fremst um það, hvernig haga skuli þessum málum kringum Færeyjar, til bráðabirgða unz náðst hefur al þjóðasamkomulag. Ef samkomu- lagið næðist ekki á næstu árum. ætti einnig að vera mögulegt að taka málin til nýrrar athugunar, þannig að Færeyingar yrðu ekki bundnir af samkomulaginu Frá Klakksvík mesta útgerðarbæ Færeyja. nýsköpunarinnar felst í löggjöf- inni um veðlánastofnun, sem út- vegar helming kaupverðs nýrra skipa, og þar sem reglur eru um það að Útvegsbankinn leggi fram 20% kaupverðsins en færeyski landssjóðurinn önnur 20%. Hvers vegna vilja Færeyingar víkka landhelgina? Þegar á þessar tölur er litið, það hve lítill hluti afla þeirra er tekinn á heimamiðum, kann það að vekja untlrun manna að Færeyingar skuli leggja svo mikla áherzlu á útvíkkun fisk- veiðilandhelgi sinnar. Því er til að svara, að ef ísland fær 12 mílna landhelgi sína viður- kennda, þá mun í fyrsta lagi draga úr fiskveiðum Færeyinga á íslandsmiðum og í öðru lagi mundu fiskiskip annarra þjóða og þá sérstaklega Bretar reyna að bæta sér upp aflatjón á ís- 1955, sem einnig er hægt að segja upp með 2ja ára fyrirvara, pó í fyrsta lagi árið 1965. Meðan viðræðurnar við Eng- lendinga Um þessi vandamál standa yfir, er ekki hægt að ræða þau ýtarlega. Þó er ekkert leynd armál, að viðræðurnar hafa ekki emgöngu fjallað um stærð fisk- veiðilandhelginnar, heldur engu síður um aðrar leiðir til að tryggja heimaveiðar Færeyinga. Hér er aðalatriðið, hvort og í hve miklum mæli hægt sé að segja að ofveiði eigi sér stað kringum Færeyjar, hvort þannig sé komið að heildarafli á vissum svæðum myndi minnka með auk inni sókn. Fyrir stríð var ástand ið orðið svo slæmt kringum eyj- arnar, en sérfróðir menn telja að í bili sé ekki hætta á ofveiði nema á vissum fisktegundum eins og tildæmis skarkolanum. Þeir telja að fiskveiðarnar við Færeyjar séu á því stigi að þær gefi af sér hámarksafrakstur. Að minnsta kosti verður svo, ef regl ur ganga í gildi um að möskva- stærð rnegi ekki vera minni en 110 mm. Þó þannig virðist, að ofveiði sé ekki við Færeyjar í bili getur hún þó vofað yfir á næstu árum og telja verður að sérhver stækk- un verndarsvæðisins við eyjarn- ar myndi efla fiskistofninn og auka meðalstærð þess fisks sem veiðist. Hér hefur það aftur sína þýðingu að færeyski útflutning- urinn telur stóra fiska ákjósan- legasta. Með stærri fiskistofn myndu veiðar frá opnum bátum aukast og sérstaklega takmörkun togveiða verða hagkvæm fyrir línuveiðarnar. Að vísu mega tog- ararnir ekki vera á þeim slóðum, þar sem lóðirnar hafa verið lagð- ar. En strax og þær hafa verið teknar inn, koma togararn- ir aðvífandi og útiloka að lín- an sé lögð að nýju. Efla þarf fiskirannsóknir og landhelgisgæzlu Þannig koma mörg vandamál upp, þegar reynt er að finna leið ir til að vernda og efla heima- veiðar Færeyinga. Það er eðli- legt, að sérstök áherzla sé lögð á það, hve þýðingarmikið það er fyrir Færeyinga að fá beztu aðstæður til að nýta auðlindir hafsins. í þessu efni ríkir eining á Færeyjum um meginmarkmið- ið, þó að hins vegar séu skiptar skoðanir um það, hvernig því verði bezt náð. Þar að auki hefur það sín áhrif í pólitískum um- ræðum um þetta mál í Færeyj- um, að það eru Danir sem beita sér fyrir viðræðunum við Eng- land. Því er haldið fram, að Dan- ir hafi ekki nægilegra hagsm. að gæta til að ná beztu kjörum fyrir Færeyjar. Að sjálfsögðu er Jietta marklaust tal, því að það er í okkar allra þágu að færeysku fiskveiðarnar hljóti sem beztan starfsgrundvöll. Slíkt myndi styrkja efnahag Færeyja og jafn framt bæta samstarfið milli Færeyja og Danmerkur. Hvað sem líður alþjóðalausn vandamálsins um landhelgi og fiskveiðireglur á færeyskum miðum, þá er það mikilvægt að fylgjast vel með þróun fiskveið- anna sem undirstöðu atvinnulífs Færeyja. í nútíma fiskirannsókn- um er það mjög þýðingarmikið að fá sem nákvæmastar fiski- skýrslur. Það er aðeins með slík- um upplýsingum sem hægt er að notfæra sér reynslu fiskifræð- inganna svo þeir geti mælt stærð fiskistofnanna og áhrif veiðanna á þá. Auk þess sem safna þarf fiski- skýrslum og rannsaka þær er nauðsynlegt að framkvæma til- raunaveiðar og fiskistofnsmæling ar í stærri stíl en hefur verið gert hingað til. Fiskirannsóknarstofan í Færeyjum hefur ekki það starfs lið né fjármagn sem þarf til að framkvæma svo vel slíkar athug anir. Það væri þarflegt ef ein- hverju af allri þeirri orku sem nú er eytt í rifrildi með eða móti 12 mílna landhelginni væri varið til þess að ræða hvaða styrk væri beztan hægt að veita fiskveiðun- um. Sömuleiðis verður að taka til gagngerðar endurskoðunar alla starfsemi landhelgisgæzl- unnar við Færeyjar og Græn- land. Sjóliðarnir hafa unnið starf sem vert er að meta en þeir þurfa ný skip, sem að mínu áliti ættu ekki að vera byggð sem herskip. Það ættu fremur að vera stórir, hrað- skreiðir togarar, sem séu vopnaðir og hafi pláss fyrir þyrilyængju, sem getur tekið þátt í varögæzlustörfunum. Það er ekki nóg að óska sér sem allra stærstar fiskveiðiland- helgi. Það er mikið verkefni að fá hana viðurkennda á alþjoða vettvangi og hafa viðbúnað til þess að verja hana. Samtímis verða menn að leggja sig alla fram til að notfæra sér þá að- stöðu sem þeir hafa. Slíkar fyrir ætlanir ættu að geta komizt í framkvæmd í framtíðinni með samvinnu Færeyja og Danmerk- ur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.