Morgunblaðið - 18.10.1958, Qupperneq 16
VEÐRIÐ
AUhvass eða hvass sunnan
og síðar suðvestan, skúrir
LESBÓK
16. síður fylgir blaðinu í dag.
„Hugur og hönd", sýning
sjúklinga á Kleppi,
opnuð í Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Um klukkan 4,30 í gær varð allharður árekstur á mótum
Bræðraborgarstígs og öldugötu. Bíll frá Hafnarfirði og strætis-
vagn rákust á svo sem myndin sýnir. Kona í hafnfirzka bílnum
meiddist á höfði við áreksturinn og var flutt í Slysavarðstofuna
og þar gert aff sárum hennar. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Skákmótið í Munchen
í DAG kl. 2 e.h. verður opnuð
í Bogasal Þjóðminjasafnsins sýn-
ing á munum, sem unnir eru af
sjúklingum á Kleppi. Nefnist hún
„Hugur og hönd“ og er fyrsta
sjálfstæða sýningin af þessu tagi.
Áður hafa föndurmunir vist-
manna á Kleppi verið sýndir í
sjúkrahúsinu sjálfu, á Landbún-
aðarsýningunni í Reykjavík og
Iðnsýningunni. Sýningin verður
opin næstu 10 daga kl. 2—10 e.h.
og eru munirnir til sölu.
Þórður Möller, settur yfirlækn
ir á Kleppi, sýndi fréttamönn-
um sýningarmunina í gær, en þá
var verið að koma þeim fyrir. Er
þar fjöldi fallegra muna úr marg-
víslegum efnum; prjónles alls
konar, vefnaður, bast- og tága-
vinna, útskornir munir úr
stórgripahornum og hvaltönnum,
hlutir úr „peaxiglasi“ með á-
brenndu mynztri, ísaumaðir dúk-
ar og saumaðar svuntur, eitt mál
verk, leikföng, handhnýtt gólf-
teppi o. fl.
Allir eru mumir þessir unnir
af sjúklingum á Kleppi, undir
handleiðslu sjúkrakennara. Er
til vinnunnar stofnað með lækn-
ingu fyrir augum, enda er hún
undir eftirliti læknisins. Kveður
Þórður læknir það hafa marga
kosti í för með sér að geta látið
sjúklingana fást við slík við-
fangsefni. Það veki sjálfstraust
sjúklingsins, gefi lækninum tæki
færi til að komast í samband við
hann, fái hann til að beita at-
hyglinni að einhverju ákveðnu,
veki athygli hans á umhverfinu
o. s. frv.
Byrjað var á slíkri vinnulækn-
ingu á Kleppi árið 1953 og tveim-
ur árum seinna fékkst þangað
sérmenntaður leiðbeinandi, frk.
Jóna Kristófersdóttir, sem hefur
haft með höndum yfirumsjón
með kennslunni síðan. Tekur nú
mikill hluti sjúklinganna, eða
65—70%, einhvern þátt í handa-
Culjón Jónsson
konpmuðnr
lntinn
í GÆRMORGUN lézt einn hinna
eldri kaupmanna hér í bænum,
Guðjón Jónsson, Hverfisgötu 50,
er um 40 ára skeið rak umfangs-
mikla verzlun í húsi sínu áð
Hverfisgötu 50. Banamein hans
var hjartabilun.
Um kl. 8,30 hafði Guðjón lagt
af stað að heiman frá sér, hress
og kátur að vanda, og ætlaði að
kaupa fisk í soðið í fiskbúðinni
Sæbjörg. Hann var staddur á
móts við verzl. Brynju, er mað-
ur nokkur sem þekkti hann veitti
því athygli, að hann var reikull í
spori. Rétt á eftir tyllti Guðjón
sér mður á húströppur, en mað-
ur þessi gekk þá til hans og bauð
honum hjálp sína. Bað Guðjón
manmnn um að kalla á son sinn,
Jón rafvirkjameistara, sem
heima á að Hverfisgötu 50. Að
vörmu spori var Jón kominn föð-
ur sínum til hjálpar og rétt á eft-
ir kom einnig sjúkrabíll.
Um það leyti sem komið var
með Guðjón í Slysavarðstofuna
var hann örendur.
Guðjón Jónsson hafði ekki ver
ið heill heilsu síðustu 5—6 ár ævi
sinnar, þar eð hjartað var bilað.
Eftir að hann lagði nið-
ur aðalverzlun sína, rak
hann litla tóbaksbúð að Hverfis-
götu 50. Guðjón var 73 ára að
aldri.
vinnunni, ýmist allt að 30 sam-
an í flokkum eða einir sér á
herbergjum sínum. Er það skoð-
un þeirra, sem þessum málum
stjórna, að hægt væri að hækka
þá hundraðstölu, ef húsrúm væri
fyrir hendi.
Sýningarmunirnir eru allir
unnir á síðastliðnum tveimur ár-
um, og er afraksturinn meiri en
svo að hægt sé að stilla öllu
upp í einu. Eru þarna margir
ótrúlega fallegir og vel unnir
munir, og sést ekki öllu vand-
virknislegar unnin handavinna
annars staðar. Sumir eru grip-
irnir unnir af einni manneskju,
aðra hafa margar hendur farið
um.
— Þessari sýningu er ekki ein-
göngu komið upp, til að koma
þessum handunnu munum í verð,
sagði Þórður Möller að lokum,
heldur miklu fremur til að vekja
athygli á því hvað býr í sjúkl-
ingunum, sem svo margir vilja
„afskrifa" í eitt skipti fyrir öll.
Það hugarfar er versti óvinur
okkar, sem fáumst við að hjálpa
þessu fólki til að komast aftur á
réttan kjöl.
Sýningin „Hugur og hönd“
verður opnuð í dag kl. 2 fyrir
boðsgesti, eins og áður er sagt,
og mun Þórður Möller, yfirlækn-
ir, flytja ávarp. Kl. 4 verður
hún svo opnuð almenningi.
STJÓRN Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja, hyggst nú hefja
viðræður við fulltrúa ríkisstjórn-
arinnar varðandi kaup og kjara-
mál starfsmanna hins opinbera.
Stjórn B.S.R.B. hefur skrifað rík
isstjórninni bréf um þetta mál og
að opinberir starfsmenn telji sig
þurfa að fá laun sín bætt til sam-
ræmis við aðrar stéttir þjóðfélags
ins er á undanförnum mánuðum
hafa fengið verulegar launahækk
anir. Opinberir starfsmnn hafa
ekki fengið grunnkaupsækkun
frá því á árinu 1955, er lauiialög
voru sett.
Forystumenn samtakanna telja
vonir standa til þess að þessi
réttarbót opinberra starfsmanna
muni ná fram að ganga áður en
langt um líður.
Vöi ubifreiðir í
Reykjavík séu 265
Á fundi bæjarstjórnar, sem
haldinn var síðastliðinn fimmtu
dag, var samþykkt tillaga Vöru-
bílstjórafélagsins Þróttar um að
hámarkstala vörubifreiða i
Reykjavík skuli vera 265 frá 1.
nóvember n.k. að telja.
1 KEPPNI milli Júgóslava og
Rússa í 4. umlerð á Ólympíu-
mótinu í skák í Miinchen gerð-
ust þau tíðindi, að þessar þjóðir
skildu jafnar, allar skákirnar
Af undirtektum stjórnarblað ■
anna er þó svo að sjá sem hún
sé klofin í þessu eins og flestu
öðru. Tvö stjórnarblöð hafa skrif-
að um málið. Alþýðublaðið, telur
fyllstu ástæðu til að veita opin-
berum starfsmönnum sömu kjara
bætur og aðrir hafa fengið. Þjóð-
viljinn tekur málinu heldur dauf-
lega og telur m. a. að það geti
ekki talizt rökstuðningur fyrir
kröfum opinberra starfsmanna að
vitna til þess að Dagsbrúnarmenn
hafi fengið kauphækkun.
Hvotarkonur
NÆSTKOMANDI mánudags-
kvöld kl. 8,30 heldur Sjálf-
stæðiskvennafélagið Hvöt fund
í Sjálfstæðishúsinu. Frú Auður
Auðuns, forseti bæjarstjórnar,
minnist frú Guðrúnar Jónasson,
fyrrverandi bæjarfulltrúa. —
Bjarni Benediktsson, alþingis-
maður, taiar um stjórnmálavið-
horfið. Þá verður að venju kaffi-
drykkja.
urðu jafntefli. Argentína vann
Austur-Þýzkaland með 214 gegn
V2, en ein skák er óútkljáð.
Spánn sigraði Austurriki, 2V2:
IV2. Búlgaría og Vestur-Þýzka-
land gerðu jafntefli, \V2\IV2, og
ein biðskók. Keppnin milli
Bandaríkjanna og Englands fór
þannig, að þeir fyrrn. hafa hlot-
ið IV2 gegn V2 og tvær skákir
fóru í bið. Tékkar og Svisslend-
ingar hafa gert eitt jafntefli og
eiga 3 óútkljáðar skákir.
Staða efstu landanna í A-riðli,
eftir fjórar umferðir, er sem hér
segir: Júgóslavía 11 vinninga,
Argentína og Sovétríkin 10. —
í B-riðli er Ungverjaland efst
eftir 4 umferðir með 11 vinn-
inga 'og eina biðskák, Holland
IOV2 og 1 bið, Svíþjóð 8 og 2 bið,
ísland og Danmörk 8 og 1 bið-
skák hvor.
í 4. umferð í B-riðli vann
Kanada Finnland með 2V2 gegn
IV2, og í 5. umferð vann Frakk-
land Svíþjóð með 2V2 gegn IV2,
Kólombía og Ungverjaland
skildu jöfn, 2:2 (Cuellar vann
Szabo), Holland vann Belgíu,
3 V2: V2, ísrael vann Danmörku
með 3V2 vinning gegn V2 (Por-
ath vann Larsen). Island keppti
við Kanada í 5. umferð og tap-
aði með IV2 á móti 214
ÍSLENZK-pólskt verzlunarfé-
lag Poltrade, opnaði í gær sýn-
ingu á pólskum bílum, vöruflutn
ingabílum, fólksbíl og sendiferða
bíl, í skála við Suðurlandsbraut,
rétt hjá Landssímahúsinu. Að
þessu fyrirtæki standa þeir Gísli
Jónsson fyrrum alþingismaður,
sonur hans Haraldur, sem er
framkvæmdastjóri þess og Finn-
bogi Kjartansson stórkaupmaður
og pólskur ræðismaður hér í bæn
um. Sendiherra Pólverja hér,
Gumkowski, var viðstaddur og
fyrirtækið bauð ýmsum gestum
til sýningarinnar.
Haraldur Gíslason hélt við
þetta tækifæri ræðu og sagði það
skoðun verzlunarfélagsins Pol-
trade, að bílarnir væru þannig úr
garði gerðir, að þeir væru ó-
hræddir við að láta þá mæta í
samkeppni við aðra bíla. Þarna
var um að ræða fólksbílinn
Kosið í
Stúdentardð
STÚDENTAR munu í dag velja
níu fulltrúa til setu í Stúdenta-
ráði Háskóla íslands þetta skóla-
ár. Fram hafa komið fjórir listar
að þessu sinni: D-listi, listi Vöku,
félags lýðræðissinnaðra stúd-
enta, A-listi, Stúdentafélags jafn-
aðarmanna, B-listi, framsóknar-
stúdenta, og C-listi, sameiginleg-
ur listi kommúnista og þjóð-
varnarmanna.
Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, hefur að undanförnu
haft meirihluta í ráðinu og beitt
sér fyrir framgangi fjölmargra
hagsmunamála stúdenta.
Ásgrímur Jónsson
arfleiddi Reykja-
vík að þremur
listaverkum
FYRIR skömmu barst Gunnari
Thoroddsen borgarstjóra frá
vandamönnum Ásgríms heit.
Jónssonar listmálara, þeim Jóni
Jónssyni, Bjarnveigu Bjarnadótt
ur og Guðlaugu Jónsdóttur, eft-
irfarandi bréf:
..Ásgrímur Jónsson listmálari
fól okkur undirrituðum að af-
henda Reykjavíkurbæ, að sér
látnum, meðfylgjandi málverk,
sem þakklætisvott af hans hálfu
til bæjarins fyrir þá miklu og
góðu aðhlynningu og vinsemd, er
hann varð aðnjótandi á sjúkra-
húsi bæjarins, Heilsuverndar-
stöðinni, í veikindum og bana-
legu.
Myndirnar eru: Hlöðufell, olíu
málverk, stærð 95x115 sm., Kiðá
við Húsafell, olíumálverk, stærð:
90x135 sm., Frá Þingvöllum,
vatnslitamynd, stærð: 65x100
sm.
Með afhendingu þessara 3ja
listaverka, er ósk listamannsins
og ákvörðun hérmeð fullnægt“.
Á fundum bæjarráðs og bæjar-
stjórnar 16. þ.m. skýrði borgar-
stjóri frá þessari höfðinglegu
göf, sem samþykkt var að þiggja
með þökkum.
(Frétt frá skrifst. borgarstjóra)
ARKANESI, 17. okt. — Átta rek-
netabátar héðan voru úti í nótt
og gerði á þá hvassan suðaustan
storm, er þeir voru nýbúnir að
leggja. Drógu þeir netin inn eft-
ir örstutta legu og fengu sumir
ekkert en aðrir lítið og komu
snemma að. Nú er vindur geng-
inn í suðvestur. Einstöku bátar
eru hættir síldveiðum í bili.
— Oddur.
Warszawa og afbrigði af þeim
bíl breytt í sendiferðabíl. Fólks-
bíllinn er í útliti mjög líkur hin-
um rússneska Pobeda, en vélin
sögð sterkari og í -ýmsu smá-
vegis frábrugðin hinum rúss-
neska bíl. Þá sagði Haraldur að
þeir hefðu mikinn hug á því að
flytja inn fólksbílagrindur sem
menn byggðu svo yfir sjálfir eða
bílasmiðjur. Vörubílarnir eru
allir „frambyggðir“, af ýmsum
stærðum og gerðum, en þeir
heita „Star 21“.
Þá gat Haraldur Gíslason þess
að fyrirhugaðar væru fleiri sýn-
ingar á pólskum vörum, vélum,
verkfærum, rafmagnsvörum og
byggingarvöru. Ræðu sinni lauk
Haraldur á þá leið, að það væri
von fyrirtækisins að með sýn-
ingu á þessum bílum hafi þeir
verið kynntir svo, að leyfður yrði
innflutningur á beim.
Stúdentar kjósa
í DAG fara fram kosningar til Stúdentaráðs Háskóla íslands.
Kosíð er í Háskólanum og hefjast kosningarnar kl. 2 og
þeim líkur kl. 8.
Listi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, er D-list-
inn. Kosningaskrifstofa félagsins er í félagsheimili VR,
Vonarstræti 4, III. hæð.
Stuðningsmenn Vöku eru góðfúslega beðnir um að
hafa samband við skrifstofuna sem fyrst.
Símar kosningaskrifstofu Vöku eru 1 05 30, 1 17 79
og 1 45 83.
Stjórn R.S.R.B. íer fram á umræðiir
við stjórnina um kaup og kjaramálin
Pólsk hílasýning hér í bœ