Morgunblaðið - 23.10.1958, Page 11

Morgunblaðið - 23.10.1958, Page 11
Fimmtudagur 23. okt. 1958 MORCVISBLAÐIL II Við venjulegar aðstœður verður íslenzk landhelgisgæzla að geta haldið uppi lög- ákveðinni réttarvörzlu Nauðsynlegt að afla sjóði nýrra tekna Rœða Sigurðar Bjarnasonar á Alþingi við umrœður um tillögu Sjálfstœðis- flokksins um aukna landhelgisgœzlu og bátavernd Á ÞESSU ári eru 45 ár liðin síðan baráttan fyrir íslenzkri land- helgisgaezlu var fyrir alvöru haf- in. Þingi og þjóð var þá orðið ljóst að ekki yrði til frambúðar við það unað að Danir færu með þann þátt íslenzkrar réttarvörslu, sem fólgin var í gæzlu landhelg- innar. Rányrkja grunnmiðanna stefndi lífshagsmunum lands- manna í geigvænlega hættu. Frv um Landhelgissjóð íslands Árið 1913 flutti þáverandi þing maður ísafjarðarkaupstaðar, séra Sigurður Stefánsson í Vigur, frumvarp um stofnun Landhelgis sjóðs íslands. Var aðalatriði þess það, að af sektarfé fyrir ólöglegar veiðar í landhelgi skyldi stofna sjóð er nefnist Landhelgissjóður íslands. ’Skyldu 2/3 hlutar sektar fjársins og jafnhár hluti af nettó- andvirði afla og veiðarfæra land- helgisbrjótanna renna í þennan s.ióð. Ennfremur skyldi ríkissjóð- ui leggja sjóðnum til nokkurt framlag á ári. Landhelgissjóðnum skyldi var- ið til eflingar landhelgisvörzlu íslands fyrir ólöglegum veiðum. Frumvarp þetta fékk mjög góðar undirtektir á Alþingi og var samþykkt nær óbreytt í báð- um þingdeildum og afgreitt sem lög á þesu sama þingi. Má segja að með því hafi grundvöllur ver- ið lagður að þeirri mikiivægu breytingu að íslendingar tækju landhelgisgæzluna í eigir. hendur. Með þeirri ráðstöfun á sektarfé, sem hin nýju lög gerðu ráð fyrir, var fenginn tekjustofn, sem skap aði möguleika á skipakaupum ís- lenzkrar landhelgisgæzlu. Áður en ég rek nokkuð þróun hinnar íslenzku landhelgisgæzlu vildi ég leyfa mér, með leyfi hæstvirts forseta, að lesa hér stuttan kafla úr ræðu flutnings- manns fyrrgreinds frumvatps við 1. umræðu þess í háttvirtri efri deild árið 1913. Með þeim um- mælum er varpað nokkru ljósi yfir aðstæðurnar í þessum mál- um fyrir tæplega hálfri óld, þeg- af þjóðin var að hefja baráttu sína gegn rányrkjunni og fyrir vernd íslenzkra fiskimiða. Undir- tektir Alþingis undir frumvarpið um stofnun landheigissjóðs ber einnig glöggt vitni um þá fram- sýni sem mótaði afstöðu þingsins í þessu stórmáli. Fyrsti flutnings- maður frumvarpsins komst m. a. að orði á þessa leíð: Eðlilegt að fólki sárni „Það eru veiðispell botnvörp- unganna í landhelgi, sem er aðal- atriðið. Vegna þeirra er hin mesta nauðsyn á, að grunnmiðin séu vernduð sem allra bezt. Þess eru óteljandi dæmi, að botnvörpung- ar hafa með lögbrotum sínum . gjörspillt veiði landsmanna 'á landhelgissvæðinu. Þótt ágætur afli hafi verið á grunnmiðum, hefur hann horfið með öllu, þeg- ar botnvörpungar komu þangað. Þetta stafar eigi svo mjög af því, að fiskurinn fælist botr.vörpung- an. heldur hinu, að þeir sópa botninn á fáum dögum. svo að enginn fiskur er þar eftir. Ég veit, að margir greindir gamlir fiskimenn vestra halda þessu fram. Það er eðlilegt, að fólki sárni, að sjá öllum aflanum ger- spillt á 3 til 4 dögum á þeim einu sviðum, er bátar geta sótt fisk á. Þetta gerir landheigisveið- um ómetanlegt tjón. Ég hygg því, að allir verði sam- dóma um nauðsyn landhelgis- varna. Bátaútgerðinni riður ákaf- lega mikið á henni. Ónógar landhelgis- varnir Til þessa höfum vér ekki þótt svo efnum búnir, að vér gætum tekið landhelgisvarnir vorar að oss. Danir hafa, sem kunnugt er, haft þær á hendi og notið hlunn- inda frá oss í staðinn. Þeir mega veiða hér í landhelginni sem landsins eigin börn, og þeir hafa auk þess fengið nokkurt fé fyrir. En þessi vörn þeirra hefur alia tíð verið ófullkomin og ófull- nægjandi, og hún verður það æ því meir, sem botnvörpuútvegur- inn vex. Ég hef énga trú á því, að Danir vilji leggja fram meira fé til þessara varna, en þeir hafa gert til þessa. En þá liggur fyrir sú spurning, hvort vér eigum enn árum saman að horfa upp á það, að grunnmiðum vorum sé spiilt án þess að hefjast handa til þess, að létta af landinu slíkum ófögn- uði. Mér finnst þingið ekki geta lengur hlýtt allsendis aðgerðar- laust á hinar sáru kvartanir þjóð- arinnar eða sjómannastéttarinnar um veiðispeliin í landhelgi vegna ónógrar landhelgisvarna: Það hef , ur oft verið sagt, að það mætti koma þessum vörnum við á óaýr- ari hátt, en Dönum hefur tekizt. En löggjafarvaldið hefur aldrei gert neitt verulegt í þessu efni né hafizt handa til að taka að sér varnirnar. Af þessum ástæð- um, sem nú eru taldar, hef ég leyft mér að bera frumvarp þetta fram fyrir hina hv. deild. Hér er nú að vísu ekki farið fram á, að þingið hefjist handa til svo skjótra framkvæmda í þessu máli, sem æskilegast hefði verið, heldur aðeins, að vér nú þegar gerum ráðstafanir til þess að geta innan skamms búið oss undir, að hafa hönd í bagga með iandhelgis vörninni. Og mér þótti þá liggja beinast við, að nota fé það, er landsjóður fær sem sektarfé fyrir brot gegn lögum um botnvörpu- veiðar í landhelgi. Það má ef til vill segja, að það sé ekki mikið fé, sem fæst með frumv. þessu, þó að lögum verði. En ég vona, að eigi líði á mjög löngu, áður en vér getum tekið til starfa. Þetta sektarfé hefur veirið æðimtkið sum árin. Ég hef fengið skýrslu frá stjórnarráðinu um þessar sektir. Síðan um aldamótin hafa þær numið 322.237 kr. Það er auðsætt, að ef fé þessu hefði frá íbyrjun verið ráðstafað eins og fram á er farið í frv. þessu. þá hefðum vér nú getað tekið all- verulegan þátt í landhelgisvörn- inni. Landhelgis- MikiS í húfi Það er ákveðið með lögum 10. nóv. 1901, að Vs hluta botnvörpu- sektanna gangi í Fiskveiðasjóð íslands. Þessu er ekki breytt í frumvarpi mínu, heldur ætlazt til að afgangurinn, % renni í Land- helgissjóð íslands. Alþingi getur sjálft ráðið því, hvenær sjóður þessi tekur til starfa. En ég tel engan vafa á, að landið geti tekið þátt í strand gæzlu eftir 5—6 ár, ef sektirnar verða svipaðar og að undanförnu. Sigurður Riarnason Mér hefur verið sagt af mönnum, er kynnt sér hafa þetta mál, að það mætti betur verja landið en nú er gert með tveimur skipum með botnvörpungsstærð. Þótt kostnaðurinn við þetta kunni að þykja mikill, þá er hins vegar svo mikið í húfi, að mönnum má ekki vaxa þetta of mjög í augum, og það er með öllu óviðunar.di, að horfa fram á ókomna tímann, ef ekki er gert eitthvað til að kippa þessu í lag“. Þetta voru ummæli þingmanns ísafjarðarkaupstaðar á Alþingi árið 1913. Hann lýkur máli sínu með því að benda á, að þótt kostn aðurinn við íslenzka landhelgis- gæzlu kunni að þykja mikill, þá sé hins vegar svo mikið í húfi að með öllu sé óverjandi að het'j- ast ekki handa um framkvæmdir i málinu. Merkilegt gæfuspor Það sannaðist fljótlega að stofn un Landhelgissjóðsins var hið mesta gæfuspor. Tekjur sjóðsins reyndust alldrjúgar meðan ís- lendingar höfðu engan eða litinn kostnað af gæzlunni og þjóðin eignaðist fyrstu varðskip sín fyr- ir fé úr landhelgissjóði. Með Sambandslögunum 1918 var svo ákveðið að Danir skyldu annast landhelgisgæzluna við ís- land þangað til íslendingar kysu að taka hana í eigin hendur. Fvtrstu varðskipin Árið 1920 kaupir Björgunar- félag Vestmannaeyja gufuskipiði Þór til gæzlustarfa í þágu vél- bátaflotans við Vestmannaeyjar. | Nokkru eftir að Þór var kominn ] í eigu Vestmannaeyinga var tekið j að nota hann jafnframt til land- helgisgæzlu, og naut útgerð hans þá nokkurs styrks úr ríkissjóði. Var skipið vopnað með einni fall byssu ánð 1924. Árið 1926 keypti ríkisstjórnin Þór og gerði hann síðan út sem varðskip. Þór var þannig fyrsta íslenzka varðskipið við ísland. Var það skip 205 brúttósmálestir að stærð og ganghraði þess 8—8Vá sjómíl- ur á klukkustund. Þór strandaði í árslok 1928 og eyðilagðist.Fyrsta skipið sem ríkisstjórn Islands lét smíða til landhelgisgæzlu var varðskipið Óðinn. Var hann smíð aður árið 1926. 512 brúttósmá- lestir að stærð og gekk 13 mílur á klukkustund. Var hann vopn- aður tveimur litlum fallb/ssum. Skömmu síðar var hafin smíði á varðskipinu Ægi, sem var tæp- lega 500 smálestir -og gekk einnig 13 sjómílur á klukkustund. Ægir kom til íslands um mitt ár 1929, og er enn í notkun við landhelgis gæzluna. Eftir að gamli Þór strandaði var annað skip með sama nafni keypt i hans stað, og var hann notaður til landheigis- gæzlu um nokkurra ára skeið. Bæði hann og gamli Óðinn voru seldir. Danir tóku þátt í lar.dhelgis- gæzlu við ísland fram til ársins 193». Eigum nú 6 skip I dag á íslenzka landhelgis gæzlan á að skipa 6 skipum. Er Þór, sem er 700 tonn að stærð og gengur 18 sjómílur, stærst þeirra og fullkomnast. Þá er Ægir, sem er 500 tonn að stærð og gengur 13 sjómílur. Ægir er, eins og áð- ur er sagt, byggður árið 1929 og Þór árið 1951. Ennfremur hefur landhelgisgæzlan á að skipa varð bátunum Sæbjörgu, sem er um 100 tonn að stærð, Óðni, 100 tonn, Maríu Júlíu, 130 tonn, og Albert, sem er um 200 tonn að stærð og er nýjasta varðskipið, byggt árið 1957. Loks hefur land- helgisgæzlan tekið vitaskipið Hermóð á leigu til landhelgis- gæzlu. En það er byggt árið 1947, og er um 200 tonn að stærð. Ganghraði þessara varðbáta er yfirleitt frá 9—13 Vz míla. Er Albert sá varðbáturinn, sem bezt gengur. Efling gæzlunnar Þegar landgrunnslögin höfðu verið sett árið 1948 og stefnan þar með mörkuð í baráttunni fyr ir verndun fiskimiðanna á land- grunninu umhverfis ísland, var þáverandi ríkisstjórn ljóst að gera þyrfti raunhæfar ráðstafan- ir til þess að efla landhelgisgæzl- una. Var þá gerður samningur um smíði varðskipsins Þór. Var gert ráð fyrir því, að hann yrði gangbetri en öll þau skip, sem landhelgisgæzlan hafði áður átt. Bar og til þess brýna nauðsyn, þar sem ganghraði togara hafði aukizt verulega á undanförnum árum. Þór kom síðan til landsins á árinu 1951. Tillaga fyrrv. dóms- málaráðherra Þegar flóum og fjörðum hafði verið lokað og fiskveiðitakmörk- in færð út í 4 mílur árið 1952, þótti augljóst, að skipakostur landhelgisgæzlunnar væri ekki nægilega mikill, þrátt fyrir byggingu Þórs. Árið 1956 flutti þáverandi dómsmálaráðherra, Bjarni Benediktsson, tillögu um það á Alþingi að nýtt varðskip skyldi byggt. Var sú tillaga sam- þykkt hinn 28. marz það ár og ríkisstjórninni veitt þar með heimild til þess að hefja undir- búning að smíði nýs varðskips. 1 tillögunni var jafnframt heim- ilað að verja fé úr landhelgis- sjóði til byrjunarframkvæmda við smíði skipsins. Þessi heimild hefur því miður ekki ennþá verið notuð og ekki hefur verið hafizt handa um byggingu nýs skips. Er það mjög illa farið. Mikið gagn að land- helgisflugvélinni Fyrrverandi dómmálaráðherra hafði einnig forystu um það, að flugvél var keypt í þágu land- helgisgæzlunnar. Var hún tekin í notkun árið 1955 og er það mál allra, sem gerst þekkja þessi mál, að mjög mikið gagn hafi orðið af henni við gæzluna. Það var fyrst árið 1952, eftir að hin nýja frið- unarreglugerð hafði tekið gildi, sem notkun flugvéla hófst að ráði við landhelgisgæzluna. Voru þá fyrst í stað notaðar leiguflug- vélar við gæzluna. En síðan hef- ur fluggæzlan verið skipulögð betur og er nú þýðingarmikill þáttur í landhelgisgæzlunni. Erum mjög vanhúnir Nú, þegar fiskveiðitakmörk in hafa á ný verið færð út, að þessu sinni út í 12 sjómílur, má öllum vera það ljóst, að ekki er minni þörf á eflingu landhelgisgæzlunnar, heldur en þegar flóum og fjörðum var lokað og fiskveiðitak- mörkin færð út í 4 sjómílur árið 1952. En því miður verð- ur það að játast, að í þessum efnum stendur þjóðin nú mjög vanbúin. Islendingar eiga nú aðeins tvö eða þrjú skip af þeirri stærð og með þeim ganghraða, sem geta tal- izt sæmilega fær um að ann- ast landhelgisgæzluna. Við erum því ekki mikið betur á vegi staddir nú en fyrir 20— 30 árum, þegar við höfðum á að skipa 2 sæmilega ganggóð- um 500 tonna varðskipum. Að sjálfsögðu ber ekki að van- meta þátt litlu varðbátanna í landhelgisgæzlunni og björgunar störfum. Þeir hafa oft gert mikið gagn og sjómenn þeirra og stjórn endur komið fram af röskleika og þrótti. En allt bendir til þess að breyttar aðstæður krefjist stærri og ganghraðari skipa. Ekki til að heyja stríð Engum kemur auðvitað til hugar, að skip hinnar íslenzku landhelgisgæzlu séu byggð til þess að heyja stríð og standa í vopnuðum átökum við herskip stórvelda. Landhelgisgæzla okk- ar er fyrst og fremst í því fólgin að verja fiskveiðitakmörkin og grunnmiðin fyrir ágangi togveiði skipa. Um skeið hafa íslenzk varðskip að vísu staðið frammi fyrir kaldrifjuðu ofbeldi eins stærsta herskipaflota heimsins. Þau hafa verið hindruð í að fram kvæma löggæzlu á miðunum um- hverfis landið. Smáþjóð eins og íslending- ai geta ekki miðað réttarvörzl una á fiskimiðum sínum við vopnuð átök við erlend her- skip. En lífshagsmunir þjóð- arinnar kref jast þess, að land- helgisgæzla hennar sé við venjulegar aðstæður fær um að verja fiskveiðitakmörkin og halda uppi lögákveðinni réttarvörzlu við strendur landsins. Sú réttarvarzla er snar þáttur í baráttu þjóðar- innar fyrir sjálfstæði sínu. Þörf aukins skipakosts í tillögu þeirri, sem hér ligg- Frh. á bls. 18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.