Morgunblaðið - 24.10.1958, Page 12

Morgunblaðið - 24.10.1958, Page 12
12 MORGVNRL4fítÐ Föstudagur 24. okt. 1958 Munið dansæfingu Stýrimannaskólans í Silfurtunglinu í kvöld (föstudag kl. 9 s.d. Hljómsveit hússins leikur. Nefndin. Kvöldvinna Ungur reglusamur maður, með verzlunarskólaprófi, óskar eftir einhverskonar aukavinnu á kvöldin. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir sunnudag merkt: „4111“. Svefnherbergishúsgögn Svefnherbergishúsgögn úr teak: rúm, snyrtikommóða, kollar yfirdekktir með gæruskinni: Verð kr. 8.650,00. S K E I v Snorrabraut 48 Sími 11912 Sími 16975 Ný gerð af skrifborðum kr. 2.275,00 Heildsölubirgðir: Eggert Kristjánsson & Co. h.f. Guð/ón Jónsson kaup- maður — minningarorð í DAG verður borinn til grafar gamall og góðkunnur borgari þessa bæjar, Guðjón Jónsson kaupmaður að Hverfisgötu 50. Hann andaðist snögglega hinn 17. þessa mánaðar, og var banamein hans hjartabilun, er hann hafði kennt nokkuð hin síðustu árin. Guðjón var fæddur í Búrfells- koti í Grímsnesi 2. ágúst 1885. Voru foreldrar hans Jón bóndi í Búrfellskoti Bjarnason og kona hans, Ingveldur Gísladóttir hreppstjóra á Kröggólfsstöðum Eyjólfssonar. Ættir þeirra beggja eru fjölmennar og grónar í Ár- nesþingi. Er karlleggur Jóns rak- inn til síra Jóns Egilssonar ann- álaritara í Hrepphólum, en Ing- veldur var af Auðsholts- og Reykjakotsætt í Ölfusi. Hjá for- eldrum sinum ólst Guðjón upp fram undir fermingaraldur, er faðir hans iézt og drengurinn varð að fara að vinna fyrir sér. Dvaldist hann eystra næstu árin, en 1902 fluttist hann til Reykja- víkur. Stundaði hann þá um hríð ýmis störf, var m. a. vinnumaður í Miðdal í Mosfellssveit, lærði einnig bakaraiðn. Kom það snemma fram, að Guðjón var óvenjulega tápmikill, viljugur og ósérhlífinn, að hverju sem hann gekk, og varð því eftirsóttur til starfa. Það mun hafa verið árið 1910, sem hann réðst sem að- stoðarmaður eða ráðsmaður til frú Margrétar Zoega á Hótel Reykjavík. Það starf hafði hann á hendi, unz hótelið brann fimm árum síðar, en eftir það var hann ráðsmaður á búi frú Margrétar í Kálfakoti (nú Úlfarsá) í Mos- fellssveit í tvö ár. Á þeim árum, sem Guðjón starfaði við hótelið, kynntist hann fólki af öllum stéttum hér í Reykjavik og gat sér þá almenningsorð fyrir lip- urð og ljúfmannlega, en þó ein- beitta framkomu. M. a. kynntist hann þá allmikið Einari skáldi Benediktssyni og var um tíma í þjónustu hans. Árið 1917 keypti Guðjón húsið við Hverfisgötu 50, sem varð vinnustaður hans og heimili upp frá því. Þar opnaði hann nýja verzlun hinn 14. des. það ár með nýlenduvörur og matvörur. Verzlun þessa rak hann á sama stað í 35 ár eða til 1952. Verzlun Guðjóns Jónssonar var um langt skeið mjög umfangsmikil, því að auk innanbæjarviðskipta rak Guðjón mikla verzlun við sveita- menn, Árnesinga og Rangæinga, keypti af þeim alls konar sveita- vörur og seldi eða útvegaði þeim hvers kyns nauðsynjavörur. Um eitt skeið höfðu t. d. 8 áætlunar- bílar aðalbækistöð sína á Hverf- isgötu 50. Það, sem meðal ann- ars dró ferðamenn á þennan stað, var hin einstaka lipurð kaupmannsins, sem með gaman- vanda. Ef hann hafði ekki sjálf- ur í búðinni tiltekna vöru eða yrði á vörum, var ávallt reiðu búinn að leysa úr hvers manns tiltekinn hlut, var alltaf sjálf- sagt að útvega það annars staðar til að spara viðskiptavininum ómak, en ekki í það horft að taka snúninginn á sig sjálfan. Þau spor eru og verða ótalin, sem Guðjón gekk þannig annarra erinda, en enginn heyrði hann teija slíkt eftir sér. Þjónustusemi og greiðvikni var honum svo eiginleg, að honum fannst þetta allt sjálfsagt. Vafasamt er, að hönum hafi alltaf verið hagur að slikum viðskiptum, en hitt er víst, að viðskiptavinirnir voru ánægðir. Þess þarf varla að geta, að Guðjón lagði jafnan á sig mikla vinnu, oft uppi um miðjan morgun (kl. 6) og vinnudagu?! til kl. 10 að kvöldi. Þó að hann yrði að lokum allvel efnum bú- inn og gæti hin síðustu ár verið iaus við áhyggjur af þeim sök- um, þá má með sanni segja, að hann hafi til þess unnið. Eftir að verzlun tók að eflast og dafna austanfjalls á síðari áratugum, dró að sama skapi úr viðskiptum Guðjóns við sveita- menn, unz þau liðu alveg undir lok. Hægðist þá um í búðinni á Hverfisgötu 50, langferðabílarnir hurfu af hlaðinu og ösin dreifð- ist. En svo lengi sem búðin var opin, héldu hinir gömlu við- skiptavinir í bænum áfram að ieita þangað um útvegun allra sinna nauðsynja. Og þar hélt hin sama ljúfmannlega þjónustu- semi áfram jafnlengi. Þó að Guðjón Jónsson ætti löngum annríkt við daglegar sýslur, gaf hann sér engu að síð- ur tíma til að sinna andlegum efnum og félagsmálum. Hann var trúmaður á gamla vísu, lengi félagsmaður í K. F. U. M. og starfaði þar af einlægni og alvöru. Einnig var hann maður með afbrigðum kirkjurækinn. Trúmál voru honum heilög alvara, og gætti þeirrar lífs- Skrifstofuherbergi óskast strax sem næst miðbænum. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt Strax — 4114. stefnu mjög í dagfari hans. Hann var orðvandur maður og umtals- góður, blótsyrði heyrði eg aldrei af vörum hans og honum féll miður, ef menn viðhöfðu þau í návist hans. Þetta var honum engin uppgerð. Einnig í stjóm- málum voru skoðanir hans fast- ar og einlægar. Hann var ein- dreginn fylgismaður Sjálfstæðis- flokksins og sat í fulltrúaráði hans frá því að flokkurinn var stofnaður og vann honum allt til þarfa, sem hann mátti. Enginn, sem þekkti Guðjón Jónsson, efast um það, að hann kaus sér þar stöðu í flokki, bæði í trúmálum og stjórnmálum, sem hann taldi þjóðinni fyrir beztu. Eins og getið var í upphafi, var Guðjón Jónsson Árnesingur að ætt og uppruna. Bar hann jafnan hlýjan hug til átthaganna og var einn af stofnendum Ár- nesingafélagsins í Reykjavik 1934, en áður hafði hann ásamt fleirum gengizt fyrir Árnesinga- mótum hér í bæ. Félagið átti á fyrstu árunum nokkuð erfitt upp- dráttar og horfði allóvænlega um framtíð þess um nokkurt skeið. En þá kom Guðjón til skjalanna og kvað Árnesinga ekki mega láta þá skömm eftir sig liggja að láta félagið lognast út af. Hann var kosinn formaður í félaginu og hleypti í það nýju lífi. Var hann formaður í 11 ár (1938—1949) og kom starfsemi félagsins á fastan grundvöll, svo að það hefir borið rétt höfuð síðan. Meðal framkvæmda fé- lagsins á formannsárum Guðjóns var að láta reisa varðann að As- hildarmýri á Skeiðum, sem væntanlega mun lengi standa. Lét formaðurinn sér mjög um- hugað um það verk og lagði jafn- vel af mörkum til þess úr eigin vasa. Þegar Guðjón lét af eigin ósk af formannsstörfum, var hann kjörinn heiðursfélagi Ár- nesingafélagsins. Guðjón Jónsson kvæntist 10. febr. 1921 frændkonu sinni, Sig- ríði Pétursdóttur af Álftanesi, góðri og myndarlegri konu, sem skapaði manni sínum hlýlegt heimili og studdi hann til allra farsællegra hluta. Var heimili þeirra annálað fyrir gestrisni og heimilislíf þeirra mjög til fyrir- myndar. Þau hjón eignuðust þrjú efnileg börn, sem lifa öll föður sinn: Jón rafvirkjameist- ari og Pétur framkvæmdastjóri, sem eru búsettir í Reykjavík, og Málfríði, sem er búsett í New Brighton í Englandi. Guðjón Jónsson var með hærrl mönnum á vöxt, beinvaxinn og bar sig vel, kraftamaður á yngri árum, léttur í spori og léttur í lund, ljúfmannlegur og glaður í viðmóti. Eg held, að öllum hafi verið vel til hans, þeim er kynnt- ust honum, og mörgum gerði hann gott á lífsleiðinni. Hann var maður, sem í engu vildi vamm sitt vita, festi ungur tryggð við hið fagra og góða í lífinu og tamdi sér að líta björtum augum á tilveruna. Erfiðleikum tók hann með karlmannlegri bjart- sýni, og óhræddur mun hann hafa lagt upp í sína hinztu för. Eg þakka Guðjóni, vini min- um, fyrir samstarf og margar ánægjulegar samverustundir á heimili hans, góðvild hans og vinarþel, og votta ástvinum nans innilega samúð mína. Megi þeim vera hugfast, að eftir lifir mann- orð mætt, þótt maðurinn deyi. Guðni Jónsson. VESTURBÆINGAR! Munið að benzínafgreiðsla ykkar er við Nesveg l OLfUFÉLAGIÐ HF.!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.