Morgunblaðið - 24.10.1958, Side 20
VEÐRIÐ
Suðvestan gola, smáskúrir,
frostlaust.
143. tbl. — Föstudagur 24. október 1958
SIÐA S. U. S.
Sjá bls. 8
Nýr spurningaþáttur i útvarpinu
Allt oð 10 Jbús. fyrir rétt svör
A SUNNUDAGINN hefst í út-
varpinu nýr þáttur undir stjórn
Sveins Ásgeirssonar, hagfræð-
ings, Nefnist hann „Vogunvinnur
— vogun tapar“, og er spurninga
þáttur, þar sem menn geta keppt
til allt að 10.000 króna verðlauna.
Auk þess koma þar fram nýir
„snillingar", sem munu spreyta
sig á nýjum verkefnum. Verður
þættinum útvarpað hálfs mánað-
arlega.
Þátttakendur í spurningaþættin
um stinga sjálfir upp á því efni,
sem þeir eru reiðubúnir að svara
spurningum um, en síðan verð-
ur metið hvort það verður tekið
gilt. f fyrsta áfanga verða fjórar
spurningar, í næsta áfanga tvær,
og í 3. og 4. skiptið ein. Fyrir
fyrstu spurningu eru verðlaunin
7 kr., upphæðin tvöfaldast við
hvert rétt svar, og getur hún
komizt upp í 10.000 kr., ef öllum
spurningum er rétt svarað. Geta
þátttakendur ákveðið að hætta
eftir hverja svaraða spurningu,
en leggja að öllu leyti að veði það
sem áunnizt hefur, ef þeir halda
áfram. Verður gefinn ákveðinn
tími til svars. Munu fyrstu þátt-
takendur vera fengnir.
Dómari fyrir utan þá sérfræð-
inga sem kveða verður til hverju
sinni, er Ólafur Hansson, en vörð
ur tíma og reglna Birgir Ásgeirs-
Frú Bertha Beck
látin
SÚ frétt hefir borizt blaðinu að
frú Bertha Beck, kona Richards
Beck prófessors í Grand-Forks,
V-Dak., hafi látizt síðastliðinn
þriðjudagsmorgunn. — Frú
Bertha var íslenzk að þjóðerni,
ættuð úr Rangárvallasýslu. Hún
var hjúkrunarkona að menntun
og gegndi þýðingarmiklu starfi
í þágu heilbrigðismála í Norður-
Dakota. — Manni sínum var hún
ómetanleg stoð í hinu marghátt-
aða starfi hans. Jarðarförin er
ákveðin næstkomandi föstudag.
Söngur Guðrúnar
Tómasdóttur
í KVÖLD kl. 7,15 heldur Guðrún
Tómasdóttir, sem nýkomin er frá
námi, sína fyrstu sjálfstæði söng-
skemmtun í Gamla bíói. Guðrún
mun að þessu sinni syngja laga-
flokkinn „Frauenliebe Leben“,
eftir Schumann, sjö spænsk þjóð-
lög eftir de Falla, auk þess nokk-
ur ítölsk lög og loks lög eftir
islenzka höfunda.
Árshátíð Sjálf-
stæðisfélaganna
í Árnessýslu
J
ÁRSHÁTÍÐ Sjálfstæðisfélag-
anna í Árnessýslu verður haldin
í Selfossbíó annað kvöld og hefst
kl. J. Ræður flytja alþingis-
mennirnir: Ingólfur Jónsson og
Sigurður Ó. Ólafsson.
Fjölbreytt skemmtiatriði ann-
ast: Brynjólfur Jóhannesson,
Jón Sigurbjörnrsson, Emilía Jón-
asdóttir og Skúli Halldórsson. Að
síðustu verður stiginn dans.
son. Eru reglur þær sem gilda í jhvern sunnudag og útvarpað
þessum þætti svipaðar og í sams sama kvöld kl. 21.00. Er þetta
konar þáttum erlendis. klukkutíma þáttur. Verða áhéyr-
Þátturinn verður tekinn upp endur viðstaddir upptökuna í
í Sjálfstæðishúsinu kl. 3 annan I Sjálfstæðishúsinu.
Útgjöld ríkissjóðs vegna
vanskila á ríkisábyrgð-
arlánum vaxa ár frá ári
ÚTBÝTT hefur verið á Alþingi
tillögu til þingsályktunar um
undirbúning löggjafar um ríkis-
ábyrgðir. Flm.: Magnús Jónsson.
Er tillagan á þessa leið:
Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að láta undirbúa lög-
gjöf um rikisábyrgðir, þar sem
sett verði almenn skilyrði fyrir
veitingu ríkisábyrgða og sam-
ræmdar þær mismundandi regl-
ur, sem um þetta efni hafa gilt.
Enn fremur verði kannaðar orsak
ir sívaxandi vanskilá á ríkis-
ábyrgðarlánum og tillögur geið-
ar um úrbætur.
í greinargerð segir:
í árslok 1956 höfðu samkvæmt
ríkisreikningi verið veittar ríkis-
ábyrgðir fyrir lánum, er samtals
námu tæpum 870 millj. kr. Á
hverju þingi eru veittar heimildir
til ríkisábyrgða fyrir háum fjár-
hæðum, og enn fremur eru í
mörgum sérlögum almennar
heimildir til ríkisábyrgða.
Um veitingu ríkisábyrgða gilda
mjög mismunandi reglur. Yfir-
leitt ákveður Alþingi hverju
sinni upphæð þá, sem ábyrgð má
ná til, en oftast er ríkisstjórninni
fengið vald til þess að setja önn-
ur þau skilyrði fyrir ábyrgðinni,
sem hún telur við eiga hverju
sinni.
Ekki er með tillögu þessari
ætlazt til þess, að ríkisstjórninni
verði veitt almennt vald til þess
að veita ríkisábyrgðir. Ákvörðun
um það, hvort ábyrgð skuli veitt
eða ekki, verður að vera í hendi
Alþingis. Hins vegar er að því
stefnt, að settar verði almennar
reglur um þau skilyrði, sem upp-
fylla verði til þess að fá ríkis-
ábyrgð, svo sem um ábyrgðar-
hlutfall, tryggingar og ráðstaf-
anir í sambandi við vanskil,
þannig að sem líkastar reglur
gildi um allar ríkisábyrgðir. Er
í því sambandi einnig nauðsyn-
legt að taka til athugunar þau
sérlög, sem hafa að geyma ákvæði
um ríkisábyrgðir.
Segja má sem svo, að sérstök
lög um ríkisábyrgðir hafi litla
þýðingu, því að Alþingi' geti
hverju sinni ákveðið frávik frá
þeim reglum, sem þar eru sett-
ar. Þetta er að vissu leyti rétt,
en reynslan er samt sú, að þegar
menn hafa komið sér saman um
almennar reglur, þá er ógjainan
vikið frá þeim.
Þörfin á endurskoðun ríkis-
ábyrgðanna í heild verður æ
brýnni fyrir þá sök, að útgjöld
ríkissjóðs vegna vanskila á ríkis-
ábyrgðarlánum vaxa ár frá ári.
Er í fjárlagafrv. fyrir 1959 gert
ráð fyrir 10 millj. kr. útgjalda-
aukningu ríkissjóðs af þessum
sökum. Virðist því full ástæða
til að íhuga, hvort hægt sé að
koma þessum málum í betra horf.
í því sambandi er nauðsynlegt
að gera sér grein fyrir orsökum
vanskilanna í einstökum tilfell-
um og reyna að finna viðunandi
úrræði til þess að koma í veg
fyrir sívaxandi vanskil. Er sú
hlið málsins að verulegu leyti
tengd því vandamáli, hversu auð-
ið sé að bæta fjárhag sveitar-
félaganna.
ITndanfarna daga hafa skipzt á skln og skúrlr í Reykjavik.
Á þeirri stundu, sem myndin er tekin, má ekki á milli sjá
hvort sigrar, hellirigningin eða sólin, sem brýzt í gegnum ský.
Bœndur á Suðurlandi kjósa búnaðar■
þingsmenn til nœstu 4 ára
Kosningar á sunnudaginn A-listi
Sjálfstœðismanna
Á SUNNUDAGINN munu bænd-
ur á Suðunandi ganga að kjör-
borðinu. Að þessu sinni eru það
hvorki alþingismenn né hrepps-
nefndaroddvitar sem kjósa skal,
heldur fulltrúa á næsta búnaðar-
þing. Tveir listar hafa komið
fram og eru það Sjálfstæðismenn
og Framsóknarmenn sem standa
að listunum.
Þingfulltrúar þeir, sem kjörniji
verða, eru fulltrúar Búnaðarsam-
bands Suðurlands, en það er
stærsta búnaðarsambandið hér á
landi og nær félagSsvæðið yfir
Árnes-, Rangárvalla- og Vestur-
Skaftafellssýslur, svo og Vest-
mannaeyjar. Kosnir verða fimm
aðalfulltrúar og jafnmargir til
vara, til næstu 4 ára. .Kosningar
fara fram í hverju einstöku bún-
aðarfélagi á sambandssvæðinu,
en að kosningum loknum mun
atkvæðakössum verða smalað
og talning fara fram á Selfossi,
þar sem stjórn sambandsins situr.
AILISTINN verður listi Sjálf-
stæðisflokksins og eru þessir
bændur á honum:
Sigurjón Sigurðsson, Rafholti,
Sigmundur Sigurðsson, Syðra-
Langholti.
Siggeir Björnsson, Holti,
Lárus Ag. Gíslason, Miðhúsum,
Einar Gestsson, Hæli,
Kjartan L. Markússon, Suður-
Hvammi.
sr. Sigurður Haukdal, Bergþórs-
hvoli,
Gunnar Sigurðsson, Seljatungu,
Ísafjarðarbátar hefja
róðra í vikunni
ÍSAFIRÐI, 21. okt. — ísborg
landaði hér 19. þ.m. 243 lestum af
karfa. Togarinn hélt aftur á sömu
mið; Sólborg er væntanleg á
fimmtudaginn með fullfermi af
karfa. Bátar hér eru nú að búd
sig undir veiðar með línu og er
búizt við að sumir hefji róðra nú
í vikunni. Enn er hér sumarblíða
og vegir færir vestur yfir heiðar.
Er það sérstakt á þessum tíma
árs. — G.
Einar Eiríksson, Miklaholts •
helli.
Páll Björgvinsson, Efra-Hvoli.
B-listi Framsóknarflokksins:
Bjarni Bjarnason, Laugarvatni,
Klemens Kr. Kristjánsson, Sáms-
stöðum,
Jón Gíslason, Norður-Hjáleigu,
Sigurgrímur Jónsson, Holti,
Skortur á fiski-
geymslum
í Neskaupstao
NESKAUPSTAÐ, 22. okt. —
Goðafoss var hér í fyrradag að
lesta hraðfrystan fisk til Ame-
ríku Skipið tók um 5000 kassa
hjá fiskvinnslustöð Samvinnu-
félags útgerðarmanna og 1600
kassa hjá frystihúsi kaupfélags-
ins Fram. Kom þetta sér vel því
geymslur SÚN voru orðnar
alveg fullar og hafði verið leitað
eftir að fá geymdan frystan fisk
fyrir Norðfirðinga á Seyðisfirði,
en lítið fiskmagn mun vera í
hinu stóra fiskiðjuveri Seyðfirð-
inga enn sem komið er.
Askja var hér á sama tíma og
tók 30 lestir af saltfiski á Jama-
icamarkað. Eru þá alls farin um
130 tonn af þeim fiski, er hér
var verkaður, einn farmur af
togaranum Gerpi, tæp 506 tonn
af blautfiski. Úr fiskinum fæst
um 60% af þurrfiski, en mikil
vinna hefur verið við saltfiskinn.
Dagskrá Alþingis
í DAG eru boðaðir fundir í báð-
um deildum Alþingis. Á dagskrá
efri deildar er eitt mál. Frum-
varp um skemmtanskattsvið-
auka, 2. umr.
Á dagskrá neðri deildar er eitt
mál. Frumvarp um útflutning
hrossa, 2. umr. (Ef leyft verður).
Eggert Ólafsson, Þorvaldseyrl,
Ragnar Þorsteinsson, Höfða-
brekku,
Hjalti Gestsson, Selfossi,
Guðjón Jónsson, Ási Vestmanna-
eyjum,
Eiríkur Guðjónsson, Ásl,
Þórarinn Sigurjónsson, Laugar-
dælum.
Skákmót
Kcflavíkuk1
SKÁKMÓT Keflavíkur hefst
n.k. sunnudag kl. 13 og fer keppn
in fram í samkomusal Aðalstöðv
arinnar í Keflavík. Teflt verður
eftir Monrad kerfi og keppa meist
araflokkur og 1. og 2. í einum og
sama flokki. Kaupfélag Suður-
nesja hefir gefið veglegan silf-
urbikar, sem nú verður keppt um
í fyrsta skipti. Núverandj skákr
meistari Keflavíkur er Ragnar
Karlsson. —B.Þ.
Flugvallargerðin
í Neskaupstað
hálfnuð
NESKAUPSTAÐ, 22. okt. — Ný-
lega er hætt vinnu við flugvall-
! argerðina í Neskaupstað á þessu
ári. Aðkomumennirnirnir, sem
' unnu við hana, eru farnir og bú-
j ið að koma sanddæluskipinu upp
\í slipp hjá dráttarbrautinni í
Neskaupstað. Júlíus Þórarinsson,
yfirverkstjóri, gaf þær upplýs-
ingar í dag, að búið væri að
dæla um helmingi þess magns,
sem þarf til að fullgera flugbraut
ina. Vinna sanddælunnar hefur
gengið mjög vel, en til þess að
ljúka verkinu þarf hún að vinna
hér tvö sumur enn. Lengd braut-
arinnar er nú um 500 metrar, en
fullgerð verður hún 1200 metrar,
en nú þegar er búið að fylla
dýpsta hlutann af leirunni. Af-
mörkuð hefur verið sjúkraflug-
braut, 300 metrar að lengd.
— Fréttantari.