Morgunblaðið - 30.10.1958, Page 1
20 síður
Pasternak umkringdur lögreglu:
Hafnaði Nóbelsverðlaununum
Halldór Kiljan Laxness sagði í stuttu samtali við Mbl. í gær:
„Ég á bágt með að trúa öðru en hann (þ. e. Pasternak) fari
til Stokkhólms, þó að rithöfundafélagsskapurinn sé honum
andvígur".
Fréttir í stutfu máli
★ Lur.dúnum, 29. október. — Formaður kjarnorkunefndar Banda-
rlkjanna sagði í kvöld, að Sovétríkin gerðu nú víðtækustu kjarn-
orkutilraunirnar í sögu landsins.
jr Atlar tshafsbandalagið gafst í dag upp við að reyna að efna til
fur.c'ar Breta, Grikkja og Tyrkja um Kýpurmálið. Eins og áður
hefur verið getið í fréttum, neitaði gríska stjórnin að taka þátt í
siíkum fundi nema tryggt væri áður, að einhver árangur næðist.
í NTB-frétt segir, að Norðmenn og íslendingar muni
koma fram með sameiginlegar tillögur innan Maudling-
nefndarinnar þess efnis, að fiskur og fiskafurðir lúti öðr-
uiri lögmálum < fríverzlun Evrópu en iðnaðar- og land-
búnaðarafurðir.
★ t dag fundust 12 námumenn á lífi í göngum Spring Hill nám-
unnar í Nova Scotia, sem lokuðust á fimmtudag. Enn eru margir
námumenn grafnir í göngunum og er þeim vart hugað líf. Þó
glæddust vonir manna > dag, er fréttist um björgun tólfmenning-
anna.
jr 1 dag ræddust fulltrúar Breta og Dana við í Lundúnum um
fiskveiðilandheigi Færeyja. Umræðum var frestað fram yfir Lög-
þingskosningarnar í Færeyjum.
jr Tilkynnt var í Ósló í dag, að Norðmenn hygðust hefja víðtæk-
ustu rannsóknir á síldargöngum, sem um getur.
LUNDÚNUM, Moskvu, Kaup
mannahöfn og Stokkhólmi,
29. okt. — í dag hafnaði rúss-
neska skáldið Boris Paster-
nak Nóbelsverðlaununum, í
símskeyti, sem hann sendi
sænsku akademíunni. í skeyti
sínu kemst rithöfundurinn
svo að orði: „Þegar þess er
gætt, hvernig þessi heiður
hefur verið túlkaður í því
þjóðfélagi, sem ég bý í, finn
ég mig knúinn til að hafna
þeim óverðskulduðu verð-
launum, sem mér hafa verið
veitt. Takið því ekki illa, er
ég af frjálsum vilja afsala
mér þessum verðlaunum“. —
Fyrir um það bil viku úthlut-
aði sænska akademían Past-
ernak Nóhelsverðlaununum
og er honum hafði verið til-
kynnt um ákvörðun akademí-
unnar, sendi hann svohljóð-
andi skeyti um hæl: „Ákaf-
Iega þakklátur, hrærður,
hreykinn, undrandi, yfir-
þyrmdur“. — Skömmu síðar
sagði skáldið við blaðamenn,
að hann vonaðist til að geta
farið til Stokkhólms og veitt
verðlaununum sjálfur við-
töku. í dag var lögregluvörð-
ur um hús skáldsins skammt
fyrir utan Moskvu.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
rithöfundur hafnar Nóbels-
verðlaunum í bókmcnntum,
en þau eru eins og kunnugt
er, einhver mesti heiður, sem
nokkrum rithöfundi getur
hlotnazt.
★
Fréttaritarar í Moskvu segja,
að lögregluvörður sé við heimili
skáldsins, eins og fyrr getur, og
bæta því við, að stjórnarvöld
Sovétríkjanna hafi sett honum
þá úrslitakosti, að hafna verð-
laununum eða hverfa úr föður-
landi sínu að fullu og öllu, að
öðrum kosti. Þá segja frétta-
menn, að engir megi hafa sam-
band við skáldið né fjölskyldu
<$hans, en einhvern veginn hefur
Hér er mynd af skeytinu, sem Pasternak sendl Sænsku akadcmíunni, þegar honum hafði verið
tilkynnt um Nóbelsverðlaunin.
Pasternak les skeytið frá Sænsku akademíunni, þar sem
honum er tilkynnt um úthlutun verðlaunanna fyrir þetta ár.
Það má sjá, að hann er harla glaður. Kona hans horfir á skáld-
ið. Á hinni myndinni sést Kiljan lesa skeytið frá Akademíunni
og heillaóskaskeytin, sem honum bárust, þegar hann hlaut
Nóbelsverðlaunin. Það má segja, að örlög þessara skálda hafi
orðið með ólíkum hætti, íslenzka þjóðin fagnaði sem einn mað-
ur þeim heiðri, sem Kiljan hlaut, en Pasternak er þvingað
til að hafna heiðrinum.
það kvisazt út, að hann sýni ekki
á sér neinn bilbug.
Mál Pasternaks hefur vakið
mikla athygli um heim allan og
fréttamenn segja, að alls staðar
kveði menn upp þann úrskurð,
að skáldinu hafi verið þvingað
til að hafna verðlaununum. John
Foster Dulles, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í dag, að
mál Pasternaks sýndi að leiðtog-
ar Sovétríkjanna væru ekki að-
eins á móti málfrelsi, heldur
frelsi mannsins til að hugsa.
Arásunum á Pasternak í rúss-
neskum blöðum og tímaritum
linnir ekki. Áður hefur verið
skýrt frá svívirðingunum um
hann í Pravda og Gazete, og í
dag var rógsherferðinni á hend-
ur skáldinu haldið áfram í mál-
gögnum rússneskra ungkommún-
ista. Sem dæmi um orðbragðið,
má geta þess, að formaður hins
kommúníska æskulýðssambands
Sovétríkjanna, Vladimir Sjemis-
jastnij, kallaði Pasternak í dag
„svín“. Hann sagði að réttast
væri að reka skáldið úr landi og
láta hann gleypa í sig hið fúla
loft auðvaldsins. Sumir eru þeirr
ar skoðunar, að Vladimir hafi
með þessum orðum túlkað þá
skoðun, sem er ofarlega á
baugi meðal margra háttsettra
kommúnistaforingja í Ráðstiórn-
arríkjunum.
★
Tilkynnt hefur verið í
Lundúnum, að margir af
fremstu rithöfundum Bret-
lands, svo sem T. S. Elliot,
Nóbelshöfundur, Graham
Greene, Aldous Huxley, Bert-
rand Russel, Nóbelshöfundur,
Somcrset Maugham, J. B.
Priestley og Rebecca West,
hafi skrifað rússneska rithöf-
undasambandinu bréf, þar
sem þeir fara þess á leit við
sambandið, að það hindri
rússnesk yfirvöld í því að
beita skáldið ofbeldi. — Þá
hefur alþjóða félagsskapur-
inn P.E.N. sent sambandinu
skeyti, þar sem rússneskir rit
höfundar eru hvattir til að
standa vörð um andlegt
frelsi.
★
í fréttaskeyti NTB frá Ósló í
gærkvöldi segír m. a. svo: Skáld
og rithöfundar um heim allan
hlusta með hryllingi á fréttirnar
frá Rússlandi, og framkomu
hinna kommúnísku valdhafa
Sovétríkjanna er líkt við það, að
Framh. á bls. 2.
★------------------------★
3H0r0iustM®frifr
Fimmtudagur 30. október
Efni blaðsins er m.a.:
Bls. 3: Atburðirnir í Ungverjalandi
mega ekki gleymast (Frá um-
ræðum á Alþingi).
— 6: Þýzka konan sem leitar sonar
síns.
— 8: Tónlistar- og leiklistarhátíð i
Ziirich.
Bægisárkirkja 100 ára.
— 9: Alvarlegur skortur á varahlut-
um í landbúnaðarvélar.
— 10: Forystugreinin: Vaxandi fylgi
við réttláta kjördæmaskipun.
Frá Vestur-íslendingum.
Endurminningar Montgomerys.
(Utan úr heimi).
— 11: Siglufjarðarbréf.
— 12: Sjónvarp á íslandi.
— 13: Bridgeþáttur.
— 18: íþróttir.
★------------------------*