Morgunblaðið - 31.10.1958, Qupperneq 8
8
MORCVNTiL AÐIÐ
Fðstudagur 31. okt. 1958
FRA S. U. S. RITSTJÓRAR: HÖRÐUR EINARSSON OG STYRMIR GUNNARSSON
Vetrarsfart SU 5 hafiö
Stjómmálanámskeið — Haustmót —
Sjávarútvegsmálaráðherra — Fulltrúa-
ráðsfundur — Stefnir i nýjum búningi
STJÓRN Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna hefur að undan-
förnu undirbúið kappsamlega
starfsemi sína á vetri komanda,
og er vetrarstarfið þegar hafið.
Fréttamaður síðunnar hitti ný-
lega Geir Hallgrímsson, formann
S.U.S., að máli og spurði hann
tíðinda af fyrirætlunum sam-
bandsstjórnarinnar á þeim vetri,
sem nú fer í hönd.
— Hver eru helztu áform ykk-
ar í sambandi við vetrarstarfið?
— Veigamesti liður starfsins
í vetur verða sennilega stjórn-
málanámskeiðin. Við munum
leggja ríka áherzlu á að halda
stjórnmálanámskeið sem víðast
um landið til þess að gefa sem
flestum ungum Sjálfstæðismönn-
um tækifæri til þess að gerast
þátttakendur. Síðastliðið vor var
haldið stjórnmálanámskeið á
Selfossi undir leiðsögn Guð-
mundar H. Garðarssonar, við-
skiptafræðings og Árna Grétars
Finnssonar, stud. jur. Fyrir
forgöngu síðustu sambandsstjórn
ar var efnt til námskeiðs á Siglu-
firði, sem sr. Jónas Gíslason j
stjórnaði. Tókust þessi nám- í
skeið með miklum ágætum, og i
mun nú þráðurinn verða tekinn '
upp að nýju, þar sem frá var j
horfið. Nú þegar eru 3 slík nám-
skeið ráðin, og athugun fer fram
á því, hvar muni heppilegast að
halda fleiri.
Hinu fyrsta þessara þriggja
er þegar lokið. Var það haldið á
ísafirði í samvinnu við Fylki,
F.U.S. á ísafirði, frá miðvikudegi
til föstudags í síðustu viku og
heppnaðist ágætlega.
— Hverjir stjórnuðu nám-
skeiðinu á ísafirði?
— Það voru þeir Jóhannes
Árnason, stud. jur. og Jón Ragn-
arsson, stud. jur., en auk þeirra
flutti Matthías Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri erindi.
— Og hvar á að bera niður
næst?
•— Næsta námskeiðið verður
haldið í Vestmannaeyjum í sam-
vinnu við F.U.S. þar. Munu þeir
Guðmundur H. Garðarsson, við-
skiptafræðingur, og Magnús
Óskarsson, lögfræðingur, stjórna
því og leiðbeina þátttakendum,
en auk leiðbeinenda munu þeir
Jóhann Hafstein, alþingismaður,
Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri,
Eyjólfur Konrað Jónsson, lög-
fræðingur og Guðlaugur Gísla-
son, bæjarstj. flytja erindi á
námskeiðinu. í sambandi við
stjórnmálanámskeiðið í Vest-
mannaeyjum verður svo efnt til
haustmóts þar, og mun Jóhann
Hafstein flytja ræðu á mótinu.
Þriðja stjórnmálanámskeiðið
verður svo haldið á Reyðarfirði
í byrjun nóvember í samvinnu
við F.U.S. í Norður-Múlasýslu
og F.U.S. í Suður-Múlasýslu.
Námskeiðinu þar. munu þeir Sig-
urður Helgason, lögfræðingur og
Jósep Þorgeirsson, stud. jur.
stjórna með aðstoð Páls Halldórs
sonar, erindreka. Auk þeirra Sig
urðar og Jósefs munu Sveinn
Jónsson og Axel Thulinius,
flytja erindi á námskeiðinu.
Og hvað er um aðra þætti
starfseminnar að segja?
— Eins og undanfarin ár verða
nú haldin haustmót, og eins og
ég drap á áðan, verður gengist
fyrir haustmóti í Vestmannaeyj-
um í sambandi við stjórnmála-
námskeiðið þar. Einnig hefur
verið ákveðið að efna til haust-
móts í Stykkishólmi hinn 1. nóv-
ember n.k., og verður það mót
haldið í samvinnu við héraðs-
samband ungra Sjálfstæðis-
maTma í Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu. Gunnar Thor-
oddsen, borgarstjóri, mun flytja
þar ræðu. Auk þess verða ávörp
og skemmtiatriði.
— Verða haldin fleiri slík
haustmót?
— Haustmót verður haldið á
Geir Hallgrímsson.
Selfossi, en fleiri hafa ekki verið
ákveðin enn, en það er með þau
eins og stjórnmálanámskeiðin,
hvort tveggja er í athugun.
Verða þau auglýst, jafnskjótt og
einhverjar ákvarðanir hafa verið
teknar.
— Hvað er fleira markvert
framundan?
— Eitt hið markverðasta, sem
framund.an er hjá sambandinu,
er ráðsteina sú um sjávarútvegs-
mál, sem boðað hefur verið til
í Reykjavík, laugardaginn 22.
nóvember og fulltrúaráðsfundur
S.U.S. 23. nóvember. Fyrir for-
göngu fyrrverandi formanns
S.U.S., Ásgeirs Péturssonar var
haldin í október í fyrra ráð-
stefna, þar sem vandamál land-
búnaðarins voru rædd. Og nú
hefur verið ákveðið, samkvæmt
tillögu Valgarðs Briem á síðasta
þingi S.U.S., að efna til sjávar-
útvegsmálaráðstefnu. Ráðstefnan
mun taka til meðferðar ýmis
helztu vandamál íslenzks sjávar-
útvegs, og vonumst við sérstak-
lega eftir góðri þátttöku frá þeim
byggðarlögum, sem eiga afkomu
sína undir útgerð og vinnslu sjáv
arafurða.
Á fulltrúaráðsfundinum verða
svo rædd skipulagsmál samtak-
anna. Sérhvert félag innan S.U.S.
hefur rétt til þess að senda tvo
fulltrúa til fundarins, og er þess
fastlega vænzt, að sem flest fé-
lög sjái sér fært að senda full-
trúa, því að náin kynni forystu-
manna ungra Sjálfstæðismanna
um land allt eru mjög þýðingar-
mikil fyrir vöxt og viðgang sam-
takanna.
— Og hvað er um óskabarnið,
Stefni, að segja
— Eins og kunnugt er hefur út
gáfa ritsins dregizt nokkuð, en nú
Frh. á bls. 18.
Við jDurfum
atvinnulíf,
NÝLEGA er lokið þriggja daga
stjórnmálanámskeiði á Isafirði,
sem haldið var á vegum Fylkis,
fél. ungra Sjálfstæðismanna þar
og Sambands ungra Sjálfstæðis-
manna. Stjórnendur námskeiðs-
ins voru þeir Jón E. Ragnarsson,
stud. jur. og Jóhannes Árnason,
stud. jur.
Á fyrsta fundinum flutti Jón
E. Ragnarsson erindi um ræðu-
mennsku og Jóhannes um fund-
arsköp og fundarreglur. Á eftir
erindunum vap málfundur og
hafði Albert K. Sanders skrif-
stofumaður á ísafirði framsögu
um „tízkuna“, sem skapaði fjör-
ugar umræður.
Kvöldið eftir flutti Matthías
Bjarnason, bæjarfulltrúi, erindi
um atvinnumál og þeir Jóhannes
og Jón erindi um stjórnmála-
flokkana. Á eftir erindunum var
málfundur og síðan kvikmynda-
sýning. Kvöld þetta var tveggja
ára afmæli byltingarinnar í
Ungverjalandi og var kvik-
myndin um þá dapurlegu at-
burði.
STJÓRN FYLKIS. — Aftari röð, talið frá vinstri: Jón
Karl Sigurðsson, gjaldkeri; Guðfinnur Magnússon, formaður;
Garðar S. Einarsson, varaformaður. Fremri röð frá vinstri: Olga
Ásbergsdóttir, varastj., og Helga Þórðardóttir, ritari. Á mynd-
ina vantar Grétar Steinsson, meðstjórnanda, Jens Kristmanns-
son og Birgi Baldursson, varastj.
aukið ogfjölbreyttara
bættar samgöngur....
sagði íormaður Fylkis, F.U. S. á Ísaíirði
Stjórn „Stefnis" i Hafnarfirði
Hin nýkjörna stjórn Stefnis, talið frá vinstri: Ragnar Magnús-
son, Ragnar Jónsson, Guðlaug Kristinsdóttir, Árni G. Finsson,
formaður, Magnús Þórðarson, Einar Sigurðsson, Sigurður
Þórðarson.
Þriðji fundurinn var í Skáta-
heimilinu, því að þetta kvöld
hélt skipshöfnin á Sólborgu,
annars hinna glæsilegu togara
ísfirðings h.f., árshátíð sína í
samkomusalnum að Uppsölum.
Á dagskrá fundarins voru um-
ræður um framtíð Isafjarðar. —
Framsögumaður var Guðfinnur
Magnússon, sýsluskrifari, for-
maður Fylkis. Umræður voru
mjög fjörugar og meðal ræðu-
manna bæjarfulltrúarnir Högni
Þórðarson og Símon Helgason.
í fundarlok var sýnd kvik-
mynd um starfsaðferðir komm-
únista, byggð á reynslu hinna
undirokuðu Austur-Evrópuþjóða.
Síðan var námskeiðinu slitið með
sameiginlegri kaffidrykkju í
kjallaranum að Uppsölum, en
uppi yfir dunaði dans þeirra Sól-
borgarmanna.
Fundir námskeiðsins voru fjöl-
sóttir og umræður oft fjörgur.
Fundarstjórar á fundunum
voru Garðar S. Einarsson, Grét-
ar Steinsson og Símon Helgason,
bæjarfulltrúi og fundarritarar
Olga Ásbergsdóttir, Elinborg
Sigurðardóttir og Ásthildur
Ólafsdóttir.
Ungir Sjálfstæði^menn á ísa-
firði hyggjast halda áfram, þar
sem frá var horfið og halda uppi
málfundastarfsemi í vetur.
Framtíð Isafjaro (U
Guðfinnur Magnússon kom
víða við í ræðu sinni um framtíð
ísafjarðar. Hann ræddi m. a. um
flóttann úr bænum og sagði:
„Æskan krefst annars og meira
en efnalegs öryggis og góðr-
ar afkomu, hún krefst einnig
fjölþætts skemmtana- og menn-
ingarlífs og margbreyttari at-
vinnuhátta, þannig að allir geti
fengið hér starf við sitt hæfi. Við
þurfum aukið og fjölbreyttara
atvinnulíf og bættar samgöngur,
þá mun ungt fólk ekki sækja
héðan, heldur hingað.“
Á fundinum var drepið á flest
helztu hagsmunamál bæjarbúa,
eins og t. d. flugvallarmálið,
dýpkun sundanna og byggingu
hafnargarðsins, en forystu um
mál þessi hefur haft hinn dug-
mikli þingmaður kjördæmisins,
Kjartan J. Jóhannsson, læknir.
Ennfremur var rætt um borun
eftir heitu vatni og byggingu
félagsheimilis.
Mikil óánægja er á . ísafirði
með vinstri bræðingsstjórnina á
bæjarmálunum, en kratar hafa
farið með stjórn á málefnum
bæjarins alla tíð, utan áranna
1946—51, en þá tókst Sjálfstæð-
ismönnum að bæta úr brýnustu
þörfinni í byggingarmálum með
byggingu húsanna við Fjarðar-
stræti. Síðan hafa byggingar-
málin legið við krataakkeri, eins
og flest annað, sem heyrir und-
ir bæjarstjórn.
Komst einn ísfirðingur svo að
orði, að það sýndi bezt vaxtar-
mátt Isafjarðar, að staðurinn
skuli ekki vera þegar í eyði, eft-
nr svo langa krataforsjón á bæj-
armálunum.
ísafjörður og ungir Sjálf-
stæöismenn
Félag ungra Sjálfstæðismanna
á ísafirði, Fylkir, var endurreist
1. desember 1938 og á því tuttugu
ára afmæli á næstunni. Félagið
heldur uppi margháttaðri starf-
semi, spilakvöldum, ferðalögum,
fundum og margvíslegri stjórn-
málafræðslu.
Sjálfstæðismenn hafa nú fjóra
bæjarfulltrúa af níu á ísafirð' en
höfðu tvo 1942. Þingsætið vann
flokkurinn 1953.
ísafjörður hefur mikla fram-
faramöguleika, sem Sjálfstæðis-
menn eru staðráðnir í að nýta,
nái þeir meirihluta í bæjarstjórn-
inni, en þess er áreiðanlega ekki
langt að bíða. Verkin tala, krata-
meirihluti hefur breytzt í vinstri
glundroða og óstjórnin magnast
í hlutfalli við það.
Það er því ósk ungra Sjálf-
stæðismanna um land allt, að
ísafjörður nái að vaxa og blómg-
ast í framtíðinni, undir styrkri
stjórn þeirra manna, sem þekkja
vandamálin og hafa vilja og
getu, til þess að leysa þau á far-
sælan hátt.