Morgunblaðið - 18.11.1958, Side 1
20 síður
Bylting
inga í
án blóðsútheil-
Súdan
Herinn tók völdin — Vafamál að
Nasser eigi þátt i byltingunni
Khartoum og Kaíró, 17. nóv.
NTB—AFP—Reuter.
YFIRMAÐUR súdanska
hersins, Ibrahim Abboud
hershöfðingi, gerði í morg-
un byltingu án blóðsúthell-
inga með tilstyrk hersins.
Þegar í stað var lýst yfir
hernaðarástandi í Súdan,
þingið og jríkisstjórnin voru
leyst upp, stjórnarskráin
numin úr gildi og allir stjórn
málaflokkar bannaðir. Eng-
ir einstaklingar hafa enn
sem komið er verið fangels-
aðir, en blöðin eru bönnuð
í bili, og allir fundir eða
kröfugöngur verða miskunn
arlaust leystir upp, ef til
þeirra kemur.
Sagt er, að tilgangurinn með
byltingunni sé sá að uppræta
spillinguna í landinu og binda
endi á „óeðlilega misklíð Súdans
og Arabíska sambandslýðveldis-
ins“, eins og herinn orðar það.
Gegn Nasser?
Hlns vegar er enn óljóst, hvort
hinn 58 ára gamli Abboud hers-
höfðingi sé eindreginn stuðnings-
maður Nassers. Vestrænir frétta-
ritarar í Khartoum benda á, að
byltingin hafi verið gerð til að
koma í veg fyrir, að öfi vinsam-
leg Nasser brytust til valda í
landinu.
Allt með kyrrum kjörum
Skömmu eftir að útvarpið í
Súdan hafði sagt frá byltingunni
voru erlendir sendimenn í Khar-
toum kvaddir saman og þeim
skýrt frá gangi málanna. Al»bo-
ud fullvissaði þá um, -að allir
útlendingar og allar erlendar
eignir í Súdan verði verndaðar
af hinni nýju stjórn. Jafnframt
fór hann fram á viðurkenningu
á stjórn sinni.
Flugvöllurinn fyrir utan Khar-
toum er opinn öllum flugvélum,
og í kvöld tilkynnti útvarpið í
Khartoum að allt væri með kyrr-
um kjörum í borginni og annars
staðar í landinu.
Undrun í Kaíró
Meðal ráðamanna í Kaíró var
byltingunni í Súdan tekið með
mikilli undrun. Snemma í morg-
un var gefin út yfirlýsing í Kaíró
þess efnis, að Abdullah Khalil
forsætisráðherra, sem nú hefur
verið settur frá völdum, mundi
heimsækja Nasser hinn 28. nóv.
næstkomandi.
Kaíró-útvarpið sem í allan
dag flutti fregnir af viðburðun-
um í Súdan kallaði byltinguna
„herupphlaup“, en lét undir höf-
uð leggjast að túlka það sem
gerðist. Stjórnmálafréttaritarar í
Kaíró benda á hin augljósa mis-
mun sem sé á sögn egypzka út-
varpsins um byltinguna í Súd-
an og byltinguna í írak fyrr á
árinu.
Óbreytt ástand
Byltingin var framkvæmd fyr-
ir dögun í morgun og á nokkrum
klukkustundum voru öll völd í
höndum hersins. Súdanskur
verkalýðsleiðtogi sem fór frá
flugvellinum í Khartoum 20 mín-
útum áður en byltingin var gerð,
sagði síðar við fréttamenn í
Kaíró, að hann hefði séð herbíla
og hermenn á leið til flugvallar-
ins og annarra mikilvægra staða
í og utan við borgina. Síðar voru
sendar úr þrjár yfirlýsingar um
valdatöku hersins, en í morgun
fór fólk til vinnu sinnar, eins og
ekkert hefði í skorizt.
Samningur við Breta
Meðal stjórnmálamanna í Lon-
don er sú skoðun yfirleitt ríkj-
andi að hér sé ekki um að ræða
byltingu sem Nasser standi á bak
við. Er á það bent að í útvarps-
ræðu sinni í dag minntist Abboud
ekki einu orði á „vestræna heims
valdastefnu" eins og siður er
meðal áhangenda Nassers.
Bretar gerðu í síðasta mánuði
samning við Súdansbúa um vopna
sendingar, en hingað til hafa
engin vopn verið send frá Bret-
landi til Súdans. Formælandi
brezka utanríkisráðuneytisins
sagði í dag, að eins og nú stæði
Framhald á bls. 2
Hans Andersen
Geimurinn ekki
nýlendusvæði
NEW YORK, 17. nóv. — NTB-
AFP. — Leiðtogi demókrata i
öldungadeild Bandaríkjaþings,
Lyndon Johnson, sagði í dag í
stjórnarnefnd Allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna, að báðir
flokkar á þjóðþingi Bandaríkj-
anna litu svo á, að brýna nauð-
syn bæri til að halda alþjóðleg-
um deilumálum utan við himin-
geiminn. Við lítum á geiminn
sem rannsóknarsvæði, en ekki
nýlendusvæði, sagði Johnson. —
Hann lét þessi orð falla í sam-
bandi við bandaríska tillögu í
stjórnmálanefndinni þess efnis,
að þegar verði sett á laggirnar
nefnd, sem geri ráðstafanir til
að geimrannsóknir fari fram án
pólitískra eða þjóðernislegra af-
skipta.
Hans Andersen skýrir sjónarmið ís-
lands í laganefnd Allsherjarþingsins
NEW YORK, 17. nóvember. —
NTB-Reuter. — Laganefnd Alls-
herjarþings Sameinuðu þjóðanna
ræddi lögsögu ríkja við strend-
ur sínar í dag. — Hans G. And-
ersen fulltrúi íslands í nefndinni
tók til máls fyrstur í umræðun-
um og gerði grein fyrir sjónar-
miðum Íslands.
I upphafi ræðu sinnar, sagðiat
hann vilja nota tækifærið til að
lýsa enn á ný skoðunum íslenzku
stjórnarinnar á lögsögu við
strendur. Kvað hann íslenzku
Fjórveldanefndin rœði
friðarsamninga og sam-
einingu Þýzkalands
Bonn 17. nóv. NTB/Reuter
I orðsendingu til rússnesku
stjórnarinnar frá stjórn Vestur-
Þýzkalands segir m.a. að fjór-
veldanefndin, sem stungið hefur
verið upp á að ræði sameiningu
Þýzkalands, taki líka til athug-
unar spurninguna um’ uppkast að
friðarsamningum við Þýzkaland.
Textinn í orðsendingunni, sem
var afhent í Moskvu í gær, var
birtur í Bonn í dag.
Rússar hafa áður hafnað til-
lögu Vestur-Þjóðverja um að sett
verði upp fjórveldanefnd, sem
geri áætlanir um sameiningu
Ráðstefna um takmörkun
hvalveiða
LONDON, 17. nóv. — NTB-AFP.
Brezka landbúnaðar- og sjávar-
útvegsmálaráðuneytið hefur nú
fengið formlega tilkynningu um,
að Rússar muni senda fulltrúa á
alþjóðaráðstefnu um hvalveiðar,
sem hefst í I ondon á miðviku-
dag. Ráðstefnan hefur verið
kvödd saman _af brezku stjórn-
inni, og á henni verða fulltrúar
frá Bretlandi, Sovétríkjunum,
Japan, Iiollandi og Noregi.
Verkefni ráðstefi-unnar verður
að finna sarnkomuiagsgrundvöll
um takmarkanir á hvalveiðum í
suðurhöfum. Ilöfuðumræðuefnið
verður senn!.úga brezk áætiun
um eins koi.ar ,.kvóta-skip i ag“, þjóðir, segja kunnugir.
þar sem ákveðið verði hve mikið
hvert lana m> gi veiða árieg i.
Góðar vonir.
Sú staðreynd að Rússar hafa
þegið boð Breta um að senda full
trúa á ráðstefnuna, hefur vakið
góðar vonir um að hún beri ár-
angur, en mönnum er ljóst, að
það geti haft alvarlegar afleið-
ingar, ef ekki verður neinr. ar-
angur af henni. Bretar óttast nú
hina miklu og ört vaxandi sam-
keppni á hvalamiðunum, og er
ekki talið ósennilegt, að þeir sjái
sig knúna til að draga sig út úr
alþjóðasamtökum hvalveiðiþjóða
ásamt Norðmönnum. Slík þróun
mála gæti haft mjög alvarlegar
afleiðingar fyrir allar hvalveiði-
Þýzkalands, en þeir styðja aust-
urþýzka tillögu um fjórvelda-
nefnd sem ræði friðarsamninga
við fulltrúa frá stjórnum Aust-
ur- og Vestur-Þýzkalands.
I orðsendingunni segir, að
Vestur-Þjóðverjar séu þeirrar
skoðunar, að hægt sé að komast
hjá erfiðleikunum í sambandi við
myndun fjórveldanefndarinnar,
ef menn rígbindi sig ekki í forms
atriði, en líti raunsæjum augum
á málið. Nefndinni yrði mun erf-
iðara að komast að samkomulagi,
ef umræðuefni hennar væri tak-
mörkuð við eitt eða tvö atriði.
Ennfremur segir í skeytinu að
vestur-þýzku stjórninni sé það
ánægjuefni, að Rússar hafi tekið
til athugunar áætlun hennar um
stofnun fjórveldanefndar, þar
sem Bretar, Bandaríkjamenn og
Frakkar hafi þegar tjáð sig sam-
þykka henni., Megi því vænta
þess, að fjórveldin séu í höfuð-
atriðum sammála um að gagn-
legt sé að setja á stofn slíka
nefnd.
Paradís
frambjóðenda!
BERLÍN, 17. nóv. — NTB —
Austur-þýzka fréttastofan ADN
skýrði frá því í dag, að þátttak-
an í kosningunum í gær hefði
verið milli 98,3% og 98,75%. —
í kjöri var aðeins einn listi og
hlaut hann milli 99,98% og
99,99% greiddra atkvæða.
sendinefndina telja, að nauðsyn-
legt væri að ræða um víðáttu
landhelgi og fiskveiðilögsögu
efnislega. Lægju til þess ýmsar
ástæður. í fyrsta lagi þyrfti að
athuga hvort líklegt væri að
málið leystist á nýrri ráðstefnu,
og sérstaklega mundu skoðana-
skipti leiða í ljós hve mikill und-
irbúningur væri nauðsynlegur
fyrir ráðstefnuna. Það mundi
síðan hafa áhrif á hvenær rétt
væri að halda hana eða hvort ef
til vill væri unnt að afgreiða
málið í laganefnd Allsherjar-
þingsins. íslenzka stjórnin teldi
það æskilegra, sagði Hans And-
ersen. Einnig sagði hann að of
ltíill undirbúningur hefði valdið
miklu um að ekki náðist full-
nægjandi árangur í Genf. Engu
að siður hefðu málin skýrzt þar,
síðan hefði áhugi ýmissa ríkja
á þeim vaxið, og heimildir væru
fyrir því að nokkur ríki mundu
færa lögsögu sína út á næstunni,
og nokkur hefðu gert það eftir
að Genfarráðstefnunni lauk.
Þegar sendiherrann hafði gert
grein fyrir ástæðunni til þess að
íslenzka sendinefndin vildi að
málið yrði rætt efnislega í laga-
nefnd Allsherjarþingsins nú, vék
hann að reglunni um landhelgi
og fiskveiðilögsögu almennt. —
Fyrst vék hann að lögfræðileg-
um skilgreiningum varðandi
frelsi á höfunum og mismuninn
á hugtökunum landhelgi og fisk-
veiðilögsaga. Síðan sagði hann að
taka þyrfti tillit til tveggja
atriða, þegar rætt væri um stærð
fiskveiðilögsögunnar. Annað
væri verndun fiskstofnanna, en
hitt forgangsréttur strandríkj-
anna til að nýta miðin. Almennt
væri talið fullnægjandi i þessu
skyni að stækka fiskveiðilögsög-
una 1 12 mílur. Hefði það komið
vel fram í tillögu Kanada á Genf-
arráðstefnunni og í stefnu Banda
Framh. á bls. 2.
Gengur tregt
í Genf
Genf, 17. nóv. NTB/AFP.
RÁÐSTEFNUNUM tveimur i
Genf milli Vesturvéldanna og
kommúnistaríkja var haldið á-
fram í dag, án þess að nokkur
verulegur árangur næðist.
Á tíveldaráðstefnunni um ráð
til að koma í veg fyrir skyndi-
árás, komu Rússar fram með til-
lögu um að banna flug með
kjarnavopn yfir höfum og yfir
landsvæðum annarra ríkja.
Þríveldaráðstefnan, sem er að
leita að samkomulagsgrundvelli
um bann við tilraunum með
kjarnavopn, sat einnig á rökstól-
um í dag, en ekki vacð neitt
samkomulag um dagskrána.
Árásum mótmœlt
Moskvu
WASHINGTON, 17. nóv. Reuter.
— Bandaríkjastjórn hefur sent
rússnesku stjórninni harðorð mót
mæli sem afhent voru í Moskvu
fyrir fjórum dögum, en skýrt
var frá efni þeirra í kvöld. Banda
ríkjastjórn mótmælir harðlega
tveim árásum rússneskra flugvéla
á bandariskar flugvélar yfir út-
hafinu, en báðar þessar árásir
vonu gerðar 7. nóvember, önnur
yfir Eystrasalti og hin yfir Jap-
anshafi,-
Segir í mótmælum Bandaríkja-
stjórnar, að í bæði skiptin hafi
bandarísku flugvélarnar verið í
100 kílómetra fjarlægð frá rúss-
nesku landi, þegar flugvélar
Rússa hafi skotið á þær. í hvor-
ugt skipti hafi bandarisku flug-
vélarnar svarað skothríðinni, en
héðan í frá muni bandarískar
flugvélar gera þær varnarráðstaf
anir sem nauðsynlegar teljist.
Þriðjudagur 18. nóvember.
Efni blaðsins er m.a. :
Bls. 6: Jóhannes páfi XXIII.
— 9: Hlustað á útvarp.
— 10: Ritstjórnargreinin: Norrænt
ráðið.
„Ódýri frændi“ var ekki ódýr
við alla. (Utan úr heimi).
— 11: Ólafur Johnson, stórkaupmað-
ur (minningarorð).
— 12: Til hvers er leikgagnrýni? eftir
Guðlaug Rósinkranz, þjóðleik-
hússtjóra.
— 18: íþróttir.