Morgunblaðið - 18.11.1958, Blaðsíða 8
8
M O R C V N B L A Ð 1 Ð
Þriðjudagur 18. nóv. 1958
— Jóhannes páfi
Framhald aí bls. 6.
húsvegginn hjá sér, turn á rauð-
og hvítröndóttum grunni. Þetta
var skjaldarmerkið ,sem Ron-
calli kardínáli tók upp, þegar
hann var skipaður í páfaróðið
(the Sacred Collage) árið 1953.
Hann bætti á það hinu vængj-
aða ljóni heilags Markúsar,
verndardýrlingi Feneyja.
Roncalli tók guðfræðipróf ár-
ið 1904 í Róm, tuttugu og tveggja
ára gamall, vígðist sama árið og
Sigurður Ólason
Hæstaréltarlögmaður
Þorvaldur Lúðvíksson
Héraðsdómslögmaður
Málflutningsskrifstofa
Austurstræti 14. Simi 1-55-35.
Athugið
Kærustupar vantar íbúð nú
þegar eitt til tvö herbergi og
eldhús. Þeir, sem vildu sinna
þessu^ leggi tilboð á afgreiðsl-
una fyrir fimmtudag, merkt:
„Þ. — 373 — 7285“.
BF.7.T 40 4VGI.ÝS4
1 MOKGUt\lil.AOIl\U
flutti sína fyrstu messu í St.
Péturskirkj unni.
Á árunum 1905 til 1914 var
hann biskupsritari í Bergamo-
biskupsdæmi og kenndi auk þess
kirkjusögu og trúvarnarfræði.
Meðan hann var í Bergamo
dvaldi hann mörgum stundum í
Ambrosinska bókasafninu og'
rannsakaði fornar bækur. Bóka-
vörðurinnn, sem brátt varð góð-
ur vinur hans, var Achillo Ratti,
er síðar átti eftir að verða þekkt-
ur undir nafninu Pius páfi XI.
Það var þarna í bókasafninu,
sem Roncalli uppgötvaði 40 stór
rykfallin, handskrifuð bindi, þar
sem sagt var frá postullegri heim
sókn S. Chárles Borromeos í
Bergamobiskupsdæmið á 16. öld.
Frásögnin hreif hann svo mjög,
að hann hefur aldrei hætt sögu-
legum rannsóknum á því mál-
efni. Árangurinn hefur orðið
fimm stór bindi, sem talin eru
sérstök fyrirmynd og sérstakt
afrek í sögulegri rannsókn á ein-
stöku málefni.
í fyrri heimsstyrjöldinni starf-
aði hann fyrst í hjúkrunarsveit
ítalska hersins og seinna sem
prestur í hersjúkrahúsum.
Arið 1921 kom hann aftur til
Rómar, þar sem Benedict páfi 15.
veitti honum embætti í hinum
Heilaga söfnuði (Sacred Cong-
regation) de Propaganda Fide.
Árið 1925 hófst hið diploamt-
íska æviskeið, sem átti eftir að
vara í 27 ár, — upphaf þess lífs,
sem kardínálinn sjálfur kallaði
líf „ferðamanns Guðs“. Það sama
ár skipaði Píus páfi XI. hinn
gamli vinur hans frá Milanóár-
unum, hann sem postullegan er-
indreka í Sofia í Búlgariu.
Áður var hann titlaður erki-
biskup af Arepoles og vígður af
Tacchi kardínála.
Eftir tíu ára dvöl í Búlgaríu,
fór hann til Istambul sem postul-
legur umboðsmaður og leit sam-
tímis eftir málefnum katólskra
manna í Grikklandi.
Það var í desember 1944 sem
Píus páfi 12. skipaði hann páfa-
legan sendiherra i París, þar
sem hann varð eftirmaður jafn
frægra páfalegra erindreka og
kardínálanna Maglione og Val-
arei.
Frá árinu 1952 »g áfram var
hann líka fastafulltrúi páfastóls-
ins hjá UNESCO. Á lokafundi 6.
þings UNESCOs árið 1951, sagði
hann: — „Sem fulltrúi þeirrar
menningarstofnunar, sem er
útbreiddust í öllum heimi, sem
var stofnuð með hinni fyrstu
skipun: — Farið og kennið öll-
um þjóðum — sem fulltrúi henn-
ar hlýt ég að minnast hins mikla
höfuðatriðis, hinnar traustu und-
irstöðu Guðs, sem er höfundur og
herra allra visinda. Þetta vold-
uga kerfi hefur Hann stofnað
og til Hans sækir það styrk sinn“.
Roncalli erkibiskup var enn í
Sölumaður
Duglegur sölumaður getur fengið atvinnu nú þegar, hálfan eða
allan daginn eftir því sem þörf krefur. Um eina vörutegund er
að ræða. Salan fer að mestu leyti fram gegn um síma. Umsækj-
endur sendi nöfn sín ásamt ítarlegum upplýsingum um mennt
un og fyrri stötrf til afgr. Morgnblaðsins merkt: „Sölumaður
7290“-
Hið nýja
einangrun arelni
WELLIT
WELLIT
þolir raka og fúnar ekki
WELLIT ★
plötur eru mjög léttair og auð-
veldar í meðferð.
WELLIT
einangrunarplötur kosta aðeins:
5 cm. þykkt: Kr. 46.85 fermeter
Birgðir fyrirliggjandi
m\rz mwm co.
Klapparstíg 20 — Sími 17373.
WELLIT-plata 1 cm á þykkt
einangrar jafnt og:
1.2 cm asfalteraður korkur
2.7 — tréullarplata
5.4 — gjall-ull
5.5 — tré
24 — tígulsteinn
30 — steinsteypa
CZECHOSLOVAK CERAMICS
Prag, Tékkóslóvakíu.
París, þegar Pias páfi 12. skipaði ’
hann kardínála á kardínólasam-
komunni 12. jan. 1953. Sam-
kvæmt hefðbundnum þingsköp-
um var það forseti Frakklands,
M. Auriol, sem afhenti honum
rauða kardínálahattinn.
Þremur dögum eftir skipun
hans í kardínálaráðið (Sacred
College) var hinn nýi kardínáli
skipaður patriarki af Feneyjum.
Hinn nýkjörni pófi er frábær
lærdómsmaður, sem auk frönsku
talar latínu, grísku og tyrknesku.
Hann er sagnfræðingur og ann
fögrum listum.
„Eg hefi gaman að hitta fólk
og svo getur alltaf skeð, að mað-
urinn sem heimsækir mig, vilji
hitta mig sem skriftaföður", hef-
ur hann sagt og útskýrt þannig
næstum afsakandi ástæðuna fyr-
ir því, að dyr hans standa alltaf
opnar hverjum þeim, sem að
garði bar, hvort sem það er vin-
ur, framandi ferðalangur eða
óvinur.
Hann var hamingjusamur í
Feneyjum. Hann heimsótti fanga
í fangelsum, sjúklinga í sjúkra-
húsum, gamalmenni á heimilum.
Þegar flóð skullu á þorpum í um-
dæmi hans, var hann jafnan með
al þeirra fyrstu sem komu á slys-
staðinn til að veita hjálp og
aðstoð.
Þegar hann var skipaður patri-
arki af Feneyjum, sagði hann
brosandi: „Hér fæ ég nýtt tæki-
færi til að vera prestur einvörð-
ungu. Eg er viss um að starf
prestsins er það dásamlegasta
og fegursta, sem manni getur
boðizt í lífinu. Eg mun reyna að
framkvæma það með dýpstu auð
mýkt“.
En umburðarlyndi Roncallis
kardínála og glaðlyndi eru ekk-
ert merki um vanmátt eða þrek-
leysi. Þegar Kristilegir demókrat
ar tóku að ræða um það, fyrir
tveimur árum, að mynda borg-
arstjórn með sósíalistum, gaf
kardínálinn út hirðisbréf, þar
sem hugmyndin var harðlega
fordæmd og hegðun þeirra
kaþóisku manna gagnrýnd, sem
á stjórnmálasviðinu vilja algera
undanþágu undan biskupsvaldi.
„Misskilningurinn", sagði hann
,, er só, að veita hinum marx-
isku kenningum stuðning í verki
— kenningum, sem eru beinar
andstæður kristinnar trúar og
henni fjandsamlegar.... “
Jóhannes páfi
Og nú hefur páfi sezt í hið
tigna embætti undir nafninu Jó-
hannes 23. En það nafn hefur
enginn fyrirrennari hans borið
sem sannur páfi síðan 1334.
Baldassara Cossa kardínáli var
að vísu krýndur páfi með nafn-
inu Jóhannes 23. árið 1410. En
það var á tíma hinnar miklu
trúnarsundrungar. Arið 1415 var
honum vikið úr embætti, og er
hann skráður sem falspáfi í sögu
hinnar kaþólsku kirkju.
Guðiún Erlu Arinbjurnurdóttir
Kveðja
OFT er skammt milli lífs og
dauða — aðeins eitt fótmál, ör-
hröð stund. Sannaðist það á vin-
konu minni, Guðrúnu Erlu Arn-
bjarnardóttur, er hún lézt af slys-
förum í Þýzkalandi 30. janúar
síðastliðinn. og var útför hennar
gerð frá Fossvogskirkju 3. þessa
mánaðar.
Guðrún Eria var fædd í
Reykjavík 26. júní 1922 og var
því 35 ára þegar hún lézt. For-
eldrar hennar voru hjónin Sig-
ríður Rafnsdóttir og Arnbjörn
Gunnlaugsson skipstjóri. Hún
ólst upp á heimili foreldra sinna
og naut ástríkis og umhyggju
þeirra beggja í bernsku, en þegar
hún var 13 ára gömul missti hún
móður sína. Eftir það bjó hún
með föður sínum, þar til hún
giftist eftirlifandi manni sínum
Hjalta Gíslasyni skipstjóra, þann
24. desember 1954, og eignuðust
þau einn son, Arnbjörn Gísla,
sem nú er á þriðja ári. Guðrún
Erla étti eina systur, Guðrúnu
gifta Hauk Claessen lögfræðing,
og var jafnan mjög kært með
þeim systrum. Er sár harmur
kveðinn að öldruðum föður. eig-
inmanni, systur og öðrum ætt-
Leiga
2ja—3ja herbergja íbúS óskast
sem fyrst. Standsetning kem-
ur til greina. Sími 35458.
Austin 8 '46
sendiferðabíll. í góðu lagi til
sölu. -
BÍLASALAN
Klapparstíg 37. Sími 19032.
Til sölu
Ferðabækur
Þorvaldar Thoroddsens.
Sími 24858.
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréttarlögmaður.
Aðalstræti 8. — Sími 11043.
ingjum og vinum þessarar ungu
og glæsilegu konu, sem með svo
sviplegum hætti var burtu
kvödd í blóma lífsins. Fyrir tæp-
um 22árum kynntist ég Ellu, en
svo var hún jafnan kölluð meðal
kunnugra. Hún var trygg og vin-
föst þeim, sem hún tók vináttu
við, og einkanlega reyndist hún
vel þeim sem bógt áttu, enda
kom aldrei betur í ljós hjartalag
hennar, en þá er eitthvað bjátaði
á. Ella átti yfir að ráða mikilli
kímnigáfu og naut sín því vel í
vinahópi, sakir glaðværðar sinn-
ar og orðheppni. Hún var tíður
gestur á heimili foreldra minna
í æsku okkar og var hún þar
jafnan aufúsu gestur vegna
prúðrar framkomu, samfara glað
værð og hjartahlýju, enda var
sem henni fylgdi jafnan birta
hvar sem hún fór. Ég vil fyrir
hönd systkina minna og fjöl-
skyldu færa henni hinztu kveðjur
með þakklæti fyrir allar Ijúfu
samverustundirnar og þær björtu
minningar, sem hún lætur eftir
sig í hugum okkar allra, er átt-
um með henni samleið.
Sigríður Sigurðardóttir.
Heiðar ófærar, en
gott færi í byggð
í N.-ís.
ÞÚFUM, 15. nóv. — Snjóað hef-
ir dálítið síðustu daga og veð-
urfar verið umhleypingasamt.
Byrjað er að smala sauðfé, en
ekki farið að hýsa það ennþá.
Heiðar eru orðnar ófærar bíl-
um, en gott færi alls staðar í
byggð. — P.P.