Morgunblaðið - 18.11.1958, Qupperneq 20
VEÐRIÐ
Sunnan hvassviðri, stormur
með köflum, rigning.
264. tbl. — Þriðjudagur 18. nóvember 1958
Jóhannes páfi XXIII.
____Sjá grein á bls. 6.
Þessi mynd var tekin síðdegis á sunnudag í Fossvogskirkjugarði, er sendiherra Þjóðverja hér,
Hirschteld, lagði blómsveig á leiði 17 Þjóðverja og Austurríkismanna, sem hlutu hinztu hvílu í
íslenzkri mold á styrjaldarárunum. Fór þessi athöfn fram að undangenginni minningarathöfn
í Fossvogskapellu. Flutti sendiherrann þar minningarræðu, svo og séra Schrubring frá Giessen,
kaþólskur prestur, faðir Hacken og séra Jón Auðuns fiutti bæn. Margir Þjóðverjar og íslend-
ingar voru siðstaddir minningarathöfnina, en á þessum degi var um gervallt Þýzkaland minnzt
fallinna í báðum heimsstyrjöldunum. (Ljósm. Ól. K. M.)
Rok og rigning á Suð-
vesturlandi
í FYRRADAG gekk hvassviðri
um Suðvesturland og samfara því
var gífurleg úrkoma. Um klukkan
5 síðdegis komst veðurhæðin
hæst í Vestmannaeyjum og voru
þá 13 vindstig. í Reykjavík var
mest rok um 11 leytið um kvöldið
eða 7—9 vindstig.
í gærmorgun var svo komið
logn um allt land, en er líða tók
á daginn fór aftur að hvessa og
voru þá 5—9 vindstig um allt
Suðurland. Voru 9 vindstig í Vest
Skarni reynist
mjug vel
ÁBURÐURINN frá nýju sorp-
eyðingarstöðinni í Reykjavík,
skarni, eins og hann er nefndur,
hefur reynzt mjög vel, að því er
Hafliði Jónsson, garðyrkjustjóri
Reykjavíkurbæjar tjáði blaðinu.
Var þessi áburður notaður til
reynzlu í sumar, og reyndist s\o
vel, að óhætt mun að binda míkl-
ar vonir við hann. Áburðargildi
hans er meira en venjulegs hús-
dýraáburðaf. Má því búast við að
hann verði notaður í hvers konar
garða í framtíðinni.
í sumar var talsvert kvartað
undan óþef af áburði þessum, en
það mun hafa stafað af því, hve
hann var notaður hrár í ákafan-
um að reyna hann. En sé skarni
geymdur í 6 vikur áður en hann
er notaður, mun hann vera orð-
inn svo að segja lyktarlaus.
mannaeyjum um kl. 20 í gær-
kvöld.i.
Þessu roki fylgdi ákaflega mik-
il rigning og mun hún hafa orðið
mest á Þingvöllum, 22 mm. Á Eyr
arbakka nam rigningin 15 mm.
og 13 mm á Keflavíkurflugvelli
og á Hellu.
Þegar blaðið fór í prentun í
gærkvöldi voru 8—10 vindstig
um allt Vesturland og rigning,
en mjög hlýtt, 7—10 stiga hiti.
— 1 Vestmannaeyjum voru 10
vindstig.
Bíll eyðilagðist á Hafnar-
fjarðarvegi í gœrkvöldi
HAFNARFIRÐI. — í illviðrinu milli bílanna, að fólksbíllinn var
14 togarar
í landhelgi
í GÆR voru 14 brezkir togarar
að veiðum innan fiskveiðitak-
markanna hér við land. Voru
þeir allir á verndarsvæði brezku
herskipanna úti fyrir Vestfjörð-
um og flestir út af Dýrafirði.
Togararnir virtust heldur fjar-
lægjast landið þegar á daginn
leið. Af öðrum fiskislóðum um-
hverfis landið er ekkert sérstakt
að frétta.
í gærkvöldi um kl. hálf níu, var
afarharður árekstur á Hafnar-
fjarðarveginum, á hálsinum norð
an Arnarness, er strætisvagn og
fólksbíll skullu saman. Var í
fyrstu óttazt að slys hefði orðið á
fólki, og brunuðu á slysstaðinn
sjúkrabílar úr Reykjavík og Hafn
arfirði. En sem betur fór, hlauzt
ekki alvarlegt slys á mönnum,
útan þess að bílstjórinn á fólks-
bílnum meiddist eitthvað, og fóru
lögreglumenn héðan með mann-
inn í Slysavarðstofuna í Reykja-
vík.
Var verið að rannsaka meiðsl
hans þegar þetta var skrifað í
gærkvöldi. Hann hafði verið einn
í bílnum, G-1831, sennilega ár-
gerð ’42.
Svo harður var áreksturinn
Félagsheimili
F ramsóknarmanna
FRÉTTAMÖNNUM var í gær
boðið að skoða hið nýja félags-
heimili Framsóknarmanna, sem
þeir hafa innréttað í húsakynn-
um þeim. sem frystihúsið Herðu-
breið hafði áður til afnota við
Fríkirkjuveg. Hefur vistlegur
samkomusalur sem tekur 260
manns í sæti, verið innréttaður
í frystigeymslu íshússins og hef-
ur Skúli Nordahl gert teikningar.
Framkvæmdastjóri Framsóknar-
hússins, Guðbjörn Guðjónsson,
tjáði blaðamönnum, að húsið
hefði enn ekki íengið vínveitinga
leyfi ,en í framtíðinni væri ætl-
að að starfrækja þar kvölddans-
samkomur með skemmtiatriðum
og alls kyns veitingum. Mun
hljómsveit Gunnars Ormslev
annast undirleik fyrir dansinum
og fyrstu skemmtikraftarnir
verða calypsosöngvararnir Nína
og Friðrik, sem þekktir eru á
Norðurlöndum.
eins og harmonikubelgur að fram
an og bæði framhjólin brotnuðu
undan honum. Nærstaddir voru
sammála um, að bíllinn myndi
gerónýtur. Skemmdir urðu einn
ig á strætisvagninum.
Urðu af þessu miklar umferð-
artafir á Hafnarfjarðarveginum
og var bílflakið þar enn seint í
gærkvöldi. Ekki var vitað með
hvaða hætti áreksturinn varð.
— G. E.
Mikil síld er gengin á
mið reknetjabátanna
VEGNA þess hve stormasamt
hefur verið undanfarið, hafa
miklar frátafir orðið hjá reknetja
bátaflotanum hér við Faxaflóa.
Á sunnudaginn munu um 80 síld
arbátar hafa verið á veiðum og
voru sómennirnir á bátunum létt
ir á brún, er bátarnir komu að
landi, flestir með góðan afla. Var
þetta bezti afladagurinn á vertíð-
inni.
Reknetjabátar stunda nú róðra
frá Reykjavík, Akranesi, Hafnar-
firði, Keflavík, Sandgerði, Garði
og Grindavík. Eru bátarnir þó
Ofsarok
á Akranesi
AKRANESI, 17. nóv. — I nótt
var svo geysihvasst suðvestanrok
á tímabili, að þeir, sem úti voru,
töldu að vindhraðinn hefði kom
izt upp í 10—11 vindstig. Vinnu-
palla við læknisbústaðinn tók
veðrið í einu lagi frá hlið og
gafli á húsinu. Bíll yfirlæknisins
af Opelgerð, stóð við húsið og
hrundu pallarnir ofan á hann.
Furða menn sig á að bíllinn
skyldi ekki hreinlegaleggjastsam
an undir þessu fargi. Vitanlegaer
hann beyglaður og víða dældaður
eftir pallana. — Oddur.
Hálka á Akureyri
í gær
AKUREYRI, 17. nóv. — Að und
anförnu hefur verið kalsatíð hér
norðanlands. Snjókoma hefur
verið nokkur, en þó ekki meiri
en svo, að fjallvegir eru enn
færir.
í gær gerði nokkra hláku í
hinn nýfallna snjó, en frysti aft-
ur í nótt. Voru því svellalög mik
il á götum í dag og flughált. Síð-
ari hluta dags gerði svo föl ofan
á svellin og er því mjög laun-
hált á götunum eins og stend-
ur. Ekki er vitað um nein slys
af völdum hálkunnar. — Vig.
Tveir drengir bentu lög-
reglunni á þjófinn
SAGT frá frá því hér í blaðinu
sl. föstudag, að daginn áður hefði
verið stolið forkunnargóðum
skíðaskóm úr blí, sem skilinn
hafði verið eftir ólæstur á stæð-
inu hjá Hótel ’Skjaldbreið.
Nú heíir tekizt að hafa hendur
í hári þess, er skóna tók, og má
eigandinn þakka það vökulum
augu:n tveggja fimmtán ára
dren^ja, sem sáu til ferða þjófs-
ius.
Síðdegis á fimmtudaginn sáu
drengir þessir ungan mann ganga
um Austurstræti, og hélt hann á
spánýjum skíðaskóm. Að sjálf-
sögðu vakti þetta þó engar grun-
semdir hjá drengjunum, en þeg-
ar þeir rákust á frettina um hvarf
skónna góðu í Mbl. daginn áður
fór þá að gruna margt. Höfðu
þeir tal af rannsóknarlögregiunni
og sögðu frá því, sem þeir höfðu
séð kvöldið áður. Gátu þeir geíið
svo glögga lýsingu á unga mann-
inum, sem haldið hafði á skiða-
skónum í Austurstræti, að það
nægði lögreglunni til að finna
manninn. Kom i ljós, að hann
var sá hinn sami, sem gripið hafði
skóna úr bílnum kvöldinu áður.
Rannsóknarlögreglan bað blaðið
að geta um þetta atvik, þar sem
hún taldi drengina tvo hafa verið
hér mjög til fyrirmyndar um sam
v.nnu við lögregluna í málum
sem þessu. — Er það eflaust -étt,
að ef allur almenningur værj að
jafnaði eins eftirtektarsamur og
drengir þessir, þá mundi betur
ganga að upplýsa ýmis afbrot en
oft vill verða.
nokkru færri nú en á sama tíma
í fyrra, en þá voru um 100 bátar
byrjaðir á reknetjum. Þeir voru
enn fleiri árið 1956.
Þegar bátarnir komu út á mið-
in aðfaranótt sunnudagsins
sýndu lóðanir hvanvetna mikla
síld. Afli bátanna var liðlega 100
tunnur að meðaltali, en skipting
in var 50—200 tunnur á bát. Mun
reknetjaflotinn alls hafa landað
um 9000 tunnum síldar og þykir
sennilegt að um 5000 hafi farið
til söltunar, en afgangurinn til
frystingar.
Næstu daga mun fyrsta Faxa-
síldin af þessa árs framleiðslu
verða send utan. í gær kom til
Vestmannaeyja 700 tonna leigu-
skip, sem lesta á í Ólafsvík, nsr
fullfermi af Faxasíld til Rúss-
lands.
Norðurlanda-
ráðherrar
með Hrímfaxa
AÐ LOKNUM fundi Norður-
landaráðs í Osló flutti Hrímfaxi,
flugvél Flugfélags íslands, ýmsa
háttsetta menn þaðan til Kaup-
mannahafnar.
Meðal farþega sl. laugardag
voru Viggó Kampman, fjár-
málaráðherra og settur forsætis-
og utanríkisráðherra Danmerk-
ur, og Virolainen, utanríkisráð-
herra Finnlands. 1 fylgd með
þeim voru ýmsir háttsettir emb-
ættismenn fyrrgreindra landa.
r
Agæt reknetja-
veiði
HAFNARFIRÐI. — Ágæt og al-
menn veiði var hjá reknetjabát-
unum á sunnudaginn, og vorc
þeir yfirleitt með um og yfii
100 tunnur. Var síldin ýmist sölt-
uð eða fryst. Sökum óveðurs
komust bátarnir ekki út aftur i
sunnudag og í gær. — Júlí fór í
veiðar sl. sunnudagsnótt, en hin-
ir togararnir, að Röðli undan-
skildum, eru á veiðum. Er enr
ágset karfaveiði á Nýfundnalands
miðum og fá togararnir yfirleitl
í sig á 4—5 sólarhringum. Hefii
mikil vinna verið hér í frysti-
húsunum, Fiskiðjuverinu og í
Mölunum, en þau hafa að mestr
leyti unnið úr karfanum. Hefii
oft verið unnið um helgar, of
hafa nemendur i Flensborg feng-
ið frí til skiptis þegar mest hefii
borizt að. Hingað kom hollenzki
skip fyrir nokkru til að take
frystan karfa til útflutnings, er
hann fer ýmist á Rússlands- eðí
Bandaríkjamarkað. — G.E.
ÁRSHÁTÍÐ Sjáifstæðisfélaganna
í Keflavík verður haldin í Ung-
mennafélagshúsinu í Keflavík,
laugardaginn 22. nóv. kl. 9 síðd.
Eins og undanfarin ár verður
vel vandað til hátíðarinnar og
dagskráin verður sem hér segir:
1. Stutt ávörp. 2. Guðm. Jóns-
son óperusöngvari syngur ein-
söng. 3. Ævar Kvaran leikari les
upp. 4. Guðmundur Jónsson og
Ævar Kvaran syngja glunta-
söngva.
Gestir félaganna verða að
þessu sinni Ólaiur Thors alþing-
ismaður og Pétur Benediktsson
bankastjóri og konur þeirra.
Aðgöngumiðai verða seldir í
Ungmennafélagshúsinu á laugar-
dag frá kl. 2—4 og við inngang-
inn. Allt Sjálfstæðisfólk er vel-
komið á meðan húsrúm leyfir.
BLAÐIÐ „REYKJANES“
Sjálfstæðisflokkurinn í Kefla-
vík hefir nú hafið a, nýju út-
gáfu á blaði sínu, „Reykjanesi".
Blaðið er mjög fjölbreytt og vel
úr garði gert. Blaðið kom út í
gær, og ákveðið hefir verið, að
það komi út mánaðarlega á næst-
unni. Útgefandi blaðsins er full-
trúaráð Sjálfstæðisfélaganna í
Keflavík. — Blaðið verður til
sölu í Reykjavík oe um Suður-
nesin.