Morgunblaðið - 27.11.1958, Side 9
Fímmtudagur 27. nóv. 1958
vonc r wnr. a nt»
9
Sendisveinn
Röskur sendisveinn óskast nú þegar.
Uppl. í skrifstofunni.
Vélsmiðjan Héðinn h.f.
Skipstjóra vantar á 100 tonna vélbát á komandi vetrar-
vertíð sem gerður verður út frá góðri verstöð í Faxaflóa.
Báturinn er í fyrsta flokks standi og á að stunda línu-
og þorskanetaveiðar. Þeir sem vildu sinna þessu sendi
nöfn sín ásamt upplýsingum um horfur á ráðningu skips-
hafnar, fyrir 3. des. n.k. til Mbl. merkt: „Skipstjóri —
7381“.
PKAHA TECHECHOSLOWAKEI
Skipstjórar
Viscount-flugvélar F.Í. hafa
flutt yfir 40 þúsund farþega
Góður árangur af kynningarstarfi
félagsins i Bretlandi
EINS og frá var skýrt í blaðinu
fyrir helgina, opnaði Flugfélag
Islands skrifstofu sina í Glas-
gow á nýjuni stað þar í borg-
inni miðvikudaginn 19. þ. m. —
og bauð fréttamönnum héðan að
heiman í flugferð til Glasgow
með Gullfaxa í tilefni þess.
Áður en hin nýja skrifstofa að
St. Enoch Square 33 var form-
lega opnuð, ræddi Birgir Þór-
hallsson, ýfirmaður utanlands
flugs F. í., ásamt forstöðumönn-
um skrifstofa félagsins í Glas-
gow og London nokkra stund
við íslenzku fréttamennina. Kom
þar ýmislegt fram varðandi þró-
un miliilandaflugsins, sérstak-
lega í sambandi við flugleiðirn-
ar um Skotland.
Fyrsta farþegaflugið frá íslandi
Glasgow. Fyrsta áætlunarflugið
til Glasgow var í maí 1955.
Góður árangur
Þegar flugfélagið eignaðist
Viscount-flugvélarnar tvær, Gull
faxa og Hrímfaxa, og tók þær í
notkun, fyrir um það bil hálfu
öðru ári, réði það Einar Helgason
til að veita starfseminni í Glas-
gow forstöðu, en hann stjórnar
einnig hinni nýiu skrifstofu. —
Var þetta gert í þeim tilgangi
að reyna að ná frekari viðskipt-
um á Skotlandsmarkaði, og þá
sérstaklega að tryggja félaginu
farþegaflutninga frá Glasgow til
Skándinavíu. -— Kvað Birgir
Þórhallsson árangurinn af þessu
starfi mjög góðan og betri en bú-
izt hefði verið við í upphafi.
Þakkaði hann það fýrst og fremst
hinum nýju Viscount-vélum, sem
hann kvað hafa reynzt forkunn-
arvel í alla staði. Án þeirra hefði
félagið vart getað lagt út á þessa
braut. Gat hann þess, að á þeim
| rúmlega 18 mánuðum, sem liðn-
Skotland má teljast merkilegtj ir eru frá því að félagið tók Vis-
í flugsögu okkar, því að þar var count-flugvélarnar tvær í notk-
ákvörðunarstaðurinn í fyrsta ' un- hefðu um 40 Þúsund manns
farþegafluginu frá íslandi til út- ferðazf þeim.
landa. Það var hinn 11. júní
1945, að Katalínaflugbátur Flug-
félags íslands (ISP) lenti við
Largs í Skotlandi, eigi allfjarri
Glasgow. Þetta var þó aðeins til-
raun, en leiddi brátt til annars
og meira, því að vorið 1946 hóf
flugfélagið ferðir til Skotlands
með tveim endurbyggðum Lib-
erator-flugvélum, sem leigðar
voru frá „Scottish Airways".
Voru þessar flugvélar siðan í för-
um um það bil tvö ár, eða þar
til flugfélagið eignaðist fyrstu
Skymasterflugvél sína, gamla
Gullfaxa. Siðan, eða frá 1948,
hefur F. I. haldið uppi föstum
áætlunarferðum á þessari leið,
fyrst til Prestwick, en síðan til
Flugfélagið leggur nú mikla
áherzlu á að ná sem mestum
flutningum á leiðinni Glasgow—
Kauþmannahöfn, og virðast horf-
ur mjög góðar i því efni. Eins og
áður hefur verið getið í fréttum,
gerir féiagið ráð fyrir allt að 2
þús. farþegum á þessari leið í
ár (voru um 600 árið 1957), og
vonir standa til, að farþegum
fjölgi enn verulega. Birgir Þór-
hallsson sagði, að hin nýja skrif-
stofa í Glasgow væri eitt merki
þess, hvé ríka áherzlu F. í. legði
á það að ísá fótfestu á þessari
leið, ef svo mætti segja.
Auglýsinga- og kynningar-
starfsemi
Forstöðumenn skrifstofa F. í.
í Glasgow og London, þeir Einar
Helgason og Jóhann Sigurðsson,
lýstu nokkuð fyrir fréttamönn-
unum auglýsinga- og kynningar-
starfsemi þeirri, sem rekin er á
vegum félagsins þar ytra. —
Talsvert er gert að því að aug-
lýsa starfsemi þess í blöðum, og
auk þess birtast alloft kynning-
argreinar um það, bæði í blöðum
og tímaritum. Þá er lögð áherzla
á að hafa sem bezt og nánast
samstarf við ferðaskrifstofur í
landinu. Hefur nú tekizt að fá
birtar ýmsar gagnlegar upplýs-
ingar fyrir ferðamenn í einum 10
ferðaskrifstofúbæklingum, sem
gefnir eru út í milljónum ein-
taka. — í þessu sambandi bárust
sjónvarpsauglýsingar í tal. Jó-
hann Sigurðssoh, fulltrúi F. í. í
London, kvað þær svo dýrar, að
einungis stærstu'fyrirtáeki hefðu
bolmagn til að notfæra sér hið
mikla auglýsingagildi sjónvarps-
ins. Sagði Jóhann, að einnar mín-
átu auglýsing í sjónvarpi kost-
aði allt upp í 1000 sterlingspund!
Mun því verða nokkur bið á þvi,
að Flugfélag Islands sjái sér
fært að nota þetta áhrifamikla
auglýsingatæki. — En félagið
niun halda áfram að kynna starf-
semi sína eftir öðrum 'tiltækum
leiðum á erlendum vettvangi —
og vinna að því að auðvelda ér-
lendum mönnum, eftir föngum,
að ferðast til íslands.
Braathen biður um opin-
bera aðstoð til að jafna
tapið hjá SAFE
ÓSLÓ (Skv. írásögr, Aftenposten). — Flugfélag Björns Braathens,
er nefnist SAFE, hefur nú í fyrsta skipti sótt um opinbera aöstoð
vegna fjárhagsöröugleika. Hefur Braathen skrifaö samgöngumála-
ráðuneýtinu og fer fram á aö fá 1,1 milljón n. kr. beint framlag
tii aö vega upp tapið á þessu ári og í ööru lagi 10 milljón n. kr.
ríbisábyrgð til aö festa kaup á tveimur nýjum farþegaflugvélum.
Flugfélagið SAFE annast flug
á helztu flugleiðum innanlands í
Noregi. En það hefur nú komið
í ljós, áð tapið er mest á tveimur
flugleiðum: Ósló — Álasund og
Stafangur — Björgvin — Ála-
sund —• Niðarós. Á þessum flug-
leiðum hefur hann orðið að nota
Skýmasterflugvélar og eru þær
alltof stórar fyrir þéssar leiðir.
Nemur tapið af rekstrinum á
fyrstu 9 mánuðum þessá árs um
1,3 milljónum króna.
Braathen biður um að ríkið
hlaupi undir baggá og jafni þetta
tap og hjálpi honum einnig með
ríkisábyrgðum til að eignast nýj-
ar flugvélar af hentugri gerð.
Það er ætlun Braathens að
kaupa tvær hollenzkar flugvél-
ar af gerðinni „Fokker Friend-
ship“. í fyrstu ætlaði hann að
kaupa þær upp á eigin spýtur
án ríkisábyrgðar, með því að
selja eldri flugvélar, er hann á.
Nú er flugvélamarkaðurinn hins
vegar svo lélegur, að vonlaust
er að selja eldri flugvélarnar.
Braathen segir í bréfi sínu til
samgöngumálaráðuneytisins, að
ef hann fái ekki stuðning stjórn-
arvaldanna, sjái hann sína sæng
upp reidda. Þá neyðist hann til
að fækka verulega eða leggja
niður flugíerðir á vissum leiðum.
Harmar hann að verða að gefa
þessa yfirlýsingu, ekki sízt með
tilliti til þess mikla fjölda
starfsmanna er vinnur við fyrir-
tæki hans. Bendir hann á það að
við SAFE starfi nú um 400
manns.
Það er tekið fram að taprekst-
ur Braathens sé eingöngu á flug-
félaginu SAFE. Aðstaðan er allt
önnur við rekstur á viðgerðar-
verkstæði Braathens á Sola-
flugvelli, en þar hefur hann með
höndum ýmis verkefni fyrir
norska flugherinn og íslenzka
flugfélagið Loftleiðir.
VIKAi BLAÐIÐ YKKAR
í gleri töfoast fegurð draumsins
Tékkneskur glergerðarmaður hefir skapandi
áhrif á fagurlega gerða muni og með reyndri
hendi leitað og skapað ný listræn form og
gefið handskornum Bæheimsku gleri yfir-
burði, fegurð og frægð.
Athugið hinar fögru nýjungar.
JÓN JÓHANNESSON & CO.
iusturstræti 1 — Reykjavík sími 15821.