Morgunblaðið - 27.11.1958, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 27.11.1958, Qupperneq 12
12 MORCUNBLAÐ1Ð Fimmfudagur 27. nóv. 1958 Utg.: H.f. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason fr Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Öla, sími 33045 Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstraeti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480 Askriftargjald kr 35.00 á mánuð: innaniands. I lausasölu kr. 2.00 eintakið. ÓTRYGGUR ATVINNUGRUND VÖLLUR STJÓRNARLIÐIÐ kemst ekki hjá að viðurkenna, að V-stjórnin hafi svikið meginhlutann af þeim loforðum, sem hún gaf, þegar húii tók við völdum. Eitt færa þeir kumpán- ar sér þó til afsökunar: Að mikil atvinna sé í landinu. Rétt er það, að ekki hefir verið atvinnuleysi hér hin síðari ár. Alþýðublaðið segir m. a. s. með sinúm stærstu stöfum svo í gær: „Mikill hluti fiskiskipaflotans stöðvast, fáist ekki þúsund Fær- eyingar“. Auðvitað er þetta tákn mik- illar atvinnu í landi, en þegar svipað bar við áður en V-stjórn- in hófst til valda, töldu bæði Alþýðublaðið og Þjóðviljinn það merki hinnar mestu óstjórnar. Hannibal Valdimarsson hældi sér og af því á Alþýðusambands- þinginu, að nú væri útlendra sjómanna ekki lengur þörf. Hann lifir í sír.um eigin hug..rheimi. Alþýðublaðið má eiga það, að það er ráðherranum raunsærra og ekki geðjast því þessi þróun: „Brýnasta verkefnið, sem nú blasir við, er að fá fleiri fs- lendinga á fiskiskipaflotann“. ★ Sannleikurinn er sá, að hér hefur í mörg ár verið svo mikil atvinna, að þurft hefur að flytja inn fólk erlendis frá til að vinna ýms störf í landinu, þ. á. m. til að vera á fiskiskipaflotanum. í sjálfu sér þarf það engan veginn að vera þjóðhagslega rangt, að rá5a erlenda menn til að vinna verk fyrir fslendinga. Það fer allt eftir atvikum hverju sinni. Gallinn nú er sá, eins og forseti Sameinaðs Alþingis, for- maður Alþýðuflokksins, Emil Jónsson, sagði í útvarpsumræð- unum 20. október: „Kjarni málsins verður ekki umflúinn: Þjóðin hefur eytt meiru en hún hefur aflað“. Hér er sízt of sterklega að orði kveðið. í þessum sömu umræð- um upplýstist, að frá því að nú- verandi ríkisstjórn tók við völd- um fyrir 2% ári hafa verið tek- in erlend lán að upphæð 618,5 milljónir króna. Er þá þó miðað við gengið, sem var áður en hin dulbúna gengislækkun var gerð með bjargráðunum á sl. vori. Á nær þriggja ára valdatíma stjórnar Ólafs Thors 1953—1956 jukust opinberar skuldir aftur á móti eimmgis um 130 millj. kr. Á þeim árum var þó sízt minna um atvinnu í landinu en nú er. ★ Þrátt fyrir þessar miklu lán- tökur og gjaldeyrinn, sem með þeim hefur fengizt til ráðstöf- unar, sagði Vilhjálmur Þór, að- albankastjóri Seðlabankans í sumar, að ástandið í þeim efn- um væri „ógnarlegt". Og Emil Jónsson dró sizt úr þeim ummæl- um í tilvitnaðri ræðu sinni. Þá sagði hann: „Ástandið í gjaldeyrismálunum er mjög alvarlegt, og er efamál, að nokkur þjóð hafi í þeim efn- um teflt svo tæpt. Nú er góð- æri í framleiðslu, en gjaldeyris- forði er enginn til. Þvert á móti safnast upp skuldir og ábyrgðir. Það er glæfralegt að hugsa til þess, sem gæti gerzt, ef á móti blési. Gjaldeyrisforða verður þjóðin að eignast". í fyrra héldu stjórnarblöðin, einkum Tíminn, því mjög á loft, að örðugleikarnir þá stöfuðu af erfiðu atvinnuárferði. Mjög var meira úr því gert en efni stóðu til, enda lýsti formaður fjár- veitinganefndar Karl Guðjóns- son því yfir, ekki alls fyrir löngu á fundi í Alþingi, að við hefð- um undanfarin ár búið við góð- æri. Emil Jónsson viðurkennir og berum orðum að nú sé „góð- æri í framleiðslu". Einmitt þess vegna telur hana það „glæfra- legt að hugsa til þess, sem gæti gerzt, ef á móti blési“. ★ Hinar gífurlegu lántökur að undanföcnu hafa og engan veginn hrokkið til. Stjórnin hefur að und anförnu haft Vilhjálm Þór í ferð- um víða um lönd til þess að leita enn eftir nýjum stórlánum. Sjálf hefur V-stjórnin að vísu ekki fengizt til þess að gefa neinar fullnægjandi skýrslur um ferða- lög lántökustjórans. En af orðum viðskiptamálaráðherra má draga, að Vilhjálmur hafi leitað eftir láni til byggingar togaranna 15 í Vestur-Þýzkalandi, Hollandi og Belgíu, eftir að alger synjun hafði verið veitt í Bretlandi. Alveg fyrir utan þá lántöku, — ef ’ marka má orð viðskipta- málaráðherra, — leitaði Vilhjálm ur Þór á fund Dullesar, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, og bað hann um hjálp til að útvega íslendingum 6 milljón dollara lán. Sé reiknað með 55% bjarg- ráðaálaginu samsvarar sú upp- hæð nær 160 milljónum króna en með formlegu gengi aðeins 100 milljónum. Ekki hefur enn heyrzt um undirtektir þessara málaleitana, en á Alþingi hefur viðskiptamálaráðherra berum orð um sagt, að ef lánin til togaranna fáist ekki vestan járntjalds vilji hann hiklaust leita austur fyrir. Er ekki ólíklegt, að vestra hafi eitthvað svipað verið gefið í skyn um lántökur almennt. ★ Því að það er ljóst, að án stöð- ugra lánveitinga getur V-stjórn- in ekki lifað. Þrátt fyrir góðær- ið, sem Emil Jónsson og Karl Guðjónsson hafa lýst, hefur at- vinnunni verið haldið uppi sl. 2 ár með sívaxandi og gífurlegri skuldasöfnun, alveg gagnstætt því, sem áður var. Til viðbótar hefur svo komið, að vegna verðbólgunnar keppast menn við að koma fjármunum sínum í eitthvað fast. Yfirlýsing- ar fjármálaráðherra og annarra á sl. vori um að bjargráðin væru einungis bráðabirgðaráðstafanir og meira af svipuðu tagi þyrfti að gera síðar hafa með eðlilegum hætti mjög ýtt undir þá þróun. Hún skapar atvinnu 1 bili en eyk- ur örðugleika efnahagslífsins og dregur úr atvinnumöguleikum í framtíðinni. Atvinnuöryggið í landinu hvílir því miður á veikari grundvelli nú en nokkru sinni fyrr. Eyðslu- lán og hratt vaxandi verðbólga eru þar meginstoðirnar. Einmitt vegna frambúðaratvinnu er því lífsnauðsyn, að breytt sé til og hyggilegir stjórnarhættir upp teknir. Willy Brandt (t. h.) og von Brentano, utanríkisráðherra, heilsast, er sá síðarnefndi kom til V- Berlínar fyrir skömmu. Vestur-Berlín vekur verjum vonir um A.-Þjóð- frelsi0 segir Willy Brandt, sem nýtur si- vaxandi vinsælda sem borgarstjóri VANDRÆÐAÁSTAND það og deilur, sem nú hafa enn á ný komið upp milli vesturveldanna og Rússa út af Berlín, hafa orðið til þess, að borgarstjóra Vestur- Berlínar, hins hvatlega Willy Brandts, er nú mjög títt getið í heimsfréttunum. Brandt hefur tekið upp harða og einarða baráttu til þess að bjarga borginni frá því að verða kommúnismanum að bráð. Hefur hann unnið sér fyllsta traust borgarbúa og nýtur nú engu minni virðingar en Ernst heitinn Reuter, en hann var borgarstjóri Vestur-Berlínar, þegar „loftbrú- in“ fræga stóð, 1948—’49 — og varð þá afar vinsæll. ★ Þegar Willy Brandt var kjör- inn til að taka við borgarstjóra- embættinu eftir Otto Suhr, hinn 3. október 1957, sagði hann m. a. í ávarpi til Berlínarbúa: „Ég mun reyna að leggja fram alla krafta mína — hvern dag og hverja stund — í baráttunni fyrir frelsi borgarinnar okkar.“ Hann hef- ur líka axlað hina þungu byrði af æðruleysi og einbeitni, sem vekur aðdáun. Og hæglátt fas mannsins gefur á engan hátt til kynna þá áreynslu, sem það hlýt- ur að kosta að halda Berlín „á floti“ í miðju vaxandi hafróti kommúnismans, ef svo mætti að orði komast. Undanfarinn hálfan mánuð má segja, að Brandt hafi vart unnt sér nokkurrar hvíldar. Hann hef- ur setið fjölmarga fundi og ráð- stefnur á svo að segja öllum tím- um sólarhringsins. Og hann hef- ur ávarpað samborgara sína nær því daglega og hvatt þá til að sýna einbeitni, viljaþrek og still- ingu í þeim örðugleikum og ó- vissu, sem nú steðja að. ★ Nú stendur svo á, að borgar- stjórakosningar eiga að fara fram í Berlín 7. desember nk. — Þá munu íbúar V.-Berlínar velja á milli þeirra Willy Brandts og hins áhrifamikla andstæðings hans, Ernst Lemmers, frambjóðanda kristilegra demokrata. — Kosn- ingabaráttan er þegar hafin fyrir nokkru — og má því segja, að Brandt verði nú um sinn að berj- ast á tvennum vígstöðvum. Það er hins vegar talið, að híð alvarlega ástand, sem nú hefur skapaz' í málum Berlínar, hafi orðið til þess að styrkja aðstöðu hans í borgarstjórakosningunum.— Blöð Austur-Þýzkalands linna ekki hatrömmum árásum á hann og birta daglega afskræmdar skrípa myndir af honum, en það virðist aðeins hafa aukið vinsældir hans í Vestur-Berlín. Þar má nú víða sjá áróðursspjöld með mynd af Brandt og áletrunum eins og: „Berlín greiðir atkvæði með Brandt". — Það er eftirtektarvert í þessu sambandi, að á spjöldum þessum er yfirleitt alls ekki minnzt á flokk hans, Jafnaðar- mannaflokkinn. Virðist svo sem fremur sé treyst á persónulegar vinsældir hans en fylgi flokks- ins, þegar til kosninga kemur. Margir stjórnmálafréttaritarar telja allar líkur benda fil þess, að Brandt verði endurkjörinn í borgarstjóraembættið — en borg- arstjórastaðan í Vestur-Berlín er yfirleitt talin eins konar „stökk- bretti“ til hinna æðstu metorða í stjórnmálum Vestur-Þýzka- lands. Brandt, sem er hinn vörpu- legasti í útliti, er viðurkenndur góður ræðumaður — glöggur og gagnorður, og kryddar gjarna mál sitt með léttri kímni. ★ Willy Brandt er tæplega 45 ára gamall, fæddur í Lúbeck (nú í A. Þýzkalandi) 18. desember, árið 1913. Nafn það, sem hann ber nú, er ekki hið upprunalega skírn arnafn hans. Hann var skírður Herbert Frahm, en tók sér nafnið Willy Brandt að lögum eftir síð- ari heimsstyrjöldina. Hann er kunnur fyrir andstóðu sína við nazista fyrr og síðar. Þegar hann var 17 ára, var hon- um stefpt fyrir dóm, sakaður um að hafa sært einn af skósveinum nazista. Ekki fengust þó nægar sannanir gegn honum í máli þessu, og var það því látið nið- ur falla. En þrem árum síðar, eða 1933, lenti hann í frekari árekstr um við þjóna Hitlers og flúði af þeim sökum til Noregs. Þrem árum síðar kom hann þó aftur til Berlínar, sem norskur stúdent. Samhliða námi sínu, lagði hann sig enn á ný mjög fram í bar- áttunni gegn nazistum, hvenær og hvar sem hann gat því við komið. En þegar heimsstyrjöld- in síðari brauzt út, fluttist hann á nýjan leik til Noregs. Eftir að Þjóðverjar gerðu inn- rásina í Noreg, tók Brandt virkan þátt í mannúðar- og líknarstörf- um meðal norsku frelsisvinanna. Var hann þá handtekinn af Þjóð- verjum og sat í haldi um skeið — en ekki komust þó Gestapó- mennirnir að því, hver hann raun verulega var. Skömmu síðar neyddist hann til að flýja til Sví- þjóðar. Þar starfaði hann um nokkurt skeið sem blaðamaður. Vegna starfa sinna áð líknar- málum í Noregi á hernámsárun- um, var Brandt veittur norskur ríkisborgararéttur að styrjöldinni lokinni. Og árið 1946 kom hann enn til Berlínar — nú sem blaða- fulltrúi norsku ríkisstjórnarinnar. Hann kvæntist norskri stúlku, og er hún talin einhver glæsilegasta konan „í stjórnmálalífinu" í Vest ur-Berlín. Þau hjónin eiga tvö börn. Nokkru eftir að Willy Brandt sneri aftur til Þýzkalands, að styrjöldinni lokinni, fékk hann á ný þýzkan ríkisborgararétt og gerðist brátt atkvæðamaður í Jafnaðarmannaflokknum í Vest- ur-Berlín. ★ Borgarstjórinn hefur ákveðnar hugmyndir um hlutverk Vestur- Berlínar í Þýzkalandsmálunum. Hann lítur á Berlín sem hina einu, sönnu höfuðborg landsins — sem „lifandi brú“ milli Austur- og Vestur-Þýzkalands, eins og hann kemst að orði. Enda þótt hann viðurkenni, að sameining Þýzkalands virðist ekki tímabær enn sem komið er, þá er það samt sem áður sannfæring hans, að Berlín sé og eigi að vera sífersk uppspretta vona um frelsi og sam einingu fyrir íbúa Austur-Þýzka- lands. Hin blikandi Ijós Vestur- Berlínar eru, að hans áliti, tákn, sem léttir 18 milljónum Austur- Þjóðverja hina löngu bið eftir sameiningu Þýzkalands. Brandt fer oft til Bonn til þess að minna hina ráðandi menn þar á þá staðreynd, að Berlínarbúar, 2Vi milljón manna, eru í fremstu víglínu kalda stríðsins. — Aðalat riðið er að halda vöku sinni, segir borgarstjórinn. Að gera sér að góðu ástandið eins og það hef- ur verið, er hættulegast af öllu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.